Fréttablaðið - 22.03.2003, Side 36
36 21. mars 2003 FÖSTUDAGUR
Það er algjört offramboð á góðumkvikmyndum í bíó þessa dag-
anna. Þó sumar þeirra hafi ekki
fengið Óskarsverðlaunatilnefningu
þýðir það alls ekki að þær séu lakari
að gæðum en hinar. Einhver annar
djöfull virðist ráða því hvaða mynd-
ir komast í náðina hjá Óskari fræn-
da. Þannig er nýjasta mynd Spike
Lee, „25th Hour“ mögnuð. Jafnvel
sú besta sem hann hefur gert.
Sjaldan hef ég séð jafn vel
leikna mynd. Aðalleikararnir þrír
Ed Norton, Barry Pepper og Philip
Seymour Hoffman eru stórkostleg-
ir. Ed leikur Monty, sem á eftir einn
sólarhring sem frjáls maður áður
en hann er sendur í fangelsi í sjö ár
fyrir eiturlyfjabrask. Hann er þó
enginn skítablesi og í raun algjört
ljúfmenni.
Sögusvið myndarinnar er særð
New York-borg eftir 11. september
og notar Spike Lee táknmyndir
hryðjuverkanna blygðunarlaust til
þess að auka tilfinningalegt vægi
atriða. Afar minnisstætt er samtal
persóna Pepper og Hoffman í íbúð
þess fyrrnefnda, þar sem rústir tví-
buraturnanna og ótrúlega sterk
tónlist Terence Blanchard skapa
magnþrungna senu. Óskarsverð-
launaakademían hefur ekki þorað
að taka mynd til greina sem minnir
á 11. september, jafnvel þó að hún
geri það bara örlítið eins og þessi.
„25th Hour“ er að minnsta kosti
milljón sinnum betri en hin hund-
fúla „Chicago“.
Birgir Örn Steinarsson
Umfjöllunkvikmyndir
Snilldarverk
Spike Lee
25TH HOUR
Leikstjóri: Spike Lee
LORD OF THE... b.i. 12 kl. 2/kl. 4 LÚXUSSPY KIDS 2 kl. 1.40, 3.45 og 5.50
GANGS OF NEW YORK b.i.16 kl. 10.20
DAREDEVIL b.i.16 kl. 3, 8 og 10.20
THE RING kl. 8 og 10.10 b.i. 16 ára
SKÓGARLÍF 2 m/ísl.tali kl. 2, 4 og 6
TWO WEEKS NOTICE 6, 8 og 10.10
TRAPPED kl. 5.50, 8, 10.10
GULLPLÁNETAN kl. 2 og 4
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.20
Sýnd í lúxus kl. 8 og 10.20
kl. 3.45CATCH ME IF YOU CAN
kl. 3.45, 5.50 og 10.10LILJA 4-EVER
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.20
kl. 2, 4, 8 og 10NÓI ALBINÓI
kl. 2DIDDA OG DAUÐI KÖTTURINN
kl. 2 og 4SKÓGARLÍF 2
kl. 2 og 4STELLA Í FRAMBOÐI
kl. 5.50, 8 og 10.108 FEMMES
MAN WITHOUT A PAST 1.50, 6.15, 8.10
NORRÆNIR BÍÓDAGAR
Sýnd kl. 2, 4, 5.50, 8 og 10.10 b.i. 16 ára
Sýnd í lúxus kl. 5.50, 8 og 10.10
Sýnd kl. 8 og 10.30
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 b.i 12 ára
THUNDERPANTS kl. 2, 4 og 6
2 og 4DIDDA OG DAUÐI KÖTTURINN
Sýnd kl. 6 og 9
CHICAGO bi. 12 ára kl. 5.45 og 8
Chris Dreja, gítarleikari og einnstofnandi The Yardbirds, var
staddur í Hollywood þegar blaða-
maður sló á þráðinn. Honum leið vel
þrátt fyrir að vera nývaknaður og
hann sagðist hafa átt mjög upp-
örvandi daga í Los Angeles að kynna
væntanlega breiðskífu þeirra
„Birdland“, sem er einnig fyrsta
plata sveitarinnar í 35 ár. Hún kem-
ur út 22. apríl. Sveitin heldur tón-
leika á Broadway á fimmtudaginn.
„Kraftaverkið er orðið að veru-
leika,“ segir Chris Dreja fagnandi.
„Fyrsta Yardbirds-platan í 36 ár. Við
gáfum síðast út hljóðversplötu með
nýju efni árið 1968. Við vorum þó
nokkrir að semja tónlist saman á ní-
unda áratugnum undir nafninu Box
of Frogs. Við vildum ekki gera
Yardbirds-plötu aftur fyrr en við
gerðum okkur fyllilega grein fyrir
hver kjarni sveitarinnar væri.“
The Yardbirds er talin ein mikil-
vægasta gítarsveit síðustu aldar.
Sveitin hefur farið í gegnum miklar
mannabreytingar frá því að hún var
stofnuð í Englandi árið 1963. Þar má
nefna Eric Clapton, Jeff Beck og
Jimmy Page. The Yardbirds var
þekkt sem tilraunaglöð sveit. Til
hennar er til dæmis rakið upphaf
þess að gítarleikarar hófu að nota
endurvarp (“feedback) sem hluta af
lagasmíðum.
„Þeir segja að við pönkuðum upp
blúsinn. Svo eigum við að hafa sýrt
hann upp og jafnvel farið út í metal.
Við vorum bara að gera tilraunir.
