Morgunblaðið - 19.10.2005, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
NÚ Í MYNDSKREYTTRI
ÚTGÁFU
Í
slenskir aðalverktakar ásamt
arkitektunum Ögmundi
Skarphéðinssyni og Ingi-
mundi Sveinssyni urðu hlut-
skarpastir í samkeppni um
tillögu að hönnun og byggingu Há-
skólatorgs Háskóla Íslands. Nið-
urstaða dómnefndar í samkeppninni
var kynnt með viðhöfn í hátíðarsal
Háskóla Íslands í gær.
„Hér er stigið stórt skref í bygg-
ingasögu Háskóla Íslands. Við eigum
spennandi tíma í vændum. Við lítum
nú kröftugt vaxtaskeið við Háskóla
Íslands bæði á sviði rannsókn-
arstarfs og byggingaframkvæmda,“
sagði Kristín Ingólfsdóttir rektor í
ávarpi sínu og benti á að fyrirhuguð
bygging Háskólatorgsins er fjórða
stórbyggingin sem kynnt er á fremur
stuttum tíma. Hinar þrjár eru Askja,
náttúrufræðahús HÍ sem tekin var í
notkun fyrir stuttu, fyrirhuguð
Stofnun íslenskra fræða – Árna-
stofnun og uppbygging Landspít-
alans – háskólasjúkrahúss sem kynnt
var í síðustu viku. Í ávarpi Kristínar
kom fram að Háskólatorgið mun
leysa úr brýnni húsnæðisþörf fyrir
skrifstofur og fyrirlestrasali, en jafn-
framt leiða til betri þjónustu við nem-
endur auk þess sem það muni skapa
frjóan vettvang fyrir kennara og
nemendur úr ólíkum deildum til að
hittast og blanda geði.
Nýjung í útboðsleið
Í ávarpi Kristínar kom fram að
hugmyndina að Háskólatorgi hafi
Páll Skúlason, fyrrverandi rektor,
átt. Sagði hún Pál hafa verið þeirrar
skoðunar að hverfa ætti frá þeirri
stefnu að reisa sjálfstæðar bygg-
ingar um hverja starfseiningu og
leggja þess í stað áherslu á að tengja
saman byggingar á háskólalóðinni.
„Ég tel að mikilvægur þáttur í því að
byggja upp rannsóknarháskóla felist
í því að fólk úr ólíkum deildum fái
tækifæri til að hittast hversdags,
eiga samskipti og skiptast á skoð-
unum því þannig verða oft á tíðum til
góðar og nýstárlegar hugmyndir,“
sagði Kristín í samtali við Morg-
unblaðið. Fram kom einnig í máli
Kristínar að það væri mikilsvert
framlag Háskólasjóðs Eimskipa-
félags Íslands fyrir mikilvæga for-
göngu Björgólfs Guðmundssonar
sem gerði Háskólanum það kleift að
ráðast í byggingarframkvæmdirnar,
en sjóðurinn lagði í upphafi árs 500
milljónir til verksins. En bygging
Háskólatorgsins verður jafnframt
fjármögnuð með sölu fasteigna og
lántöku Happdrættis Háskóla Ís-
lands.
Það var Ingjaldur Hannibalsson,
formaður dómnefndar um Há-
skólatorg, sem kynnti niðurstöður
dómnefndar. Í umsögn hennar um
vinningstillöguna segir meðal annars
að hún beri vott um þroskaða heild-
armynd og í henni sé unnið með fá og
einföld grunnform. Sú hugmynd að
steypa byggingarnar ekki í sama
mót, heldur laga hvora að sínu um-
hverfi, sé djörf og útfærslan heppnist
vel. Innra fyrirkomulag sé hnitmiðað
í öllum megindráttum og að í tillög-
unni hafi tekist að skapa lifandi flæði.
Að sögn Ingjalds bárust fjórar til-
lögur um Háskólatorg og var það
mat dómnefndar að þær væru allar
metnaðarfullar og fjölbreyttar og
gæfu hver um sig nýja sýn á verk-
efnið. Auk vinningshafa lögðu fram
tillögu um Háskólatorg hóparnir ÞG
verktakar ehf. og Sigurður Hall-
dórsson, arkitekt hjá Glámu Kím, Ís-
tak og Steve Christer, arkitekt hjá
Studio Granda, og Keflavík-
urverktakar ásamt Sigurði Hall-
grímssyni, arkitekt hjá Arkþingi.
Glæsileg útfærsla sem efla
mun háskólasamfélagið
Gerði Ingjaldur útboðsleiðina sér-
staklega að umtalsefni. „Við und-
irbúning útboðs um hönnun og bygg-
ingu Háskólatorgs fyrr á árinu var
ákveðið í samráði við Fram-
kvæmdasýslu ríkisins að beita þeirri
útboðsaðferð í fyrsta sinn hérlendis
að festa fjárhæð verkefnisins.
