Morgunblaðið - 07.10.2005, Side 16
16 FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÞÚSUNDIR starfa eru í uppnámi
í sjávarútvegi við viðvarandi að-
stæður í efnahagsmálum. Þetta er
mat Útvegsmannafélags Norður-
lands og kemur fram í ályktun að-
alfundar þess. Þar segir að gengi
krónunnar sé allt of hátt og mun
hærra en útflutningsgreinarnar
geti búið við. Þessi þróun leiði til
þess að afkoma fyrirtækja í sjáv-
arútvegi sé óviðunandi, fyrirtækin
í taprekstri og eigið fé þeirra glat-
ast verði haldið áfram á sömu
braut. „Þessi staða leiðir til þess
að störfum í greininni mun fækka
og vari þetta ástand áfram eru
þúsundir starfa í uppnámi,“ segir í
ályktuninni. Þar segir jafnframt að
sjávarútvegurinn hafi þegar hag-
rætt mjög mikið í sínum rekstri en
því séu takmörk sett hvað hægt er
að ganga langt á þeirri braut.
Haggræðing ein og sér vegi upp
þá óhagstæðu þróun sem nú er í
gengismálum, samfara ört hækk-
andi tilkostnaði. „Á sama tíma og
allt of hátt gengi er að sliga út-
flutningsgreinarnar hefur olíuverð
hækkað gríðarlega milli ára, sem
þegar hefur leitt til þess að óhag-
kvæmt er að veiða tegundir sem
eru háðar mikilli olíunotkun,“ seg-
ir í ályktun Útvegsmannafélags
Norðurlands.
Þúsundir starfa
í uppnámi AUÐLINDADEILD Háskólans áAkureyri stendur yfir málþingi um
hafrannóknir laugardaginn 8. októ-
ber nk. kl. 12:30. Yfirskrift mál-
þingsins er „Hafrannsóknir – erum
við á réttri leið?“ Meðal frummæl-
enda eru Einar K. Guðfinnsson
sjávarútvegsráðherra, Jóhann Sig-
urjónsson, forstjóri Hafrann-
sóknastofnunar, Björn Gunnarsson,
deildarforseti auðlindadeilar HA,
Friðrik Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna, og Peter
Weiss, forstöðumaður háskólaset-
urs Vestfjarða.
Að loknum erindum fara fram
pallborðsumræður. Málþingið fer
fram í stofu R311 á Borgum, rann-
sókna- og nýsköpunarhúsi HA.
Erum við á
réttri leið?
ÚR VERINU
SÆNSKA viðskiptatímaritið Veck-
ans Affärer bregður upp svipmynd
af Björgólfi Thor Björgólfssyni í
nýjasta tölublaði sínu en Björg-
ólfur Thor hefur á undanförnum
misserum vakið mikla athygli í Sví-
þjóð, þá helst fyrir fjárfestingar
Burðaráss í fjármálafyrirtækinu
Carnegie og tryggingafélaginu
Skandia.
Viðtalið hefst á stuttri frásögn
Björgólfs Thors af því þegar faðir
hans var sóttur af lögreglunni sum-
arið 1986 vegna Hafskipsmálsins.
Björgólfur Thor segir það hafa
haft mikil áhrif á feril hans því
þarna varð honum ljóst að hann
gæti ekki svifið í gegnum lífið án
þess að hafa fyrir því.
Næst er fjallað um „Rússlands-
ævintýri“ þeirra feðga og sam-
starfsmanns þeirra Magnúsar Þor-
steinssonar en þar segir að
starfsemi þeirra í Rússlandi hafi
lagt grunninn að því veldi sem í
dag er kennt við Björgólfsfeðga.
En lausafjárstaðan var ekki góð í
upphafi og segir Björgólfur Thor
að þeir hafi þurft á aðstoð ýmissa
aðila að halda til þess að geta hafið
rekstur gosverksmiðju sinnar í
Sankti Pétursborg.
Gosverksmiðjan var svo seld til
Pepsi í Póllandi og fyrir söluhagn-
aðinn stofnuðu þeir bjórverksmiðj-
una Bravo sem síðar var seld á ríf-
lega 300 milljónir dollara árið 2002.
Á síðustu mánuðum hafa þeir
Björgólfur, Björgólfur Thor og
Magnús verið sakaðir um samkrull
við mafíuna rússnesku og svarar
Björgólfur Thor spurningum VA
um þær ásakanir. Hann segir að
vissulega hafi þeir fengið ýmis til-
boð frá mafíunni en jafnframt að
þeir hafi varað sig á að taka þeim
ekki og ráðið í sína þjónustu ör-
yggisþjónustu og að verksmiðjunn-
ar hafi verið gætt af 20 vopnuðum
vörðum.
