Fréttablaðið - 29.05.2004, Síða 52
KRISTJÁN ÞORVALDSSON
Hver er fegursta kona í heimi? „Helga
Jóna Óðinsdóttir, barnsmóðir mín.“
Hvaða atriði eru mikilvægust í sam-
bandi við fegurð? „Útgeislunin er ríkur
þáttur og það bætir upp fegurðina ef þær
eru skynsamar og skemmtilegar.“
Hugsa íslenskar konur nægilega vel um
útlitið? „Það fer eftir landsvæðum. Í sum-
um byggðarlögum ber óþarflega mikið á
jogginggöllum og strákaklippingum á
konum.“
Gerir það stúlkum gott að taka þátt í
keppni sem þessari? „Mín stutta reynsla
í þeim efnum segir mér að svo sé.“
36 29. maí 2004 LAUGARDAGUR
Það er líklegra en ekki aðsigurvegari kvöldsins komifrá Reykjavík. Reykvískar
stúlkur hafa oftast unnið í þau
fimmtíu skipti sem keppnin hefur
verið haldin, eða tuttugu og níu
sinnum. Níu sinnum hefur sigur-
vegarinn komið af Suðurnesjum,
fimm sinnum frá Norðurlandi,
þrisvar frá Vesturlandi og tvisvar
frá Austurlandi og Suðurlandi.
Ungfrú Ísland hefur aldrei komið
frá Vestfjörðum.
Það er einnig líklegra en ekki
að sigurvegarinn verði rúmir 170
sentimetrar á hæð og vegi í
kringum 55 kíló. Þannig, eða þar
um bil, hefur það verið síðustu ár.
Fegurðarsamkeppni Íslands
stendur á gömlum merg en
fyrsta keppnin var haldin árið
1950. Sigurvegarinn þá, Kolbrún
Jónsdóttir, hlaut raunar titilinn
fegurðardrottning Reykjavíkur
en fjórum árum síðar varð Ragna
Ragnarsdóttir fyrsta fegurðar-
drottning Íslands. Margt hefur
breyst síðan þá, ekki síst lögun
kvenna, tognað hefur úr þeim en
þyngdin ekki aukist í samræmi
við það.
Stúlkurnar sem keppa á
Broadway í kvöld hafa stundað
þrotlausar æfingar síðustu vikur
auk annars undirbúnings af ýmsu
tagi. Um áttatíu stúlkur tóku þátt
í forkeppnunum sex, vítt og breitt
um landið, og tuttugu og fjórar
komust í lokakeppina.
Elín Gestsdóttir, fram-
kvæmdastjóri keppninnar, segir
ásóknina mikla og fara vaxandi.
„Áhuginn hefur aldrei verið meiri
og það er greinilegt að margar
stelpur langar að vera með.“
Ekki eru gerðar formlegar
kröfur um tiltekið útlit keppenda
en stúlkurnar þurfa að vera
ógiftar og barnlausar og mega
ekki vera bendlaðar við ósæmi-
legt athæfi svo sem nektarmynd-
ir, eins og segir í upplýsingum
um keppnina. Önnur skilyrði lúta
fyrst og fremst að heilbrigði.
„Þær þurfa að vera orðnar átján
ára, vera hraustar og heilbrigðar
og reykleysi er algjört skilyrði.
Þetta er orðið þannig í dag að
þetta gengur út á heilbrigði og
hollt líferni. Flestar stelpnanna
æfa líka mikið og hugsa vel um
sig,“ segir Elín.
Annir fylgja nafnbótinni Feg-
urðardrottning Íslands og skyld-
urnar eru nokkar. „Fegurðar-
drottning Íslands er fulltrúi
landsins næsta árið og tekur þátt
í nokkrum keppnum í útlöndum.
Stúlkurnar sem lenda í næstu
sætum á eftir taka líka þátt í
keppnum erlendis. Sigurvegar-
inn má einnig búast við að þurfa
að taka þátt í ýmsum uppákom-
um sem kunna að koma upp. Hún
er fulltrúi íslenskrar fegurðar
hvar sem er.“
Fyrir utan þátttökurétt í feg-
urðarsamkeppnum í framandi
löndum er til nokkurs að vinna.
Verðmæti verðlauna sigurvegar-
ans er yfir 1.250 þúsund krónur
en henni falla meðal annars í
skaut utanlandsferð, skartgripir
og klæðaúttektir.
Þeir eru til sem hafa horn í
síðu fegurðarsamkeppna og
segja þær ekkert annað en
gripasýningar sem helst ætti að
banna með lögum. Elín Gests-
dóttir segist hafa fundið byr
með keppninni á undangengnum
árum. „Við finnum vel hversu
fólk er miklu hlynntara þessu en
var og það er bara vegna vinnu
okkar við að breyta áherslunum
og færa keppnina inn á brautir
hollustu og heilbrigðis. Það er
liðin tíð að stelpurnar þurfi að
svelta sig eins og var. Slíkt bull
og vitleysa er úr sögunni þannig
að það er ekkert nema jákvætt
við þetta.“
Ekki er heiglum hent að gera
upp á milli stúlknanna tuttugu og
fjögurra og dómurum því nokkur
vandi á höndum. Horfa þeir til
framkomu stúlknanna í bikiníum
og á síðkjólum og taka við þær
viðtöl til að kynnast þeim nánar.
