Morgunblaðið - 07.10.2005, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
BANNAR PYNTINGAR
Öldungadeild Bandaríkjaþings
hefur samþykkt að banna banda-
rískum hermönnum að pynta og nið-
urlægja fanga. Hugsanlegt er að
Bandaríkjaforseti beiti neitunar-
valdi sínu gegn samþykktinni.
Hryðjuverkum afstýrt
George W. Bush, forseti Banda-
ríkjanna, sagði í gær að þarlendum
yfirvöldum og bandamönnum þeirra
hefði tekist að afstýra að minnsta
kosti tíu alvarlegum hryðjuverkum í
heiminum frá 11. september 2001.
Bush sagði að yfirvöld hefðu hindrað
þrjú „alvarleg samsæri al-Qaeda“
um hryðjuverk í Bandaríkjunum og
talsmaður hans sagði síðar að stjórn
landsins hefði áður skýrt frá tveimur
þeirra.
Starfsemi hefst að nýju
Flest bendir til þess að starfsemi
á athafnasvæði Slippstöðvarinnar á
Akureyri, sem lýst var gjaldþrota í
byrjun vikunnar, hefjist að nýju eftir
helgi. Ráðgert er að hefja starfsem-
ina á ný með fáum starfsmönnum en
fjölga þeim jafnt og þétt á næstu
dögum.
Fyrirtækið fórnarlamb
Jóhannes B. Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Skúlason, segist hafa
komist að ýmsu sem hann vissi ekki
áður en rannsókn á fyrirtæki hans,
Skúlason, hófst og telur fyrirtækið
vera fórnarlamb undarlegra að-
stæðna.
Kjaramál rædd á ársfundi
Kristján Gunnarsson, formaður
Starfsgreinasambands Íslands, seg-
ir sambandið vera tilbúið til að
sækja það sem því ber með öllum
þeim aðgerðum sem tiltækar eru.
Y f i r l i t
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Í dag
Fréttaskýring 8 Viðhorf 38
Viðskipti 16 Forystugrein 34
Erlent 18/19 Minningar 40/49
Minn staður 20 Myndasögur 54
Landið 21 Dagbók 54/56
Höfuðborgin 22 Velvakandi 54
Akureyri 22 Staður og stund 56
Austurland 23 Af listum 30
Suðurnes 23 Leikhús 58
Menning 30 Bíó 62/65
Af listum 30 Ljósvakamiðlar 66
Umræðan 31/39 Veður 67
Bréf 39 Staksteinar 67
* * *
LISTASAFNIÐ á Akureyri hefur
haft forgöngu um að stofnað verði til
hinna Íslensku sjónlistaverðlauna í
samstarfi við Akureyrarbæ,
mennta- og menningarmálaráðu-
neytið, iðnaðar- og viðskiptaráðu-
neytið, Samband íslenskra myndlist-
armanna, Form Ísland, samtök
hönnuða og valda kostunaraðila.
„Ég átti mér draum,“ sagði Hann-
es Sigurðsson forstöðumaður Lista-
safnsins á Akureyri þegar hann
kynnti hugmynd sínu að Íslensku
sjónlistaverðlaununum á Listasafn-
inu á Akureyri í gær. „Mér fannst
ástæða til að efna árlega til
uppskeruhátíðar myndlistarmanna.“
Hann kvaðst hafa nefnt þessa
hugmynd við menntamálaráðherra,
Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur,
við opnun á Listasafni Sigurjóns
Ólafssonar á dögunum. „Frábært,
sagði hún þegar ég var bara búinn
með þrjár setningar.“ Hannes sagði
að verðlaunin yrðu afhent í fyrsta
sinn næsta haust, 2006.
Uppskeruhátíð myndlistarmanna árlega á Akureyri
Íslensk sjónlistaverðlaun að
frumkvæði Listasafnsins
Morgunblaðið/Kristján
Fulltrúar þeirra sem standa að nýrri verðlaunaafhendingu í sjónlistum.
