Fréttablaðið - 22.03.2003, Síða 34
■ ■ FUNDIR
10.00 Heimspekingar og málvís-
indamenn halda alþjóðlegt málþing í
stofu 101 í Lögbergi um „rökliði og at-
burði í málvísindum“. Fyrirlesarar eru
Matthew Whelpton, Jim Higginbot-
ham, Terry Parsons, Stephen Neale og
Gillian Ramchard.
10.00 Í Menntaskólanum við
Hamrahlíð fer fram ráðstefna um mat á
skólastarfi. Þangað koma fulltrúar ým-
issa skóla og kynna verkefni sín.
10.00 Fjölbreytt dagskrá Listadaga
barna og ungmenna er í Garðabæ. Í
Garðaskóla verða smiðjur þar sem bún-
ir verða til flugdrekar, hattar og húfur.
Einnig verður danssmiðja og ratleikur
fyrir alla fjölskylduna.
11.00 Dagskrá um fólk og fersk-
vatn verður haldin á degi vatnsins í
Ráðhúsi Reykjavíkur í tilefni af Ári
ferskvatnsins 2003. Rætt verður um
stöðu ferskvatnsmála bæði erlendis og
hérlendis og um framtíðarhorfur í
ferskvatnsmálum hér á landi.
13.00 Reynir Axelsson flytur í
Norræna húsinu þriðja fyrirlestur
sinn í fyrirlestraröð á vegum Richard
Wagner-félagsins um æskuverk
Wagners. Í dag kynnir hann óperuna
Rienzi, sem er þriðja og síðasta verk-
ið í hópi æskuverka Wagners, sem
ekki er talin standa síðari óperum
hans jafnfætis.
13.00 Dagur iðnaðarins er að
þessu sinni tileinkaður Meistarafélagi
bólstrara og aðildarfyrirtækjum þess.
Velflestir bólstrarar landsins hafa opið
hús milli klukkan 13:00 og 16:00 í dag.
Þar gefst almenningi kostur á að kynn-
ast framleiðslu þeirra, handverki og
þjónustu.
14.00 Opið hús í Flataskóla í
Garðabæ á Listadögum barna og ung-
menna. Götuleikhús, kórsöngur og dans.
16.00 Hin árlega bókmenntadag-
skrá Vestanvindar verður haldin í Edin-
borgarhúsinu á Ísafirði í dag. Að þessu
sinni kynna vestfirsku skáldin Eyvindur
P. Eiríksson, Rúnar Helgi Vignisson og
Vilborg Davíðsdóttir verk sín. Einnig
verður lesið úr verkum Guðmundar
Inga Kristjánssonar.
16.30 Friðrik Skúlason, tölvu- og
ættfræðingur, flytur erindi um ættfræði-
grunninn Íslendingabók á fundi Sagn-
fræðingafélags Íslands í húsi Sögufé-
lagsins í Fischersundi. Hann mun eink-
um reifa þá möguleika sem gagna-
grunnur af þessu tagi getur opnað
fræðimönnum.
■ ■ OPNUN
17.00 Í Nýlistasafninu við Vatnsstíg
verður í dag opnuð sýningin Hlutabréf í
sólarlaginu, sem tileinkuð er Degi Sig-
urðarsyni.
■ ■ TÓNLEIKAR
14.00 Ella Vala Ármannsdóttir
leikur á horn og Hrefna Eggertsdóttir á
píanó á tónleikum í Salnum í Kópa-
vogi. Þetta eru einleikaraprófstónleikar
Ellu Völu frá Tónlistarskólanum í Reykja-
vík.
17.00 Ungmennafélag Íslands og
Kammerkór Reykjavíkur standa fyrir
stórtónleikum í Hallgrímskirkju í
tengslum við forvarnarverkefnið Fíkn
er fjötur. Fram koma einsöngvararnir
Signý Sæmundsdóttir, Kristín S.
