Tíminn - 01.07.1973, Síða 23
Sunnudagur 1. jú'H 1971$
TÍMINN ' '
23
Aðalfundur Hjartaverndar:
Aherzla lögð á rannsóknir
á fólki úti á landsbyggðinni
AÐALFUNDUR Hjartaverndar,
landssamtaka hjarta- og æða-
verndarfélaga á íslandi, var
haldinn i Tjarnarbúð 4. júni sl.
1 upphafi fundarins minntist
prófessor Sigurður Samúelsson,
formaður samtakanna, Sigurliða
Kristjánssonar, kaupmanns, en
Sigurliði var einn af stofnendum
samtakanna og átti sæti i fram-
kvæmdastjórn þeirra.
t skýrslu framkvæmdastjóra
kom fram, að starfsemi Hjarta-
verndar hefir verið framkvæmd
eftir þeirri áætlun, sem samin var
1972 til júniloka 1973, en áætlun
þessi fellur inn í þann ramma,
sem ákveðinn var við byrjunar-
rannsókn samtakanna 1967.
1 höfuðatriðum var starfsemin
framkvæmd i fjórum þáttum:
1) Lokið við II. áfanga kvenna-
rannsóknar i Reykjavik.
2) Þjónustu við tilvisunarsjúkl-
inga með sama hætti og áður.
3) Sept.-okt. 1972 voru rannsak-
aðir ibúar Siglufjarðarhéraðs á
aldrinum 41-60 ára.
4) 1 nóvember sl. hófst rann-
sókn kvenna í Arnessýslu, sem
mættu til rannsóknarstöðvar
Hjartaverndar.
Stutt yfirlit um rannsóknarstörf
hjartaverndar frá byrjun, eða ár-
inu 1967, sýnir að lokið er kerfis-
Dagana 20. til 22. júni s.l. var 20.
landsþing Kvenfélagasambands
Islands haldið að Hallveigarstöð-
um. Þingið sátu fulltrúar frá 21
héraðssambandi og einu kvenfé-
lagi, sem er beinn aðili að K.Í., en
það er Kvenfélagið Likn i Vest-
mannaeyjum. Innan héraðssam-
bandanna eru 240 kvenfélög og
alls eru tæplega tuttugu þúsund
konur félagsbundnar i aðildarfé-
lögum K.I. Eitt samband gekk i
K.l. á þessum fundi, Bandalag
kvenna i Hafnarfirði, en það var
stofnað s.l. vetur. Fulltrúar og
gestir sem sátu þingið voru um
60.
Meðal álytkana og áskorana,
sem samþykktar voru á þinginu
voru þessar:
1) 20. landsþing Kvenfélaga-
sambands Islands, haldið að
Hallveigarstöðum dagana 20.-22.
júni 1973, heitir á alla landsmenn
að sýna órofa samstöðu um það
lifshagsmunamál þjóðarinnar. að
fá viðurkenndan rétt hennar yfir
50 milna fiskveiðilögsögu við
strendur landsins.
Einnig þakkar þingið skips-
höfnum landhelgisgæzlunnar. hve
þær hafa gætt mikillar hófsemi og
prúðmennsku i störfum við erfið-
ar og hættulegar aðstæður.
2) 20. landsþing Kvenfélaga-
sambands íslands telur óviðun-
andi þann vanda, sem mikill
fjöldi heimila og einstaklinga á
við að striða vegna skorts á
sjúkrahúsarými og ófullnægjandi
meðferðaraðstöðu fyrir geðsjúkl-
inga og þar með talda áfengis-
sjúklinga. Skorar þingið á rikis-
stjórnina að fylgja eftir ákvæði
stjórnarsáttmálans um að leysa
vandkvæði þessara sjúklinga og
taka nú þegar fyrstu skrefin i þá
átt með þvi að hefja byggingu
geðdeildar Landspitalans á þessu
ári. Jafnframt verði lögð áherzla
á að ljúka byggingu hælis fyrir
áfengissjúklinga að Vifilsstöðum
sem fyrst. Ennfremur verði unnið
bundinni rannsókn á Reykviking-
um á aldrinum 33 ára til 60 ára,
tveim áföngum karla og tveim
áföngum kvenna. Þriðji og siðasti
áfangi af báðum kynjum er eftir,
sem lokið verður 1975-76.