Fremri röð f.v. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra, Hannes Sigurðs-
son, forstöðumaður Listasafns Akureyrar, og Kristján Þór Júlíusson bæj-
arstjóri. Aftari röð f.v. Áslaug Thorlacius, formaður Sambands íslenskra
myndlistarmanna, Karl Hjartarson, formaður Form Ísland – samtaka
hönnuða, Páll Magnússon útvarpsstjóri og Sigrún Björk Jakobsdóttir, for-
maður menningarmálanefndar Akureyrarbæjar.
Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur
maggath@mbl.is
HÆSTIRÉTTUR ómerkti í gær
sýknudóm yfir karlmanni sem ákærð-
ur var fyrir tilraun til manndráps með
því að skera leigubílstjóra á háls í júlí
2004. Héraðsdómur Reykjavíkur
mun því fá málið aftur til aðalmeð-
ferðar og dómsálagningar að nýju.
Leigubílstjórinn hlaut 18 cm lang-
an skurð á hálsi þegar hann sat við op-
inn glugga í bílstjórasæti sínu og var
að bíða eftir borgun frá farþega sín-
um. Fjölskipaður dómur héraðsdóms
klofnaði í afstöðu sinni til málsins en
meirihluti dómsins sýknaði ákærða
þar sem enginn hefði séð hver veitti
brotaþola áverkann auk þess sem
annmarkar voru taldir vera á rann-
sókn lögreglu á málinu. Hæstarétti
fannst skorta á að tekin hefði verið
skýr afstaða til trúverðugleika vitna-
skýrslu leigubílstjórans en hann hafði
afdráttarlaust borið fyrir dómi að
ákærði hefði veitt honum áverkann.
Sá framburður hafði jafnframt fengið
stuðning í vætti annars vitnis sem sat
í farþegasæti bílsins. Þá féllst Hæsti-
réttur ekki á það að ákveðnir þættir í
rannsókn málsins gæfu tilefni til að
álykta að hún hefði verið haldin ann-
mörkum. Þótti óhjákvæmilegt að
ómerkja dóminn og heimvísa málinu.
Málið dæmdu Markús Sigur-
björnsson, Gunnlaugur Claessen,
Hrafn Bragason, Ingibjörg Bene-
diktsdóttir og Jón Steinar Gunn-
laugsson. Verjandi var Hilmar Ingi-
mundarson hrl. og sækjandi Kolbrún
Sævarsdóttir frá ríkissaksóknara
Sýknudómur í
alvarlegu árásar-
máli ómerktur
Á FUNDI sveitarstjórnar Skaga-
fjarðar í gær var á dagskrá tillaga
frá Gísla Gunnarssyni forseta sveit-
arstjórnar um uppsögn Ársæls
Guðmundssonar, fulltrúa VG, úr
starfi sveitarstjóra. Óskaði sveit-
arstjóri eftir því að fá að taka til
máls. Lýsti hann yfir að hann
myndi víkja af fundi og varamaður
taka sæti, þar sem fjallað væri um
starf hans. Þá lýsti hann því að til
deilna hefði komið eftir að sveit-
arstjórn hafnaði beiðni hans um
fararleyfi til námsferðar til Brussel
og stór orð fallið bæði af sinni
hálfu, svo og af hálfu forseta sveit-
arstjórnar. Óskaði Ársæll eftir að
bókað yrði að hann drægi til baka
öll ummæli sín og bæðist afsökunar
á þeim orðum sem fallið hefðu.
Gísli óskaði þá eftir fundarhléi en
að því loknu lagði hann fram bókun
fulltrúa Sjálfstæðisflokks þar sem
segir að vegna þess að sveitarstjóri
hafi dregið ummæli sín til baka og
einnig að annar aðalfulltrúi VG sé
erlendis og ekki á fundinum sé lagt
til að þessum dagskrárlið verði
frestað. Tillagan var samþykkt með
atkvæðum meirihlutans.
