Morgunblaðið - 10.11.2005, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2005 11
FRÉTTIR
Laugavegi 63
(Vitastígsmegin),
sími 551 2040.
L v i
( it stí s in),
sí i .
Silkitré og silkiblóm
Fallegar
jólastjörnur
Stærðir 36-52
Frábært úrval
Nýtt kortatímabil
www.svanni.is
Sendum lista út á land
Sími 567 3718
15%
HAUST-
AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM
VÖRUM
TIL 12. NÓVEMBER
S í m i : 5 6 8 - 1 6 2 6
Stærðir 36-56
Nýar vörur frá
B-YOUNG
og STUDIO
Mikið úrval af
fallegum pilsum
Verð frá 3.590 kr.
w w w . s t a s i a . i s
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Háhæð 3
Hraunhamar fasteignasala hefur fengið í einkasölu sérlega glæsilegt ca 200 fermetra
parhús, ásamt 80 ferm. rými í kjallara, vel staðsett á frábærum útsýnisstað í Hæða-
hverfi í Garðabæ. Eignin skiptist í forstofu, forstofuherbergi, hol, hjónaherbergi, eld-
hús, stofu, borðstofu, baðherbergi, þvottahús. Á millilofti er sjónvarpshol, herbergi
og geymslur. Gott 80 fermetra rými í kjallara sem býður upp á mikla möguleika.
Glæsilegar sérsmíðaðar innréttingar og gólfefni eru rauðeik og skífa. Fallegur garður
með sólpöllum og tilheyrandi. Frábær staðsetning.
Verð kr. 58,0 millj. Myndir af eigninni á mbl.is .
STEFÁN Jóhann Stefánsson, sem
verið hefur í borgarstjórnarflokki
Reykjavíkurlistans á yfirstandandi
kjörtímabili, gefur kost á sér í próf-
kjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík
í byrjun febrúar og stefnir á 3. sæti á
framboðslista flokksins fyrir borgar-
stjórnarkosningarnar í vor.
Stefán Jóhann,
sem er 47 ára, er
fulltrúi flokksins í
velferðarráði og
umhverfisráði
borgarinnar, sit-
ur í stjórn hjúkr-
unarheimilisins
Skógarbæjar,
hefur setið í jafn-
réttisnefnd og var
formaður stjórn-
ar Innkaupa-
stofnunar Reykjavíkur og formaður
stjórnar Vélamiðstöðvar ehf. Stefán
hefur reglubundið setið borgar-
stjórnarfundi í forföllum aðalmanna.
Hann er formaður hverfafélags
Samfylkingarinnar í Breiðholti og
hann var fyrsti formaður Samfylk-
ingarfélagsins í Reykjavík og gegndi
þeirri stöðu í þrjú ár. Hann hefur
gegnt ýmsum öðrum trúnaðarstörf-
um fyrir Samfylkinguna og Alþýðu-
flokkinn. Auk þess hefur hann sinnt
ýmsum störfum fyrir íþróttahreyf-
inguna í borginni.
Stefán er kvæntur og þriggja
barna faðir. Hann er hagfræðingur
og stjórnmálafræðingur að mennt og
vinnur í Seðlabanka Íslands.
Stefán Jóhann
stefnir á 3. sætið
Stefán Jóhann
Stefánsson
SAMKVÆMT nýrri könnun í Svíþjóð
styðjast 70 af 100 stærstu fyrirtækj-
um landsins við próf til að sporna
gegn vímuefnanotkun meðal starfs-
manna sinna. Tæpur helmingur fyr-
irtækjanna nýtti sér slík próf bæði við
nýráðningu og vegna gruns um vímu-
efnanotkun.
Þetta kemur fram í tíunda tölublaði
fréttablaðs Samtaka atvinnulífsins.
Jafnframt kemur fram að fjórðungur
sænsku fyrirtækjanna framkvæmi
vímuefnapróf bæði reglulega og til-
viljanakennt á öllu starfsfólki sínu.
Notkun vímuefnaprófa er því ekki
lengur takmörkuð við þær atvinnu-
greinar sem talist geta sérstaklega
hættulegar eða áhættusamar fyrir
starfsfólk og er þróunin í Svíþjóð í
takt við það sem er að gerast á heild-
ina litið í Evrópu.
Eykur líkur á slysum
Ástæðan fyrir auknum fjölda vímu-
efnaprófa er talin vera sú að með auk-
inni vímuefnaneyslu í þjóðfélaginu
aukist líkur á slysum á vinnustað þeg-
ar launþegar eru undir áhrifum.
Í fréttablaði SA kemur fram að ís-
lensk fyrirtæki hafi áskilið sér rétt til
að kalla starfsmenn í vímuefnapróf í
starfsumsókn og ráðningasamningi
sem starfsmaður undirritar, þó það sé
ekki algengt enn sem komið er, og tal-
ið að það feli í sér samþykki við
vinnslu viðkomandi persónuupplýs-
inga í samræmi við lög um persónu-
vernd nr. 77/2000.
Vímuefnapróf á vinnustöðum í Evrópu
Ekki algengt
meðal íslenskra
fyrirtækja
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 ● sími 551 4050 ● Reykjavík