Morgunblaðið - 19.10.2005, Page 35
SAMFYLKINGIN hefur stofnað
níu vinnuhópa undir stjórn þing-
manna flokksins. Verkefni hóp-
anna er að móta og samræma
stefnu Samfylkingarinnar, vinna
tillögur og halda uppi umræðu á
viðkomandi málasviði innan þings
og utan. Í hópunum eiga sæti,
auk þingmanna, fulltrúar til-
nefndir af framkvæmdastjórn
flokksins og sveitarstjórnarráði
og verkalýðsmálaráði þar sem
það á við. Formaður hvers hóps
er tilnefndur af formanni flokks-
ins að höfðu samráði við varafor-
mann og formann þingflokks.
Hóparnir eru:
1. Forsætishópur: Almenn
stefnumótun og verkstýring.
Efnahagsmál almennt, lýð-
ræði, mannréttindi, stjórnar-
skrá, jafnrétti, stjórnsýsla rík-
isins, viðskipta- og bankamál.
Formaður Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir. Varaformaður
Ágúst Ól. Ágústsson.
2. Utanríkismálahópur: Öryggis-
og varnarmál, alþjóðastofnanir
og samningar sem ekki heyra
beinlínis undir aðrar nefndir.
Formaður Össur Skarphéðins-
son. Varaformaður Þórunn
Sveinbjarnardóttir.
3. Ríkisfjármálahópur: Fjárlög,
fjáraukalög, ríkisreikningur,
ríkisendurskoðun, skattamál.
Formaður Jóhanna Sigurðar-
dóttir.. Varaformaður Helgi
Hjörvar.
4. Félags- og tryggingamálahóp-
ur: Málefni fatlaðra, aldraðra,
félagsleg aðstoð, almanna-
tryggingar, húsnæðismál, fjöl-
skyldumál, málefni verkalýðs-
Vinnuhópar Samfylkingarinnar
hreyfingarinnar. Formaður
Ásta R. Jóhannesdóttir. Vara-
formaður Kristinn Karlsson.
5. Heilbrigðismálahópur: Mál-
efni sjúkrahúsa, heilsugæslu,
meðferðarstofnana, endurhæf-
ingar, forvarnir. Formaður
Ágúst Ól. Ágústsson. Varafor-
maður Margrét Björnsdóttir.
6. Mennta- og menningarmála-
hópur: Leikskólar, grunnskól-
ar, framhaldsskólar, háskólar,
fullorðinsfræðsla, menningar-
stofnanir, menningarsjóðir,
æskulýðs- og íþróttamál. For-
maður Einar Már Sigurðarson.
Varaformaður Björgvin G. Sig-
urðsson.
7. Atvinnumálahópur: Sjávarút-
vegsmál, landbúnaðarmál, iðn-
aðarmál og ferðamál, nýsköp-
un og þróun. Formaður Jón
Gunnarsson. Varaformaður
Svanfríður Jónasdóttir.
8. Innanríkismálahópur: Sam-
göngumál, byggðamál, sveitar-
stjórnarmál, dóms- og lög-
reglumál, eftirlitsstofnanir s.s.
fjármálaeftirlitið og sam-
keppnisstofnun. Formaður
Lúðvík Bergvinsson. Varafor-
maður Lúðvík Geirsson.
9. Umhverfismálahópur: Auð-
lindamál, umhverfismál, meng-
unarmál, náttúruverndarmál,
skipulags- og byggingarmál,
skipulagsmál hálendisins og
mat á umhverfisáhrifum,
verndun fiskistofna og alþjóða-
samningar á sviði umhverfis-
mála, Landgræðsla, Skógrækt.
Formaður Rannveig Guð-
mundsdóttir. Varaformaður
Mörður Árnason.
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2005 35
FRÆÐSLUFUNDUR ADHD samtakanna
verður haldinn miðvikudaginn 20. október
kl. 20, í Safnaðarheimili Háteigskirkju.
Fræðslufundur á þessari önn er fyrir afa
og ömmur og aðra ættingja barna með at-
hyglisbrest og ofvirkni. Fleiri sem um-
gangast börnin s.s. stuðningsfulltrúar í
skólum, félagsliðar félagsþjónustu sveitar-
félaga og tómstundafulltrúar eru einnig
velkomnir.
Gylfi Jón Gylfason yfirsálfræðingur á
skólaskrifstofu Reykjanesbæjar mun fjalla
um hvernig einkenni athyglisbrests og of-
virkni hjá barni eða unglingi hafa áhrif á
alla fjölskylduna.