A næsta starfsári er aðal-
áherzla lögð á rannsóknir á fólki á
landsbyggðinni, og verður lagt
kapp á að ljúka þessum rann-
sóknum þar. Er brýn nauðsyn á
að það takist, þar eð siðustu tvö
ár af tiu ára áætlun samtakanna
eru alveg bundin við framkvæmd
kerfisbundnu rannsóknanna i
Reykjavik, og þarf þá að rann-
saka alla þrjá flokka karla og
kvenna, sem verður um 9000 þátt-
takendur hvort árið.
Reynt verður að veita tilvisun-
arsjúklingum sams konar þjón-
ustu og verið hefir.
Viðvikjandi rannsókn á fólki úr
Arnessýslu er þetta að segja:
„Af ýmsum ástæðum þótti hag-
kvæmtað boða þetta fólk til rann-
sóknar á stöðina i Reykjavik.
Boðið var til skoðunar öllum
körlum og konum, sem fædd voru
árin 1907-1934, alls nálægt 2.000
manns.
Boðsbréf til kvennahópsins
voru send i nóvember og er sýnt
að þátttaka mun verða mjög góð,
allt að 80%.
að undirbúningi annarra ráðstaf-
ana, sem nauðsynlegar eru til
lausnar á þessu mikla vandamáli.
3) 20. landsþing Kvenfélaga-
sambands Islands beinir þeirri
áskorun til viðkomandi stjórn-
valda, að þau geri allt sem i
þeirra valdi stendur, til að bæta
úr þeim alvarlega lækna- og
hjúkrunarkvennaskorti er rikir
enn viða úti á landsbyggðinni.
4) 20. landsþing Kvenfélaga-
sambands Islands beinir þeirri
áskorun til Alþingis og mennta-
málaráðherra, að nú þegar verði
gerðar ráðstafanir til að tryggja
sem jafnasta aðstöðu dreifbýlis-
og þéttbýlismanna til mennta.
1 framhaldi af 2. grein 1. kafla
grunnskólafrumvarpsins vill
þingið leggja áherzlu á nauðsyn
þess, að lögð sé sérstök rækt við
að innræta börnum og unglingum
trúrækni, ábyrgðartilfinningu,
skyldurækni, umburðarlyndi,
háttvísi og tillitssemi við aðra,
svo og virðingu fyrir skoðunum
annarra.
Landsþingið beinir þeirr:
áskorun til fræðsluyfirvalda, af
þau hlutist til um, að móðurmáls
kennsla i skólum sé bætt, m.a
með stóraukinni kennslu i fram-
burði og framsögn og jafnframt
verði leitazt við að auka orða-
forða nemenda. Þingið telur, að
brýn þörf sé á útgáfu kennslubók-
ar um þetta efni. Einnig telur
þingið nauðsynlegt, að börnum sé
kennt að njóta tónlistar þegar i
upphafi skólagöngu. Bendir þing-
ið á hlutverk hljóðvarps og sjón-
varps á þessum sviðum.
Landsþingið telur, að gefa eigi
fullorðnu fólki kost á endurhæf-
ingar- og fræðslunámskeiðum til
að kynnast nýjungum á sviði at-
vinnuveganna, til upprifjunar eða
til að auka þekkingu slna. Slika
fræðslu gætu kennslustofnanir á
hverjum stað annazt.
Komið sé á fót foreldrafræðslu i
Framhald á bls. 39.
Rannsóknin hófst 6/12. I marz-
mánuði hófst rannsókn á körlum i
Árnessýslu, og verður væntan-
lega lokið að mestu fyrir 1. júli
n.k.
Næsti áfangi Suðurlandsrann-
sóknar verður Rangárvallasýsla
og V.-Skaftafellssýsla.”
Nauðsynlegt er að ljúka rann-
sóknum á fólki á landsbyggðinni á
næsta ári. Er hér um stórátak að
ræða, sem ekki verður fram-
kvæmanlegt nema með mikilli
aðstoð frá viðkomandi bæjar- og
sveitastjórnum og góðri sam-
vinnu við stjórnir Hjarta- og æða-
verndarfélaganna úti á landi.
Sá alvarlegi atburður skeði á
s.l. ári, að samtökin voru svipt
tekjustofni sinum, og veitt fjár-
framlag kr. 5.000.000.00 á fjárlög-
um, sem mun aðeins vera helm-
ingur þess, sem samtökin hefðu
hlotið, ef þau hefðu notið áfram
tekjustofns sins. Siðar var fjár-
hæð þessi hækkuð i meðförum Al-
þingis i kr. 6.000.000.00.
