Morgunblaðið - 10.11.2005, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.11.2005, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR TILRÆÐI Í AMMAN Tugir manna létu lífið og hundruð særðust í sprengjutilræðum á þrem hótelum í Amman í Jórdaníu í gær- kvöld. Talið er að um sjálfsmorðs- sprengjumenn hafi verið að ræða og líkur benda til aðildar al-Qaeda- manna, að sögn embættismanna í Jórdaníu. Umrædd hótel eru mikið sótt af erlendum ferðamönnum og stjórnarerindrekum, þ. á m. Ísr- aelum. Lýsi nauðsynlegt Ný íslensk rannsókn sýnir að inn- taka D-vítamíns getur styrkt beinin og varið fólk gegn beinþynningu. Sýna rannsóknir einnig að lang- flestir þurfa að taka lýsi eða D- vítamíntöflur um 10 mánuði á ári. Endurnýja þarf tækjabúnað Krabbameinsfélag Íslands þarf að endurnýja tækjabúnað og betr- umbæta tölvukerfi svo að hægt verði að taka upp stafræna röntgentækni sem auka mun nákvæmni við grein- ingu brjóstakrabbameins. Mun verkefnið kosta um 350 milljónir króna. Blair tapaði Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, beið sögulegan ósigur á þingi í gær þegar greidd voru at- kvæði um ákvæði í nýjum lögum gegn hryðjuverkum. Vildi rík- isstjórnin að lögreglan fengi að hafa meinta hryðjuverkamenn í haldi í allt að 90 daga án ákæru. Margir þingmenn Blairs voru sammála stjórnarandstæðingum um að 90 dagar væru of langur tími. Launanefnd fundar stíft Launanefnd aðila vinnumarkaðar- ins sat á 5 klukkustunda löngum fundi í gær. Nefndin hefur tíma til miðnættis 15. nóvember til að kom- ast að niðurstöðu. Y f i r l i t Í dag Fréttaskýring 8 Daglegt líf 26/27 Úr verinu 15 Umræðan 28/29 Erlent 16/17 Minningar 36/41 Minn staður 18 Brids 34 Höfuðborgin 19 Myndasögur 36 Akureyri 19 Dagbók 36/39 Landið 20 Staður og stund 38 Austurland 20 Leikhús 40 Menning 21, 40/45 Bíó 42/45 Neytendur 22/23 Ljósvakamiðlar 46 Forystugrein 24 Veður 47 Viðhorf 26 Staksteinar 47 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju- starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                   ! " # $ %          &         '() * +,,,                       SJÖTTA SKÁLDVERKIÐ ER KOMIÐ ÚT! „Fólk á öllum aldri smitast af gleðinni … enginn ætti að láta þennan furðufugl fram hjá sér fara.” Þórarinn Þórarinsson / Fréttablaðið Geggjað grín, hörku hasar klístrað klúður www.jpv.is METSÖLULISTI EYMUNDSSON barnabækur / 9. nóv HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness dæmdi í gær Phu Tién Nguyén í sex- tán ára fangelsi fyrir að verða Phong Van Vu að bana með hníf í íbúð við Hlíðarhjalla í Kópavogi þann 15. maí í vor og fyrir að stinga mann sem reyndi að stöðva atlöguna. Einn dómari af þremur skilaði sératkvæði og vildi dæma hann í 13 ára fangelsi. Phu var einnig dæmdur til að greiða ekkju Phong 7,2 milljónir í skaðabætur, dóttur hins látna tæp- lega 5 milljónir og manninum sem reyndi að stöðva árásina 500.000 krónur. Í dómnum kemur fram að vitni voru samdóma um að komið hafði til deilna milli ákærða og hins látna og að þeir hafi rifist um hvort hinum yngri, Phong, bæri að sýna hinum eldri virðingu þegar hann ávarpaði þá. Virðist sem deilt hafi verið um