Tíminn - 01.07.1973, Blaðsíða 36

Tíminn - 01.07.1973, Blaðsíða 36
Mondragon. Séð yfir hluta þessa 30 þúsund manna bæjar, þar sem lýðræði og jafnrétti er óviða eins mikið i verki og hvergi á Spáni. MONDRAGON - „Vin Spánar" í Baskahéraði á N-Spáni blómgast samvinnuhreyfingin Enda þótt hugmyndin um þútt- töku verkamanna i stjórnun iðnaðarins njóti æ meira fylgis og sé raunar i framkvæmd sums staðar, var ekki liklegt, að hún gæti orðið aö veruleika á Spáni Frankós. En i bænum Mondragon á Norður-Spáni, i héraðinu Gui- puzcoa, hafa engu að sfður risið upp samvinnufyrirtæki, er veita 10.000 manns vinnu. Stjórn þeirra er raunverulega f höndum verka- manna. Verkamannaráð getur rekið forstjórana, ef þvi sýnist svo. Blaðamaður Observers, Ro- bert Oakeshott, heimsótti bæinn siðastliðið haust. Álitur hann, að Mondragon geti veitt háþróuðum iönaöarrfkjum mikilvæga lexiu. Fer grein hans hér á eftir, endur- sögð og stytt mjög. Fyrir 30 árum kom ungur, kaþólskur prestur, Fr José Maria Arizmendi, til hinnar litlu borgar Mondragon I Baskahéraðinu á Noröur-Spáni. Hann hafði stutt hið hrapandi lýðveldi I Spænsku borgarastyrjöldinni 1936-1939, er hafði þær afleiðingar, að honum voru flestar bjargir bannaðar i at vinnulegu tilliti. Fr José Maria hélt þvi af stað i leit að nýrri leið. Fyrst fór hann út i tækninám og lauk sinum prófum þar, og á miðjum 6 .. áratug þessarar aldar steyptihann sér út i iðnaðarfram- leiðslu á samvinnugrundvelli. 1 dag eru samvinnufyrirtæki þau, sem hann átti hugmyndina að, — hópur tengdra fyrirtækja, er veita rúmlega 10.0000 manns at- vinnu — stærstu framleiðendur is skápa á Spáni og meðal stærstu framleiðenda á vélaverkfærum. Þau hafa sinn eigin i banka. Þau hafa sina eigin menntastofnun, sem útskrifar bæði vélamenn og iðnaðarmenn, sem og hálærða verkfræðinga. Þessi samvinnu- samsteypa er einstök i sinni röð, alla vega I Vestu-Evrópu. „Segja má, að þessi velheppn- aða starfsemi hér sé orðin til fyrir sakir samvinnu eða bandalags kaþólsku kirkjunnar og tækninn- ar”, sagði einn af eldri samvinnu- mönnunum i Mondragon. Þessi Baska-fyrirtæki eru á margan hátt harla óvenjuleg. Sé litið á söguna, hafa samvinnu- fyrirtæki gert það allgott i smá- söluverzlun og að nokkru marki i jarðyrkju. Frakkland hefur undarlega sérstöðu að þvi leyti, að þar sem samvinnufyrirtæki á annað borð þrifast, eru þau tengd lágtækniframleiðslu eins og stig- véla- og skóframleiðslu. En i Mondragon á Spáni er framleiðsl- an hátæknivædd og geysileg velta er I gangi. Mondragon er I fjallahéraði um 50 mllur inn i landi, ihn af stóru hafnarbæjunum San Sebastian og Bilbao. 1 dag er Ibúafjöldinn rétt um 30 þúsund og hefur aukizt mjög ört á liðnum árum, þar sem hin blómstrandi fyrirtæki hafa mjög laðað fólk að sér. Meðalald- ur starfsfólks fyrirtækjanna i Mondragon er 32 ár. Samhliða aukinni tækniþróun og velmegun hafa óhjákvæmilega Hér er Fr. Jósé Maria (i miöið) ásamt nokkrum af ráðamönnum hinna ýmsu fyrirtækja. Grundvallar- stjórnin er í höndum hinna almennu starfsmanna. Þeir koma saman til þings og kjósa framkvæmda- stjóra og aðra ráðamenn. risið upp háar ibúðarblokkir og fleira i þeim dúr. En gamla, hellulagða torgið með kirkjuna á eina hlið og nokkurs konar bæjar- stjórahöll á hina, virðast vera I þvi fari, sem hlýtur að hafa varað um aldir. Og þessi staður, torgið, er hin raunverulega miðstöð lifs- ins I bænum. Á helgidögum er kirkjan troðfull af fólki á öllum aldri, sem syngur sina dýrðlegu sálma af mikilli innlifun. Og á kvöldin er torgið fullt af ungu fólki, sem dansar eftir popp- músik. Samvinnufyrirtækin I Mon- dragon hafa á slnum snærum ýmis smærri fyritæki og þjón- ustu, eins og smásöluverzlanir. Þá eru f gangi samvinnubú og samvinnurekstur 3'. fiskibátum. Það siðarnefnda hefur þó ekki gengið mjög vel. En 90% af verð- mæti og vinnu liggur i stórfram- leiöslu, hönnun og uppbyggingu. Aherzlan er um fram allt lögð á að samhæfa nútima tækni, þjóð- félagslegt réttlæti og lýðræði. Þetta er einkar áhugaverð þróun, sem gaman er að fylgjast með. Og flestir virðast njóta lifsins hið bezta þarna i Mondragon. Framleiðsla hófst i Mondragon 1956, er fimm nýútskrifaðir verk- fræðingar og tæknifræðingar úr skóla, sem Fr José Maria hafði komið á fót, mynduðu með sér kjarna fyrstu iðnaðarsamvinn- unnar. Aðstaðan og búnaðurinn var ekki upp á marga fiska um þetta leyti. En i dag eru 55 fram- leiðslufyrirtæki innan samvinnu- hreyfingarinnar i Mondragon, þar af 47 i iðnaði. Stærsta eining- in, ULGOR, sem framleiðir aðal- lega isskápa, veitir meir en 2.500 manns vinnu. Heildarsöluverð- mæti siðast liðið ár er álitið hafa numið meira en 10 þúsund milljónum peseta eða þvi sem næst 65 milljónum sterlings- punda. Salan hefur aukizt árlega um yfir 30% siðan árið 1966. Annað merki um velgengni fyrirtækj- anna er, hve sjálffjármögnunin er mikil. A fimm ára timabili, frá 1967 til 1971, var meira en helmingur fjármögnunar greidd- ur af eigin arði fyrirtækjanna. Af könnun, sem Bank of Spain gerði nýlega, kom i ljós, að þessi tala var rúmlega helmingi hærri en samsvarandi meðaltala fyrir spænska einkaiðnaðinn i heild. Launa- og skattamál starfs- manna samvinnufyrirtækjanna i Mondragon eru afar lýðræðisleg, en of langt mál yrði að fara að rekja þau náið. Þess má þó geta,

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.