Fréttablaðið - 22.03.2003, Side 4
4 22. mars 2003 LAUGARDAGUR
■ Evrópa
■ Skipulagsmál
■ Asía
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 80.39 0.82%
Sterlingspund 125.62 0.67%
Dönsk króna 11.46 0.52%
Evra 85.15 0.48%
Gengisvístala krónu 123,03 -0,32%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 390
Velta 6.829 milljónir
ICEX-15 1.398 0,04%
Mestu viðskipti
SÍF hf. 1.355.724.690
Fjárfestingarf. Straumur hf.1.210.199.522
Össur hf. 201.236.351
Mesta hækkun
Marel hf. 2,46%
Kaupþing banki hf. 0,21%
Opin kerfi hf. 1,01%
Mesta lækkun
Landsbanki Íslands hf. -1,21%
Samherji hf. -1,08%
Baugur Group hf. -0,98%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 8449,4 2,0%
Nasdaq*: 1419,4 1,2%
FTSE: 3861,1 2,5%
DAX: 2727,4 4,7%
Nikkei: 8002,7 1,7%
S&P*: 889,9 1,6%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Ætlar þú að mótmæla innrás í Írak?
Spurning dagsins í dag:
Heldur þú að stjórnin haldi velli
eftir kosningar?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
4,9%
51,0%Andvígur
44,1%
Alveg sama
Fylgjandi
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
DÓMSMÁL Tvítug hafnfirsk kona
var dæmd til tveggja mánaða
fangelsisdóms fyrir að hafa
hnuplað snyrtivörum úr Hagkaup
Smáralind í Kópavogi að andvirði
4.635. Þá er hún dæmd fyrir rang-
ar sakagiftir en við afskipti lög-
reglu af ákærðu gaf hún upp nafn
annarrar konu og gaf upp ranga
kennitölu. Ákærða var aðeins 18
ára þegar hún framdi brot sín og
hefur ekki áður sætt refsingu.
Þykir í ljósi þessa mega binda
refsingu ákærðu skilorð, svo sem
í dómsorði greinir. Henni er gert
að greiða málskostnað.
Tilkynning barst lögreglu um
þjófnað í verslun Hagkaupa og
þegar hana bar að var kona í
vörslu öryggisvarðar sem hafði
séð hana stela snyrtivörum. Kon-
an framvísaði ökuskírteini og lög-
reglan skráði samviskusamlega
nafn sakbornings sem síðar barst
bréf þar sem meðal annars stóð að
ákveðið hefði verið að „falla frá
saksókn á hendur henni fyrir
þjófnað í verslun Hagkaupa í
Smáralind í Kópavogi 19. ágúst
2002.“ Sú kannaðist hins vegar
ekki neitt við neitt og setti sig í
samband við lögregluna. Böndin
bárust þá fljótlega að hinum rétta
þjófi, sem játaði þá allt. Í dómnum
um þetta sérkennilega mál segir
meðal annars: „Hún segir að hún
hafi fengið þetta ökuskírteini
helgina áður, en þá hafi stelpa
sem hún þekkir ekki neitt látið
hana hafa ökuskírteinið.“ Hún var
spurð af hverju hún leiðrétti ekki
mistökin þegar hún varð vör við
að hún var ekki með sitt ökuskír-
teini. Hún kvaðst ekki geta svarað
því en segist hafa verið býsna
skelkuð. ■
MORGUNBLAÐIÐ REISIR PRENT-
SMIÐJUHÚS Útgáfufélag Morgun-
blaðsins, Árvakur hf., hefur sótt
um leyfi til að reisa nýtt hús und-
ir prentsmiðju blaðsins. Ætlunin
er að prentsmiðjuhúsið verði
samtals tæpir 6.500 fermetrar á
þremur hæðum og standi við Há-
degismóa.
ÓBREYTTIR BORGARAR SEM
SKILDIR Íslamskar vígasveitir
tóku fimm óbreytta borgara
höndum og báru þá fyrir sig í
átökum við hermenn í suður-
hluta Filippseyja. Uppreisnar-
mennirnir drápu þrjá þeirra og
særðu hina tvo áður en þeir
hurfu á braut. Á meðal hinna
særðu var eins árs gömul stúlka.
FISKISKIPI SÖKKT Sautján
manns fórust þegar uppreisnar-
menn úr röðum Tamil-tígra
sökktu kínversku fiskiskipi
skammt undan ströndum Sri
Lanka. Grunur leikur á að um
mistök hafi verið að ræða og
Tamil-tígrarnir hafi ætlað að
ráðast á srílanskt herskip.
Vopnahlé hefur ríkt milli sríl-
anskra yfirvalda og uppreisnar-
manna í eitt ár en fyrir tæpum
tveimur vikum sökkti herinn
báti Tamil-tígra.
