Tíminn - 01.07.1973, Qupperneq 28
28
TÍMINN
Sunnudagur 1. júli 1973
ÉG VAR GIFT
STEINALDARMANNI
Aður en Wyn Sargent kom til Nýju Gineu var Obaharok herskáasti höfðinginn I landinu. En á nokkrum
vikum tókst henni að temja hann. Þau gengu í hjónaband og áttu saman fimm hamingjusamar vikur.
Hér er húðkaupsmyndin. Að hætti kynflokks síns ber höfðinginn skýlu um lim sinn eina klæða. Lengd
skýlunnar sem er gerð úr graskeri fer eftir þvíhve maðurinn er hraustur.
STEINALDARFÓLKIÐ i Nýju
Gineu kallaði hana „Stóru hvitu
gyðjuna”. Indóneskisk yfirvöld á-
sökuðu hana fyrir að hafa auglýst
sig á kostnað innfæddra. Sjálf
segist hún hafa viljað koma á friði
milli striðandi kynflokka frum-
skógarins.
Fyrir nokkrum árum var hún
óþekktur bandariskur blaðamað-
ur. Nú er Wyn Sargent fræg og
bókin, sem hún er að skrifa verð-
ur áreiðanlega metsölubók. Hún á
að heita: ,,Ég var gift steinaldar-
manni”.
Hjónabandið með Papuahöfð-
ingjanum Obaharok stóð aðeins i
fimm vikur og varð þvi töluvert
styttra en siðasta hjónaband
hennar. Samt sem áður var stór-
kostlegt að hún skyldi komast lifs
af úr öllu saman.
Kynþættirnir i indónesiska
hluta Nýju Gineu eru á stein-
aldarstigi, og mannát er enn sem
fyrr útbreitt meðal þeirra. Fyrir
nokkrum árum hvarf Michael
Rockefeller, 32 ára gamall sonur
Nelsons Rockefeller landstjóra,
án nokkurra ummerkja. Enginn
vafi er á að lifi hans lauk á mið-
degisverðarborði eins kynþátt-
anna.
Wyn Sargent óttaðist ekki að
hljóta sömu örlög. Hún hafði áður
búið i þrjú ár með hausaveiðurum
á Borneo og stofnaði til vináttu
við þá. Hún hafði hjálpað þeim,
útvegað þeim lyf og stofnað litið
sjúkrahús fyrir fé, sem hún hafði
safnað i Bandarikjunum.
I Nýju Gineu var vel tekið á
móti hinni 46 ára gömlu, unglegu
180 cm háu, rauðhærðu Wyn
Sargent. Eftir nokkra mánuði var
litið á hana sem sendiboða af
himnum. Þegar hún hafði bland-
að blóði við innfædda við hátið-
lega athöfn, var hún viðurkennd
sem ein af þeim.
Wyn Sargent er læknir að
mennt og hefur árum saman
starfað við kennslu. Nú er hún
blaðamaður og segir sjálf að hún
skrifi aðeins um frumstæðar
þjóðir, sem hún heimsæki i
hjálparskyni. Hún er kvekara-
trúar og kveðst vilja „hjálpa þar
sem hjálpar er þörf”.
t stað þess að kenna hinum nýju
vinum sinum að klæðast fötum og
venja sig af frumstæðum siðum,
ákvað hún að kenna þeim það
sem er mikilvægara, að lifa i friði
hverjir við aðra.
Brúðkaupið
Kynþættirnir hafa öldum eða
árþúsundum saman átt i striði sin
I milli, og smám saman hafði
þeim nær tekiztað útrýma hverjir
öðrum. í fyrstu settist hún að i
þorpinu Baliem-Tales, en ibúar
þess áttu i sifelldu striði við ibúa
nágrannabæjarins Mulima.
Til þess að reyna að koma á
friði heimsótti hún höfðingjann i
Mulimam Obaharok, sem hafði
orð á sér fyrir að vera herskáast-
ur og erfiðastur viðfangs allra
Papuahöfðing janna.
A nokkrum vikum gerðist nokk-
uð furðulegt. Fulltrúar tveggja
menningarsvæða, sem eru eins
ólik og dagur og nótt, urðu góðir
vinir og svo fór að þau giftu sig.
Hún ávann sér traust hans með
þvi að gefa honum exi, langan
hnif og skóflu.
Brúðkaupið stóð i fimm daga og
gestir streymdu til þorpsins frá
nálægum stöðum. Tilkynnt hafði
verið að Obaharok hefði samið
frið við alla óvini sina. í stað þess
að berjast hugðist hann nú njóta
hjónabandssælunnar með
sjöundu konu sinni.
Fréttin um þetta sérstæða
brúðkaup barst fljótt um heim
allan. I fyrstu lék það orð á; að
Wyn Sargent hefði gifzt höfðingj-
anum til að afla efnis i bók um
sérstætt kynlff ættbálksins.
Við heimkomuna til New York
neitaði hún að hafa nokkru sinni
sagt þetta. „Það er sorglegt að
„Ég var gift steinaldarmanni”
kemur bók Wyn Sargent til með
að heita, sem hún er að skrifa um
reynslu sina i Nýju Gineu. Hún er
þegar viss um að hún verður met-
sölubók.
„Móðir min veit alltaf hvað hún
er að gera,” segir sonur Wyn Sar-
gent, Jimmy Martin 17 ára. Hann
tók á móti móður sinni á flugvell-
inum þegar hún kom til Kali-
forniu frá Nýju Gineu.
Wyn Sargent komst aldrei svo
langt að flytja til eiginmannsins.
Eftir brúðkaupið fékk hún eigin
kofa til umráða og ungu hjónin
heimsóttu oft hvort annað. Þau
lifðu þó aldrei kynlifi. „En við er-
um enn gift”, segir blaðakonan
bandariska.