Snædal, Snorri Wiium og Davíð
Ólafsson ásamt Kammerkór Reykja-
víkur og fleiri kórum sem saman
mynda voldugan 500 manna kór.
Söngstjóri er Sigurður Bragason.
17.00 Vortónleikar Léttsveitar
Reykjavíkur verða haldnir í Austurbæ
við Snorrabraut undir yfirskriftinni Fljóð
og funi. Efnisskráin er funheit með suð-
rænum tónum, tangó og gospel. Snorri
Wiium tenór syngur einsöng. Stjórnandi
er Jóhanna V. Þórhallsdóttir.
20.00 Vortónleikar Léttsveitar
Reykjavíkur verða haldnir í Austurbæ
við Snorrabraut undir yfirskriftinni
Fljóð og funi. Efnisskráin er funheit
með suðrænum tónum, tangó og
gospel. Snorri Wiium tenór syngur
einsöng. Stjórnandi er Jóhanna V.
Þórhallsdóttir.
■ ■ KVIKMYNDIR
16.00 Kvikmyndasafn Íslands
sýnir frönsku myndina La Baie des
anges frá 1963 í sýningarsal safnsins í
Bæjarbíói í Hafnarfirði. Leikstjóri er
Jacques Demy. Aðalhlutverk eru í hönd-
um Claude Mann og Jeanne Moreau.
19.30 Anima Reykjavík er nafnið á
nýrri hreyfimyndahátíð sem Bíó Reykja-
vík heldur í sal Mír við Vatnsstíg 10a.
Eingöngu verða sýndar myndir sem
gerðar eru með hreyfimyndatækni eða
Stop Motion. Myndir eftir leikstjóra eins
og Jan Svankmeyers, Jiri Trinka, Aardm-
an og Tim Burton verða sýndar á hátíð-
inni. Ókeypis aðgangur á meðan hús-
rúm leyfir.
■ ■ LEIKLIST
14.00 Leikfélag Mosfellsbæjar
sýnir Hobbitann í leikgerð Odds Bjarna
Þorkelssonar eftir sögu Tolkiens.
17.00 Leikfélag Mosfellsbæjar
sýnir Hobbitann í leikgerð Odds
Bjarna Þorkelssonar eftir sögu Tolki-
ens.
14.00 Stígvélaði kötturinn fyrir
yngstu krakkana á Litla sviði Borgar-
leikhússins í samstarfi við Sjónleikhús-
ið. Allir fá ís á eftir.
20.00 Söngleikurinn Með fullri
reisn eftir Terrence McNally og Davit
Yazbek á Stóra sviði Þjóðleikhússins.
20.00 Rakstur eftir Ólaf Jóhann
Ólafsson á Litla sviði Þjóðleikhússins.
20.00 Söngleikurinn Sól og Máni
eftir Sálina hans Jóns míns og Karl Ágúst
Úlfsson á Stóra sviði Borgarleikhúss-
ins.
20.00 Píkusögur eftir Eve Ensler á
Þriðju hæð Borgarleikhússins.
21.00 Einleikurinn Sellófon eftir
Björk Jakobsdóttur í NASA við Austur-
völl.
21.00 Leikfélag Dalvíkur frumsýnir
leikverkið Gengið á hælinu eftir Júlíus
Júlíusson í Ungó á Dalvík.
Le Sing, leiksýning og matur á Litla
sviðinu í Broadway.
■ ■ SKEMMTANIR
21.30 Rokk gegn stríði í Kompaní-
inu á Akureyri. Fram koma nokkrir rapp-
arar, hljómsveitir og dansarar.
23.00 Hin hressandi hljómsveit
HOD spilar á Kaffé Kulture, sem er beint
á móti Þjóðleikhúsinu við Hverfisgötu.
Hljómsveitina skipa þeir Davíð Þór Jóns-
son, Helgi Sv. Helgason og Ómar Guð-
jónsson.
