Morgunblaðið - 10.11.2005, Page 4

Morgunblaðið - 10.11.2005, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ERÓTÍSKUR GÆÐAKRIMMI www.jpv.is „Spennandi og plottið flókið … snjall textahöfundur.“ Sigríður Albertsdóttir / DV Súsanna Svavarsdóttir fer hér ótroðnar slóðir. Æsileg, blóðheit spennusaga sem ögrar viðteknum gildum og þenur taugar lesandans til hins ýtrasta. „Við þráum öll holdlegan unað en þurfum að berjast við ógnarafl velsæmisins áður en við leyfum okkur að njóta hans. Á sinni löngu vegferð hefur maðurinn náð furðulegum árangri í að eyðileggja þá fegurð sem felst í kynhvötinni.“ 30% AFSLÁTTUR Gildir til 15.11. 2005. SÓLVEIG Kr. Einarsdóttir hefur afhent Lands- bókasafni Íslands – Háskólabókasafni til eignar og varðveislu bréfa- og skjalasafn föður síns, Einars Ol- geirssonar alþingismanns. Safnið hefur að geyma tæplega 400 bréf. Bréfin spanna mestallt tímabilið frá árunum 1921 og til 1991. Í skjölum Einars eru m. a. handrit að ræðum og greinum, handrit að þýðingu Stefáns Pjeturssonar og Einars að Kommúnistaávarpinu sem þeir unnu úti í Þýskalandi 1923; greinargerð um afstöðu Sósíal- istaflokksins til forsetakjörs 1952; stílabækur og minnismiðar frá skólaárum Einars heima á Íslandi og í Þýskalandi, vegabréf hans og ýmis fylgiskjöl. Þarna má einnig finna eiginhandarrit Stephans G. Stephanssonar að þýðingu hans á ljóði Oliver Wen- dell Holmes Skeljabobbinn frá árinu 1923 og nokkur handrit Þorsteins Valdimarssonar skálds og ým- islegt fleira. Bók Sólveig Kr. Einarsdóttur Hugsjónaeldur – minningar um Einar Olgeirsson, sem hún byggir meðal annars á þessum gögnum, er væntanleg í bókabúðir í nóvember. Sólveig Kr. Einarsdóttir afhenti Erni Hrafnkelssyni, for- stöðumanni hjá Landsbókasafni, dagbækur föður síns. Afhenti bréfa- og skjalasafn Einars Olgeirssonar STRÆTISVAGNASTJÓRINN Andrzej Gaj er frá bænum Radków sem er í námunda við Klodzko í Pól- landi. Þar ók hann strætisvagni í meira en 30 ár, en fyrir tæpum mán- uði söðlaði hann um og fluttist til Ís- lands. Gaj ekur nú strætisvagni hjá Hagvögnum í Hafnarfirði, en fyr- irtækið réð nýlega fimm Pólverja til aksturs hjá sér. Blaðamaður og ljósmyndari brugðu sér í Hafnarfjörð í slyddunni í gær og fóru í ökuferð í strætó ásamt Gaj og öðrum Pólverja, Sebastian Kobryn. Kobryn hefur starfað sem vagnstjóri hjá Hagvögnum í tvö ár en hefur nú fengið það verkefni að að- stoða Pólverjana fimm við að aðlagast í nýja starfinu. Gaj ekur strætisvagninum í átt að Áslandshverfi. „Göturnar eru betri hér,“ segir hann þegar blaðamaður spyr hver sé mesti munurinn á stræt- isvagnaakstri á Íslandi og í heimabæ hans í Póllandi. „Það er betra að eiga við umferðina hér, hún er mun minni en í Póllandi,“ bætir hann við. Hann lætur vel af sér í hinu nýja starfi. „Þetta hefur gengið mjög vel, mér líð- ur vel í þessu starfi,“ segir Gaj. Hann á konu og tvær dætur sem urðu eftir í Póllandi. Önnur dóttir hans hefur gengið í hjónaband en hin er að ljúka háskólanámi. Gaj segist hugsa til fjölskyldu sinnar. Ekki er enn ákveðið hvort hún fylgir honum hingað til lands, en fyrst hyggst Gaj vinna hér um hríð. Farþegar þurft aðlögun Sebastian Kobryn fluttist hingað til lands árið 1998, en þá höfðu foreldrar hans búið hér í tvö ár. Hann hafði ek- ið strætisvagni í tvö ár þegar hann var fenginn til þess að aðstoða nýju pólsku strætisvagnastjórana, meðal annars með gerð leiðbeiningabækl- ings fyrir þá. Hann segir að það sé nokkur áskorun að starfa sem stræt- isvagnastjóri án þess að hafa fullt vald á íslensku. „Þetta var dálítið erfitt fyrir mig fyrst því ég talaði íslensku ekki reip- rennandi. Svo fór ég á námskeið til að læra málið en ég lærði hins vegar mest af því að tala við fólk meðan ég var við vinnu mína,“ segir Kobryn. „Farþegar hafa líka þurft að aðlag- ast. Pólverjarnir fimm sem hófu störf hjá okkur nýverið segja að þeir hafi tekið þeim mjög vel og engar kvart- anir hafa borist eftir að þeir hófu störf,“ bætir hann við. Andrzej Gaj ók strætisvagni í 30 ár í Póllandi en er nú vagnstjóri í Hafnarfirði „Betra að eiga við umferðina hér“ Morgunblaðið/Þorkell Pólverjarnir Sebastian Kobryn og Andrzej Gaj segja strætisvagnafarþega hafa tekið þeim vel og umferðin hér sé mun minni en heima fyrir í Póllandi. Andrzej Gaj hefur ekið strætisvagni hjá Hagvögnum í tæpan mánuð. Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is RÍKISSTJÓRNIN hefur samþykkt að veita iðnaðar- og viðskiptaráð- herra heimild til að leggja fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um einkaleyfi, en tilgangurinn er að stuðla að því að hér verði til lyf til varnar ef heimsfaraldur svo sem inflúensa brýst út. Frumvarpið er samið á vegum við- skiptaráðuneytisins í samráði við heilbrigðis- og tryggingamálaráðu- neytið með sérstöku tilliti til sam- þykktar ríkisstjórnarinnar um við- brögð vegna hugsanlegs heimsfar- aldurs svo sem inflúensu en þá má búast við að innflutningur lyfja tak- markist eða stöðvist alveg um nokk- urn tíma. Þá er samtímis, líkt og í norskum lögum um einkaleyfi, gert ráð fyrir þeim möguleika að lyf séu framleidd hér á landi fyrir þróunar- lönd. Í frumvarpinu er lagt til að gerð verði breyting á ákvæðum laganna um einkaleyfi varðandi heimild til út- gáfu nauðungarleyfis en með slíku leyfi er átt við að ríkisvaldið geti heimilað einhverjum öðrum en einkaleyfishafa að framleiða einka- leyfisverndaða vöru án samþykkis hans. Er heimildin í lögunum víkkuð út til samræmis við ákvæði samnings um hugverkarétt í viðskiptum sem tengist Alþjóðaviðskiptastofnuninni. Víkja má frá skilyrðinu um undan- gengnar samningaumleitanir til að spara dýrmætan tíma þegar neyð er fyrir hendi hér á landi eða steðjar að landinu, svo og þegar um annað al- varlegt hættuástand er að ræða hér á landi eða í þróunarlöndum, t.d. vegna eyðni, berkla eða mýraköldu, sem löndin geta ekki sjálf framleitt lyf gegn. Skal einkaleyfishafa þá til- kynnt um notkunina eins fljótt og auðið er og skal hann eftir sem áður fá sanngjarna greiðslu fyrir. Gert er ráð fyrir að iðnaðarráðherra geti með reglugerð sett nánari reglur um framkvæmd. Frumvarp sem heimilar framleiðslu á lyfjum komi til heimsfaraldurs Víkja frá meginreglu einkaleyfislaga SIGURÐUR Guðmundsson land- læknir segir að heilbrigðisyfirvöld hafi lagst gegn mikilli birgðasöfnun lyfja sem framleidd eru gegn hugs- anlegum heimsfaraldri eins og inflú- ensu. Ástæðan sé sú að annars vegar sé hætt við að fólk fari að nota lyfin við hvaða umgangspest sem er og lyf- in klárist því fljótt og hins vegar að slík lyfjanotkun geti aukið líkur á að það myndist ónæmi gegn inflúensu. Sigurður segist kannast við um- ræðu meðal heilbrigðisstarfsfólks og þeirra sem stýra heilbrigðisstofnun- um um að nauðsynlegt sé að safna miklum brigðum lyfja sem hægt er að nota til að verjast hugsanlegum fuglaflensufaraldri ef sjúkdómurinn fer að smitast í menn. „Við höfum lagst mjög gegn því. Það verður að hafa í huga að það er ekki heimsfaraldur inflúensu í gangi. Það er vissulega fyrir hendi sú hætta að það brjótist úr H5N1, fuglaflensa, eða faraldur annarrar tegundar inflúensu sem er þá áþekk þeim sem gengu á liðinni öld 1918, 1957 og 1968. Hvor sem það verður og hve- nær sem hún kemur þá verður að hafa í huga að fuglaflensan er fyrst og fremst í fuglum en ekki manna- sjúkdómur. Það er stefna okkar að hér verði til lyfjabirgðir sem dugi fyrir a.m.k. þriðjung þjóðarinnar og að það verði reynt að nota þau lyf eins skynsam- lega og við getum. Ef menn færu að birgja sig upp er mjög líklegt að fólk fari að taka lyfin við hvaða flensupest eða smákvefpest sem er og lyfin myndu þá fljótlega klárast. Auk þess óttumst við svolítið, að ef það verður mikil aukning í notk- un þessara lyfja, að það gæti aukið líkur á ónæmi. Það eru þegar til upp- lýsingar um ónæmismyndun gegn þessum lyfjum. Helsti þátturinn sem skapar ónæmi gegn lyfjum er lyfja- notkunin sem slík,“ sagði Sigurður. Landlæknir telur ekki ástæðu til að safna miklum birgðum inflúensulyfja Varar við notkun flensulyfja Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.