Við þessa lagabreytingu var
ekkert samráð haft við stjórn
samtakanna, og er þvi greinilegt,
að samtökin eru sniðgengin, þar
eð ekki verður séð, að sama hafi
verið látið ganga yfir önnur likn-
arfélög.
Ráðstöfun þessi kom þvi stjórn-
inni mjög á óvart, og varð hún
þess vegna að gripa til samdrátt-
ar i starfsemi rannsóknarstöðvar
innar, sem komið hefir fram i
minnkuðum afköstum.
Framkvæmdastjórn hefir nú
þegar snúið sér til Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytisins um
leiðréttingu þessa máls. Allar
áætlanir Hjartaverndar eru
byggðar á þvi, að samtökin njóti
þessa tekjustofns til ársins 1976,
eins og lögin gerðu ráð fyrir. Skil-
yrði fyrir þvi, að lokið verði öllum
áætlunum rannsóknanna er þvi,
að veitt verði tilsvarandi fjárhæö
á fjárlögum næstu ára, en þetta
atriði hefir stjórnin lagt þunga
áherzlu á við ráðuneytið. Verður
máli þessu haldið til streitu, og
starfsemi samtakanna haldið
áfram samkvæmt áætlun i von
um að leiðrétting fáist.
Starfslið rannsóknarstöðvar-
innar hefir verið að mestu
óbreytt. ólafur Ólafsson, for-
stöðumaður rannsóknarstöðvar-
innar, lét af störfum 1. október
s.l., er hann tók við störfum land-
læknis. Hann hefir veitt stöðinni
forstöðu frá byrjun, eða frá árinu
1967. Átti hann einn mestan þátt i
allri uppbyggingu rannsóknar-
stöðvarinnar, ásamt Nikulási
Sigfússyni, lækni, núverandi for-
stöðumanni. Þakkar fram-
kvæmdastjórn Ólafi landlækni vel
unnin störf i þágu samtakanna á
undanförnum árum, um leið og
hún óskar honum góðs gengis i
mikilvægu starfi, sem honum hef-
ir verið falið.
A árinu bárust samtökunum
nokkrar veglegar gjafir. Guð-
bjartur Jónsson, Skipasundi 85,
Reykjavik, arfleiddi samtökin að
kr. 200.000.00.
Guðrún Sveinsdóttir frá
Bjarnastaðahlið i Skagafirði gaf
þann 19. ágúst á siðasta ári
Hjarta- og æðaverndarfélagi
Skagafjarðar og Krabbameinsfé-
lagi Skagafjarðar þrjár milljónir
króna. Akvað hún að stofna sjóð
til styrktar þessum félögum og
lagði fram stofnframlagið, þrjár
milljónir króna.
Þetta fé kemur að sjálfsögöu að
góðu haldi, þegar rannsókn hefst i
Skagafirði, sem væntanlega verö-
ur þegar Suðurlandsrannsókn
lýkur.
I marzmánuði kom hingað til
lands yfirlæknir Otto Brusis frá
endurhæfingarstöö fyrir hjarta-
sjúka i Waldkirch i Suður-Þýzka-
landi. Flutti hann fyrirlestur um
þessa starfsemi i Landspitalan-
um. 1 framhaldi af heimsókn yfir-
læknis Brusis, dvaldist prófessor
Sigurður Samúelsson til að kynna
sér nánar endurhæfingu hjarta-
sjúkra, bæði i Waldkirch i Suður-
Þýzkalandi um vikutima, og aðra
viku á Rikisspitalanum i Kaup-
mannahöfn á Hjartasjúklinga-
deildinni. Þar kynntist hann yfir-
sjúkraþjálfara i þessum fræðum
og fekk hana i boði Hjartaverndar
til að koma hingað til lands og
halda námskeið með islenzkum
sjúkraþjálfurum i endurhæfingu
hjartasjúkra. Námskeið þetta
verður haldið i Landspitalanum
dagana 4.-9. júli.
Landsþing Kvenfélagasambands Islands:
Allir hljóti sömu
aðstöðu
til mennta
Ertu að byggja?
Viltu breyta?
Þarftu að bæta?
Veggfóöur
Fjölbreyttasta veggfóður
sem völ er á.
Vymura og Decorene
ásamt fjölda annarra gerða.
UTAVER