Morgunblaðið - 07.10.2005, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2005 55
DAGBÓK
Þýski heimspekingurinn Immanuel Kanter umfjöllunarefni ráðstefnu semhefst í Háskólanum á Akureyri ámorgun og ber nafnið Rætur siðferðis:
um verklega heimspeki Immanuels Kants. Sum-
ir af helstu sérfræðingum veraldar í verkum
Kants eru meðal fyrirlesara á ráðstefnunni.
„Kant var helsti heimspekingur upplýsing-
arinnar í Þýskalandi á 18. öld,“ segir Guð-
mundur Heiðar Frímannsson, forseti kenn-
aradeildar Háskólans á Akureyri. „Hann setti
fram kenningar á nánast öllum sviðum heim-
spekinnar sem hafa haft mjög afdrifarík áhrif á
hugmyndir okkar fram á þennan dag. Sem
dæmi er hann einn af þremur höfundum sem
nánast undantekningarlaust er lesinn í öllum
grunnkúrsum í siðfræði.“
Fjallað verður um ólíka þætti heimspeki
Kants eins og málfrelsi, ástæður til breytni og
dyggðakenninguna svo eitthvað sé nefnt.
„Okkur tókst að fá tvo prófessora frá Banda-
ríkjunum á ráðstefnuna sem báðir eru í fremstu
röð sérfræðinga í verkum Kants. Christine M.
Korsgaard hefur um langt skeið verið í hópi
þekktustu höfunda um Kant. Manfred Kuehn
gaf út ævisögu Kants fyrir tveimur árum sem er
framúrskarandi verk. Peter Niesen sem kemur
frá Þýskalandi er nýbúinn að gefa út verk um mál-
frelsiskenningu Kants.“
Auk erlendu fyrirlesarana fjallar Mikael Karls-
son, forseti félagsvísinda- og lagadeildar Háskól-
ans á Akureyri, um skylduboð Kants. „Logi Gunn-
arsson, lektor við Háskólann í Liverpool, veltir
fyrir sér siðferðislegri stöðu dýra eins og
mannapa í samanburði við þá sem eru haldnir
mjög alvarlegri þroskahömlun og Jón Ólafsson,
prófessor á Bifröst, fjallar um rökstuðning Kants
fyrir því að maður megi aldrei ljúga.“ Sjálfur
fjallar Guðmundur um vandkvæði við að þýða
Kant á Íslensku. „Fyrir tveimur árum kom út
fyrsta bókin eftir Kant á íslensku sem ég þýddi.
Kant er erfiður höfundur að mörgu leyti. Honum
var t.d. ekki lagið að setja fram hugsun sína á
skýran og einfaldan hátt. Í mörgum verkunum er
hann að auki að fjalla um efni sem er erfitt að vera
skýr um. Loks notar hann mikið af tæknilegum
heimspekilegum hugtökum sem vantar íslenskar
þýðingar fyrir. Reyndar hefur orðið til ákveðinn
orðaforði sem ég nýtti mér við þýðinguna.“
Fyrirlestur Guðmundar er sá eini sem fluttur
verður á íslensku en að öðru leyti mun ráðstefnan
fara fram á ensku. Hún fer fram í húsakynnum
Háskólans í Þingvallastræti 23 og hefst kl. 9 í
fyrramálið. Hún stendur til klukkan 17.30 en
verður fram haldið kl. 9 á sunnudagsmorgun og
lýkur svo kl. 12.30 þann dag. Ráðstefnan er öllum
opin og aðgangur er ókeypis.
Heimspeki | Ráðstefna um þýska heimspekinginn Immanuel Kant
Guðmundur Heiðar
Frímannsson fæddist á
Ísafirði árið 1952. Hann
varð stúdent frá
Menntaskólanum á Ak-
ureyri 1972 og lauk BA-
prófi í heimspeki og sál-
fræði frá Háskóla Ís-
lands árið 1976. Hann
lauk doktorsprófi í
heimspeki frá háskól-
anum í St. Andrews í
Skotlandi árið 1992. Frá því ári hefur hann
starfað við Háskólann á Akureyri og gegnir nú
stöðu forseta kennaradeildar skólans. Hann er
kvæntur Elísabetu Hjörleifsdóttur og eiga þau
fjögur uppkomin börn.
Hafði afdrifarík áhrif á hugmyndir okkar
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
80 ÁRA afmæli. Í dag, föstudaginn7. október, er áttræður Gutt-
ormur Þormar verkfræðingur. Af því
tilefni taka Guðrún og Guttormur á
móti gestum á morgun, laugardaginn
8. október, í félagsheimili starfsmanna
Orkuveitu Reykjavíkur við Elliðaár á
milli kl. 16 og 19.
Hlutavelta | Á Barnaspítala Hrings-
ins kom ung stúlka, Heba Líf Jóns-
dóttir frá Skagaströnd, og gaf leikstofu
Barnaspítalans kr. 6.000. Heba Líf var
með markað við Laufskálarétt og seldi
heimaprjónaða vettlinga eftir ömmu
sína og reyktan fisk frá pabba sínum.