23.00 Hörkuball með Jet Black Joe
á Gauki á Stöng.
23.30 Hljómsveitirnar 5ta her-
deildin, Örkuml og Sein halda tónleika
á Grandrokk.
01.00 Hljómsveitin Papar spilar í
Sjallanum á Akureyri.
Gullfoss og Geysir í Leikhúskjallar-
anum.
Óskar Einarsson trúbador skemmtir
á Ara í Ögri.
Rokktrúbadorarnir Máni og Jonni sjá
um fjörið á Kránni, Laugaveg 73.
Hljómsveitin Feðgarnir leikur fyrir
dansi á Fjörukránni.
Hljómsveitin 3some spilar á Celtic
Cross.
Hljómsveitin Spilafíklar leikur á
Dubliner.
Benni verður á miðhæðinni á 22 í
kvöld.
Hello Kitty sér um New York-stemn-
ingu á Laugavegi 11.
Á Vídalín verður Glitter Eighties
kvöld.
Grímur Gíslason fer fyrir hljómsveit
sinni á hippaballi í Höllinni, Vest-
mannaeyjum.
■ ■ ÚTIVIST
10.00 Dagsferð Ferðafélags Ís-
lands. Gengið verður í kringum Hval-
vatn. Ekið verður inn í Botnsdal og
gengið frá bílastæðunum upp að Hval-
vatni sunnan við Glym. Gönguhækkun
er um 350 metrar og áætlað að ferðin
taki um fjóra til sex tíma. Fararstjóri er
Sigurður Kristjánsson. Lagt verður af
stað klukkan 10.00 frá BSÍ með við-
komu í Mörkinni 6.
10.30 Strandganga Útivistar hefst
við austanvert Ögmundarhraun og
gengið er vestur ströndina að Selatöng-
um. Þetta er um 10-11 km löng ferð, en
seinfarin þar sem gengið er í hrauni
hluta leiðarinnar. Fararstjóri Bergþóra
Bergsdóttir.
34 22. mars 2003 LAUGARDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
19 20 21 22 23 24 25
MARS
Laugardagur
hvað?hvar?hvenær?
20 21 22 23 24 25 26
MARS
Sunnudagur
Það hefur verið sterk tilhneig-ing til þess að vilja þurrka
Dag Sigurðarson úr út íslenskri
menningarsögu,“ segir Hjálmar
Sveinsson, sem ásamt Geir
Svanssyni hefur skipulagt sýn-
ingu í Nýlistasafninu til heiðurs
Degi. Sýninguna nefna þeir
Hlutabréf í sólarlaginu, eftir
fyrstu ljóðabók Dags.
„Til dæmis hefur það verið út-
breidd skoðun að Dagur hafi ver-
ið maður sem kastaði bæði hæfi-
leikum sínum og lífi á glæ. Að
okkar dómi er ekkert fjær sanni.
Hann er eitt gjöfulasta ljóðskáld
okkar á síðari áratugum. Við full-
yrðum hiklaust að ekkert íslenskt
ljóðskáld síðustu áratuga hafi
haft jafn mikil áhrif á yngri kyn-
slóð ljóðskálda,“ segir Hjálmar.
Sýningin í Nýlistasafninu er
með líku sniði og sýningar um
Rósku og Megas sem þeir Hjálm-
ar og Geir hafa áður sett upp á
sama stað. Á sýningunni gefur að
líta málverk og teikningar,
ljóðahandrit, sendibréf og
ljósmyndir. Margt af þessu hefur
aldrei sést opinberlega.
Um leið kemur út vegleg bók um
Dag, svipuð að gerð og samsvarandi
bækur þeirra félaga um Rósku og
Megas. Í bókinni er mikill fróðleik-
ur um Dag, bæði greinar eftir og
viðtöl við samferðamenn og vini
Dags alveg frá fyrstu tíð.
