Morgunblaðið - 10.11.2005, Síða 44
44 FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Enn eitt snilldarverkið frá Tim Burton
(“Charlie and the ChocolateFactory”).
Með hinum eina sanna Johnny Depp.
Ein frumlegasta mynd ársins.
S.V. / MBL
DV
hörku spennumynd frá
leikstjóra 2 fast 2 furious
og boyz´n the hood
Þeir voru leiddir í gildru...
nú þarf einhver að gjalda!
Spenntu beltin og undirbúðu þig undir
háspennumynd ársins með
Óskarsverðlaunahafanum Jodie Foster.
„Meistaraverk!” - San Fran Chronicle
„Fullkomin!“ - The New Yorkera
„Langbesta mynd ársins!“ - Slate
Mörgæsamyndin sem er að slá í gegn
um allan heim og mun heilla alla
Íslendinga upp úr skónum.
Four brothers b.i. 16 ára
kl. 10
Corpse Bride
kl. 8 - 10
TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI 2 VIKUR Í RÖÐ
M.M.J. / Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.is
Roger Ebert
S.V. / MBL
„Hreint listaverk!“
- Fréttablaðið
OKTÓBERBÍÓFEST
Guy X • Sýnd kl. 5.50
DIG! • Sýnd kl. 6
La Marche De L´empereur • Sýnd kl. 6 og 8
Drabet • Sýnd kl. 8
Rize • Sýnd kl. 8
Frozen Land • Sýnd kl. 10
The Merchant of Venice • Sýnd kl. 10
26. október -
14. nóvember
ÞAÐ VORU fótafimir einstaklingar á öllum aldri sem sýndu
listir sínar á danskvöldi Unglistar síðastliðið þriðjudagskvöld
í Tjarnarbíói.
Viðburðurinn bar yfirskriftina Urban Dance Night en þar
gaf að líta það heitasta í íslenskri dansmenningu, að sögn að-
standenda sýningarinnar.
Meðal þeirra danstegunda sem sýndar voru má nefna hip-
hop, Jamaican rythm, freestyle, newstyle, house, locking,
popping og margt fleira.
Unglist, listahátíð ungs fólks, stendur nú sem hæst, en
henni lýkur á laugardaginn kemur.
Dans | Unglist í fullum gangi
Dansinn dunaði
Morgunblaðið/Ómar
BORÐSPILIÐ Óþelló hefur verið
spilað víða um heim síðan í byrjun
áttunda áratugarins.
Í dag hefst 29. heimsmeist-
aramótið í spilinu sem að þessu
sinni verður haldið hér á landi,
nánar tiltekið á Hótel Loftleiðum.
Alls eru keppendur um 70 manns
frá 25 löndum, þar af fjórir frá Ís-
landi. Mótið er styrkt af Anjar
Co., heimsrétthafa Óþelló, Mega-
House, útgefanda Óþelló í Japan,
og Ísöld ehf., útgefanda Óþelló á
Íslandi.
Meðal þeirra sem etja kappi í
Óþelló er Bandaríkjamaðurinn
Ben Seeley, heimsmeistari und-
anfarinna tveggja ára.
„Ég byrjaði að spila Óþelló fyrir
sjö árum,“ sagði heimsmeistarinn
Seeley í samtali við Morgunblaðið.
„Ég fékk borðspilið að gjöf og
heillaðist samstundis af leiknum
vegna þess hve einfaldur og marg-
slunginn hann er í senn.“
Útbreiðsla Óþellós fékk byr
undir báða vængi með tilkomu
netsins en hægt er að leika leikinn
hvar sem er í heiminum með að-
stoð þess.
Seeley segist frekar vilja leika
leikinn með borðspili en á netinu
þótt hann hafi oft æft sig með að-
stoð veraldarvefjarins.
„Ég notast við netið þegar eng-
inn í kringum mig nennir lengur
að spila við mig,“ sagði hann.
Aðspurður sagðist Seeley ætla
að reyna að verja heimsmeist-
aratitilinn í vikunni en hann viti af
erfiðum andstæðingi sem er Jap-
ani sem einnig er þátttakandi.
Að sögn Björns Birgissonar hjá
Ísöld hafa aldrei fleiri keppendur
tekið þátt í heimsmeistarakeppn-
inni í Óþelló en í ár og sagði hann
eina af ástæðunum vera áhuga
keppenda á að sækja Ísland heim.
Komið á íslensku
„Óþelló er þó tiltölulega nýtt
hér á landi en spilið kom í fyrsta
sinn út með íslenskum leiðbein-
ingum fyrir síðustu jól,“ sagði
Björn.
Óþelló er upprunalega enskt
spil frá lokum 19. aldarinnar. Þá
hét það reyndar Reversi og var
leikið með nokkuð öðrum reglum
en nú þekkjast. Þeir Lewis Wat-
erman og John Mollet fullyrtu
hvor um sig að þeir væru höf-
undar spilsins og ásökuðu hvor
annan um að stela hugmyndinni
en aldrei fékkst úr því skorið hvor
þeirra hafði rétt fyrir sér. Þær
getgátur hafa verið á lofti að spilið
Spil | Heimsmeistaramótið í Óþelló
Flókið í ein-
faldleika sínum
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is