Morgunblaðið - 19.10.2005, Síða 20

Morgunblaðið - 19.10.2005, Síða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF sínu lagi. T.d. eru þau að hanna stól fyrir sænska húsgagnaframleiðand- ann Nelo og innréttingar á skrif- stofu forstjóra sænska verkfræði- fyrirtækisins Sandvik. Kolbrún er sjálf með nokkur verkefni í gangi, Morgunblaðið/Steingerður Hægindastóll hannaður af Kolbrúnu. Eftir Steingerði Ólafsdóttur steingerdur@mbl.is  HÖNNUN | Íslensk feðgin í húsgagnahönnun í Svíþjóð H úsgögn eru sameig- inlegt áhugamál og starfsvettvangur feðginanna Leós Jó- hannssonar og Kol- brúnar Leósdóttur. Kolbrún er nýútskrifaður hús- gagnahönnuður frá Carl Malmsten Centrum för Träteknik och Design (CTD) en Leó er lektor og for- stöðumaður CTD, sem nú er deild við Linköping-háskóla. Þau búa bæði og starfa í Stokkhólmi þar sem Kolbrún er einnig uppalin en for- eldrarnir Leó og Brynja fluttust til Svíþjóðar árið 1977 þegar Kolbrún var á fyrsta ári. „Okkur hefur geng- ið vel að vera ekki pabbi og dóttir í skólanum og höfum haldið því áfram þegar við vinnum saman. En þegar hún kemur í heimsókn með barna- barnið er allt annað uppi á ten- ingnum,“ segir Leó brosandi þar sem þau sitja hlið við hlið í sófa í rótgróinni húsgagnaverslun Carl Malmsten í miðborg Stokkhólms. Sófinn er reyndar lokaverkefni Kol- brúnar við húsgagnahönnunardeild- ina sem einnig er kennd við Carl Malmsten en hann var þekktur sænskur húsgagnahönnuður. Leó hefur hannað húsgögn í yfir þrjá áratugi en hann lærði hús- gagnasmíði hjá Axel Eyjólfssyni á áttunda áratugnum. Eftir það lá leiðin til Svíþjóðar í frekara nám í hönnun og þar hefur starfsvett- vangur hans verið síðan, við hönnun og kennslu. Leó var einn af þeim sem nýlega hlutu náð fyrir augum dómnefndar um val á stólum í Al- þingishúsið og sérhönnuð og -smíð- uð húsgögn eftir hann prýða einnig skrifstofu íslenska sendiráðsins í Stokkhólmi. Hann segist reyndar hafa mesta ánægju af því að sér- hanna húsgögn eða innréttingar. Leó segir hönnuði nú á tímum geta unnið hvar sem er. Hús- gagnaframleiðsla sé í auknum mæli að færast til Asíu og A- Evrópu en ef hönnuðir og fram- leiðendur tali sama tungumálið, þ.e. tungumál CAD-tölvuforrits- ins, sé það ekki vandamál. gefur Kolbrúnu fjármagn til að halda áfram með aðra gerð af sóf- anum þar sem hún lagar til eitt og annað. Svo vonast hún til að sófinn fari í framleiðslu, en hann hefur vak- ið athygli sem hvetur hönnuðinn til dáða. Verslunin leikur einmitt lyk- ilhlutverk í því hvort ákveðið er að setja húsgagn í framleiðslu þar sem áhugi viðskiptavina skiptir miklu máli. Verslunin er hluti af arfleifð Carls Malmstens en er óháð hönnunardeildinni sem kennd er við Malmsten. Búðin er nú rekin af sonarsyni Carls Malmstens. „Það er mikilvægt fyrir skólann að eiga góða samvinnu við hús- gagnaframleiðendur og -verslanir. Þessi verslun er til dæmis mjög mikilvæg þar sem hún er rótgróin og í kringum hana er stórt tengsl- anet,“ segir Leó um samvinnu skól- ans og verslunarinnar. Kolbrún er ánægð með námið og segir einmitt svo jákvætt hve teng- ingin við atvinnulífið er sterk. „Ég staðhæfi án þess að blikna að þetta er besta húsgagnahönnunarnám í Norður-Evrópu,“ segir Leó. „Námið gengur alfarið út á húsgagnahönnun en aðferðafræðina er þó hægt að nota við hönnun á hverju sem er. Það er til í dæminu að nemendur út- skrifaðir frá okkur fari að fást við hönnun á gleraugnaumgjörðum.