hvort siðareglur sem um þetta gilda í fyrrum heimalandi þeirra ættu einnig að gilda hér á landi. Phu Tién Nguyén hélt því fram að Phong Van Vu hefði ráðist á sig inni á baðherbergi og veitt honum höf- uðhögg. Hann hafi verið gripinn mikilli hræðslu sem hafi leitt til þess að hann missti stjórn á skapi sínu og því gripið til hnífsins sem hann var með í jakkavasa sínum. Hnífinn hafi hann borið á sér til að verja son sinn. Dómnum þótti þessi lýsing ósann- færandi og mótsagnakennd. Fram- burður mannsins sem gekk á milli þeirra beri það með sér að Phu hafi haft „harðan og einbeittan“ ásetning til þess að bana Phong en vitnið greindi m.a. frá því að hann hefði séð Phu nota aðra höndina til að lyfta eða styðja Phong, sem var orðinn máttfarinn og farinn að hallast fram, og stinga hann með hnífi með hinni. Eftir talsverð átök tókst að afvopna Phu en eftir það reyndi hann aftur að ráðast að Phong og ná í önnur vopn til að halda atlögunni áfram, að sögn vitna. Dómurinn taldi engar forsendur til að líta á verknað Phu sem neyð- arvörn enda sé það skilyrði neyðar- varnar að hún sé ekki augljóslega hættulegri en árásin. Jafnvel þó Phong hefði hugsanlega ráðist að Phu með berum höndum hefði það aldrei réttlætt hina banvænu árás. Geðlæknir taldi Phu sakhæfan þó hann treysti sér ekki til að útiloka að hann hefði haft skert sakhæfi við sjálfa árásina þar sem hann kynni að hafa vankast við högg frá Phong og fengið heilahristing. Phu kannaðist þó ekki við að hafa vankast né varð hann var við einkenni heilahristings. Dómurinn taldi hann því sakhæfan. Sveinn Sigurkarlsson og Gunnar Aðalsteinsson mynduðu meirihluta dómsins og dæmdu hann í 16 ára fangelsi. Í sératkvæði Guðmundar L. Jó- hannessonar er m.a. bent á álit geð- læknis sem segir að eftir heilahrist- ing sem Phu hlaut í bílslysi sé hann eftir áfengisneyslu viðkvæmari fyrir hömluleysi og hvatvísi við mikið álag. Taldi dómarinn ekki rétt að úti- loka að hin óeðlilegu viðbrögð Phu við aðstæðum verði að einhverju leyti rakin til þess að hann hafi áður hlotið alvarlegan heilahristing. Sig- ríður Friðjónsdóttir sótti málið f.h. ríkissaksóknara en Sigmundur Hannesson hrl. var til varnar. Sextán ár fyrir manndráp Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is ÚSRKURÐUR umhverfisráðherra verður væntanlega reifaður í borgarráði í dag, en Steinunn Valdís Ósk- arsdóttir borgarstjóri segir að nú virðist ekkert vera því til fyrirstöðu að fara innri leiðina eins og hún var kynnt. Hún tók þó fram að hún væri ekki búin að lesa úrskurðinn í heild, en fyrirvarar til fram- kvæmdaraðila virtust ásættanlegir við fyrstu sýn. Unnin hefur verið tölvuteiknuð mynd sem sýnir hvernig Sundabrautin gæti tengst Sæbraut, án þess að auka gegnumakstur um íbúðarhverfi, t.d. um Skeiðarvog. Steinunn segir að hún hafi alltaf haft þann fyrirvara á að frágangur gatnamóta við Skeið- arvog yrði með þeim hætti að umferðin færi beint upp Skeiðarvoginn. „Við höfum verið að vinna í því að reyna að koma til móts við íbúana með því að teikna upp þessa lausn. Það hafa verið stofnuð íbúasamtök um þetta mál í Laugardalnum sem munu vera í samráði við okkur