„Þessi þríleikur er óður til þessa
fólks án þess að hefja það upp á
stall. Þau þrjú virðast hafa það sam-
eiginlegt að hafa haft gríðarleg
áhrif, sérstaklega kannski Meg-
as og Dagur, en um leið verið
talin óhrein á einhvern hátt,
bæði bókstaflega og líka
táknrænt.“
Hjálmar segir einnig
alrangt, sem margir virð-
ast álíta, að Dagur hafi
verið mjög gott
ljóðskáld en
ö m u r l e g u r
málari.
„Hann er að mörgu leyti mjög
skemmtilegur og flottur málari. Ég
held að á þessari sýningu komi ein-
mitt mjög vel fram að þessi fallega
og hispurslausa trú hans á lífið birt-
ist ekkert síður í málverkunum,
sem eru expressíónísk, fígúratív og
erótísk.“
gudsteinn@frettabladid.is
■ SÝNING
Hlutabréf
í sólarlaginu
DAGUR SIGURÐARSON
Sýning tileinkuð Degi Sig-
urðarsyni verður opnuð í
Nýlistasafninu í dag. Um
leið kemur út vegleg
bók um hann.
BRYNDÍS VALBJARNARDÓTTIR
Það er heilmikið í boði eins ogvenjulega,“ segir Bryndís Val-
bjarnardóttir guðfræðingur.
„Þegar maður var yngri þurfti
maður ekki að velja neitt úr þar
sem það var svo lítið í gangi að
maður komst yfir allt sem mann
langaði til að sjá. Fundurinn um
fólk og ferskvatn er mjög athygl-
isverður og í raun mikilvægur. Þá
er alltaf gaman fara á tónleika í
Hallgrímskirkju. Þarna verða
frábærir einsöngvarar og það er
alltaf meiriháttar að hlusta á 500
manna kór í kirkjunni. Ég er mik-
ill Frakklandsaðdáandi og gæti
því vel hugsað mér að sjá frönsku
kvikmyndina La Baie des anges í
Bæjarbíói. Þá eru tvær sýningar í
Hafnarhúsinu sem gætu verið
spennandi og ég hef alltaf farið á
blaðaljósmyndarasýninguna. Þær
eru fróðlegar og skemmtilegar og
maður fær að sjá myndir sem
maður hefur aldrei séð í blöðun-
um, sem öll eiga frábæra ljós-
myndara.“
Val Bryndísar✓
Þetta lístmér á!
Bæjarleikhúsið Mosfellsbæ
Laugard. 22 mars kl:14 og 17
Sunnud. 23 mars kl:14 og 17
Laugard. 29 mars kl:14
Sunnud. 30 mars kl: 14
Laugard. 5. apríl kl:14
Laugard. 12 apríl kl:14
Miðasala allan sólarhringinn
í s í m a 5 6 6 - 7 7 8 8
BJARTAR NÆTUR
Úr sýningu Ferðaleikhússins á Light
Nights.
Hæfnispróf
fyrir dansara
DANS Kristín G. Magnús leikkona
hefur fært sig með Ferðaleikhús-
ið sitt yfir í Iðnó, þar sem leiksýn-
ingin Light Nights verður í sum-
ar.
Í dag klukkan 14.30 verður
hæfnispróf fyrir dansara haldið í
Iðnó. Kristín segir að tvö pör
dansara eigi að koma fram í
nokkrum atriðum í sýningunni í
sumar, bæði í dansatriðum og og í
leikatriðum.
Í hæfnisprófinu verða dansar-
ar beðnir um að sýna stutt dans-
atriði, sem þeir hafa undirbúið og
æft áður. Jafnframt fá þeir verk-
efni á staðnum þar sem þeir eru
prófaðir í leikrænni tjáningu.
Þeir sem ekki sjá sér fært að
mæta í dag geta samt haft sam-
band við Kristínu. ■
■ SÝNING
✓
✓
✓