Morgunblaðið - 15.10.2005, Side 41

Morgunblaðið - 15.10.2005, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 2005 41 MINNINGAR ✝ Helgi BreiðfjörðHelgason fædd- ist að Kveingrjóti í Saurbæjarhreppi í Dalasýslu 18. októ- ber 1914. Hann lést á Heilbrigðisstofn- uninni á Blönduósi 8. október síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Helgi Helga- son bóndi, lengst af í Gautsdal í Geiradal í Austur-Barða- strandarsýslu, f. í Garpsdal í Geiradal 21.11. 1871, d. 21.5. 1945, og Ingi- björg Friðriksdóttir húsfreyja, f. á Kirkjubóli í Kirkjubólshreppi í Strandasýslu 30.6. 1874, d. 21.4. 1967. Helgi og Ingibjörg áttu sjö börn og komust fimm þeirra upp, auk Helga þau Sigrún, f. 1898, d. 1925, Ólafur, f. 14.2. 1903, d. 10.3. 1998, Karl, f. 16.9. 1904, d. 27.6. 1981 og Ingólfur, f. 17.1. 1913, d. 18.6. 1997. Hálfsystir Helga sam- feðra er Margrét, f. 30.9. 1915, sem ólst upp með honum í Gauts- dal. Helgi kvæntist 27.9. 1947 Helgu Guðmundsdóttur, f. á Blönduósi 3.7. 1921. Synir þeirra eru: 1) Karl lögfræðingur, f. 30.11. 1946, kvæntur Sigurborgu Bragadóttur kennara, f. 25.10. 1950. Börn þeirra eru: a) Friðþjófur Helgi að- stoðarskólastjóri, f. 22.3. 1972, kona hans er Þórey Sæmunds- dóttir kennari, f. 27.9. 1971, börn þeirra Hrefna Sigurborg, f. 9.11. 2002, og Karl Sæmundur, f. 23.6. 2005. b) Guðrún Ingibjörg fram- haldsskólakennari, f. 11.11. 1973, maður hennar er Ragnar Þórður Jón- asson lögfræðingur, f. 29.5. 1971, synir þeirra eru Ragnar Loki, f. 8.5. 1999, og Róbert Orri, f. 17.5. 2002. c) Sigrún Nanna efnisverk- fræðingur, f. 18.9. 1980, maður hennar er Magnús Örn Úlf- arsson rafmagns- verkfræðingur, f. 18.5. 1976. Þau stunda framhalds- nám í verkfræði í Bandaríkjunum. 2) Guðmundur Helgi kennari, f. 4.7. 1952. Hann var kvæntur Þóru Gísladóttur hjúkrunarfræðingi. Þau skildu. Börn þeirra eru: a) Hjalti Rafn háskólanemi, f. 20.5. 1977, b) Helga María framhalds- skólanemi, f. 21.1. 1986. Helgi var í Gautsdal fram um tvítugt og starfaði að búinu með föður sínum og bræðrum. Hann var einn vetur í Héraðsskólanum að Laugum í Þingeyjarsýslu og annan í Menntaskólanum á Akur- eyri og lauk þaðan gagnfræða- prófi. Hann stundaði ýmis störf á Blönduósi, fyrir vestan og sunnan, en sá um lyfjaafgreiðslu héraðs- læknis á Blönduósi frá 1942 til 1974 og var jafnan kallaður Helgi apótekari. Eftir það rak hann verslun á staðnum í nokkur ár. Helgi var lengi í stjórn Garð- félagsins í Selvík og var formaður þess í mörg ár. Útför Helga fer fram frá Blönduóskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Þegar við systkinin setjumst niður til að setja nokkur orð á blað um elsku afa okkar streyma fram minninga- brotin. Við munum afa sem ávallt var til í að skella sér á fjóra fætur og leika við okkur í öllum mögulegum leikjum. Afa sem oft og einatt var mættur á tröppurnar á Brekkubyggð 14 til að fara með augasteinana sína í langar gönguferðir um litla bæinn við ósa Blöndu. Litil hönd laumast í hlýjan lófa og Gunnsuló í vagninum. Við munum afa sem fór með okkur óteljandi ferðir inn með sjó til að tak- ast á við stórtæk byggingaverkefni í fjörunni, ærslaðist með okkur ásamt því að vera óþreytandi við að fræða okkur um náttúruna og umhverfið. Við munum afa sem var eins og konungur í ríki sínu í kartöflugörð- unum í Selvík. Lítil augu horfðu með stolti á kartöflubóndann, fylgdust vel með leiðbeiningum um rétt handtök og fylltust lotningu yfir hröðum og öruggum handtökum hans svo að uppskeran kæmist nú örugglega í hús áður en haustfrostið færi að herja á norður við Dumbshaf. Við munum afa sem leyfði okkur að koma niður í búð og fylgjast með sér við afgreiðslustörfin og sagði okkur sögur á meðan við sötruðum Sinalco og nörtuðum í stjörnurúllu. Við munum öll spilakvöldin sem við áttum með afa. Þar var spilað af mikl- um móð og ekki má gleyma ótal skák- einvígum þar sem ekkert var gefið eftir. Við munum glettnina og brosið sem ávallt lék um varir hans. Blikið í augum hans þegar hann sagði okkur sögur frá æskuárunum í Gautsdal. Við munum natnina, eljuna og sam- viskusemina. En umfram allt munum við elsk- andi afa sem umvafði okkur með hlýju sinni og einstakri blíðu og kenndi okk- ur ótalmargt um lífið og tilveruna. Minningabrotin um þig, elsku afi, munu lýsa skært í hugum okkar og ylja um ókomna tíð. Þín elskandi afabörn, Friðþjófur Helgi og Guðrún Ingibjörg. Elsku afi, síðastliðinn laugardag fékk ég símhringingu frá Íslandi um að þú hefðir fengið að fara í friði. Mig langar til að skrifa nokkur orð til þín og