varðandi útfærsluna og framhaldið,“ segir Steinunn. Framkvæmdasvið borgarinnar mun halda kynningarfund vegna Sundabrautarinnar 17. nóv- ember. Tölvuteiknuð mynd sem sýnir hugmyndir borgarinnar að hönnun gatnamóta Sundabrautar og Sæbrautar. Sunda- brautin kemur úr vinstra horninu niðri og liggur þvert á Sæbrautina, en efst má sjá Skeiðarvog. Innri leiðin engin fyrirstaða LANGVARANDI aðstöðuleysi barna- og unglingageðdeildar leiðir til þess að læknakandídatar velja sér önnur sérsvið og of lítil nýliðun hjá barna- og unglingageðlæknum getur ógnað starfsemi deildarinnar, segir Ólafur Ó. Guðmundsson, yfirlæknir barna- og unglingageðdeildar Landspítala – háskólasjúkrahúss (BUGL). Telur hann tímabært að stofna kennslustöðu í greininni við læknadeild Háskólans og ráðast þurfi þegar í stað í byggingarfram- kvæmdir við Dalbraut. „Það eru gerðar stöðugt auknar kröfur um þjónustu barna- og ung- lingageðlækna og BUGL um leið og ekki er hugað að því að undirstaðan sé í lagi, eins og aðbúnaður og staða sérgreinarinnar innan spítalans, kennslu- og rannsóknaraðstaða. Það stefnir í of litla nýliðun í þessari sér- grein í framtíðinni og það er áhyggjuefni til lengri tíma litið en vonandi verður hægt að grípa til að- gerða í millitíðinni. Þá þarf að ákvarða hvert hlutverk deildarinnar á að vera, hvort hún á að sinna allri grunnþjónustu eins og sumir ætlast til í dag eða hvort hún á eingöngu að veita sérhæfða sjúkrahúsþjónustu og þá hverjir eigi að sinna grunn- þjónustunni,“ segir Ólafur. Göngudeildarkomur á BUGL eru orðnar yfir 5.000 á ári og nýting legudeildarrýma á tímabilum vel yfir 100%. Þrátt fyrir þessa aukningu eru enn langir biðlistar eftir grein- ingu og meðferð, og ljóst að frekari þjónustuaukning getur ekki orðið hjá BUGL án þess að stækka og bæta húsnæðið. 90 milljónir vantar enn til þess að hægt verði að hefjast handa við viðbyggingu. Of fáir sérhæfa sig í geðlækningum barna UMHVERFISRÁÐHERRA hefur staðfest úrskurð Skipulagsstofnunar við mat á umhverfisáhrifum vegna 1. áfanga Sundabrautar, en setur skil- yrði um samráð við íbúa í Hamra- hverfi, og við hafnaryfirvöld og hags- munaaðila í Sundahöfn. Í úrskurðinum segir að umhverfis- áhrif vegna Sundabrautar séu ekki umtalsverð í skilningi laga um mat á umhverfisáhrifum, og því úrskurður Skipulagsstofnunar staðfestur. Þrjár kærur bárust umhverfis- ráðuneytinu vegna úrskurðar Skipu- lagsstofnunar, frá Eimskip, Árna B. Helgasyni og Jóhanni P. Símonar- syni o.fl., en henni fylgdi undir- skriftalisti 337 íbúa í Grafarvogi. Umhverfisráðuneytið staðfestir úrskurð Skipulagsstofnunar en set- ur tvö skilyrði. Í fyrsta lagi verði Reykjavíkurborg og Vegagerðin að hafa samráð við íbúa Hamrahverfis um hönnun og útfærslu hljóðvarna og reyna að haga hljóðvörnum með þeim hætti að óæskileg umhverfis- áhrif verði sem minnst. Þá hafi borg og Vegagerðin samráð við hafnaryf- irvöld og hagsmunaaðila í Sundahöfn við hönnun og útfærslu á umferðar- mannvirkjum sem tengja hafnar- svæðið við Sæbraut og Sundabraut. Umhverfisráðherra vegna Sundabrautar Skilyrði um samráð við íbúa og höfn Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.