Hecht-bikarinn.
Norður
♠9764
♥KG
♦KG2
♣Á753
Vestur Austur
♠KDG8 ♠105
♥1093 ♥Á8652
♦974 ♦10863
♣G94 ♣K6
Suður
♠Á32
♥D74
♦ÁD5
♣D1082
Suður spilar þrjú grönd og fær út
spaðakóng.
Er til örugg leið að níu slögum eða
getur vörnin haft betur?
Spilið er frá Hecht-mótinu í Kaup-
mannahöfn og á öllum borðum tókst
sagnhafa að skrapa saman níu slögum,
enda legan greinilega á bandi sókn-
arinnar. En Daninn Jesper Thompsen
lét sagnhafa vinna fyrir kaupinu sínu.
Thompsen var með spil austurs.
Suður tók fyrsta slaginn réttilega
með spaðaás og spilaði hjarta. Thomp-
sen drap strax, tók spaðatíu og spilaði
blindum inn á hjarta. Sagnhafi varð að
gera sér mat úr laufinu og lagði því nið-
ur laufás og hugðist svo spila laufi að
drottningunni. En Thompsen setti
strik í reikninginn með því að láta lauf-
kónginn undir ásinn! Hugmyndin var
að skapa makker innkomu á gosann.
Þessi tilþrif settu sagnhafa í vanda,
en hann reyndist vandanum vaxinn. Í
suðursætinu var Bandaríkjamaðurinn
Brian Jackson. Hann leysti málið með
því að taka slagina á hjarta og tígul og
senda svo vestur inn á spaða í lokin til
að fá sendingu upp í D10 í laufi.
Fallegt spil, bæði í vörn og sókn.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Hættum að nota orðið
þumalputtaregla
VIÐ notum ýmislegt í hugs-
unarleysi. „Rule of thumb“ var úr-
skurður dómara um að karlmaður
mætti berja eiginkonu sína með
spýtu á þykkt við eiginmannsins eig-
in þumalfingur, en ekki með breiðari
spýtu en það. Svona ógeð skulum við
ekki lepja upp.Gætum tungu okkar.
Guðrún Kristín Magnúsdóttir,
rithöfundur.
Enn um Fréttablaðið
ÉG skil ekki af hverju fólk er að
kvarta yfir því að fá ekki Frétta-
blaðið heim til sín. Er fólk það vit-
laust, eða getur ekki gert mun á,
hvaða blað segir fréttir eða það blað
sem býr til fréttir til að hylja eða
láta betur fyrir fara eigendum
blaðsins?
Í það minnsta sé ég eiginlega
aldrei þetta fréttablað neinstaðar í
blokkinni minni nema í ruslatunn-
unni og skil ég vel út af afhverju.
Sumt fólk lætur bara ekki plata sig
svo auðveldlega.
Mér finnst rangt að bera út
Fréttablaðið í öll heimili. Þetta ætti
frekar að líðast á kaffihúsum, þjón-
ustustöðum o.s.frv.
Ekki vera að troða inn á fólk alls-
konar vitleysu sem verður til þess
að við Íslendingar búum ekki lengur
í lýðræðislegu þjóðfélagi heldur í
Baugsveldi.
Gunnar Magnús Halldórsson,
kt. 270786-2359.
Um „bætta þjónustu“
strætós
MÉR datt í hug að fara sl. laug-
ardag inn í Holtagarða til þess að
versla. Hringdi ég þess vegna í þjón-
ustusíma strætós. En viti menn, þar
er ekki svarað um helgar, þeir gerðu
það þó áður. Kalla þeir þetta bætta
þjónustu.
Síðan fór ég inn í Holtagarða í
gær en þegar ég ætlaði að taka mér
far heim með strætó þá fer ég auð-
vitað í biðskýlið við Kleppsveg. Þeg-
ar ég kem þangað býst ég auðvitað
við að þar standi: hér stansa þessir
vagnar og númerin þeirra. Nei, ekki
aldeilis.
En það var þó regla í fyrra kerf-
inu. Síðan bíð ég og bíð, hafði nægan
tíma til þess að rýna í allt leiðarkerfi
borgarinnar en fann þó loks út að
númer 14 og 16 mundu stoppa
þarna. Jú, þeir komu loksins en það
leið 1 mínúta á milli komutíma
þeirra.
Hvers konar rugl er þetta allt
saman.
Guðbjörg.
Til skammar
GUNNAR Örlygsson er Sjálfstæð-
isflokknum til skammar og hefur í
reynd engan rétt til setu á Alþingi.
Björn Indriðason.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
1. d4 Rf6 2. Bg5 e6 3. e4 h6 4. Bxf6 Dxf6
5. Rc3 Bb4 6. Dd3 Rc6 7. Rf3 0-0 8. 0–
0–0 d6 9. Kb1 Dg6 10. h4 f5 11. h5 Df7
12. exf5 Dxf5 13. Dc4 Da5 14. Re2 Dd5
15. Dxd5 exd5 16. Hh4 Re7 17. Rf4 c6
18. g3 Bf5 19. Bh3 Be4 20. Bg4 Ba5 21.
