Morgunblaðið - 19.12.2005, Side 45

Morgunblaðið - 19.12.2005, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 2005 45 KEFLAVÍKKRINGLAN AKUREYRI FRÁ ÓSKARSVERÐ LAUNALEIKSTJÓRANUM PETER JACKSON KING KONG kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.i. 12 ára. KING KONG VIP kl. 6 - 10 B.i. 12 ára. HARRY POTTER OG ELDBIKARINN kl. 5 - 8.10 B.i. 10 ára. JUST LIKE HEAVEN kl. 4 - 6 - 8 GREENSTREET HOOLIGANS kl. 10.30 B.i. 16 ára LORD OF WAR kl. 8 - 10.30 B.i. 16 ára. Litli Kjúllin M/- Ísl tal. kl. 4 - 6 KING KONG kl. 4.20 - 8 - 11.40 B.i. 12 ára. JUST LIKE HEAVEN kl. 6 - 8 - 10.10 HARRY POTTER OG ELDBIKARINN kl. 5 B.i. 10 ára. Litli Kjúllin M/- Ísl tal. kl. 4 KING KONG kl. 8 - 10 B.i. 12 ára. INTO THE BLUE kl. 8 B.i. 14 ára. KING KONG kl. 5.30 - 9 B.i. 12 ára HARRY POTTER OG ELDBIKARINN kl. 6 B.i. 10 ára JUST LIKE HEAVEN kl. 9 ÁLFABAKKI „King Kong er án efa ein mag- naðasta kvikmynda upplifun ársins.“ Topp5.is / V.J.V. E.P.Ó. / kvikmyndir.com **** **** S.U.S. / XFM 91,9 **** V.J.V. / topp5.is ***** S.V. / Mbl. **** A.B. / Blaðið **** Ó.H.T / RÁS 2 Loðhúfur Hafnarstræti 19 Sími 551 1122 ný sending Verð frá 9.990 kr. BRYNHILDUR Guðjónsdóttir sló eftirminnilega í gegn sem Edit Piaf. Hér er hún aftur komin á stjá, nú með hljómsveit sinni BBÖ’s, með nýja plötu sem hefur að geyma þekkt lög frá ýmsum tímum. Lögin eru flest í nýjum búningi, en hljómsveitin hefur hresst upp á þau og eru sum hver í ansi nýstár- legum útsetningum, þar sem leik- hússtemningin er allsráðandi, jafnvel sirkuskennd á köflum. Platan hefst á laginu „Walking after midnight“ sem Patsy Kline gerði frægt, og er þetta frekar til- gerðarlegri nálgun sem bætir litlu við það sem áður hefur verið gert. Í kjölfarið siglir skemmtileg út- gáfa af Ritchie Family laginu „Where’s my man“, og er gaman er að heyra hve vel harmónikkan og „scratchið“ falla saman. „I wanna be loved by you“ sem upp- haflega var flutt af boop-boop-a- doop stúlkunni Helen Kane og seinna gert ódauðlegt af Marilyn Monroe hljómar vel og nær að fanga vel stemningu lagsins og gefur Brynhildur áðurnefndum stöllum lítið eftir. Það gleður svo eflaust síung „eitís“ hjörtu að heyra hér smekklega útgáfu af Grace Jones laginu „I’ve seen that face before“. Harmónikkuspil í laginu er sérstaklega athyglisvert en söngurinn nær ekki alveg sömu hæðum og hjá þeirri þeldökku en útsetning engu að síður vel heppn- uð. Leikhússtemningin nær svo hámarki í hinu revíukennda „I want to be evil“, sem sennilega er þekktast í flutningi Earthu Kitt. Hið spænsk/mexíkóska „Piensa en mi“ er harla gott, helst þó að svo- lítið vanti upp á spænska fram- burðinn svo söngurinn geti talist fyllilega trúverðugur, allt annað er með ágætum. Krummi, kenndur við Mínus, leggur Brynhildi lið í lagi Frank Loesser „Baby, it’s cold outside“, en sýnir ekki fylli- lega þann karakter sem lagið sannanlega krefst, og geldur lagið svolítið fyrir það. Blondie lagið „Hangin’ on the telephone“ geng- ur hér hins vegar í endurnýjun líf- daga í stórskemmtilegri útsetn- ingu. Miðjarðarhafsstemmingin er svo í algleymingi í fjarska fjörugri útgáfu af „Meglio Stasera“ eftir Henry Mancini, og lag