Greiðsla fyrir Háskólatorg var
ákveðin 1,6 milljarðar króna, sem
skyldi unnið í samræmi við kröfu- og
þarfalýsingu,“ sagði Ingjaldur og
benti á að útboðsaðferðin feli í sér að
við mat á tillögum hafi verkkaupi ein-
ungis tekið afstöðu til gæða þeirra,
þar sem kostnaður er fyrirfram
ákveðinn í stað þess að vega saman
verðtilboð og gæði eins og tíðkast
hefur. Með þessu móti er dregið úr
líkum á að lakari tillaga verði fyrir
valinu á grundvelli lægra verðs, jafn-
vel þótt óverulegur munur sé á milli
kostnaðar við hana og kostnaði við
bestu tillöguna,“ sagði Ingjaldur.
Fram kom að áætlað er að hefja
byggingarframkvæmdir vorið 2006
og að vígsla fari fram í árslok 2007.
„Tillagan fjallar um einfaldan hlut.
Hún snýst um flæði milli tveggja
bygginga, þ.e. flæði milli tveggja
grunnforma. Þetta snýst um lifandi
tengingu sem hreyfir ekki eingöngu
fólk heldur hreyfir vonandi við fólki,“
sagði Ögmundur Skarphéðinsson
arkitekt þegar hann kynnti vinnings-
tillöguna fyrir viðstöddum. Meðal
þess sem fram kom í máli hans var að
sérstakt torg, sem hann nefndi Alex-
andertorg, verður staðsett í Há-
skólatorgi I, sem verður að hálfu
leyti inni og að hálfu leyti útirými
sem skilið verður af með glervegg.
Lagði hann áherslu á að nýting
torgsins verði sveigjanleg og nefndi í
því samhengi að þarna yrði að finna
lítið svið auk þess sem möguleiki
væri á því að tjalda yfir útihluta
torgsins. Sagði hann það markmið að
Háskólatorgið yrði alltaf lifandi stað-
ur.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra óskaði Háskóla
Íslands til hamingju með glæsilega
tillögu. „Þetta er glæsileg útfærsla á
Háskólatorgi sem efla mun háskóla-
samfélagið mjög mikið,“ sagði Þor-
gerður Katrín og lagði áherslu á að
það væri markviss stefna ríkisstjórn-
arinnar að halda áfram að byggja
upp öflugt háskólasamfélag og rann-
sóknarsamfélag hérlendis enda væri
það, að hennar sögn, lykilatriðið í al-
þjóðasamkeppninni til framtíðar.
Þakkaði ráðherra í ávarpi sínu sér-
staklega Páli Skúlasyni, fyrrverandi
háskólarektor, sem átti hugmyndina
að byggingu Háskólatorgsins, og
Björgólfi Guðmundssyni fyrir rausn-
arskap hans og framsýni.
Í máli Kristínar kom fram að Há-
skólatorg Háskóla Íslands er sam-
heiti tveggja bygginga á há-
skólasvæðinu, sem verða alls um
8.500 fermetrar að stærð með tengi-
byggingum. Ætlað er að Há-
skólatorg hýsi á þriðja hundrað
starfsmenn og um 1.500 stúdenta á
hverjum tíma, auk gesta. Há-
skólatorg 1 rís á lóð milli Aðalbygg-
ingar og Íþróttahúss og tengist Lög-
bergi. Einnig er ætlunin að tengja
bygginguna við háskólasvæðið vest-
an Suðurgötu með undirgöngum.
Háskólatorg 2 rís þar sem nú er bíla-
stæði á milli Lögbergs, Nýja Garðs,
Árnagarðs og Odda. Háskólatorg 2
tengist Odda á fyrstu og annarri hæð
og Lögbergi á fyrstu hæð.
Bætt þjónusta
við nemendur
Benti Kristín á að Háskólatorg
mun hýsa ýmsa starfsemi sem snýr
að umsýslu og þjónustu við stúdenta
og starfsfólk. Þá verða í Há-
skólatorgi fyrirlestrasalir, kennslu-
stofur, rannsóknastofur, lesrými og
vinnuaðstaða nemenda í grunnnámi
og framhaldsnámi, skrifstofur kenn-
ara, tölvuver og ýmis fjölnota rými
sem þjóna margvíslegum þörfum. Í
Háskólatorgi verður m.a. Bóksala
stúdenta, veitingasala, Nem-
endaskrá Háskólans, Námsráðgjöf
og Alþjóðaskrifstofa sem og starf-
semi Stúdentaráðs og Félagsstofn-
unar stúdenta.
„Mér líst afskaplega vel á vinn-
ingstillöguna,“ sagði Kristín í samtali
við Morgunblaðið. „Hún er glæsileg
og ákaflega fallega útfærð. Hún er
nútímaleg, en á sama tíma fellur hún
mjög vel að þeim byggingum sem
fyrir eru sem og umhverfinu. Þarna
fáum við bætt úr brýnni húsnæð-
isþörf og fáum tækifæri til að bæta
þjónustuna við stúdenta.“
Íslenskir aðalverktakar ásamt arkitektunum Ögmundi Skarphéðinssyni og Ingimundi Sveinssyni hlutskarpastir í
samkeppni um hönnun og byggingu Háskólatorgs HÍ, sem leysir úr brýnni þörf fyrir skrifstofur og fyrirlestrasali
Stórt skref í byggingasögu HÍ
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
!
" #
!
$
%
&
'(
)*!+
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra, Ingjaldur Hanni-
balsson, formaður dómnefndar, og Kristín Ingólfsdóttir, rektor HÍ.