Fræðslufundur
ADHD samtakanna
VIÐ fengum þrjá birtinga í gær-
kvöldi og misstum tvo þegar við
skruppum niður á bakka,“ sagði
Ragnar Johnsen leigutaki Vatna-
mótanna. Gríðarmikið vatn var á
svæðinu í kjölfar rigninganna en
óveiðandi var um helgina. Ragnar
sagði kropp hafa verið síðustu vikur
og jöfn veiði. „Þetta veiðitímabil hef-
ur verið mjög gott, rúmlega 900 fisk-
ar eru komnir á land og stefnir í met
ef við náum nokkrum til,“ en mesta
veiði í Vatnamótunum er 920.
„Mikið af stórum fiski hefur kom-
ið upp, sérstaklega fyrripartinn í
haust. Við höfum samt ekki séð jafn
miklar sveiflur og oft áður, þetta
hefur verið jafnara. Eitt holl náði
samt 24 fiskum, þar af voru 23 fjög-
ur til ellefu pund, og annað holl náði
35 birtingum.
Svo hafa ævintýri verið að gerast
víða á svæðinu. Ég heyrði af mönn-
um sem voru í Laxá, Brúará, og
náðu um 60 birtingum á stangirnar
tvær á einum degi,“ sagði Ragnar.
Kuldinn hefur gert veiðimönnum
erfitt fyrir á sjóbirtingsslóð á síð-
ustu vikum. Ágæt veiði hefur verið í
Geirlandsá í haust, þegar vatnið hef-
ur ekki verið of kalt. Hollin hafa þá
fengið hátt í tuttugu fiska, en tæp-
lega 180 fiskar hafa verið skráðir í
september og október. Félagar sem
voru við veiðar í snjó í lok síðustu
viku hreyfðu þó lítið fisk, enda var
vatnshitinn frá núll og upp í tvær
gráður og lofhitinn fór varla yfir
eina gráðu. Engu að síður náðu þeir
að landa tveimur og misstu aðra tvo.
Um 90 laxar veiddust í Húseyj-
arkvísl í Skagafirði í sumar og var
um helmingi sleppt aftur í ána.
Veiðimenn sáu mikið af sjóbirtingi í
haust, en vegna kulda og veðurað-
stæðna gekk oft illa að fá hann til að
taka. Þegar réttar aðstæður sköp-
uðust náðu slyngir veiðimenn þó að
setja í 20, 30 fiska.
Í nýjum Veiðifréttum SVFR,
kemur fram að mjög góð veiði var í
sumum laxveiðiám félagsins í sum-
ar. Mest hefur borið á Norðurá í
þeirri umræðu, en alls veiddust
3.142 laxar í ánni, sem er met. Eldra
metið, frá 2002, var 2.217. Í Hítará
veiddust 706 laxar en eldra metið
var frá árinu 1978 þegar 649 veidd-
ust. Lokatalan úr Gljúfurá var 255
laxar, sem er beta veiði en í tíu ár. Í
Fáskrúð í Dölum veiddust um 280,
sem er besta veiði síðan 1992 og í
Andakílsá veiddist 233 laxar. Þá
veiddust 460 í Fnjóská, sem er tíu
löxum meira en í fyrra, Laxá í Kjós
var yfir meðaltalsveiði, eða í 1.550.
Loks veiddust 744 laxar í Leirvogsá,
sem er frábær árangur á tvær
stangir. Ekki komu allar árnar þó
vel út. Sennilega fengust ekki fleiri
en 20 laxar úr Þverá í Fljótshlíð og
er það hátt fall frá fyrra ári, er 174
laxar veiddust. Þá olli Svartá í
Húnaþingi vonbrigðum en aðeins
veiddust 220 laxar, sem er lakasta
útkoman frá árinu 2000. Í Soginu
veiddust 283 laxar og lítið fór fyrir
tveggja ára laxinum eins og víða
annarsstaðar. Korpa var lakari en
oftast áður, gaf aðeins um 200 laxa.
Ásgeir Ásmundsson, leigutaki
Skógár, segir 311 laxa hafa veiðst í
ánni í sumar en einungis var veitt í
70 daga. Veiðin hefur aukist mjög
síðustu ár, eða úr 13 löxum árið
2001. Besta veiðin var í ágúst, 137
laxar, en heldur dró úr veiðinni í
ágúst, enda æði kalt oft á tíðum, en
engu að síður náðust þá 116. Rúm-
lega helmingur aflans náðist á flugu
og var Snældan öflugust eins og svo
víða, gaf 87. Þá var silungsveiðin
mjög góð, eða 1.034.
Nýir leigutaka Brennu í Borg-
arfirði, ármóta Hvítár og Þverár,
hafa opnað nýjan vef; brennan.is.