Cole Port- er „My heart belongs to daddy“, sem Marilyn Monroe flutti á sín- um tíma, er hér í einkar smekk- legum búningi. Hins vegar er út- setning hins sígilda „Aint no sunshine“ eftir Bill Withers ekki alveg að gera sig, sálarlaust og gerilsneytt borið saman við frum- gerðina. Svipaða sögu er að segja um „She’s got you“ sem þekktast er í flutningi Patsy Cline. Mjög vel tekst hins vegar til með lagið „Love me or leave me“ úr söng- leiknum Whoopee! eftir Walter Donaldson sem Doris Day gerði frægt, og kemst andi lagsins vel til skila. Botninn er svo sleginn með frábærri útgáfu af „Slow hand“ þeirra Pointer systra. Á heildina litið er þetta hin ágætasta plata, og stendur raunar upp úr í þeirri öldu ábreiðuplatna sem ríður yfir, en hér er virkilega reynt að finna nýja fleti á þessum ágætu lögum og tekst það á köfl- um mjög vel. Öll vinnsla er eins og best verður á kosið og hljóð- færaleikur allur með miklu ágæt- um, þó sannarlega eigi þar vinn- inginn snillingurinn Tatu sem er ekki síður stjarna þessarar plötu en Brynhildur. Á plötunni ræður revíukennd leikhússtemning nán- ast algjörlega ríkjum. Af þeim sökum gæti hún orðið lítt leikhús þenkjandi fólki óaðgengileg, jafn- vel tormelt. Jafnframt er hún á köflum, eins og reyndar leikhúsinu sjálfu hættir til, óþarflega tilgerð- arleg. Revían lifir! TÓNLIST Geisladiskur Brynhildur Guðjónsdóttir, ásamt hljóm- sveit sinni BBÖ’s, hefur sent frá sér plöt- una „grrr …“ Með Brynhildi, sem syngur, leika þeir Birgir Bragason (kontrabassi/ gítar), Matthías Hemstock (trommur/ slagverk) og Tatu Kantomaa (harm- ónikka/bandoneon). Einnig bregður fyrir þeim Krumma Björgvinssyni (söngur) og Gísla Galdri Þorgeirssyni („scratch“) í sínu hvoru laginu. Útsetningar voru í höndum hljómsveitarinnar, um upp- tökustjórn og hljóðblöndun sá Ívar Ragn- arsson og fóru upptökur fram í Sýrlandi í Hafnarfirði. Útgefandi eru 12 Tónar. Brynhildur & BBÖ’s – grrr …  Grétar M. Hreggviðsson STRAX í upphafi jóla-fjölskyldukóm- edíunnar Stone-fjölskyldan, má sjá grilla í áætlanir leikstjórans og hand- ritshöfundarins Thomas Bezucha, um að setja á svið fjölskyldusögu með stóru F-i. Jólahald stendur fyrir dyr- um hjá Stone-hjónunum, þeim Kelly sem er hæglátur háskólaprófessor og Sybil sem er frjálslynd, intellektúal og áhrifamikill miðpunktur fjöl- skyldulífsins. Uppkomin börnin taka að streyma að, þrír bræður og tvær systur. Hvert systkinið á fætur öðru er kynnt til sögunnar og reynist hvert öðru skýrari birtingarmynd ákveðinnar „týpu“. Sá fyrsti til að detta inn úr dyrunum er heyrn- arskerti miðbróðirinn Thad og kær- asti hans Patrick en þeir reynast vera fulltrúar hvorki meira né minna en þriggja minnihlutahópa. Yngsta barnið Amy er blönk, fúllynd og upp- reisnargjörn og gengur m.a. um með tösku merkta útvarpsstöðinni NPR til að undirstrika ákveðna persónu- gerð. Susannah er hamingjusöm verðandi tveggja barna móðir og slúbbertinn í fjölskyldunni er Ben. Everett er indæli og ábyrgðarfulli bróðirinn en með honum í för er til- vonandi eiginkona hans Meredith, sem Stone-fjölskyldan er vægast sagt tortryggin gagnvart. Sam- skiptadrama myndarinnar snýst síð- an um