Morgunblaðið - 15.10.2005, Síða 28
„KÓRINN syngur næstum allan tímann, er
að í rúman klukkutíma. Það er nýtt fyrir okk-
ur að flytja svona stórt verk, en það er óg-
urlega gaman,“ segir stjórnandi Dómkórsins,
Marteinn H. Friðriksson dómorganisti, en
verkið stóra sem um ræðir er sálumessa eftir
Johannes Brahms, sem kórinn flytur í upp-
hafi Tónlistardaga Dómkirkjunnar á tón-
leikum í Langholtskirkju í dag kl. 17. Mar-
teinn segir æfingar á verkinu hafa hafist
strax upp úr síðustu áramótum og að þurft
hafi að stækka kórinn upp í 75 manns, þar
sem rómantískt kórverk á borð við sálumess-
una þarfnist stærri og meiri hljóms.
Marteinn segir að Brahms hafi verið lengi
að semja sálumessuna. „Þetta er ekki hefð-
bundinn sálumessutexti, heldur fann hann
texta í biblíunni um tilgang lífsins sem höfðu
merkingu fyrir hann sjálfan.“
Sálumessan var samin fyrir kór og hljóm-
sveit en Dómkórinn syngur verkið með
tveimur píanóleikurum. „Þegar hann var bú-
inn að semja verkið fannst útgefandanum of
dýrt að prenta það. Brahms gerði því útgáfu
með tveimur píanóleikurum í stað hljóm-
sveitar, fyrir kór í London, í þeirri von að
verkið yrði flutt oftar.
Það er mikil stígandi í verkinu og söng-
urinn er stundum svo dramatískur að maður
fær auðveldlega gæsahúð. Verkið snertir
mann djúpt.“
Það er ekki ný frétt að margir dái Brahms.
Aðspurður segir Marteinn það vera margt í
tónlist þessa þýska meistara rómantíkurinnar
sem geri það að verkum að hún virðist hitta
marga í hjartastað. „Hann semur óskaplega
fallegar laglínur, stórar og langar. Hljóma-
notkunin hans er líka sérstök og hann notar
styrkleikabreytingar á mjög áhrifamikinn
hátt. Í sálumessunni er mikil sorg og kyrrð,
en samt einnig stórkostlegur kraftur. Þetta
finnur maður ekki eins vel hjá öðrum tón-
skáldum.“ Marteinn segir að hann hafi fengið
bestu píanóleikara sem völ er á til að leika
með kórnum, þau Önnu Guðnýju Guðmunds-
dóttur og Péter Máté. Sama segir hann um
einsöngvarana. „Þau sem komu fyrst upp í
huga minn eru Hulda Björk Garðarsdóttir og
Kristinn Sigmundsson, og þau munu syngja
með okkur. Það er varla hægt að fá betra
fólk í þetta verk.“
Tónlistardagar Dómkirkjunnar eru nú
haldnir í 24. sinn. Hefð hefur skapast fyrir
því að pantað sé nýtt verk til flutnings á há-
tíðinni og í ár er það kórverk eftir Harald V.
Sveinbjörnsson sem tónskáldið kallar Mem-
ento mei. Verkið verður frumflutt á loka-
tónleikum Tónlistardaganna 13. nóvember.
„Haraldur hefur nýlokið framhaldsnámi í Sví-
þjóð, en áður en hann fór í nám var hann orð-
inn þekktur fyrir það hve fallega hann semur
fyrir kóra. Nýja verkið er mjög skemmti-
legt.“
Guðný Einarsdóttir er ungur organisti sem
heldur einleikstónleika í Dómkirkjunni laug-
ardaginn 22. október. „Guðný er að ljúka
framhaldsnámi í Kaupmannahöfn og er
óvenjuglæsilegur orgelleikari.“
Barna- og unglingakór Dómkirkjunnar
verður með tónleika sunnudaginn 23. októ-
ber, en stjórnandi er Kristín Valsdóttir. Í há-
tíðarmessu 30. október, á afmælisdegi kirkj-
unnar, verður flutt Missa cum populo eftir
Petr Eben. „Þetta er mjög skemmtilegt verk
og kirkjugestir þurfa að syngja með okkur í
því, þannig samdi Eben það.“
Í tilefni af tvítugsafmæli orgels kirkjunnar
verða orgeltónleikar 6. nóvember, þar sem ís-
lenskir orgelleikarar leika. „Orgelið í Dóm-
kirkjunni er með þeim fyrstu af nýrri kynslóð
orgela á Íslandi – hér höfðu ekki verið smíð-
uð orgel í langan tíma. Organistarnir koma
og spila hver um sig stutt verk til að fagna
þessu.“
Tónlist | Þýsk sálumessa og nýtt kórverk á Tónlistardögum Dómkirkjunnar
Sorg og kyrrð en stórkostlegur kraftur
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Dómkórinn. Stækka þurfti kórinn upp í 75 manns vegna flutnings Sálumessunnar. Jóhannes Brahms: Var lengi að semja verkið.
SALKA Valka eftir Halldór Lax-
ness í leikgerð Hrafnhildar Haga-
lín Guðmundsdóttur verður frum-
sýnd á Stóra sviði
Borgarleikhússins í kvöld.
Ilmur Kristjánsdóttir leikur
Sölku Völku og Halldóra Geir-
harðsdóttir móður hennar Sig-
urlínu. Sveinn Geirsson leikur
Arnald og Ellert A. Ingimund-
arson Steinþór.
Með önnur hlutverk fara Bergur
Þór Ingólfsson, Birna Hafstein,
Guðmundur Ólafsson, Halla Vil-
hjálmsdóttir, Kristján Franklín
Magnús, Þórhallur Sigurðsson
(Laddi), Margrét Helga Jóhanns-
dóttir, Marta Nordal og Theodór
Júlíusson.
Tónlist er eftir Óskar og Ómar
Guðjónssyni, lýsingu gerir Kári
Gíslason og Stefanía Adolfsdóttir
búninga. Leikmynd er eftir Jón
Axel Björnsson og hreyfingar sem-
ur Lára Stefánsdóttir. Leikstjóri
er Edda Heiðrún Backman.
„Salka Valka er ein af mögn-
uðustu persónum Halldórs Lax-
ness og eins og svo margar þeirra
hefur hún fengið á sig goðsagna-
kenndan blæ. Allir þekkja hana –
líka þeir sem ekki hafa lesið bók-
ina. Hún á sér sjálfstætt líf utan
við sína eigin sögu, flakkar á milli
manna í nýjum og nýjum bún-
ingum og stingur sér af og til nið-
ur í nýjum leikgerðum.
Ein stærsta spurningin sem
liggur til grundvallar þessari leik-
gerð er sú hvernig lítil stelpa nær
að lifa af við jafn ömurlegar að-
stæður og Salka býr við í þorpinu
Óseyri við Axlarfjörð og verða að
þeirri miklu persónu og kvenhetju
sem hún verður,“ segir í kynningu.
Miðvikudaginn 19. október verð-
ur haldin styrktarsýning. Leikarar
og annað starfsfólk hússins gefur
vinnu sína og aðgangseyrir rennur
til MND félagsins, sem er félag
fólks með hreyfitaugahrörnun.
Leiklist | Salka Valka frumsýnd í Borgarleikhúsinu
Persóna sem allir þekkja
Morgunblaðið/ÞÖK
Ilmur Kristjánsdóttir í titilhlutverkinu í sýningu Leikfélags Reykjavíkur á Sölku Völku.