“ Leó segir mikilvægt fyrir íslenska hönnuði að hjálpast að við að koma sér á framfæri. Hann hefur unnið með íslenska sendiráðinu að því að kynna íslenska hönnuði í Svíþjóð til að stækka tengslanetið. „Tengslanet skiptir aðalmáli, þú getur verið svakalega klár en kannski veit eng- inn af því.“ Kolbrún hlýtur t.d. að hafa notið góðs af tengslaneti Leós? „Já, já. Það hefur opnað mér ýmsar dyr en svo verð ég líka að sanna mig.“ Meðfædd sköpunarþörf Kolbrún hefur erft hönnunarhæfi- leikana og áhugann. „Ég hef verið í þessu alla ævi. Þetta er eitthvað í blóðinu, pabbi hefur alltaf matað mig á hönnun og sköpunarþörfin er eins og meðfædd.“ Leó tekur undir þetta og segist hafa leikið sér und- ir bandsöginni hjá pabba sínum þegar hann var sex, sjö ára. Faðir hans, Jóhann Smári Jóhann- esson, er húsgagnasmiður og hjá Leó lá beinast við að feta í hans fótspor. „En ég reyndi nú að halda Kolbrúnu frá þessu,“ bætir hann sposkur við. Er þetta þá ekkert spennandi starf? „Jú, þetta er svakalega spennandi starf en mjög erfitt. Það er hægt að líkja þessu við að margir sækja um leiklistarskóla og hafa sem markmið að komast til Hollywood. En það eru ekki allir sem komast þangað þótt margir séu mjög góðir leikarar.“ Kolbrún kvíðir þó ekki framtíðinni. „Mér finnst þetta spennandi. Ég geri mér grein fyrir að þetta verður alltaf mikil vinna. En það er líka gaman og það drífur mann áfram. Ég stefni ekki að því að verða nein súperstjarna,“ segir hún hógvær. Áhugi hennar beinist frekar að fjöldanum, þ.e. að hanna eitthvað sem getur orðið sem flestum til gagns. „Til dæmis fyndist mér frá- bært að fá að hanna fyrir Ikea sem nær til svo margra. Mig langar að ná til almennings með skemmtilegum lausnum. Helst með húsgagna- og innréttingahönnun en mér finnst líka gaman að teikna eldhúsdót, hnífapör og stell, og gardínur og mynstur.“ Kolbrún og Leó hafa unnið saman að nokkrum verkefnum og eins hvort í Samstarfs- verkefni feðginanna. t.d. hönnun skilrúma fyrir framleiðandann Abstracta. Sófar til að liggja í Sófinn sem hún situr í er frum- gerð og markmið lokaverkefnisins var að hanna sófa sem bætti upp það vöruúrval sem fyrir var hjá Carl Malmsten-versluninni. „Ég hafði í huga tvo stóla sem hér eru og við þá vantaði stóran sófa. Hér eru margir litlir sófar sem voru hannaðir fyrir áratugum þegar bara var setið í sóf- um. Núna liggur fólk oft frekar í sóf- anum en situr, og ég hafði það í huga við hönnunina,“ segir Kolbrún. Sóf- inn hefur staðið í versluninni í sumar og seldist raunar hæstbjóðanda fyr- ir 40 þúsund sænskar krónur sem er það verð sem kemur til með að verða sett upp fyrir sófann ef hann fer í framleiðslu. Salan á frumgerðinni „Þetta er eitthvað í blóðinu“ Feðginin Kolbrún Leósdóttir og Leó Jóhannsson í sófa sem var lokaverkefni Kolbrúnar við húsgagnahönn- unardeildina í Carl Malmsten Centrum för Träteknik och Design. Stóll sem Kolbrún á heiðurinn af.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.