Á vefnum kemur fram að í sumar
hafi veiðst 363 laxar og rúmlega 200
sjóbirtingar á Brennu og er það
metveiði á svæðinu.
Uppboð á veiðileyfum
Verndarsjóður villtra laxastofna.
NASF, undir stjórn Orra Vigfús-
sonar, stendur fyrir uppboði síðar í
mánuðinum í Osló, til styrktrar
áætluninni um uppkaup neta í
Þrándheimsfirði í Noregi á næstu
fimm árum. Netin voru keypt upp á
hluta svæðisins í vor og strax í kjöl-
farið var besta veiðin í áratugi í
kunnum ám í Þrándheimsfirði.
Meðal þess sem boðið verður upp
á hátíðinni, þar sem árangri sumars-
ins er fagnað og unnið að frekari
uppkaupum netanna, eru veiðidagar
á besta tíma í hinum frægu ám Alta,
Gaula og Namsen. Hægt er að bjóða
í leyfin í gegnum netið, í síma og í
pósti. Frekari upplýsingar um upp-
boðið er hægt að fá með því að senda
póst til nasf@vortex.is.
STANGVEIÐI
Ágæt sjóbirt-
ingsveiði þegar
vel viðrar
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Björn Eriksson, hótelstjóri á Hótel Rangá, með vænan sjóbirtingshæng
úr klakveiði í Vatnsá um helgina.
veidar@mbl.is
100 ÁR voru um helgina liðin frá því Verslunarskóli Íslands var sett-
ur í fyrsta sinn. Hefur tímamótanna verið minnst með marg-
víslegum hætti undanfarna daga. Á föstudag var haldin hátíð-
arsamkoma í Borgarleikhúsinu vegna afmælis skólans. Á
samkomunni voru nokkrir fyrrverandi og núverandi kennarar
heiðraðir fyrir störf sín við skólann. Á myndinni sjást kennararnir.
Frá vinstri Þórunn Felixdóttir, Ninna Breiðfjörð Sigurðardóttir, Valdimar
Hergeirsson, Stefán Már Ingólfsson Sölvi Eysteinsson, Kirsten Friðriks-
dóttir og Baldur Sveinsson. Kennararnir fengu afhent sérstök gullmerki
skólans sem útbúin voru í tilefni 100 ára afmælisins. Gunnar Helgi Hálf-
danarson, formaður skólanefndar, og Þórunn Elísabet Bogadóttir, forseti
nemendafélags Verslunarskólans, afhentu viðurkenningarnar.
Heiðruð fyrir störf við VÍ
Morgunblaðið/Árni Sæberg
TVEIR Danir, karlmaður og kona, hafa
verið dæmd í fangelsi fyrir að flytja hass
til landsins frá Kaupmannahöfn. Karlinn
var með hassið bundið um sig miðjan en
konan hafði skotið út úr bók til að koma
hassinu fyrr.
Konan kom til landsins 30. september
sl. og við leit tollvarða á Keflavíkurflug-
velli í farangri hennar fundust 320
grömm af hassi sem hafði verið komið
fyrir inni í bók. Til þess að hægt væri að
koma hassinu fyrir hafði verið skorið úr
blaðsíðum í miðri bókinni og fíkniefninu
komið fyrir í holrúmi sem þannig skap-
aðist. Við saksókn var því lýst yfir af
hálfu ákæruvalds að saksókn á hendur
konunni miðaðist ekki við að hún hefði
flutt hassið inn í söluskyni. Héraðsdómur
Reykjaness dæmdi konuna, sem er 37 ára
gömul, í eins mánaðar skilorðsbundið
fangelsi. Haldi hún skilorð í þrjú ár fellur
refsingin niður.
Með hass um sig miðjan
Karlmaðurinn, sem er 21 árs gamall,
kom til landsins viku síðar, eða 7. októ-
ber, og hafði hann límt um eitt kíló af
hassi um sig miðjan. Ljóst þótti að hassið
væri ætlað til sölu hér á landi og var hann
dæmdur í þriggja mánaða fangelsi, óskil-
orðsbundið.
Þorgeir Ingi Njálsson kvað upp dóminn
yfir konunni en Guðmundur L. Jóhann-
esson yfir karlmanninum. Verjendur voru
hæstaréttarlögmennirnir Guðmundur B.
Ólafsson og Sveinn Andri Sveinsson.
Sævar Lýðsson, fulltrúi sýslumannsins á
Keflavíkurflugvelli, sótti málin.
Skorið út úr
bók til að koma
fyrir hassi
♦♦♦