Fréttablaðið - 22.03.2003, Page 12
12 22. mars 2003 LAUGARDAGUR
CELTIC LAGÐI LIVERPOOL
Celtic vann Liverpool 2-0 á Anfield í UEFA-
bikarkeppninni. John Hartson, sem hér
sést í baráttu við Djimi Traore og Steven
Gerrard, skoraði seinna mark Skotanna.
Celtic leikur við Boavista í undanúrslitum
keppninnar. Celtic sló síðast enskt félag út
úr Evrópukeppni árið 1970 en Liverpool
hefur aldrei áður tapað fyrir skosku félagi.
Fótbolti
hvað?hvar?hvenær?
19 20 21 22 23 24 25
MARS
Laugardagur
FÓTBOLTI Bandaríkin sigruðu Kína
2:0 í úrslitaleik 10. Algarve-bikar-
keppninnar á fimmtudag. Mia
Hamm og Shannon MacMillan
skoruðu mörkin snemma í seinni
hálfleik. Norðmenn urðu þriðju eft-
ir 1:0 sigur á Frökkum. Dagny
Mellgren skoraði markið snemma
leiks.
Í leiknum um 5. sætið unnu
Svíar Finna 5:0 og Kanada burstaði
Grikkland 7:1 í leik um 7. sætið.
Grikkir eru að undirbúa sitt lið fyr-
ir Ólympíuleikana í Aþenu á næsta
ári. Þá urðu Danir í 9. sæti eftir 1:0
sigur á Portúgal og Írar urðu ell-
eftu eftir sigur á Wales í víta-
keppni.
Mótið í Portúgal fór fram í tí-
unda sinn. Norðmenn sigruðu á
fyrsta mótinu árið 1994 en þeir
hafa oftast orðið meistarar. Kín-
verjar, Svíar og Bandaríkjamenn
hafa sigrað tvisvar hver þjóð. Ís-
lendingar tóku þátt í keppninni
árin 1996 og 1997.
Tólf þjóðir voru með í keppninni
að þessu sinn en helmingur þeirra
hefur tryggt sér sæti í heimsmeist-
arakeppninni í Kína í sumar. ■
Símadeildin 2003:
Hollenskur
sóknarmað-
ur til ÍBV
FÓTBOLTI Jeroen van Wetten, 23 ára
hollenskur sóknarmaður, kemur til
ÍBV á morgun. Hollenska fótbolta-
tímaritið Voetbal International
heldur því fram að hans bíði tilboð
um tveggja ára samning í Eyjum.
Van Wetten hefur leikið tvo leiki
með RBC Roosendaal í efstu deild
Hollands í vetur en félagið er í 13.
sæti í 18 liða deild þegar 24 umferð-
um er lokið. Van Wetten lék einnig
tvo leiki með félaginu í 1. deild og
einn leik í sömu deild með ADO
Den Haag tímabilið 2000-01. ■
12.15 Sýn
Enski boltinn. Bein útsending frá leik
Manchester United og Fulham.
12.50 Sjónvarpið
Íslandsmótið í handbolta. Bein útsend-
ing frá leik ÍBV og Hauka í lokaumferð
Esso-deildar kvenna í Vestmannaeyjum.
13.00 Fífan
ÍA mætir Stjörnunni í deildarbikar-
keppni karla í fótbolta.
14.25 Sjónvarpið
Þýski fótboltinn. Bein útsending.
14.45 Stöð 2
Enski boltinn. Bein útsending frá leik
Newcastle United og Blackburn
Rovers.
15.00 Egilshöll
Valsmenn og Eyjamenn eigast við í
deildarbikarkeppni karla í fótbolta.
15.45 Sýn
Bein útsending frá leik Grindavíkur og
Tindastóls í undanúrslitum Intersport-
deildar karla í körfubolta.
16.20 Sjónvarpið
Innanhússmeistaramót Íslands í sundi.
Bein útsending frá Vestmannaeyjum.
16.30 Ásgarður
Stjarnan og Grótta KR eigast við í Esso-
deild kvenna í handbolta.
16.30 Fylkishöll
Fylkir/ÍR tekur á móti Val í Esso-deild
kvenna í handbolta.
16.30 Kaplakriki
FH mætir Fram í Esso-deild kvenna í
handbolta.
