Morgunblaðið - 14.12.2005, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 14.12.2005, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR XE IN N -S N 05 12 00 2 Þú sérð öll jólatilboð Smith & Norland á heimasíðu okkar, www.sminor.is. Smelltu þar á bæklinginn Fyrir jólin og skoðaðu 16 glæsilegar síður sem eru fullar af eigulegum hlutum á góðu verði. Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is RANNSÓKN LOKIÐ Lögreglurannsókn á tildrögum slyssins þegar skemmtibáturinn Harpa fórst á Viðeyjarsundi í sept- ember er lokið. Lögreglan staðfestir að eigandi bátsins hafi verið skip- stjóri í umræddri ferð og að hann hafi verið undir áhrifum áfengis. Fundur WTO hafinn Ekki er búist við miklum árangri á fundi Heimsviðskiptastofnunar- innar (WTO) en hann hófst í Hong Kong í gær. Þúsundir manna gengu um götur Hong Kong til að mót- mæla fundinum og lýstu WTO sem óvini fátækra þjóða. Slökkt á sendibúnaði Grunur leikur á því að slökkt sé á sjálfvirkum sendingarbúnaði í sum- um erlendum fiskiskipum og að þau laumist þannig inn í íslenska lögsögu í skjóli myrkurs. Skip Landhelg- isgæslunnar þurfa því að vera til staðar úti á hafi ef eitthvað kemur upp á. Hækkanir leiðréttingar Hækkanir á fasteignaverði hér á landi undanfarið virðast fremur vera leiðréttingar á verði í átt til eðlilegra verðlags á markaðnum, en að um of hátt verðlag sé að ræða. Sveiflur á verði fasteigna hér eru með því mesta sem þekkist meðal þjóða inn- an OECD og því er áhætta í fast- eignaviðskiptum meiri hérlendis en víða annars staðar. Y f i r l i t Kynningar – Morgunblaðinu í dag fylgir blað Hjálparstarfs kirkjunnar. Í dag Fréttaskýring 8 Bréf 40 Viðskipti 16/17 Minningar 42/46 Erlent 18/21 Brids 47 Minn staður 22 Myndasögur 50 Höfuðborgin 23 Dagbók 50/53 Akureyri 24 Velvakandi 51 Suðurnes 24 Staður og stund 52 Landið 25 Leikhús 54 Daglegt líf 26/30 Bíó 58/61 Menning 31/35 Ljósvakamiðlar 62 Forustugrein 32 Veður 63 Umræðan 36/40 Staksteinar 63 * * *                                  ! " # $ %        &         '() * +,,,                  KARLMAÐUR á sextugsaldri var handtekinn í gærmorgun í stærsta kannabisræktunarmáli sem lög- reglan á Selfossi hefur flett ofan af. Á bæ í uppsveitum Árnessýslu hafði maðurinn komið sér upp ræktunaraðstöðu fyrir kannabis- efni. Vaknaði grunur um málið fyrir nokkru og var því farið að fylgjast með bænum. Sú athugun leiddi til þess að ráðist var í að gera húsleit með aðstoð tveggja sérsveitar- manna frá ríkislögreglustjóra. Í að- gerðunum var maðurinn handtek- inn á staðnum og lagt hald á hátt í 200 kannabisplöntur. Áður hafði lögreglan tekið 700 plöntur, fyrir nokkrum árum, í öðru máli af svip- uðum toga en þær plöntur voru mun minni en þær sem teknar voru nú. Plönturnar eru mjög stórar, eða allt að 180 cm háar með þungum sprotum. Því er þetta að efnismagni stærsta mál sinnar tegundar hjá lögreglunni á Selfossi. Auk plantn- anna sjálfra var lagt hald á rækt- unartæki af ýmsu tagi, s.s. gróð- urhúsalampa sem talið er að séu stolnir. Þá var einnig lagt hald á 1 kg af tilbúnu maríjúana og 1,5 kg af fínu kannabisefni. Hinn handtekni var tekinn til yf- irheyrslu og haldlagða efnið flutt á flutningabíl á lögreglustöðina á Sel- fossi til talningar og skráningar. Hinn handtekni hefur áður komið við sögu lögreglu, þó ekki vegna fíkniefnamála. Hátt í 200 kannabis- plöntur teknar í húsleit í Árnessýslu FORSVARSMÖNNUM stærstu prentmiðlanna í landinu líst almennt illa á ósk Sambands íslenskra sveit- arfélaga um að tekið verði upp úr- vinnslugjald á pappír. Sveitarfélögin segja að kostnaður vegna förgunar á dagblöðum og tímaritum sem borin eru út í hús hafi aukist hratt á síð- ustu árum og nemi á þessu ári um 350 milljónum. Ögmundur Einarsson fram- kvæmdastjóri Sorpu bs. segir að frí- dreifing dagblaða sé helsta orsökin fyrir auknu pappírsmagni. Árið 2002 hafi verið flutt inn um 12 þúsund tonn af dagblaðapappír en í ár verði innflutningur 18-20 þúsund tonn. Ódýrari en urðun Örn Jóhannsson, skrifstofustjóri Árvakurs, útgáfufélags Morgun- blaðsins, benti á að förgun á pappír væri ódýrari en urðun á sorpi. „Það skýtur skökku við að á sama tíma og Sorpa fær borgað fyrir að senda dag- blaðapappír út til förgunar en ber háan kostnað vegna urðunar á ýmsu öðru sorpi, skuli vera lagt til að leggja sérstakt gjald á pappír. Er ekki fullt af öðrum hlutum sem verið er að urða sem frekar ætti að leggja gjald á?