Morgunblaðið - 19.12.2005, Page 18
Árangur fer eftir gæðum
Hvaða Spirulina ert þú að taka?
www.celsus.is
29 vítamín og steinefni · 18 aminósýrur · Blaðgræna · Omega
· GLA fitusýrur · SOD eitt öflugasta andoxunarensím líkamans
Eingöngu lífræn næringarefni tryggja betri upptöku og nýtingu í líkamanum.
Súrefnistæmdar umbúðir
vernda næringarefnin.
Lifestream þörungarnir eru ómengaðir
og hreinir, ræktaðir í ferskvatni eftir
ströngum gæðastaðli.
ISO9001 · ISO14001
V
o
ttað
100% lífræ
nt
Fæst í öllum apótekum.
Greinilegur árangur eftir
nokkra daga inntöku
Aukið úthald,
þrek og betri líðan
Yggdrasill
daglegtlíf
ídesember
SVEFN
UM JÓLIN
HOLLAR
JÓLAGJAFIR
Mér finnst skemmtilegtandrúmsloft myndastþegar fjölskyldan tekursér eitthvað sameig-
inlega fyrir hendur og aðallega
finnst mér gaman að baka pip-
arkökur með börnunum mínum,“
segir Brynja Baldursdóttir.. „Stund-
um hittumst við systurnar með börn-
unum okkar og gerum piparkökur
og einnig höfum við vinkonurnar
stundum hist með börnunum okkar
og bakað eða málað piparkökur. Að-
alatriðið er að börnin séu með.“
Brynja kennir í Hagaskóla
og stundar auk þess fram-
haldsnám í Háskóla Íslands.
Þrátt fyrir miklar annir er hún
búin að baka með börnunum
fyrir þessi jól. „Þau hafa mjög
gaman af þessu og sjá um að
minna mig á ef þeim finnst of
langt liðið á aðventuna.“
Pipar í piparkökurnar
Hún lumar á uppskrift að ekta
piparkökum. „Þetta er eina upp-
skriftin sem ég hef séð með pipar,
svo þær eru alveg ósviknar,“ segir
Brynja og hlær glaðlega.
Ekta piparkökur
Þetta er þægilegt deig, en best er að
útbúa það 1–2 klukkutímum áður en
kökurnar eru bakaðar. Það má jafn-
vel geyma yfir nótt.
250 g hveiti
2 tsk kanill
1 tsk negull
1 tsk engifer
1⁄8 tsk pipar
1 tsk matarsódi
90 g smjörlíki
120 g sykur
½ dl síróp
½ dl mjólk
Hveiti, krydd og matarsódi er sigt-
að saman í skál. Smjörlíki er mulið út
í og deigið hnoðað örlítið í hrærivél
eða höndum. Þá er sykri, sírópi og
mjólk blandað saman við og deigið
hnoðað áfram þar til það er sprungu-
laust.
Deigið er látið í skál og plastfilma
sett yfir. Kælt í ísskáp í 1–2 klukku-
tíma, jafnvel yfir nótt.
Svolitlu hveiti er stráð á borð og
deigið flatt út. Þegar það er um
þriggja mm þykkt eru skornar út fí-
gúrur með piparkökumótum og kök-
urnar síðan bakaðar í 10 mínútur við
175° hita.
Glassúr til
skrauts
Flórsykur sigtaður og hrært saman
við vatn þannig að úr verði fremur
þykkur vökvi. Matarlit blandað sam-
an við. Kökurnar málaðar eftir list-
fengi hvers og eins, til dæmis með
tannstöngli.
JÓLAHEFÐ | Brynja Baldursdóttir bakar ekta piparkökur
Aðalatriði að börnin séu með
Morgunblaðið/Þorkell
„Ég tengi piparkökuilm
við aðventu, enda alin
upp við piparkökubakst-
ur á þessum tíma,“ segir
Brynja Baldursdóttir
sem tók upp siðinn þeg-
ar hún flutti úr foreldra-
húsum. Brynja Tomer
smakkaði á kökunum.
Brynja Baldursdóttir ásamt börnunum sínum, Silju Rós og Valdimari Þór Ragnarsbörnum.
SÁ SIÐUR að
pakka inn jóla-
gjöfum er 2000
ára gamall. Sam-
kvæmt helgisögn-
inni ferðuðust
þrír vitringar til
Betlehem til að færa Jesúbarninu
gull, reykelsi og myrru. Í Evrópu
voru ávextir og hnetur algengar
jólagjafir. Hér á landi varð hins
vegar til hefð fyrir því að gefa kerti
í jólagjöf.
TÁKN JÓLANNA
Gjafir
Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnsson
FYRSTU söngvarnir, sem vitað er
til að sungnir hafi verið um fæð-
ingu Krists, voru fluttir í jóla-
leikriti sem heilagur Francis af
Assisi stóð fyrir árið 1233. Fyrstu
jólalögin voru blanda þjóðlaga og
sagnakvæða en hátíðlegri jólalög
komu fram á sjónarsviðið á 17.
öld. Vitað er að jólalagið „Joy to
the World“ var samið árið 1674.
Enska jólalagið „The First Noel“
var einnig samið á 17. öld og
„Hark the Herald Angels Sing“
var samið árið 1707.
TÁKN JÓLANNA
Morgunblaðið/Þorkell
Jólalög