Fréttablaðið - 02.04.2004, Page 26

Fréttablaðið - 02.04.2004, Page 26
Leðurhanskar Eru ómissandi í sumar – og eiga að vera í skærum litum. Þessir skærgrænu fást í Evu og kosta 5.900. SMÁRALIND Sími 517 7007 NÁTTFATNAÐUR í miklu úrvali SUMARLITIR www.changeofscandinavia.com Bómullarlína í undirfatnaði st. 65A-85DD Brjóstahaldarar í st. 65A-100H Mörkinni 6. Sími 588 5518 OPIÐ Virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16 Ný sending af ljósum stuttkápum - 3 síddir Sissa tískuhús G l æ s i b æ , s í m i 5 6 2 5 1 1 0 Glæsilegar dragtir, pelsar, samkvæmis- buxur, pils og kjólar fyrir páskana stærðir 10-22. Opið virka daga 10-18.00, laugardaga 10-16.00. Bikiní í skálast. B/C/D Verð frá kr. 4.490 - 6.490 Sundbolir í st. 36-50 Verð frá kr. 1.990 - 6.990 Glæsibæ, s. 588 5575 Sjáumst Úrval af undirfatnaði, náttfatnaði og tískufatnaði á góðu verði! „Seðlaveskjatískan breytist ekki jafn ört og töskutískan en þó kem- ur það mér á óvart hvað töskutísk- an er klassísk líka,“ segir Edda Hrönn Atladóttir, sem rekur Leðuriðjuna Atson. „Áherslurnar breytast aðeins, höld lengjast eða styttast, breikka eða mjókka. Veskin hafa líka minnkað því nú eru fáir með tékkhefti og nær öll veskin eru með kortavösum. Nota- gildið er nefnilega alltaf mikilvæg- ast. Þótt varan sé flott í útliti gefst fólk upp á henni ef ekki er hægt að nota hana. Þess vegna verður að leggja vinnu í að samræma nota- gildi og útlit.“ Atli R. Ólafsson, faðir Eddu, stofnaði fyrirtækið árið 1936. Leðuriðjan framleiddi mikið af töskum áður fyrr en nú hefur fram- leiðslan færst meira yfir á seðla- veski og möppur. Edda hannar sjálf seðlaveski, dagskinnur og fleiri vörur. „Pabbi hannaði hins vegar mikið af kventöskum og ég er eig- inlega að bíða eftir að hafa tíma til að hanna töskur,“ segir Edda, sem greinilega hefur í nógu að snúast. „Við hönnum núna mikið úr ís- lensku roði, notum það með kálf- skinni á seðlaveski, möppur og fleira. Roðið er níðsterkt enda voru gerðir skór úr því í gamla daga. Ég man eftir því að pabbi framleiddi úr steinbítsroði þegar ég var um níu ára gömul. Það var þó ekki sambærilegt við roð- ið sem við notum í dag, það var miklu harðara og erfiðara í vinnslu. En það þoldi allt. Ég átti buddu úr steinbítsroði og það vann ekkert á henni. Roðið sem við notum í dag er miklu mýkra.“ Hún segir yfirleitt lagt upp með sérstök dömu- og herraveski en oft sæki karlarnir í veskin sem ætluð voru dömum. „Ein- hvern tímann vorum við að hanna veski og vildum hafa í þeim gluggahólf fyrir myndir, því kon- ur þyrftu alltaf að vera með myndir. Svo voru það aðallega karlar sem keyptu þau. Þetta kom okkur algjörlega á óvart.“ Leðuriðjan flytur einnig inn kventöskur frá Claudio Ferrici, sem er hollenskur framleiðandi. „Ég fann þetta merki fyrst á sýn- ingu og sá strax að hönnunin var góð. Töskurnar eru vel úthugsaðar og endast vel. Nú er einmitt á leið- inni til mín töskusending með rauð- um, hvítum og grænum töskum.“ Edda er jafnframt nýbúin að panta prufur af skærum litum í roðinu. Sumarið verður því svolítið fjörugt hvað liti varðar. „Ég ætla að fara að þreifa mig áfram, taka mér smá hvíld frá mesta amstrinu og hanna meira.“ Atson var með verslun á Lauga- vegi 15 í nokkur ár en hún var lögð niður árið 2000. Verksmiðjan flutti upp í Brautarholt og 4. mars síð- astliðinn, á afmæli stofnandans Atla R. Ólafssonar, var opnuð þar ný verslun. audur@frettabladid.is Töskur, veski og dagskinnur: Notagildið jafn mikilvægt og útlitið Edda Atladóttir, eigandi Leðuriðjunnar Atson, og Rósa Gunnlaugsdóttir sölumaður Faðir Eddu, Atli Ólafsson, stofn- aði Leðuriðjuna Atson árið 1936. Þann 4. mars síðastliðinn, á afmæli Atla, opnaði leðuriðjan nýja verslun í Brautarholti. Dagskinna „Þetta er eina íslenska dagbókakerfið sem ég veit um,“ segir Edda. Veski úr íslensku roði Roðið er níðsterkt en jafnframt fallegt útlits. Edda stefnir á að prufa sig áfram með skærari liti í roðinu. Töskur þurfa að sameina notagildi og fallegt útlit Leður- iðjan býður einnig upp á ókeypis nafngyll- ingu, sem til dæmis er vinsæl á gjafavöru.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.