Morgunblaðið - 19.10.2005, Side 2

Morgunblaðið - 19.10.2005, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR RÉTTAÐ YFIR SADDAM Réttarhöld eiga að hefjast yfir Saddam Hussein, fyrrverandi Íraks- forseta, og sjö samverkamönnum hans í dag í Bagdad. Eru þeir ákærðir fyrir glæpi gegn mannkyn- inu, nánar tiltekið fyrir fjöldamorð á yfir 140 sjítum árið 1982. Gert er ráð fyrir að síðar verði birtar fleiri ákærur á hendur einræðisherranum fyrrverandi. Verði hann fundinn sekur gæti hann hlotið dauðadóm. Spá hækkun vaxta í 4,35% Greiningardeild KB banka gengur út frá því sem einni af forsendum í nýrri spá um þróun á fasteigna- markaði, að vextir af íbúðalánum hækki úr 4,15% í 4,35%. Um er að ræða vexti af nýjum lánum, en vextir af eldri lánum haldist óbreyttir. Þá spáir greiningardeildin því að fast- eignaverð muni hækka um 6% á næstu 12 mánuðum. Fá enga aðstoð Um hálf milljón manna á jarð- skjálftasvæðunum í Asíu hefur enn enga aðstoð fengið, að sögn Mat- vælahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Er ekki síst um að ræða fólk í af- skekktum fjallaþorpum sem erfitt er að komast til nema með aðstoð þyrlna. Óttast er að þúsundir manna deyi úr kulda og vosbúð. Funduðu um kjaramál Grétar Þorsteinsson, forseti Al- þýðusambands Íslands, segir að á fundi forystumanna sambandsins með ríkisstjórninni í gær um kjara- málin, hafi ASÍ lagt ríka áherslu á að fá afdráttarlaus svör varðandi þau efnisatriði sem væru uppi á borðum mjög fljótlega. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að það væri vond niðurstaða sem allir myndu skaðast á ef það yrði niðurstaða launanefndar aðila vinnumarkaðar- ins að segja upp launalið gildandi kjarasamninga. Y f i r l i t Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju- starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is RÍKISSTJÓRNIN hefur ákveðið að hefja skoðun á því með hvaða hætti megi standa að gerð og framkvæmd heildstæðrar aðgerðaáætlunar gegn heimilisofbeldi og kynferðislegu ofbeldi. Tillögur eiga að liggja fyrir í byrjun marsmánaðar og á að beina sjónum sérstaklega að börnum sem verða fórnarlömb kynferðislegs ofbeldis og hvernig styrkja megi barnaverndar- og félagsmálayfir- völd, skóla, heilbrigðiskerfið og lögregluna í þess- um efnum. Árni Magnússon félagsmálaráðherra sagði að hann og dómsmálaráðherra hefðu lagt fram sam- eiginlegt minnisblað á fundi ríkisstjórnarinnar í gær þar sem lagt væri til að nefnd um kynbundið ofbeldi yrði falið að fjalla til viðbótar sérstaklega um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum. Jafnframt að ráðinn yrði sérstakur starfsmaður tímabundið til að undirbúa í samráði við félagasamtök og hagsmunaaðila aðgerðaáætlun vegna þeirra mála sem upp kæmu á þessu sviði. Árni sagði að gert væri ráð fyrir að starfsmað- urinn yrði ráðinn um næstu mánaðamót og nið- urstaða lægi fyrir í lok febrúar þannig að hægt yrði að taka tillögur í þessum efnum til umfjöll- unar í ríkisstjórn í marsmánuði. „Þarna er fyrst og fremst verið að tala um heild- stæða áætlun sem ekki síst tekur á því hvernig á að bregðast við ef upp kemur grunur um kynferð- isafbrot gagnvart barni,“ sagði Árni. Hertar aðgerðir Hann sagði að þetta hefði verið gert í einhverj- um nágrannalandanna og Stígamót og Samtök um kvennaathvarf hefðu hvatt til þess að það yrði einnig gert hér á landi. Ríkisstjórnin væri að bregðast við því og „óneitanlega líka umræðu und- anfarinna daga, sem hefur ekki látið neinn ósnort- inn,“ sagði Árni einnig. Fram kemur jafnframt að þegar sé unnið að margvíslegum verkefnum í þessum efnum. Í dómsmálaráðuneyti sé unnið að hertum aðgerðum gegn heimilisofbeldi og kynferðislegu ofbeldi með endurskoðun á gildandi löggjöf. Þá hafi dóms- málaráðherra