minnast stunda okkar saman. Á hverju vori og hausti í æsku minni fórum við fjölskyldan norður á Blönduós til ykkar ömmu til að hjálpa til við að taka upp kartöflur í Selvík- inni. Þar sem ég er nokkuð mikið yngri en systkini mín og frændi, sem voru búin að læra helstu atriðin við upp- tektina, var oft lítið gagn af mér í fyrstu. En alltaf fannst þú mér eitthvert mikilvægt hlutverk svo að mér fannst ég vera aðalstarfskrafturinn í kart- öflutínslunni. Afi, þú sást alltaf til þess að litla „Súlan“ þín væri ekki skilin út undan. Ég minnist einnig með gleði í hjarta fjölmargra göngu- ferða í fjörunni á Blönduósi og í Selvík með þér. Við fundum alltaf eitthvað skemmtilegt og forvitnilegt til að skoða og kanna, eins og alla steinana sem við söfnuðum í öllum heimsins lit- um og stærðum. Elsku afi, þú varst alltaf svo hress og hlýr. Ég þakka þér fyrir allar góðu stundirnar og kveð þig með þakklæti og sorg í hjarta. Hvíl í friði, elsku afi, þín Sigrún Nanna (Súla). Mig langar að kveðja elskulegan tengdaföður minn með fáeinum orð- um. Kynni okkar hófust þegar ég kom ung stúlka norður til að vera nálægt verðandi eiginmanni mínum og vinna hjá Helga í apótekinu. Um leið og hann tók á móti mér með ljúfmennsku sinni og hjartahlýju hvarf mér allur kvíði og ég eignaðist ekki aðeins tengdaföður heldur einnig góðan vin. Helgi innti öll sín störf af hendi af alúð og mikilli snyrtimennsku, hvort sem það var í apótekinu eða fyrir Garðfélagið í Selvík. Í kartöflugarð- inum í Selvík var unaðsreitur hans og þar var alltaf gott veður, jafnvel þótt snjóaði þegar við tókum upp á haust- in. Helgi var mikil barnagæla. Börn- unum okkar Karls var hann góð fyr- irmynd og yndislegur afi. Þau voru ófá sporin sem hann átti upp á brekku, þegar við áttum heima á Blönduósi, til að gleðja litlar mann- eskjur. Minningarnar um hann eru bjartar og ljúfar. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Hvíl í friði, elsku Helgi. Þín tengdadóttir Sigurborg. HELGI BREIÐFJÖRÐ HELGASON ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Önnumst alla þætti útfararinnar Þegar andlát ber að höndum Arnór L. Pálsson framkvæmdastjóri Ísleifur Jónsson útfararstjóri Frímann Andrésson útfararþjónusta Svafar Magnússon útfararþjónusta Hugrún Jónsdóttir útfararþjónusta Guðmundur Baldvinsson útfararþjónusta Halldór Ólafsson útfararþjónusta Ellert Ingason útfararþjónusta Stapahrauni 5 Sími 565 9775 Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför JÓNS J. WAAGFJÖRÐ bakara frá Garðhúsum, Vestmannaeyjum, Holtsbúð 16, Garðabæ. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Holtsbúð í Garðabæ. Bertha María Grímsdóttir Waagfjörð, Már V. Jónsson, Halldór Waagfjörð, Ásta Þorvaldsdóttir, Kristinn Waagfjörð, Hjördís Sigmundsdóttir, Grímur Rúnar Waagfjörð, Helga Gunnarsdóttir, Þorsteinn Waagfjörð, Sigrún Logadóttir, Rósa María Waagfjörð, Hreiðar H. Hreiðarsson, barnabörn og barnabarnabörn. Faðir minn, afi og langafi, MAGNÚS KR. JÓNSSON, til heimilis á Hrafnistu í Reykjavík, andaðist á Landspítalanum Fossvogi föstudaginn 23. september síðastliðinn. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sandra Magnúsdóttir, Perla Hafsteinsdóttir, Harpa Hafsteinsdóttir, Birgir Runólfsson, Valur Hafsteinsson og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna fráfalls ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, sonar, tengdasonar og bróður, GÍSLA VIÐARS HARÐARSONAR slökkviliðs- og sjúkraflutningamanns, Óðinsvöllum 4, Keflavík. Guð blessi ykkur öll. Vilborg Reynisdóttir, Páll Ágúst Gíslason, Reynir Örn Gíslason, Kristín Ósk Gísladóttir, Margrét Jakobsdóttir, Páll Jónsson, Ragnheiður Ragnarsdóttir, Hörður Jóhannsson, Kristín Hermannsdóttir, Reynir Eiríksson og systkini. Okkar kæri frændi, SVERRE WIGFUSSON ljósmyndari, Stokkhólmi, andaðist í Stokkhólmi sunnudaginn 2. október. Útförin fer fram frá Vantörs kyrka í Högdalen, Stokkhólmi, mánudaginn 31. október kl. 12.00. Fyrir hönd ættingja og vina, Gíslína Vigdís Guðnadóttir, Stella Guðnadóttir. Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við fráfall móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, JÓNU JÓHÖNNU JÓNSDÓTTUR frá Brautarholti í Vestmannaeyjum. Sérstakar þakkir til starfsfólks, er annaðist hana á Hrafnistu. Guð blessi ykkur. Ása Kristinsdóttir Gudnason, Christian H. Gudnason, Birgir Kristinsson, Margrét Jóhannsdóttir, Edda Kristinsdóttir, Theódór Diðriksson, Ólafur H. Kristinsson, Veronique Pasquier, Kristín Kristinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.