Morgunblaðið - 07.10.2005, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2005 31
UMRÆÐAN
Á MORGUN göngum við að
kjörborðinu til að segja álit okkar
á fyrirliggjandi tillögum um sam-
einingu sveitarfélaga víðsvegar um
landið. Ég hvet alla, sem kosn-
ingarétt hafa, til að mæta á kjör-
stað og neyta atkvæðisréttar síns.
Það er mikilvægast af öllu, burt-
séð frá afstöðu hvers og eins.
Afstaða mín er
skýr. Ég mun mæta
á kjörstað til að sam-
þykkja þá samein-
ingu sem við íbúar í
Eyjafirði erum að
kjósa um. Ég tel að
með sameiningu
sveitarfélaga getum
við sameinað krafta
okkar í baráttunni
fyrir betri lífsskil-
yrðum. Ég tel að
með tilkomu stærri
og sterkara sveitarfé-
lags getum við byggt
upp heildstætt þjónustu- og at-
vinnusvæði fyrir komandi kyn-
slóðir. Ég tel að stærri sveit-
arfélög ráði betur við það
fjölþætta stjórnsýslu- og þjónustu-
hlutverk sem þeim ber að sinna og
séu betur í stakk búin til að takast
á við ný verkefni. En það er bara
mín skoðun.
Verkin sýna merkin
Samkvæmt viðhorfskönnunum
er meirihluti landsmanna hlynntur
sameiningu sveitarfélaga. Ég
fagna því. Mestur stuðningur við
frekari sameiningu mælist í þeim
sveitarfélögum, sem nú þegar hafa
gengið í gegnum slíkt ferli. Það
kemur ekki á óvart í ljósi þess að
mörg af þeim sveitarfélögum, sem
nú eru í hvað örustum vexti, hafa
orðið til við sameiningu. Þar má
nefna Fljótsdalshérað, Fjarða-
byggð, Reykjanesbæ, Borgar-
byggð og Sveitarfélagið Árborg.
Nýtum kosningaréttinn!
Sameining sveitarfélaga er mál
sem snertir alla landsmenn. Sam-
einingarnefndir víðsvegar um land
hafa sent frá sér málefnaskrár og
annað kynningarefni, auk þess
sem haldnir hafa verið
kynningarfundir í
hverju sveitafélagi.
Brýnt er að fólk kynni
sér vel kosti og galla
sameiningar á sínu
svæði og gangi vel
upplýst að kjörborði
hinn 8. október nk.
Kjósandi góður.
Nýttu kosningarétt
þinn og taktu þannig
virkan þátt í að
tryggja framtíð þíns
sveitarfélags. Góð
þátttaka, hver svo
sem úrslitin verða, styrkir lög-
mæti þeirrar ákvörðunar sem íbú-
ar sveitarfélaganna taka í kom-
andi kosningum.
Sameining
sveitarfélaga
Kristján Þór Júlíusson fjallar
um sameiningu sveitarfélaga
Kristján Þór Júlíusson
’Ég hvet alla, semkosningarétt hafa, til að
mæta á kjörstað og
neyta atkvæðisréttar
síns.‘
Höfundur er bæjarstjóri á Akureyri.
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni
Ármúla 44, sími 553 2035.
Hafðu það gott!
- Mismunandi stærðir
• Allir hlutar STRESSLESS eru vandlega
hannaðir til að tryggja þér
hámarksþægindi
• Sjálfvirk hnakkapúðastilling
• Sérstakur mjóbaksstuðningur
• Þyngdarstýring
• Sterk fjaðrandi stálgrind
• Kaldsteyptur svampur
• Úrvals nautaleður - yfir 50 litir
• Öflug viðargrind - fæst í 6 litum
• Borð fyrir fartölvur
• Sjálfvirk hnakkapúðastilling
veitir bestu mögulegu þægindi
- þú velur þína stærð
Sjálfvirk hnakkapúðastilling
veitir bestu möguleg þægindi
®
Sérstakur hæðarstillanlegur
hnakkapúði
360° snúningur
með fullkomnum
stöðugleika