Tíminn - 01.07.1973, Síða 5

Tíminn - 01.07.1973, Síða 5
Sunnudagur 1. júli 1973 TÍMINN 5 Soraya gat eignast barn Soraya hefði getað verið keisarafrú i Iran enn þann dag i dag — og þar að auki móðir — ef hún hefði akki alltaf verið svo skelfilega hrædd við uppskurði. Hún hefur nefnilega aldrei verið óbyrja, að þvi er tveir þekktir kvenlæknar segja. Keisarinn ráðfærði sig við þá i sambandi við barnleysi konu sinnar á sln- um tíma. Allt sem skildi Sorayu og framtiðina að I páfuglahá- sætinu var tiu minútna aðgerð. Hún er með legskekkju og læknarnir segja, að smáupp- skurður sé nægur til að hún geti eignast barn. En Soraya var hrædd við skurðarborðið og loks missti keisarinn þolinmæðina... Líkaminn þoldi það ekki Gunilla Jonsson nefnist sænsk sundkona. I þvl skyni að ná betri árangri I grein sinni hóf hún notkun hormónalyfja. Þrátt fyr- ir þetta tókst henni ekki að setja met, það eina sem gerðist var, að hún varð ófrjó. Aður fyrr var þessi unga sænska kona venju- leg iþróttakona, sem naut llfsins engu slður en aðrir. Nú er Gunilla rekald, eyðilögö vegna mannlegrar metnaðargirndar og gáleysislegrar notkunar lyfja. Þetta dæmi gæti kannski oröið til þess, að einhver þeirra, sem leggur heilsu sina að veöi I þvl skyni að hagnast um sekúndubrot á keppnisvellinum, hugsi sig tvisvar um áður en viðkomandi gleypir næsta lyfja- skammt. Sögulegt Onassis-partý Ekki alls fyrir löngu var haldið mikið partý hjá Onassis. Jackie var ekki heima, en i staðinn komu frægir gestir eins og Elsa Martinelli, Odile Rodin og Omar Sharif og nú sjá þau sannarlega eftir öllu saman, þvi úr þessu varð hneyksli og nú þurfa þau að fara i fangelsi. Þegar veizlan stóð sem hæst tóku hinir fínu gestir nefnilega upp á þvi a ð brjóta leirtauið með leyfi gest- gjafans, þvl þetta er þrátt fyrir allt gamall, griskur siður, sem herforingjarnir hafa að visu bannað. Enginn hugsaði um það og leikurinn tók að æsast. Allt leirtau i húsinu var mölbrotið og gestirnir stigu villtan dans i glerbrotunum. En til allrar óharningju hofðu slæðzt þarna með nokkrir óhemju verðmætir, gamlir vasar, sem eftir nýjum lögum tilheyra griska rikinu. Það er þeirra vegna, sem hið fræga fólk verður að fara i fang- elsi,—efþauþá voga sér aftur til Grikklands. Hver þeirra varð að greiða hátt i milljón til að fá að fara úr landi, og nú er máliðkomiðþaðlangtá veg, að dómur fellur innan skamms. Fangelsisvistin getur orðið 3 mánuðir samkvæmt nýju lögunum. Og það er Elsa Martinelli sem myndin er af. * Strönd eða sorphaugur Strendurnar við Norðursjó eru ekki enn kafnaðar i eigin óhreinindum eins og margar ár og vötn hafa þegar gert. Engu að siður hefur þar þegar orðið vart súefnisskorts, vaxandi fos- fór- og hydrogensúlfiöinnihalds i andrúmslofti, og ofseltu sjávar. Allskonar eitranir i fiskum og fuglum hafa herjað á löndin við Norðursjó. Nú er krafizt lagasetningar vegna sjávarins, en slikar hafa þegar veriö gerðar viðvikjandi ám og vötnum á landi. Þar eð nokkur timi liöur unz þessar lagasetn- ingar verða komnar I kring hafa þeir, sem málið er einkum skylt myndað með sér „Samtök til verndar ströndum Norður- sjávar”, en i þeim eru nú 57 bæja- og sveitafélög og aðrir áhugamannahópar. Samtökin voru stofnuð nýlega i Aurich i V- þýzkalandi. Hver ibúi i héruðunum við strendur Norðursjávar, sem er meðlimur i þeim greiðir tvo þýzka pfenninga (um 65 aura isl) árlega i þvi augnamiði að vernda Norðursjó gegn þvi að verða ruslahaugur iönaöar- landanna i nágrenninu. Fram- lagið er tekið af tekjusk. til borga og sveitarfélaga. Stjórn- málamaðurinn Georg Peters frá Norder er formaður sam- takanna og hóf hann starf- semina fyrir skömmu með 640.000 isl. kr. i rekstursfé til að byrja með. En samtökin munu væntanlega einnig fá framlög frá Hamborg og Bremen, en borgaryfirvöld þar hafa mikinn áhuga á að hreinsa Norðursjó. t þágu ibúa viö Norðursjó verður áherzla lögð á að halda svæðunum hollustusamlegum fyrir menn og skepnur til bú- setu og einnig viðhalda þeim sem orlofsstað. Með aðstoð sér- fræðinga verða langtimaáætl- anir gerðar og með hjálp stjórnarinnar I Bonn og ná- grannalandanna til þess að koma i veg fyrir að frárennslis- vatn verði látið renna i sjóinn og til að halda kröfum ibúanna, ferðamanna og iðnfyrirtækja innan takmarka meö hjálp breyttra laga um fasteignir. Náttúrleg hreinsun Norður- sjávar er mjög litil og þvi hefur tveggja pfenninga herferöin hlotið góðar undirtektir bæði heima og erlendis. Haf- fræöingar i mögum löndum gefa upplýsingar um mengunarstig sjávarins. M.a. hefur forseti þýzka haf- og vatnafræðinga- félagsins Roll prófessor varað við ógnvekjandi afturför á efnainnihaldi Norðursjávarins.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.