Morgunblaðið - 07.10.2005, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2005 53
FRÉTTIR
FYRSTI alþjóðadagur um líkn
verður haldinn hátíðlegur víða um
lönd á morgun 8. október nk. Al-
þjóðadagurinn er sameiginlegt
átak fjölda samtaka fagfólks sem
vinnur við líknandi meðferð og al-
þjóðlegra góðgerðastofnanna sem
styðja sértaklega við þróun líkn-
arþjónustu. Vorið 2005 var ný
krabbameinsáætlun samþykkt fyrir
alþjóðaheilbrigðismálastofnunina
(WHO). Í samþykktinni er lögð
áhersla á að líknarmeðferð er sjálf-
stætt meðferðarform og mik-
ilvægur hlekkur í allri krabba-
meinsmeðferð. Þó að líknandi
meðferð hafi náð mestri útbreiðslu
í þjónustu við krabbameinssjúk-
linga ætti hún að ná til allra sjúk-
linga með lífshættulega sjúkdóma.
Í tilefni alþjóðadagsins standa
Samtök um líknandi meðferð á Ís-
landi fyrir opnu húsi kl. 13–15, á 4.
hæð í húsi Krabbameinsfélagsins
við Skógarhlíð. Þar munu sérhæfðu
líknarþjónusturnar á höfuðborg-
arsvæðinu kynna starfsemi sína og
margir heilbrigðisstarfsmenn
verða á staðnum að svara spurn-
ingum gesta. Dagskráin hefst form-
lega með tónlistarflutningi Lauf-
eyjar Sigurðardóttur fiðluleikara
og Páls Eyjólfssonar gítarleikara.
Síðar mun Erna Blöndal söngkona
flytja nokkur lög af nýrri plötu
sinni Faðmur, sem fjallar um sorg-
ina og lífið, við undirleik Arnar
Arnarssonar gítarleikara.
Alþjóðadagur
um líkn
SAMNINGUR milli Kennaraháskóla Íslands og Lands-
bankans um stuðning bankans við Málþing Rannsókn-
arstofnunar Kennaraháskólans var undirritaður 4.
október. Samningurinn er til þriggja ára og felur í sér
stuðning við árlegt málþing Rannsóknarstofnunar KHÍ
um nýbreytni, þróunarstarf og rannsóknir á sviði
mennta, uppeldis og þjálfunar.
Málþingið verður haldið í Kennaraháskóla Íslands 7.
og 8. október nk. Meginþemað í ár verður: Nám í nútíð
og framtíð: Pælt í PISA.
Á myndinni eru talið frá vinstri: Sigríður Einars-
dóttir og Kristín Björnsdóttir, frá Rannsóknarstofnun
Kennaraháskóla Íslands, Ólafur Proppé, rektor Kenn-
araháskólans, Björgólfur Guðmundsson, formaður
bankastjórnar Landsbanka Íslands, og Tinna Molphy
frá Landsbankanum.
Landsbankinn styður málþing KHÍ
SJÖ umsækjendur eru um stöðu
sóknarprests í Garðaprestakalli,
Kjalarnesprófastsdæmi, og fimm
um sóknarprestsstöðu í Ólafsvík-
urprestakalli, Snæfells- og Dala-
prófastsdæmi. Embættin eru veitt
frá 1. nóvember nk. og rann um-
sóknarfrestur út 4. október sl.
Umsækjendur um Garða-
prestakall eru: Sr. Birgir Ásgeirs-
son, sr. Eiríkur Jóhannsson, sr.
Hans Markús Hafsteinsson, sr. Jóna
Hrönn Bolladóttir, sr. Kjartan Jóns-
son, sr. Yrsa Þórðardóttir og sr.
Þórhallur Heimisson.
Umsækjendur um Ólafsvíkur-
prestakall eru: Aðalsteinn Þor-
valdsson guðfræðingur, Ingólfur
Hartvigsson guðfræðingur, Klara
Hilmarsdóttir guðfræðingur, sr.
Magnús Magnússon og sr. Valdimar
Hreiðarsson.
Dóms- og kirkjumálaráðherra
skipar í bæði embættin til fimm ára
að fenginni niðurstöðu valnefndar.
Tólf umsækj-
endur um tvær
sóknarprests-
stöður