Morgunblaðið - 02.10.2005, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 02.10.2005, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 2005 51 DAGBÓK Október tónleikar SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS rauð tónleikaröð í háskólabíói FIMMTUDAGINN 27. OKTÓBER KL. 19.30 Hljómsveitarstjóri ::: Rumon Gamba Einsöngvari ::: Barbara Bonney Mark-Anthony Turnage ::: Scherzoid Edvard Grieg ::: Söngvar: Fra Monte Pincio, Solveigs sang, Solveigs vuggevise, En svane og Våren Johannes Brahms ::: Sinfónía nr. 4 Tónleikaúrval Sinfóníuhljómsveitarinnar í október er, sem endranær, fjölbreytt og spennandi. Hvað má bjóða þér? Á þessum tónleikum gefst þér kostur á að hlýða á söng Barböru Bonney en fáar söngkonur eru jafn- fjölhæfar og sópransöngkonan heimsþekkta. rauð tónleikaröð í háskólabíói FIMMTUDAGINN 6. OKTÓBER KL. 19.30 Hljómsveitarstjóri ::: Eivind Aadland Einleikari ::: Håvard Gimse Rolf Wallin ::: Act Edvard Grieg ::: Píanókonsert í a-moll Ludwig van Beethoven ::: Sinfónía nr. 7 Brot af því besta frá frændum okkar Norðmönnum í bland við hina léttleikandi 7. sinfóníu Beethovens. Stórfenglegur píanókonsert Griegs, hraði og kraftur Wallins og „fullkomnun dansins,“ eins og Wagner lýsti 7. sinfóníu Beethovens. kvikmyndatónleikar í háskólabíói MIÐVIKUDAGINN 12. OKTÓBER KL. 19.30 Hljómsveitarstjóri ::: Frank Strobel Alfred Hitchcock ::: Leigjandinn Tónlist eftir Ashley Irwin Leigjandinn eftir meistara Hitchcock og ískyggileg tónlist Emmy-verðlaunahafans Ashley Irwin. tónsprotinn í háskólabíói LAUGARDAGINN 8. OKTÓBER KL. 16.00 Hljómsveitarstjóri ::: Frank Strobel Charlie Chaplin ::: Borgarljós Borgarljós Chaplins er óborganleg skemmtun. Tryggðu þér miða í tíma. Athugið að áður auglýstir tónleikar 20. október í gulu röðinni verða 10. nóvember. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Frá íbúa í Reykjavík NOKKUR orð varðandi flugvöllinn í Vatnsmýrinni. Í mínum augum og margra annarra snýst þetta ekki um verðmætt byggingarland heldur þá staðreynd hvað flug alls konar smá- rellna yfir borgarlandinu er til mik- ils ama. Þetta eru hávaðasamar rell- ur; eins og fljúgandi Trabantar með engan hljóðkút. Þær menga loft- helgina hvar sem maður er; hvort sem er heima hjá sér (í Árbæj- arhverfi í mínu tilfelli) eða á útivist- arsvæðum borgarinnar. Fyrir utan hvað þetta er hallærislegt að hafa þetta svona. Þetta mun ekki breytast þó flug- völlurinn verði fluttur út á sjó á Löngusker – hann þarf burt úr borgarlandinu. Fólk í dag er þreytt og pirrað; það eru börnin og vinnan og allt áreitið og svo bætist smá- rellupestin við. Ég hef séð fólk í Vesturbæ, Miðbæ og Árbæjarhverfi horfa dauðum augum á þessi há- vaðasömu skrípi fljúga yfir. Sumir myndu sjálfsagt skjóta einhverjar niður ef þeir hefðu tök á því. Ég er viss um að háskólafólk eins og Gísli Marteinn er löngu búið að fá nóg af að hlusta á þessar skrípatóls- rellur þegar það er við nám og störf á HÍ-svæðinu – allavega er ég fyrir löngu, löngu búin að fá nóg. Burt með skrambans flugvöllinn og sem fyrst (hann er á ábyrgð Sjálfstæð- isflokks fyrst og fremst). Bönnum svo allt flug smárellna yfir borg- arlandinu nema í neyðartilvikum. Enn ein ástæðan til að flytja flug- völlinn burt er uppbygging hafn- arsvæðisins. Það verður gaman eða hitt þó heldur að vera í tónlistarhús- inu og hlusta á skrambans hálofta- skellinöðrurnar silast yfir húsinu! Kveðja, Einar. Framandi menning ÉG hlustaði nýlega á útvarpsviðtal á DD2, þar sem rætt var við músl- ímska konu. Þar talaði hún um starf sitt, en hún fer á milli skóla og kynn- ir framandi menningu. Hún var að tala um að það þyrfti að sýna al- mennt umburðarlyndi vegna menn- ingar innflytjenda. En það er ým- islegt sem mér finnst ekki hægt að sýna umburðarlyndi gegn, eins og t.d. umskurður á ungum stúlkum – hann er ekki hægt að líða. Finnst mér að innflytjendur sem setjast að á Íslandi verði að sæta því að stúlku- börn þeirra verði ekki umskorin. Ásgeir. Morgunblaðið/Golli 1. d4 e6 2. Rf3 d5 3. c4 c6 4. Dc2 Rf6 5. g3 Bb4+ 6. Rbd2 0–0 7. Bg2 b6 8. 