„Þegar ég fór til Rússlands hélt
ég að ég yrði þar í hálft ár en þau
urðu níu. Þetta jafngilti því að taka
þrjár meistaragráður og eina dokt-
orsgráðu. Þetta var ótrúlega góður
skóli í hagfræði, viðskiptum og fé-
lagsfræði,“ segir Björgólfur Thor.
Einnig er fjallað um kaup þeirra
á Landsbanka Íslands, Eimskipa-
félaginu og fjárfestingu þeirra í
Straumi. Þegar Björgólfur Thor er
spurður um kaup Straums á hluta-
bréfum í Íslandsbanka segir hann
að engin barátta hafi átt sér stað
um völdin í bankanum. „Ef við
hefðum átt í baráttu heldurðu að
við hefðum ekki unnið hana? Þetta
er eingöngu stöðutaka. … Ef ég
fer í bardaga fer ég með það hug-
arfar að vinna,“ segir hann.
Mikið hefur verið fjallað um út-
rás íslenskra fyrirtækja, bæði hér
á landi og annars staðar. Björg-
ólfur Thor hefur verið meðal for-
ystumanna í þeirri útrás. „Ég vil
frekar vera lítill fiskur í stórri
tjörn en stór fiskur í lítilli tjörn,“
segir hann.
Frekar lítill fiskur í stórri tjörn
Stöðutaka Björgólfur Thor segir
kaup á bréfum Íslandsbanka aðeins
stöðutöku.
● ÞEIR Örn Andrésson og Hrafn
Magnússon voru kjörnir í stjórn fjár-
festingarfélagsins Atorku Group á
hluthafafundi félagsins sem haldinn
var í gær. Þeir koma í stað þeirra Að-
alsteins Karlssonar og Lárusar Blön-
dal sem sögðu sig úr stjórninni í kjöl-
far þess að hafa selt hlutafé sitt í
félaginu í byrjun septembermánaðar.
Ennfremur samþykkti hluthafafund-
urinn að heimila stjórn félagsins að
hækka hlutafé um allt að 600 millj-
ónir króna að nafnvirði og gildir heim-
ildin fram að næsta aðalfundi en þó
aldrei lengur en til 1. maí á næsta ári.
Nýir í stjórn Atorku
FARÞEGUM sem fóru um Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar (FLE)
fjölgaði um 18% í september mið-
að við sama tíma í fyrra. Fjöldinn
var 165 þúsund í ár samanborið
við 140 þúsund í september 2004.
Frá þessu er greint á heimasíðu
FLE á Netinu.
Fjölgun farþega til og frá Ís-
landi nemur um 19% milli ára og
farþegum sem millilenda hér á
landi á leið yfir Norður-Atlants-
hafið fjölgaði um tæp 15%.
Alls hefur farþegum um Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar fjölgað um
11% það sem af er árinu miðað
við sama tíma árið 2004, eða úr
rúmlega 1.307 þúsund farþegum í
rétt tæplega 1.451 þúsund far-
þega.
Fjölgun farþega sem fara um FLE
Morgunblaðið/Billi
Fleiri ferðast Það sem af er árinu hefur farþegum um Flugstöð Leifs Ei-
ríkssonar fjölgað um 11% og fóru á síðasta ári um 1,45 milljónir um hana.
LANDSBANKINN hefur nú
lokið útgáfu skuldabréfaútgáfu
þeirri sem greint var frá í
Morgunblaðinu síðastliðinn
þriðjudag. Verðmæti útgáf-
unnar var einn milljarður
evra, sem jafngildir ríflega 73
milljörðum króna.
Í fréttatilkynningu frá
Landsbankanum segir að um
sé að ræða stærstu einstöku
lántöku bankans til þessa en
auk þess hafi enginn íslenskur
aðili tekið stærra lán. Alls
tóku yfir 240 fjárfestar frá 23
löndum þátt í útgáfunni en
með lántökunni „hefur endur-
greiðsluferill lána lengst veru-
lega og vægi langtímalána í
heildarfjármögnun bankans
hækkað,“ segir í tilkynning-
unni.
Landsbankinn hefur einnig
tekið sambankalán til fimm
ára að fjárhæð 240 milljónir
evra, samsvarandi 17,5 millj-
örðum króna en tilgangur
lánsins er að „vera varalán-
tökulína fyrir langtímalántök-
ur Landsbankans“.
Í fréttatilkynningunni segir
einnig að erlend starfsemi
bankans aukist og nú komi yf-
ir 30% af heildartekjum bank-
ans erlendis frá.
Gefur út
skuldabréf
fyrir 73
milljarða
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● STJÓRN Englandsbanka hefur
ákveðið að stýrivextir bankans verði
óbreyttir 4,5%. Vextirnir hafa því
ekki breyst frá því í ágústmánuði er
þeir voru lækkaðir um 0,25 pró-
sentustig. Frá þessu var greint í
breskum fjölmiðlum í gær.