Okkur langaði til þess að búa eitt-
hvað nýtt til. Við brutum víst fullt af
reglum. Ég held að allir sem hafi
verið í þessari hljómsveit hafi lagt
mikið í púkkinn. Ef einn kom með
hugmynd reyndum við bara að búa
eitthvað til úr því.“
Á nýju plötunni votta nokkrar
gítarhetjur sveitinni virðingu sína.
Þar má nefna Steve Vai, Slash, Brian
May, Joe Satriani og fyrrum liðs-
manninn Jeff Beck. „Birdland hefur
öll þau frumefni sem klassísk
Yardbirds-plata verður að hafa. Hún
hefur góðan gítar, er kröftug og
lagasmíðarnar eru framúrstefnuleg-
ar. Eins og í gamla daga eru þær
angurværar. Ég efast um að fólk
verði fyrir vonbrigðum.“
Á tónleikadagskrá The Yardbirds
á Íslandi verður einnig bunki af
gömlum lögum og verða nokkur
þeirra í nýjum útsendingum. Miða-
sala fer fram á Broadway.
biggi@frettabladid.is
■ TÓNLIST
Pönkaður sýru-
blús eða metall?
Á næsta fimmtudag heldur breska rokksveitin The Yardbirds tónleika á
Broadway. Sveitin, sem er talin ein mikilvægasta gítarrokksveit síðustu aldar,
er við það að gefa út sína fyrstu plötu í 35 ár.
NÚMERAÐ UPPRUNASKÍRTEINI
FYLGIR HVERJUM HRING
L Æ K J A R G A T A 3 4 C • H A F N A R F I R Ð I
Guðrún Bjarnadóttir
Gullsmiður
GULLSMIÐJAN
Disney-fyrirtækið hefur gefið ískyn að það ætli sér að festa
kaup á fyrirtæki Jim Henson. Það
þýðir að Disney-framleiðslan eign-
ast réttinn á Prúðuleikurunum.
Kermit og félagar verða því
frændur Mikka Mús og Andrésar
Andar. Michael Eisner, yfirmaður
Disney, sagði að fréttatilkynning
þar sem fyrirtæki Henson kæmi
við sögu væri væntanleg innan
skamms. Disney var næstum því
búið að tryggja
sér kaup á fyr-
irtæki Henson
skömmu áður
en hann lést
fyrir ára-
tug síðan.
Eftir
dauða
stofnand-
ans fór
svo allt út um þúfur.
Áður óútgefið Bítlalag, „Think-ing of Linking“, verður að finna
á væntanlegum
„Anthology“ DVD-
disk sem gefinn
verður út 31. mars
næstkomandi. Lag-
ið samdi Paul
McCartney þegar
hann var 16 ára
gamall og er það
eitt af fimm lögum sem Bítlarnir
þrír George Harrison, Paul
McCartney og Ringo Starr æfðu
fyrir útgáfu Anthology-safnsins
um miðjan síðasta áratug. Á DVD-
disknum eru upptökur frá þessari
æfingu.
Jennifer Lopez lenti í vandræðumá veitingahúsi um
daginn er trúlofun-
arhringur hennar,
sem kostaði Ben
Affleck rúmar 119
milljónir króna,
rann ofan í niður-
fall salernisvasks.
Lopez hafði tekið
hann af sér til þess að þvo á sér
hendurnar og rak sig í hann. Kalla
þurfti á pípulagningarmann sem
bjargaði hringnum úr vatnlásnum.
Affleck hefði nú líklegast ekki orð-
ið mjög sáttur ef hún hefði tapað
hringnum.
CHRIS DREJA
Ólíkt fyrrum liðsmönnum The Yardbirds, eins og Eric Clapton, Jeff Beck og Jimmy Page hef-
ur Chris Dreja aldrei langað að gera sólóplötu. „Mig hefur alltaf bara langað að spila með
The Yardbirds,“ segir hann. „Þaðan er ég. Ég er stuðningsmaður frekar en andlit sveita.“
THE YARDBIRDS
Í hljómsveitinni í dag eru stofnliðsmenn-
irnir Chris Dreja og Jim McCarty auk Gypie
Mayo (gítar), John Idan (bassi og söngur)
og Alan Glen (munnharpa og bakraddir).
Keith Relf, sem söng upphaflega með
sveitinni, lést árið 1976.
Söngvarinn Lee Ryan úr breskustrákasveitinni Blue segist eiga
þann draum að hafa kynmök við
geimverur. Hann segist trúa á til-
vist þeirra á jörðinni og óskar eft-
ir nánari kynnum. Hann
segist oft hafa gert til-
raunir til þess að verða
brottnuminn af geim-
verum en án árang-
urs.
Söngkonan Shakirasagði í viðtali á
fimmtudag að hún
hefði ekki komist í
kórinn í skólanum sín-
um þegar hún var lít-
il. Hún segir að kenn-
arinn hafi sagt henni
að hún syngi eins og
„jarmandi geit“. Hún
segist hafa tekið gagn-
rýninni vel þar sem
það hafi hvort eð er
verið hennar æðsti
draumur á þeim tíma
að verða geimfari, ekki
poppsöngkona.
Fréttiraf fólki
Sjóbirtingur - Bleikja
Til sölu veiðileyfi í Grenlæk
svæði 2 og Steinsmýrarvötnum.
Frábært tækifæri fyrir fjölskylduna að
fara saman í ódýra og skemtilega veiði
á einu besta silungssvæði landsins.
Upplýsingar í síma 897-1060 (Hilmar)