falið ríkislögreglustjóra að setja verklagsreglur lögreglu um meðferð og skráningu mála er varði heimilisofbeldi og sé vinnsla þeirra á lokastigi. Unnið sé að endurskoðun á ákvæði almennra hegningarlaga um nauðgun, kynferðisbrot gegn börnum og vændi og verði frumvarp þess efnis lagt fram síðar í vetur. Einnig sé löggjöf um vændi og mansal sérstaklega til umræðu í starfshópi skipuðum af dómsmálaráðherra og til skoðunar sé í dómsmálaráðuneytinu hvaða lagabreytinga sé þörf vegna fullgildingar nýs Evrópuráðssamnings gegn mansali Þá kemur fram að félagsmálaráðherra hafi lagt til að verkefnið „Karlar til ábyrgðar“ verði endur- vakið á næsta ári með 6,5 milljóna króna framlagi á fjárlögum. Aðgerðaáætlun gegn heimilis- ofbeldi og kynferðislegu ofbeldi Eftir Hjálmar Jónsson hjalmar@mbl.is SAUTJÁN ára gömul íslensk stúlka, sem var kærð fyrir að hafa smyglað kókaíni til Englands frá Amsterdam, var í gær sýknuð af dómstóli í Lond- on, að sögn Ika Stevens hjá lögfræði- skrifstofunni Lawrence & Co. sem fór með mál stúlkunnar. Fram hafði komið í breskum fjölmiðlum að stúlk- an hefði verið handtekin með kókaín að andvirði 1,3 milljóna króna. Samkvæmt breskum fjölmiðlum var fíkniefnið falið í skósóla stúlkunn- ar en hún sagðist ekki hafa vitað af efninu í skóm sínum. Rétturinn sýkn- aði stúlkuna og er hún nú frjáls ferða sinna að sögn Stevens. Fram kemur í vefútgáfu South London að stúlkan hafi sagt við lög- reglu að henni hefði verið lofað 100 pundum, rúmum 10.000 kr., fyrir að fara til Hollands og ná þar í peninga. Hún átti síðan að fara með féð til Glasgow í Skotlandi. Stúlkan hafði hins vegar neitað öllum ásökunum þess efnis að hún hefði verið að flytja kókaín að því er fram kom í South London. Sýknuð af dómstóli í LondonSIGURJÓN Sighvatsson og lög- maður hans hittu í gær fulltrúa bæjaryfirvalda á Fljótsdalshéraði vegna málefna Eiðastaðar. Tekist er á um hvort ákvæði í kaupsamn- ingi frá 2001 hafi verið uppfyllt, en ella má rifta kaupunum. Samningurinn um sölu Eiða til Sigurjóns og Sigurðar Gísla Pálma- sonar frá árinu 2001 hefur undan- farnar vikur verið til skoðunar, þar sem í honum er ákvæði um að eig- endur skuli hafa að lágmarki varið 50 milljónum króna til starfsemi á staðnum 1. september 2005. Sigur- jón og Sigurður Gísli skiluðu fyrir nokkru inn bókhaldi fyrir starfsem- ina á umræddu tímabili og var það unnið af KPMG. Var sérstakur starfshópur á vegum sveitarfélags- ins skipaður í kjölfarið til að yf- irfara gögnin. Niðurstaða hans er að þau sýni ekki fram á að áfallinn framkvæmdakostnaður nái 50 millj- óna króna markinu, eins og kveðið er á um. Á almennum fundi um málefni Eiðastaðar, sem haldinn var á Eg- ilsstöðum í gærkvöld, sátu fulltrúar bæjarstjórnar fyrir svörum. Kom m.a. fram hjá þeim að eigendur telja að samningurinn hafi verið uppfylltur. Munu væntanleg gögn frá þeim þar að lútandi inn á borð bæjarráðs, sem fundar 26. október nk. Bæjarstjórn mun svo úrskurða af eða á um riftun og framhald mála á fundi sínum 28. október. 13 dagar eru til stefnu fyrir sveitarfé- lagið að taka ákvörðun, þar sem riftunarákvæði fellur úr gildi 1. nóvember nk. Svo virðist sem bæjaryfirvöld telji koma til greina að rifta kaup- unum á Eiðum, en telji það þó af- arkost og vandlega þurfi að skoða hvað felist í því áður en svo langt sé gengið, enda yrði slíkt mál að öllum líkindum rekið fyrir dóm- stólum. „Við erum enn þá með mál- ið á vinnslustigi og það er við- kvæmt,“ sagði Eiríkur Bj. Björgvinsson, bæjarstjóri Fljóts- dalshéraðs, á fundinum í gærkvöldi. Um 50 manns sóttu Eiðafundinn í gærkvöld og vildu ýmsir fundar- gesta skilyrðislausa riftun kaup- samnings. Tekist á um Eiðastað Eftir Steinunni Ásmundsdóttur