Í frétt á fréttavefnum TimesOnline
segir að stjórnin bankans hafi ákveð-
ið að breyta stýrivöxtunum ekki,
þrátt fyrir þrýsting úr ýmsum áttum
vegna þess hvað hagvöxturinn í
Bretlandi er lítill. Hagvöxturinn hefur
ekki verið minni í rúman áratug.
Í gær var einnig greint frá því að
stjórn Seðlabanka Evrópu hefði
ákveðið að stýrivextir bankans yrðu
óbreyttir, en þeir eru 2,0%.
Óbreyttir stýrivextir
í Bretlandi
● HEIMSMARKAÐSVERÐ á hráolíu
hélt áfram að lækka verulega í gær.
Um klukkan 16 í gær kostaði fatið af
hráolíu af Brent-svæðinu 57,28 doll-
ara á markaði í London og hafði það
þá lækkað um 1,88% frá miðviku-
degi. Á markaði í New York kostaði
fatið af hráolíu með tafðri afhend-
ingu 61,3 dollara og hafði lækkað
um 2,37% frá miðvikudeginum.
Enn lækkar olían
● HLUTABRÉF héldu áfram að lækka
í verði í Kauphöll Íslands í gær. Úr-
valsvísitalan lækkaði um 0,29% og
er 4476 stig. Bréf Atlantic Petrol-
eum hækkuðu um 2,5% og bréf Jarð-
borana um 2,44%. Viðskipti með
hlutabréf námu 1,5 milljörðum, þar
af námu viðskipti með bréf KB banka
395 milljónum króna.
Atlantic Petroleum
hækkar
alls hrástáls í heiminum, en þar jókst
framleiðslan í ágúst um 26,8% eða
sem nemur 30,5 milljónum tonna. Það
sem af er árinu hefur Kína framleitt
224,9 milljónir tonna, en það er aukn-
ing upp á 28,2% frá sama tímabili í
fyrra
Á Indlandi, þar sem stálframleiðsl-
an hefur þróast mikið undanfarin ár,
nam framleiðsluaukningin um 29,6%
og var 3,6 milljónir tonna. Fyrstu átta
mánuði ársins er aukningin 21,3% og
var 25,7 milljónir tonna.
Stálframleiðsla Evrópusambands-
HEIMSFRAMLEIÐSLA á hrástáli
stefnir í að verða 1,3 milljarðar tonna,
en þetta er annað árið í röð sem fram-
leiðslan fer yfir einn milljarð. Það er
fyrst og fremst framleiðsluaukning í
Kína sem veldur því að líklega verður
nýtt framleiðslumet á hrástáli slegið í
ár.
Í águst jókst heimsframleiðslan á
stáli um 6,1% og var 91,4 milljónir
tonna. Fyrstu átta mánuði ársins nam
heimsframleiðslan 729 milljónum
tonna, sem er aukning upp á 6,9%.
Kína framleiðir nú nærri þriðjung
ins minnkaði í ágúst um 8% í 13,2
milljónir tonna. Frá áramótum hefur
hún minnkað um 3,4% og er nú 124
milljónir tonna.
Sömu sögu er að segja frá Banda-
ríkjunum, þar minnkaði framleiðslan
um 8,4% í ágúst og var hún 7,7 millj-
ónir tonna. Frá áramótum hefur
framleiðslan dregist saman um 5,8%.
Japan var lengi stærsti stálfram-
leiðandi heimsins, en þar minnkaði
hrástálsframleiðslan í ágúst um 1,8%.
Frá áramótum hefur hún minnkað
um 0,8% og var 75,4 milljónir tonna.
Stálframleiðsla Kína eykst
um tæpan þriðjung
!
"
# $%
& $% '$
()'$
*+ $! $
*!$
"$% '$ & $%
,-
.&
./0)1 21'$
3
/) & $%
#/ )2$
4
- $%
,
$
56-2
7! 2
89 $
8- -/
:;!! $!/ ) ) $
< $$ ) $
!
- % =;22)
"$% >/ & $% . 1? ! .) $%
:@ @
"# $%
4A=B
.>)
) -)
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
-; $! 1
; ) -)
0
0
0
0 0
0 0
0 0 0
0
0 0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
C 0DE
C 0DE
0
C 0
DE
C DE
0
C 0
DE
C 0DE
0
0
C 0DE
C DE
0
0
0
0
C
DE
0
0
C DE
0
0
0
0
0
0
0
#- % )
%! $
: ') > %! F
* .
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
< ) > +G
:# H !$ 2 %
)
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
:#0 <-!$ ; ')
5 %I
.J8 D
D
:.=
KL
D
D
AA 7,L
D
D
*L
5 -
D
D
4A=L KM ($-
D
D