“ sagði hann. Þá væri inn- flutningur á dagblaðapappír aðeins hluti af heildarinnflutningi á pappír og pappa. Gunnari Smára Egilssyni, fram- kvæmdastjóra 365 ljós- og prent- miðla, líst illa á hugsanlega gjald- töku og telur að sveitarfélögunum væri nær að reyna að draga úr rekstrarkostnaði sínum í stað þess að leita sífellt nýrra leiða til að auka skattheimtu. Hugsanlega kynni ein- hverjum að þykja hentugt að rök- styðja slíkt gjald á fríblöð, eins og t.d. Fréttablaðið, með því að halda því fram að íbúar vildu ekki fá það sent til sín. Svo væri auðvitað alls ekki og forsvarsmenn sveitarfélaga sem væru utan dreifingarsvæðis blaðsins hefðu ítrekað farið fram á að blaðinu yrði dreift þar. Getur skert tjáningarfrelsi „Mér líst illa á svona gjaldtöku. Ég tel að hún geti skert tjáningar- frelsi og ég minni stjórnmálamenn á að það gæti orðið dýrara fyrir þá að standa í kosningabaráttu,“ sagði Sig- urður G. Guðjónsson, stjórnarfor- maður Árs og dags, sem gefur út Blaðið. Líklega stæði tillagan í sam- hengi við að sveitarfélögin væru að útbúa fjárhagsáætlanir og teldu sig þurfa aukið fé en það væru á hinn bóginn takmörk fyrir því hversu miklu væri hægt að velta yfir á fyr- irtækin. Færi svo að slíkt úrvinnslu- gjald yrði lagt á hlyti hið almenna sorphirðugjald að sjálfsögðu að lækka, þótt hann gerði reyndar ekki ráð fyrir að sveitarstjórnarmenn myndu leggja það til. Líst illa á tillögu um úrvinnslugjald á pappír Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is  Mælt með | 8 LÖGREGLAN í Reykjavík lagði hald á 65 kannabisplöntur í húsleit í borginni í fyrradag. Einn maður liggur undir grun vegna málsins og beið hann yfirheyrslu í gær. Plönt- urnar voru 50–60 cm háar og allar komnar vel á veg og voru þær tekn- ar til nákvæmari rannsóknar á lög- reglustöð. Hinn grunaði er á fertugsaldri og hefur ekki komið við sögu lögregl- unnar áður. Auk plantnanna voru tekin um 40 grömm af maríjúana. 65 kannabis- plöntur teknar ÖKUMAÐUR fólksbíls sem ók austur Miklubrautina síðdegis í gær varð var við gangtruflanir í bílnum þegar hann var við afleggjarann að Kringlunni og ók því bílnum út af götunni og inn á aðreinina að bens- ínstöð Orkunnar, að sögn Slökkviliðs höfuðborg- arsvæðisins. Þar stöðvaðist bíllinn og skömmu síðar gaus upp mikill eldur í vélarhúsinu. Enginn meiddist í þessum eldsvoða en bíllinn er að sjálfsögðu afar illa farinn og efamál að honum verði aftur ekið um götur borgarinnar. Morgunblaðið/Ómar Varð var við gangtruflanir MAÐURINN sem lést í bílslysi við Sætún í Svalbarðsstrandarhreppi að morgni mánudagsins 12. desem- ber sl. hét Sigurður Arnar Róberts- son. Sigurður Arnar var 38 ára gamall, fæddur 20. maí árið 1967. Hann var búsettur að Laxagötu 6 á Akureyri. Hann lætur eftir sig þrjú börn. Lést í bílslysi á Svalbarðs- strandarvegi LÖGREGLAN á Selfossi handtók í gærmorgun mann sem við yf- irheyrslu játaði að hafa stolið tveimur Nissan Patrol jeppum, öðr- um í Njarðvík í byrjun nóvember og hinum í Reykjavík í liðinni viku. Jeppinn sem hann stal í Njarðvík fannst í bílskúr sem maðurinn leigði, ásamt hlutum sem hann hafði fjarlægt úr hinum jeppanum. Að sögn lögreglu fékk hún ábendingu um að jeppi líkur þeim sem stolið var í Njarðvík væri á Selfossi og við eftirgrennslan fannst hann í bílskúr í bænum. Í ljós kom að maðurinn, sem er bú- settur í Þorlákshöfn, hafði leigt skúrinn. Maðurinn var handtekinn á heimili sínu og færður á lög- reglustöð þar sem hann játaði á sig þjófnað á báðum jeppunum. Jepp- inn sem hann stal í Reykjavík fannst í liðinni viku við Rauðavatn þar sem honum hafði verið ekið út fyrir veginn. Játaði þjófnað á tveimur jeppum BÆJARRÁÐ Bolungarvíkur hefur óskað eftir því að Vegagerðin hlut- ist til um að gerður verði sam- anburður á fyrirhuguðum ganga- framkvæmdum í Óshlíð, annars vegar við stærri framkvæmd í Ós- hlíð og hins vegar göng úr Syðridal í Bolungarvík yfir í Tungudal á Ísa- firði. Fleiri möguleikar verði skoðaðir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.