Fréttablaðið - 22.03.2003, Síða 13
13LAGUARDAGUR 22. mars 2003
FÓTBOLTI Evrópumeistarar Real
Madrid leika gegn Manchester
United í átta liða úrslitum Meist-
aradeildar Evrópu. Fyrri leikurinn
verður í apríl. Sigurvegarinn leik-
ur gegn Juventus eða Barcelona í
undanúrslitum. Real og United
hafa þrisvar mæst í keppni meist-
araliða. Real hafði betur árin 1957
og 2000 og varð Evrópumeistari en
United vann árið 1968 og sigraði í
keppninni um vorið.
Internazionale leikur gegn Val-
encia í átta liða úrslitum og Ajax
mætir AC Milan. Sigurvegararnir
mætast í undanúrslitum. Milan
leikur gegn Ajax og Real gegn
United 8. og 23. apríl en 9. og 22.
apríl leikur Inter við Valencia og
Juventus við Barcelona. Úrslita-
leikurinn verður á Old Trafford í
Manchester 28. maí.
Í undanúrslitum UEFA-bikar-
keppninnar leikur Celtic við Boa-
vista og Lazio við Porto. Fyrri leik-
irnir verða í Glasgow og Róm 10.
apríl en seinni leikirnir í Portó 24.
apríl. Úrslitaleikur keppninnar
verður á Estadio Olímpico í Sevilla
21. maí. ■
NÆRFÖT • NÁTTFÖT
Meistaradeildin og UEFA-bikarinn:
Real Madrid gegn
Manchester United
REAL MADRID
Evrópumeistarar Real Madrid leika gegn Manchester United í átta liða úrslitum
Meistaradeildarinnar.
Úrvalsdeildarlið FH:
Tveir
Danir til
reynslu
FÓTBOLTI Tveir danskir leikmenn
koma á mánudag til reynslu hjá
úrvalsdeildarliði FH í fótbolta og
verða hjá liðinu í nokkra daga.
Báðir leikmennirnir koma frá
danska liðinu AGF og koma til
Hafnarfjarðarliðsins fyrir milli-
göngu Ólafs Kristjánssonar, sem
er aðstoðarþjálfari liðsins.
Leikmennirnir heita Tommy
Nielsen, sem er 31 árs gamall
varnarmaður, og Allan Borgvardt,
sem er 23 ára gamall sóknarmað-
ur. ■
RONALDO
Ronaldo kom til Real Madrid í fyrra fyrir
tvo og hálfan milljarð króna frá Inter-
nazionale í Mílanó. Ronaldo hóf feril sinn
hjá Cruzeiro árið 1994, lék tvö tímabil
með PSV, eitt með Barcelona og var í
fimm ár hjá Internazionale. Ronaldo skor-
aði bæði mörk Brasilíu í úrslitaleik heims-
meistarakeppninnar í fyrra.
Ferill leikir mörk
Cruzeiro 14 12
PSV Eindhoven 46 42
Barcelona 37 34
Internazionale 68 49
Real Madrid 21 13
Samtals 186 150
A-landsleikir 66 47
ZINEDINE ZIDANE
Zinedine Zidane er fæddur til að leika fyrir
Real Madrid, sagði forseti félagsins, sem
stóð fyrir því að Frakkinn var keyptur til fé-
lagsins á 6,5 milljarða króna árið 2001. Zi-
dane hóf feril sinn hjá Cannes árið 1988,
lék í fjögur ár með Bordeaux og loks með
Juventus í fimm ár. Hann skoraði tvisvar
fyrir Frakka í úrslitaleik HM árið 1998 og
markið sem færði Real sigur í Meistara-
deildinni í fyrra.
Ferill leikir mörk
Cannes 61 6
Bordeaux 139 28
Juventus 151 24
Real Madrid 54 14
Samtals 405 72
A-landsleikir 79 19