Hh2 Rf5 22. Rd2 Hae8 23. Rf1 Bb6 24.
Re2 Re7 25. Re3 Rf5 26. Rg2
Staðan kom upp í Evrópukeppni
taflfélaga sem lauk fyrir skömmu í St.
Vincent í Ítalíu. Vladimir Kramnik
(2.744) hafði svart gegn Luke McShane
(2.625). 26. … Rxd4! 27. Rgf4 27. Rxd4
hefði verið svarað með 27. … Hxf2 og
svartur ynni manninn til baka með dá-
góðum vöxtum. 27. … Bxc2+ og hvítur
gafst upp. Kramnik kaus að taka ekki
þátt í HM sem fram fer þessa dagana í
Argentínu og rígheldur hann í heims-
meistaratitil sinn sem hann fékk fyrir
fimm árum þegar hann lagði Kasparov
að velli í einvígi. Ein mesta skákhátíð á
Íslandi á ári hverju, Íslandsmót skák-
félaga, hefst í kvöld kl. 20.00 í Mennta-
skólanum í Hamrahlíð.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
SÝNING Steinunnar Helgu Sigurð-
ardóttur og Morten Tillitz verður
opnuð í Kling og Bang í dag kl. 17.
Fyrir sýninguna hefur Steinunn
Helga gert þrenns konar verk; stað-
bundin verk, innsetningar í rými og
röð teikninga.
Steinunn hefur síðastliðin 18 ár
safnað sandi alls staðar að úr heim-
inum. Hluta af sandinum hefur hún
safnað sjálf og einnig hefur sandi
verið safnað fyrir hana. Í verkinu
Samhengi notar hún hluta af safnaða
sandinum í fyrsta sinn.
Litirnir á sandinum eru mismun-
andi, allt frá algjörlega svörtum
sandi yfir í margs konar liti, rauðan,
gulan, bláan, gráan og alla leið yfir í
hvítan.
Á öðrum stað í galleríinu verður
verkið Hús, sem mun lýsa upp stað-
inn. Í fyrstu virðast húsin öll eins, en
þau glóa í sínum sjálfstæðu litum
þar sem hver sá er lítur inn mun
kynnast fimm mismunandi yfirborð-
um er skapa gólf, veggi, húsenda og
loft allt í sínum eigin stíl.
Steinunn sýnir einnig verkin
Snertu gleðina, sem er sería af
teikningum í nálgun við þrívíða hluti,
teikningar gerðar með fínum barna-
litum, perlum, nálum og þráðum
o.s.frv.
Verk Morten Tillitz taka öll mið af
einni setningu sem er einnig titill
sýningar hans; Höfuðið er hringlaga
svo hugsanir geti skipt um áttir.
Hausverk, veggverk og innsetn-
ing kallast á við teikningar sem
Morten hefur unnið út frá teikn-
ingum, blaðaúrklippum, ljós-
myndum og umslögum sem faðir
hans heitinn gerði. M.a. hefur
Morten teiknað ofan á aðra teikn-
ingu föður síns, eða teiknað við hlið-
ina á upphaflegu teikningunni.
Á sama hátt og þessar teikningar
hafa leitt af sér aðrar, nýjar teikn-
ingar, hafa hin verkin á sýningunni
fætt af sér eitthvað annað, eða verið
hluti af ákveðinni þróun þar sem
stemning og hugsanir eru stöðugt að
skipta um áttir.
Sýningarnar í Kling & Bang gall-
eríi standa til 30. október og er opið
fimmtudaga til sunnudaga klukkan
14–17.
Höfuðverk og sandur í Kling og Bang
Steinunn Helga Sigurðardóttir safnar sandi.
Hjá Máli og menningu er komin út
bókin Hermann eftir Lars Saaby
Christensen í þýðingu Sigrúnar
Magnúsdóttur.
„Hermann er frískur eins og fisk-
ur. Hann gengur í skóla með Rúbý
sem sagt er að geymi
fimm fuglshreiður í
rauðu hárinu. Hann á
móður sem hlær svo
hátt að Nesodd-
báturinn strandar og
klukkan í turninum á
Ráðhúsinu stoppar, og
hann á líka föður sem
stýrir svo háum krana að hann getur
séð til Ameríku og jafnvel lengra. En
einn daginn, þegar Hermann er í
klippingu, biður rakarinn um að fá að
tala við mömmu hans og allt breyt-
ist.
Hermann er bráðskemmtileg og
ljúfsár saga eftir Lars Saabye Christ-
ensen, sem er um þessar mundir sá
norræni rithöfundur sem nýtur hvað
mestra vinsælda í heiminum,“ segir
útgefandinn Mál og menning.
Bókin er 192 bls.
Fullt verð: 1.799 kr. Tilboðsverð:
1.299 kr.
Skáldsaga