austurland@mbl.is Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Um 50 manns sóttu Eiðafundinn á Egilsstöðum í gærkvöld og báru gestir augljóslega hag Eiða fyrir brjósti þótt með ólíkum hætti væri. DEILA Norðmanna og Rússa undanfarna daga vegna rússneska togarans, sem norsk varðskip hafa fylgt eftir frá því á laugardag vegna gruns um ólöglegar veiðar á svo- nefndu verndarsvæði við Svalbarða, snýst um ágreining þjóðanna um hvort Norðmenn hafi fullveldisrétt á hafsvæðinu utan 12 mílna landhelgi Svalbarða. Rússar hafa aldrei viðurkennt rétt Noregs til að stjórna fiskveiðum á verndarsvæðinu við Svalbarða. Um 40 ríki, þ.á m. Ísland, eru aðilar að Svalbarðasamningnum frá 1920 og ágreiningur hefur hvað eftir annað risið um réttarstöðu svæðisins vegna þeirrar afstöðu Norðmanna að samningurinn nái eingöngu til 12 mílna landhelgi Svalbarða. Utan hennar hafi Noregur eitt ríkja full- veldisrétt út að 200 sjómílna efna- hagslögsögumörkum. Hefur nokkrum sinnum komið til árekstra milli Íslendinga og Norð- manna vegna veiða íslenskra skipa í Smugunni, og hljóp deilan í harðan hnút sumarið og haustið 1994 en í ágúst það ár skaut varðskipið Senja tveimur kúlum að togaranum Há- gangi II og færði hann til hafnar í Noregi. Þá hafa íslensk stjórnvöld haft í undirbúningi málsókn gegn Noregi fyrir Alþjóðadómstólnum vegna einhliða ákvörðunar norskra stjórnvalda að setja þak á leyfilegan heildarafla af norsk-íslenskri síld á Svalbarðasvæðinu. Flest aðildarríki samningsins að Rússum undanskildum munu þó þrátt fyrir ágreining um réttarstöðu og stjórn veiða á svæðinu hafa litið svo á í reynd að Norðmenn ættu rétt á að framfylgja reglum á svæðinu og taka skip ef þau eru sannanlega upp- vís að brotum. Á fréttavef Aftenposten í gær er haft eftir Trond Grytting aðmírál sem stýrir aðgerðum norsku varð- skipanna, að hann hafi haft samband við yfirmann rússnesku strandgæsl- unnar og að þeir séu sammála um að togarinn hafi brotið gegn norskum veiðireglum en rússnesk stjórnvöld hafa hins vegar haldið því fram að þau viðurkenni ekki einhliða aðgerð- ir Norðmanna á verndarsvæðinu. Aftenposten hefur einnig eftir Sergej Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, að bæði ríkin séu reiðubúin að reyna að leysa úr deil- unni með samkomulagi. Lavrov tók jafnframt fram að Rússar hefðu aldrei viðurkennt þá afstöðu Norð- manna að þeir hefðu með höndum stjórn fiskveiða á hafsvæðinu. Deila um rétt Norðmanna á umdeildu hafsvæði Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Í dag Sigmund 8 Viðhorf 26 Fréttaskýring 8 Umræðan 26/29 Viðskipti 13 Bréf 29 Erlent 14/15 Minningar 30/32 Minn staður 16 Myndasögur 36 Höfuðborgin 18 Dagbók 36/39 Akureyri 18 Staður&stund 38/39 Suðurnes 19 Leikhús 40 Landið 19 Bíó 42/45 Daglegt líf 20/21 Ljósvakamiðlar 46 Menning 22, 39/45 Veður 47 Forystugrein 24 Staksteinar 47 * * *                                  ! " # $ %       &         '() * +,,,                           Á FJÓRÐA tug ungmenna í Keflavík fór í gærkvöldi á nokkrum bílum til Grindavíkur í þeim tilgangi að gera upp ein- hverjar sakir við ungling sem þar býr, samkvæmt upplýsing- um lögreglu. Fóru lögreglumenn á tveim- ur bílum á eftir unglingunum til Grindavíkur og tókst lögreglu að koma í veg fyrir að átök yrðu. Mikil heift var í ungling- unum sem flestir eru á aldrin- um 16 til 18 ára, samkvæmt upplýsingum lögreglu. Grindvíkingnum sem sótt var að mun ekki hafa orðið meint af. Að sögn lögreglu tókst smám saman að róa ung- lingana niður með tiltali og var sá sem talinn var í forsvari fyrir hópinn sendur í burtu. Leystist þá hópurinn smám saman upp. Enginn var handtekinn vegna málsins. Ekki er vitað hvað unglingunum gekk til. Lögregla stillti til friðar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.