árekstrana sem eiga sér stað milli Meredith og annarra fjölskyldu- meðlima sem reynist síðan bara yf- irborðið að því sem er í raun og veru að angra fjölskylduna: Hin krabba- meinssjúka Sybil hefur nýgreinst með alvarlegt bakslag. Þrátt fyrir að margir ágætir og reyndir leikarar séu samankomnir í myndinni, er frammistaða þeirra allra lituð því óöryggi og þeirri klisju- hugsun sem einkennir bæði handritið og leikstjórnina. Og jafnvel þótt lagt sé upp með staðlaðar persónur tekst leikstjóranum ekki einu sinni að halda sig við þá klisju sem hver og ein á að standa fyrir. Meredith er t.d. ýkt birtingarmynd kaldlyndrar frama- konu, en tilraunir til þess að afhjúpa hana sem óörugga og óhamingju- sama eru útfærðar á svo klunnalegan hátt að það liggur beinast við að álykta að þar sé á ferð manneskja með alvarlega skertan félagsþroska. Persóna Sybil, sem Diane Keaton leikur af einstakri væmni, gengur heldur engan veginn upp og sama er að segja um flestar aðrar persónur sem leikarar eru ýmist í vandræðum með að túlka eða leika beinlínis illa, eins og reyndin er með Dermot Mulroney. Ljósi punkturinn í mynd- inni er reyndar Luke Wilson sem moðar vel úr hlutverki Bens, enda eru hin óvæntu tengsl sem verða milli Bens og Meredith, best heppnaði þráðurinn í hinum annars klaufalega og kunnuglega spuna í samskiptavef sögunnar. Klaufaleg fjölskyldusaga „Þrátt fyrir að margir ágætir og reyndir leikarar séu samankomnir í myndinni, er frammistaða þeirra allra lituð því óöryggi og þeirri klisju- hugsun sem einkennir bæði handritið og leikstjórnina,“ segir m.a. í dómi. KVIKMYNDIR Regnboginn, Smárabíó og Borgarbíó Akureyri Leikstjórn: Thomas Bezucha. Aðal- hlutverk: Diane Keaton, Sarah Jessica Parker, Claire Danes, Rachel McAdams, Dermot Mulroney og Luke Wilson. Bandaríkin, 102 mín. Stone-fjölskyldan (The Family Stone)  Heiða Jóhannsdóttir BANDARÍSKI leikarinn John Spen- cer, sem hefur undanfarin ár leikið Leo McGarry, skrifstofustjóra Bandaríkjaforseta og nú varafor- setaefni, í sjón- varpsþáttunum um Vesturálm- una, lést á föstu- daginn af völdum hjartaáfalls. Að sögn blaða- fulltrúa Spencers lést leikarinn, sem var 58 ára, á sjúkrahúsi í Los Angel- es.Spencer fékk Emmy-verðlaun árið 2002 fyrir bestan leik í aukahlutverki í dramasjónvarpsþáttum fyrir Vest- urálmuna. Hann var einnig tilnefndur til Golden Globe verðlauna. Spencer varð þekktur þegar hann lék í kvikmyndinni Uns sekt er sönn- uð árið 1990 á móti Harrison Ford. Í kjölfarið fékk hann hlutverk í sjón- varpsþáttunum L.A. Law. Hlutverk Spencers í Vesturálm- unni var að hluta einskonar speg- ilmynd af honum. Bæði Spencer og McGarry voru áfengissjúklingar í aft- urbata. Í þáttunum fékk McGarry hjartaáfall þannig að hann neyddist til að segja af sér embætti skrif- stofustjóra forsetans. McGarry náði sér og var valinn varaforsetaefni Matt Santos, forsetaefnis demókrata, sem Jimmy Smits leikur. Kosninga- baráttan um hver verður eftirmaður Jebs Bartlets, forseta, sem Martin Sheen leikur, hefur verið miðpunktur þáttaraðarinnar á þessu ári í Banda- ríkjunum. Leikarinn John Spenc- er látinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.