Tíminn - 01.07.1973, Side 32
32
TÍMINN
Sunnudagur t. júli 1973
HÁRIÐ Á AÐ VERA
AAJÚKT OG EÐLILEGT
—litið inn á hárgreiðslusýningu hjá norskum meistara
ARILD Martensen heitir norskur
hárgreiðslusnillingur, sem
ferðast um heiminn og miðiar
fagfólki af þekkingu sinni. Auk
þess hefur hann tckið þátt i
Evrópu- og heimsmeistarakeppni
i hárgreiðslu og einnig dæmt viö
slik tækifæri. Nú nýverið lauk
hann þriggja vikna sýningar-
feröalagi um þver og endilöng
Randarikin og er hann var á leið
heim til Noregs, notaði Hár-
greiðslumeistarafélag Islands
tækifæriö, kallaði hann niöur á
jörðina og hauð honum að sýna
islcnzku fagfólki og kenna þvi
eitthvað af þvi nýjasta.
Martensen lét ekki á sér standa
og eftir að hafa rætt við hár-
greiðslufólkið daglangt, hélt hann
sýningu á Hótel Esju á miöviku-
dagskvöldið. bar komu um 250
manns, hárgreiðslukonur og
-menn og fengu færri sæti en
vildu.
Fimm stúlkur höföu gefið sig
fram til klippingar og greiöslu og
höfðu þær mjög mismunandi hár,
af öllum siddum og gerðum. Eina
þeirra klippti hann alveg stutt,
breytti hrokknu síðu hári
annarrar í slétt, bjó til kvöld-
greiðslu með spennum úr milli-
siðu sléttu hári og greiddi
tveimur.
Allt tók þetta um þrjár klukku-
stundir og einu áhöldin sem
meistarinn notaði voru hand-
þurrka, krullujárn, skæri.burstar
og greiður. Allan timann skýrði
hann nákvæmlega, það sem hann
gerði og lét ýmsan fróðleik fylgja
með. Hann sagði m.a. að mjög
væri aö ryðja sér til rúms það
sem kallað er „quick service” á
hárgreiðslustofum. Konur kærðu
sig ekkert um að sitja timunum
saman i hárþurrkum. Nú væru
krullujárn og handþurrkur aðal-
verkfærin.
— Hárið á aö vera mjúkt og
frjálslegt, sagði Martensen, —
þaö á aö leika við það. Aðal-
vandinn sagði hann aö væri að fá
stúlkur til að láta særa hár sitt. —
Þær koma og segja, að það megi
ekki taka, nema einn sentimetra,
en þá er alveg áreiðanlegt, að
það þarf að taka meira.
Ekki „túberaði” hann einn
einasta lokk á sýningunni og
notaði aðeins mjög litið af lakki.
Hins vegar kenndi hann nákvæm-
lega og skýrði, hvernig nota ætti
krullujárn og rúllubursta með
beztum árangri — Manni finnst
yfirleitt fyrst, að krullujárn sé
leiðinlegt verkfæri, en þegar
maður þekkir möguleikana
verður það skemmtilegt.
Hinar léttu og einföldu hár-
greiðslur Martensens vöktu
óskipta aðdáun sýningargesta og
að lokum var honum færður
blómvöndur frá módelunum.
Þær hárgreiðslukonur, sem við
ræddum við á eftir, voru hjartan-
lega sammála um að hafa lært
alveg ótrúlega mikið af þessari
stuttu dvöl meistarans hér,
SB
Allan tímann útskýrði Martcnsen nákvæmlega hvers vegna hann klippti þennan lokk svona, en ekki
hinsegin.
Aö lokinni sýningunni þökkuðu stúlkurnar Martensen vel og vandlega fyrlr meðferðina
Þessi stúlka var með hrokkið hár, en eftir smástund var það orðiö slétt
og hárgreiöslan sú allra nýjasta.
Kvöldgreiðsla. Allt, sem þarf er greiða, kruliujárn og spennurnar.
Algengasta greiðslan, lipur og frjálsleg. Aðeins nokkrar minútur meö
krullujárninu. (Timamyndir Gunnar)