16.30 KA-heimilið
KA/Þór og Víkingar eigast við í Esso-
deild kvenna í handbolta.
6.30 Sjónvarpið
Formúla 1. Bein útsending frá
kappakstrinum í Malasíu.
13.00 Sjónvarpið
Formúla 1. Upptaka frá kappakstrinum í
Malasíu í morgun.
13.45 Sýn
Enski boltinn. Bein útsending frá leik
Liverpool og Leeds United.
15.30 Sjónvarpið
Innanhússmeistaramót Íslands í sundi.
Bein útsending frá Vestmannaeyjum.
15.55 Sýn
Enski boltinn. Bein útsending frá leik
Arsenal og Everton.
18.00 Egilshöll
KR mætir Breiðablik í meistarakeppni
kvenna í fótbolta.
19.15 Keflavík
Keflavík tekur á móti Njarðvík í undan-
úrslitum Intersport-deildar karla í körfu-
bolta.
FÓTBOLTI Real Madrid tryggði sér
sæti í átta liða úrslitum Meistara-
deildar Evrópu í vikunni og mæt-
ir Manchester United í næsta
mánuði. Sæti í þessum hluta
keppninnar stóð tæpt fram í loka-
umferðina en síðbúið jöfnunar-
mark Javier Portillo í Dortmund
og sigrar gegn Milan og
Lokomotiv fleyttu Real áfram.
Leið Real í milliriðlana var heldur
ekki greið en liðið hafði að lokum
betur gegn Roma, AEK og Genk.
Vandræðagangur Real kom
mjög á óvart því búist var við
miklum afrekum af félaginu í vet-
ur. Tímabilið hófst með sannfær-
andi sigri á Feyenoord í leik
meistara Evrópumóta félagsliða.
Árangur Real heima fyrir var
með ágætum framan af en með
slæmu gengi í október og nóvem-
ber dróst Real aftur úr efstu fé-
lögum. Real komst á beinu braut-
ina að nýju í desember og er efst í
deildinni þegar tólf umferðir eru
eftir. Fram undan er keppni við
Real Sociedad, Deportivo La Cor-
una og hugsanlega Valencia um
titilinn.
Í aðalliði Real eru 25 leikmenn,
ýmist leikmenn sem félagið hefur
alið upp eða stórstjörnur sem fé-
lagið hefur keypt fyrir háar fjár-
hæðir. Casillas, Raúl, Guti,
Portillo og Pavón hafa verið leik-
menn Real frá unglingsaldri en
Luis Figo, Ronaldo, Zidane, Ro-
berto Carlos o.fl. voru keyptir fyr-
ir til félagsins. Steve McManam-
an kom hins vegar til Real árið
1999 án þess að félagið þyrfti að
borga Liverpool fyrir hann.
Samanlagt kaupverð leik-
manna Real sem léku gegn Milan
í Meistaradeildinni er um 20 millj-
arðar króna. Liðið var skipað
þessum leikmönnum: Casillas -
Salgado, Pavón, Helguera, Ro-
berto Carlos - Flavio Conceicao,
Makelele - Luis Figo, Raúl (f.)
(Portillo 90.), Zidane (Solari 88.) -
Ronaldo (Guti 67.). Fyrirliðinn
Fernando Hierro var meiddur en
ekki var pláss fyrir Cambiasso,
McManaman og Morientes.
Leikmenn Real eru jafnframt
burðarásar landsliða Spánar,
Portúgals, Frakklands og Brasil-
íu. Í næstu leikjalotu, 29. mars og
2. apríl, leika ellefu leikmenn Real
með áðurnefndum liðum. Argent-
ínumennirnir Solari og Cambiasso
fá hins vegar frí þar sem ekkert
verður af leik Argentínu og Ástr-
alíu.
Casillas, Guti, Michel Salgado,
Raúl og Helguera eru í spænska
landsliðshópnum sem mætir
Úkraínu og Armeníu og Zidane
og Makelele leika með Frökkum
gegn Möltu og Ísrael. Fjórir leik-
menn Real taka þátt í vináttuleik
Portúgals og Brasilíu næsta laug-
ardag, Luis Figo leikur með
Portúgal og Flavio Conceicao,
Roberto Carlos og Ronaldo með
Brasilíu. ■
Algarve-bikarkeppnin:
Bandaríkin sigruðu
Kína í úrslitaleik
MIA HAMM
Mia Hamm, leikmaður ársins 2002,
skoraði í úrslitaleiknum gegn Kína.