En hvernig ganga þau fyrir sig?
„Við erum að fiska eftir því
hvaða innri mann stúlkurnar
hafa að geyma og forvitnumst
um lífsviðhorf þeirra og
framtíðaráætlanir,“ segir Elín.
Sjálf situr hún í dómnefndinni
við sjötta mann og segist horfa
einna helst til þess að sigur-
vegarinn hafi bein í nefinu.
„Besta viðmiðunin sem við höf-
um er Ungfrú Ísland í dag, Ragn-
hildur Steinunn Jónsdóttir, hún
er til fyrirmyndar á allan hátt.“
ARNAR LAUFDAL, eigandi Broadway BJÖRN LEIFSSON, eigandi World Class ELÍN GESTSDÓTTIR, frkvstj. Fegurðarsamk. Ísl. ÍRIS BJÖRK ÁRNADÓTTIR, Ungfrú Skandinavía 2002
KRISTJÁN ÞORVALDSSON, ritstjóri Séð og heyrt RÓSA MATTHÍASDÓTTIR, snyrtifræðingur og eigandi Gasa SVERRIR BERG STEINARSSON, kaupmaður í Next
Fegurðardrottning Íslands verður valin við hátíðlega athöfn á Broadway í kvöld.
Tuttugu og fjórar stúlkur keppa um titilinn eftirsótta og vonast eftir frægð og
frama í kjölfarið. Hlutfall ljóshærðra og dökkhærðra stúlkna í keppninni er jafnt.
Fegurst fljóða
M
YN
D
/B
JÖ
RN
B
LÖ
N
D
AL
Hvað segja dómarar?
BJÖRN LEIFSSON
Hver er fegursta kona í heimi? „Mér
fannst Sophia Loren alltaf rosalega falleg
hér í gamla daga en í dag finnst mér
gellur á borð við Christina Aguilera og
Britney Spears rosalega flottar.“
Hvaða atriði eru mikilvægust í sam-
bandi við fegurð? „Það er bara fegurð.“
Hugsa íslenskar konur nægilega vel
um útlitið? „Já, mér finnst þær mjög
duglegar við það upp til hópa. Þær legg-
ja mikið upp úr að líta vel út.“
Gerir það stúlkum gott að taka þátt í
keppni sem þessari? „Já, ég held að
þetta efli sjálfstraust þeirra og bæti fram-
komu þannig að þetta hjálpar þeim í
framtíðinni.“
RÓSA MATTHÍASDÓTTIR
Hver er fegursta kona í heimi? „Mér
fannst Guðrún Bjarnadóttir alltaf vera ein
af fegurstu konum í heimi þegar hún var
upp á sitt besta en vil líka nefna frönsku
leikkonuna Catherine Deneuve og Hólm-
fríði Karlsdóttur.“
Hvaða atriði eru mikilvægust í sam-
bandi við fegurð? „Útgeislunin skiptir
öllu máli, hlýleg framkoma og velvild.
Greind, heilbrigt líferni og að geta komið
vel fyrir sig orði skiptir líka miklu máli.“
Hugsa íslenskar konur nægilega vel
um útlitið? „Þær eru of uppteknar við
að að klæðast nýjustu tísku og vera með
rétta varalitinn í stíl en ekki nógu
áhugasamar um að læra ákveðna grunn-
þætti, t.d í förðun, sem eru mjög mikil-
vægir.“
Gerir það stúlkum gott að taka þátt í
keppni sem þessari? „Tvímælalaust,
þetta styrkir þær og eykur sjálfstraustið.
Svo er það auðvitað mikil ögrun að taka
þátt í svona keppni. Þær vita að ef þær
standa sig þá eru tækifærin handan við
hornið.“
DÓMNEFND KVÖLDSINS
[ Anna Birta TryggvadóttirÁstrós Guðmundsdóttir
Fjóla Ósk Aðalsteinsdóttir
Guðrún Halldórsdóttir
Guðrún Lena Eyjólfsdóttir
Halldóra Rut Bjarnadóttir
Hjördís María Ólafsdóttir
Hrafnhildur Harðardóttir
Hrafnhildur Ragnarsdóttir
Hugrún Harðardóttir
Ingibjörg Ósk Jóhannsdóttir
Írena Elínbjört Sædísardóttir
Jónína Brá Árnadóttir
Karen Ósk Lárusdóttir
Kristjana Hákonardóttir
Margrét Birna Valdimarsdóttir
Margrét Magnúsdóttir
Matthildur Dröfn Birgisdóttir
Ólafía Kristjánsdóttir
Ragnheiður Björnsdóttir
Sigrún Bender
Sjöfn Sæmundsdóttir
Steina Dröfn Snorradóttir
Þórdís Björg Björgvinsdóttir ]