LÉTUST Á LEIÐ TIL VINNU Flutn-
ingabíll fór út af vegi í norður-
hluta Bangladesh með þeim af-
leiðingum að 22 létust og fimmt-
án slösuðust. Um borð í flutn-
ingabílnum var hópur landbún-
aðarverkamanna á leið til vinnu.
AUGLÝSINGAR „Ég fullyrði að það
starfsfólk Icelandair sem semur
og tekur ákvarðanir um auglýsing-
ar okkar erlendis vill ekki gera
neitt það sem getur talist óvirðing
við einstaklinga, hvorki konur né
karla,“ segir Guðjón Arngrímsson,
upplýsingafulltrúi Icelandair,
vegna þeirrar reiði sem komið hef-
ur fram meðal kvenna út af aug-
lýsingum Icelandair í útlöndum.
Hann segir sjálfgefið að fyrir-
tækið fari að lögum og reglum um
auglýsingar á Íslandi, sem og í
löndunum þar sem auglýsingarnar
eru gerðar og birtar. „Allir sem
vinna við mark-
aðsstarf í ferða-
heiminum vita
að það er slæmt
fyrir áfangastað
að fá á sig kyn-
lífsstimpil. Það
er því bæði af
einföldum sið-
ferðisástæðum
og hörðum við-
skiptaástæðum
sem það hvarfl-
ar ekki að starfs-
fólki Icelandair
að gera Ísland að
einhverri ímynd-
aðri kynlífs-
paradís,“ segir hann.
Guðjón kveðst hafa átt fundi
með framkvæmdastýru Jafnrétt-
isstofu, sem að undanförnu hafi
haft forgöngu um vefumræðu um
þessa meintu auglýsingastefnu.
„Eftir að hún sakaði fyrirtækið um
gróf siðferðisbrot og lögbrot í
útvarpsviðtali buðum við henni til
fundar og óskuðum eftir því að
hún leiðbeindi okkur; við myndum
kippa til baka eða breyta þeim
auglýsingum sem hugsanlega fælu
í sér slík brot. Hún gat eðlilega
ekki bent okkur á nein dæmi um
það í auglýsingum okkar, því þau
er þar ekki að finna,“ segir
Guðjón.
„Vegna þessara stóryrtu ásak-
ana fengum við einnig lögfræð-
inga til að fara yfir auglýsingar
okkar til að taka af allan vafa og
niðurstaðan var sú sama; í þeim er
ekkert sem talist getur brot á jafn-
réttislögum eða öðrum lögum,“
segir hann.
Guðjón segir að þær auglýsing-
ar sem helst er vísað til sé sú sem
hefur yfirskriftina „Fancy a Dirty
Weekend?“ Sú auglýsing sýni fólk
í Bláa lóninu, atað hvítu leðjunni
sem þar er að finna.
„Það þarf ótrúlegt hugarfar til
að segja hana „bjóða íslenskar
konur sem ódýran kynlífskost“,
eins og framkvæmdastýra jafn-
réttisráðs gerði,“ segir Guðjón og
bendir á að á sama tíma hafi ýmis
önnur fyrirtæki og samtök þar í
landi nýtt sér þetta gamla og þekk-
ta slagorð. Náttúruverndarsamtök
hvöttu sitt fólk til gróðursetning-
arferðar undir yfirskriftinni
„Fancy a Dirty Weekend?“
Í öllum tilfellum er hugmyndin
sú sama; að tengja saman óhrein-
indi, „dirt“, sem t.d. fylgir lagn-
ingu göngustíga eða gróðursetn-
ingu, eða för í Bláa lónið, og þá létt
erótísku kímni sem felst í hugtak-
inu dirty weekend, sem bresk hjón
hafa notað um árabil yfir það að
komast eitthvað í burtu frá heim-
ilisamstri. Það er einfaldlega mis-
skilningur á enskri tungu og
menningu að þessi auglýsing hafi
eitthvað sérstaklega með íslensk-
ar konur að gera. Það er verið að
auglýsa Bláa lónið með orðaleik,
sem vissulega hefur kynferðislega
tilvísun, en tvíræðir orðaleikir eru
ær og kýr Breta,“ segir Guðjón.
rt@frettabladid.is
Akureyri:
Flótta-
menn vænt-
anlegir
FLÓTTAMENN Á mánudaginn eru 24
flóttamenn frá fyrrum Júgóslavíu
væntanlegir til landsins.
Um er að ræða sex fjölskyldur,
sem koma frá Belgrad. Félagsmála-
ráðuneytið og Akureyrarbær náðu
samkomulagi um það 12. mars að
fólkið yrði búsett í Akureyrarbæ.
Undirbúningur fyrir komu fjöl-
skyldnanna er á lokastigi.