0–0 Bb7 9. e4 Bxd2 10. Rxd2 dxe4 11. Rxe4 Rxe4 12. Bxe4 h6 13. Bf4 Dxd4 14. Had1 Df6 15. De2 Kh8 16. Dh5 Ra6 17. h4 Kg8 18. Be5 De7 19. Bd6 Df6 20. b4 Hfe8 21. b5 Rb8 22. Hd3 e5 Staðan kom upp í Evrópukeppni taflfélaga sem lauk fyrir skömmu í St. Vincent í Ítalíu. Hannes Hlífar Stefánsson (2.579) hafði hvítt gegn Charles Cobb (2.405). 23. Bxe5! De6 23. … Hxe5 gekk ekki upp vegna 24. Dxe5 Dxe5 25. Hd8+ og hvítur mát- ar í næsta leik. 24. Hd6! De7 25. Hxh6! og svartur gafst upp þar sem eftir 25. …gxh6 mátar hvítur eftir 26. Dg4+. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Hvítur á leik. Bjartsýni. Norður ♠95 ♥75 A/Allir ♦KD10654 ♣842 Suður ♠ÁK83 ♥ÁK42 ♦82 ♣ÁKG Vestur Norður Austur Suður – – Pass 2 grönd Pass 3 grönd Pass Pass Pass Útspil: Hjartadrottning. Hvernig á suður að spila? Vissulega væri betra að spila fimm tígla, en leiðin þangað er ekki aug- ljós – alltént er ótímabært að pæla í sögnum þegar við blasir að gera sitt besta í úrspilinu. Vandinn er innkomuleysi blinds. Einn slagur á tígul og vel heppnuð laufsvíning skilar ekki nema átta slögum. Sem þýðir að suður verður að setja upp bjartsýnisgleraugun og gera ráð fyrir mjög hagstæðri tíg- ullegu. Norður ♠95 ♥75 ♦KD10654 ♣842 Vestur Austur ♠D10 ♠G7642 ♥DG103 ♥986 ♦G973 ♦Á ♣D93 ♣10765 Suður ♠ÁK83 ♥ÁK42 ♦82 ♣ÁKG Ekkert nema blankur tígulás get- ur bjargað þessum samningi. Suður tekur því fyrsta slaginn, spilar tígli og setur lítið úr borði! Þetta er eini möguleikinn til vinn- ings og það væri hugleysi að gera ekki tilraun til að vinna spilið. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is Árnaðheilla dagbók@mbl.is Brúðkaup | Gefin voru saman 12. ágúst sl. hjá Sýslumanni í Reykjavík þau Karen og Joe Rowan. Þau eru bú- sett í Bretlandi. Ljósmynd: Ljósmyndaver Hörpu Hrundar Brúðkaup | Gefin voru saman 13. ágúst sl. í Eyrarbakkakirkju af sr. Úlf- ari Guðmundsyni þau Guðrún Helga Elvarsdóttir og Árni Víðir Hjart- arson. Ljósmynd: Ljósmyndaver Hörpu Hrundar BLÁSARASVEIT Reykjavíkur mun halda tónleika í Salnum, Kópavogi, í kvöld kl. 20 Á efnis- skránni að þessu sinni ber hæst flutninginn á Das Berliner Re- quiem eftir þá Kurt Weill og Bert- hold Brecht og flutning á selló- konsert eftir Jaques Ibert, en hvorugt þessara verka hefur áður verið flutt hér á landi, svo vitað sé. Einsöngvarar í sálumessu Weill eru þeir Jóhann Friðgeir Valdi- marsson, tenór, Benedikt Ingólfs- son, baritón og Davíð Ólafsson, bassi. Einleikari í sellókonsert Iberts er Sigurgeir Agnarsson. Á tónleik- unum verður einnig flutt lítil sin- fónía eftir Milhaud og svíta úr óp- erunni um góða dátann Svejk, eftir bandaríska tónskáldið Robert Kurka, en hann lést ungur að árum skömmu fyrir flutninginn á þessari skemmtilegu óperu. Blásarasveit Reykjavíkur var stofnuð árið 1999 og hefur einbeitt sér að því að flytja nýja og eldri blásaratónlist og jafnframt að stuðla að nýsköp- un á þessu sviði tónbókmennta og hefur sveitin frumflutt fjölda verka sem samin hafa verið gagngert fyrir hana. Stjórnandi á tónleik- unum er Kjartan Óskarsson, en hann hefur verið listrænn stjórn- andi sveitarinnar frá upphafi. Blásarasveitin í Salnum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.