Real á réttri leið
Evrópumeistarar Real Madrid eru efstir í spænsku deildinni og leika
gegn Manchester United í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
REAL MADRID
Luis Figo og Ranaldo fagna sigurmarki Real Madrid gegn Lokomotiv í Moskvu.
ROBERTO CARLOS
Roberto Carlos hóf feril sinn hjá Palmeiras
í Sao Paulo og lék eitt ár með Internazion-
ale í Mílanó áður en hann var seldur til
Real Madrid fyrir rúmlega 750 milljónir
króna árið 1996. Hann getur hlaupið 100
metra á 10,6 sekúndum og getur skotið
boltanum á 120 kílómetra hraða. Roberto
Carlos varð heimsmeistari með Brasilíu-
mönnum í fyrra og hefur þrisvar verið í
sigurliði Real í Meistaradeildinni.
Ferill leikir mörk
Palmeiras 67 6
Internazionale 30 6
Real Madrid 234 29
Samtals 331 41
A-landsleikir 93 7
LUIS FIGO
Luis Figo kom til Real Madrid árið 2000
fyrir fjóra og hálfan milljarð króna frá erki-
fjendunum í Barcelona. Hann varð tvisvar
meistari með Barcelona og bætti þriðja
titlinum í safn sitt á fyrsta ári sínu með
Real. Hann varð Evrópumeistari í fyrsta
sinn þegar Real vann Bayer Leverkusen í
úrslitaleik Meistaradeildarinnar í fyrra. Figo
hóf feril sinn hjá Sporting Lissabon árið
1989 og lék með félaginu til 1995 þegar
hann var seldur til Barcelona fyrir hálfan
milljarð króna.
Ferill leikir mörk
Sporting Lissabon 129 16
Barcelona 172 30
Real Madrid 84 25
Samtals 85 71
A-landsleikir 89 27
RAÚL GONZÁLEZ
Raúl González hefur verið leikmaður Real
Madrid frá unglingsaldri. Hann hefur
skorað 150 mörk í 308 deildarleikjum á
ferlinum fyrir Real. Raúl stendur sig jafnan
vel á stóru stundunum en hann skoraði í
úrslitaleikjunum gegn Valencia og Bayer
Leverkusen í Meistaradeildinni og Vasco
da Gama í Heimsmeistarakeppni félags-
liða.
Ferill leikir mörk
Real Madrid 308 150
A-landsleikir 57 28
IVAN HELGUERA
Ivan Helguera kom til Real Madrid fyrir
650 milljónir króna árið 1999 í valdatíð
John Toshack. Hann hafði leikið eitt tíma-
bil í senn hjá Manchego, Albacete, AS
Roma, Deportivo La Coruna og Espanyol
þegar Real keypti hann. Helguera var
miðjumaður framan af ferli sínum en hjá
Real hefur hann lengstum leikið sem mið-
vörður.
Ferill Leikir mörk
Manchego 13 2
Albacete 14 2
Roma 8 -
Deportivo 1 1
Espanyol 37 2
Real Madrid 114 13
Samtals 187 20
A-landsleikir 29 2
hvað?hvar?hvenær?
20 21 22 23 24 25 26
MARS
Sunnudagur
Smíða glugga,
opnanleg fög, fræsi, glerja, mála, hurðaísetningar, park-
etl. Tek við tilboðum, geri tilb. tímav. Allt eftir óskum.
Hagstætt verð.
Hjalti: 892 4592 / 581 4906
geymið auglýsinguna
Húsmæðraorlof Gullbringu- og Kjósarsýslu
býður upp á eftirtaldar ferðir:
Kárahnjúka-Svartaskóg 27. til 29. júní.
Ítalíu-Gardavatn 17. til 24. ágúst.
Helsinki-Tallinn 25. til 29. sept.
Eftirtaldar konur veita nánari upplýsingar og
taka á móti pöntunum í síma milli 17:00 og
19:00 á virkum dögum frá 24. mars til 4. apríl.
Svanhvít: 565 3708 Ína: 421 2876
Guðrún: 426 8217 Valdís: 566 6635
Guðrún: 422 7174 Sigrún: 565 6551