Framkvæmdastjóri Rauða
Kross Íslands, aðstoðarmaður fé-
lagsmálaráðherra og formaður
Flóttamannaráðs Íslands munu
taka á móti flóttamönnunum á
Keflavíkurflugvelli klukkan
15.30. ■
KREKAR ÁKÆRÐUR Dómstólar í
Osló hafa gefið út ákæru á hend-
ur Mullah Krekar, leiðtoga
kúrdískra skæruliðasamtaka,
vegna aðildar að hryðjuverkum.
Óttast var að Krekar myndi gera
tilraun til þess að flýja land og
var hann því hnepptur í gæslu-
varðhald og ákærður. Krekar
hefur neitað öllum sakargiftum
en ef hann verður fundinn sekur
á hann yfir höfði sér allt að tíu
ára fangelsi.
HERT LÖG UM UMSKURÐ Lagt
hefur verið fram lagafrumvarp
á breska þinginu sem opnar fyr-
ir þann möguleika að dæma for-
eldra í fangelsi fyrir að láta um-
skera dætur sínar utan Bret-
lands. Umskurn kvenna í Bret-
landi hefur verið bönnuð með
lögum síðan 1985 en verði þetta
nýja frumvarp samþykkt verður
hámarksrefsing fyrir að stuðla
að slíku athæfi, jafnt innan lands
sem utan, fimm til fjórtán ára
fangelsisvist.
Framvísaði fölsku skírteini:
Dæmd í tvo mánuði
fyrir búðarhnupl
Í SMÁRALIND
Hagkaup ætlaði að falla frá saksókn vegna
búðarhnupls en bréf þar um fékk blásak-
laus manneskja.
Jafnréttisstýra gat
ekki bent á lögbrot
Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Flugleiða, segir fráleitt að
halda því fram að auglýsingar fyrirtækisins séu ósiðlegar eða feli í sér
lögbrot. Málið misskilningur, sprottinn af vanþekkingu á ensku.
AUGLÝSINGAR „Það var Sopranos-
þátturinn sem kveikti reiði
kvenna. Mörgum finnst sem
Icelandair sé með auglýsingum
sínum að falbjóða íslenskar kon-
ur,“ segir Erla Hulda Halldórs-
dóttir, sagnfræðingur og starfs-
maður Rannsóknarstofu í kvenna-
fræðum, um þá ólgu sem fram
hefur komið á feministinn.is, um-
ræðuhring kvenna á Netinu.
Hundruð tölvuskeyta hafa að und-
anförnu birst þar sem íslenskar
konur erlendis og heima hafa for-
dæmt auglýsingar Flugleiða sem
ganga út á „dirty weekend“ og
„one night stand“ svo ekki sé
minnst á áskoranir um að áreita
íslenskar fegurðardrottningar.
Erla Hulda, sem jafnframt á
sæti í stjórn Kvenréttindafélags
Íslands, segir að fólk hafi áhyggj-
ur af því að boðskapurinn hafi
náð til heimsbyggðarinnar með
þeim hætti sem fram kom í
Sopranos-þættinum þar sem ís-
lenskar flugfreyjur voru í því
hlutverki að svala fýsnum
mafíósa.
Erla er með eindregnar skoð-
anir á því hvað skuli gera til að
fæla Flugleiðamenn frá því að
falbjóða íslenskar konur.
„Ég er persónulega fylgjandi
því að fyrirtækið verði kært og
látið verði á það reyna hvort Flug-
leiðir hafi brotið jafnréttislög
með þessum auglýsingum,“ segir
Erla Hulda og vísar til laga núm-
er 96 frá árinu 2000 um jafna
stöðu og jafnan rétt kvenna og
karla þar sem segir: „Auglýsandi,
og sá sem hannar eða birtir aug-
lýsingu, skal sjá til þess að aug-
lýsingin sé öðru kyninu ekki til
minnkunar, lítilsvirðingar eða
stríði gegn jafnri stöðu og jafn-
rétti kynjanna á nokkurn hátt.“ ■
Sopranos-þættir kveiktu reiði kvenna:
Vill kæra Flugleiðir
fyrir lögbrot
ERLA HULDA HALLDÓRSDÓTTIR
Icelandair er með auglýsingum sínum að falbjóða íslenskar konur.
ICELANDAIR
Auglýsingar valda reiði og þau sjónarmið
heyrast að rétt væri að kæra fyrirtækið fyrir
meint brot á jafnréttislögum.
GUÐJÓN ARNGRÍMSSON
Segir fráleitt að halda því fram að
Icelandair sé að falbjóða íslenskar konur
með auglýsingum sínum.
„Vegna
þessara stór-
yrtu ásakana
fengum við
einnig lög-
fræðinga til
að fara yfir
auglýsingar
okkar til að
taka af allan
vafa.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T