Dró ummæli
til baka og baðst
afsökunar
VERKFALL skellur á hjá starfs-
mönnum Akraneskaupstaðar á mið-
nætti á sunnudagskvöld, hafi samn-
ingar ekki tekist fyrir þann tíma.
Kjarasamningur Starfsmannafélags
Akraness við launanefnd sveitarfé-
laga var kolfelldur í atkvæða-
greiðslu, sem lauk á miðvikudag. Af
235 manns á kjörskrá greiddu 176
starfsmenn atkvæði. Þar af höfnuðu
124 samningnum, eða 70%, og já
sögðu 52 starfsmenn.
Trúnaðarmenn á vinnustöðum
bæjarfélagsins hafa fundað með sínu
fólki og munu koma saman til fundar
í dag. Valdimar Þorvaldsson, for-
maður starfsmannafélagsins, segir
að í kjölfar þess fundar verði vænt-
anlega óskað eftir fundi með við-
semjendum. Félagið sé reiðubúið í
viðræður yfir alla helgina, ef það
megi verða til að leysa deiluna.
Spurður um skýringu á afdráttar-
lausri niðurstöðu atkvæðagreiðslu
segist Valdimar telja að mest af
óánægju félagsmanna sé vegna
starfsmats og launatengingar við
það. Einnig hafi verið illa staðið að
kynningu á niðurstöðum starfsmats.
Valdimar bendir á að önnur launa-
tenging hafi verið tekin upp hjá
Reykjavíkurborg en almennt á
landsbyggðinni. Við gerð starfs-
matsins hafi ekki verið horft til að-
stæðna á hverjum stað fyrir sig.
Starfsmatið hafi komið illa út fyrir
stóra hópa fólks, t.d. skrifstofufólk.
Þjónusta bæjarins getur
farið verulega úr skorðum
Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akra-
nesi, segir að niðurstaða atkvæða-
greiðslunnar séu mikil vonbrigði.
Bæjarfélagið hafi ásamt launanefnd
lagt sig nokkuð fram við að ná kjara-
samningum.
„Við gerum okkur samt grein fyrir
því að undirliggjandi er óánægja
með starfsmatið, sem varðar að litlu
leyti efni kjarasamnings sem slíks.
Við höfum skilning á að menn vilji
berjast fyrir sínum kjörum en von-
um að okkur takist að lenda málinu
með viðunandi hætti fyrir sunnu-
dagskvöld,“ segir Gísli en telur verk-
fallsógnina þrengja samningastöð-
una. Lítill tími sé til viðræðna um
helgina.
Komi til verkfalls segir Gísli að
stór hluti þjónustu bæjarins muni
fara verulega úr skorðum, einkum í
grunnskólum, leikskólum og íþrótta-
mannvirkjum. Hins vegar muni
starfsemin á dvalarheimilinu haldast
óbreytt þar sem starfsmenn þar séu
á undanþágu frá verkfalli.
Starfsmannafélag Akraness kolfelldi kjarasamning
Verkfall skellur á verði
ekki samið um helgina
FYRRI hluti Íslandsmóts skákfélaga
hefst í Menntaskólanum við Hamra-
hlíð kl. 20 í kvöld en mótinu lýkur á
sunnudag. Keppnin er nú haldin í 32.
skipti en hún er einn stærsti við-
burður ársins hjá íslenskri skák-
hreyfingu.
Metþátttaka er í mótinu í ár og
keppt verður í fjórum deildum. Öll
helstu skákfélög landsins mæta til
leiks og verða því á meðal keppenda
flestir þekktustu skákmenn Íslands.
Þar má helst nefna Hannes Hlífar
Stefánsson, Friðrik Ólafsson og Jó-
hann Hjartarson en hátt á fjórða
hundrað skákmenn taka þátt að
þessu sinni. Áhorfendur eru hvattir
til að mæta en aðgangur er ókeypis.
Morgunblaðið/Ómar
Hannes Hlífar og Ingvar munu
án efa verða í eldlínunni á Íslands-
móti skákfélaga.
Metþátttaka
í Íslandsmóti