Tíminn - 01.07.1973, Side 33

Tíminn - 01.07.1973, Side 33
Sunnudagur 1. júl! 1973 TÍMINN 33 Ráðstefnu póststjórna Norðurlanda lokið Arið 1976 gefa póststjórnirnar i Danmörku, Finnlandi, Islandi Noregi og Sviþjóð á ný út frimerki með samnorrænu myndefni. Þetta var ákveðið á hinni árlegu norrænu póstráðstefnu, sem haldin var i Reykjavik dagana 26.-28. júni 1973 undir forsæti Jóns Skúlasonar, póst- og simamálastjóra. A fyrsta degi ráðstefnunnar, 26. júni, gáfu Norðurlöndin fimm út frimerki með mynd af Norræna Húsinu i Reykjavik og er gert ráð fyrir útgáfu frimerkja með samnorrænu myndefni þriðja hvert ár. Vaxandi fjöldi afbrota, sem beint er gegn póstþjónustunni i sumum Norðurlandanna krefst aukinna öryggisráðstafana og voru þær ræddar á grundvelli samnorrænnar athugunar og fenginnar reynslu. Samþykkti ráðstefnan að koma á nánu samstarfi milli poststjórnanna á þessu sviði. Ráðstefnan fjallaði um hvernig unnt væri án óhóflega mikils tilkostnaðar að aðlaga póst- þjónustuna hinum breyttu kröfum samfélagsins. 1 þvi sambandi er vélrænn sundur- lestur bréfa mjög þýðingarmikill fyrir Norðurlöndin, bæði vegna árstiðabundins skorts á vinnuafli og ennfremur af tiltölulega háum launakostanði. Ráðstefna ákvað einkum og sér i lagi að starfa saman að notkun „optiskra” lesve'la til sundurlesturs bréfapósts. Tæknileg og lagaleg mál varðandi notkun gáma við póst- flutning milli landa voru rædd og sama má segja um aðrar samnorrænar athuganir varðandi póststarfið sjálft. Póststjórnir Norðurlandanna munu leggja fram frumvarp fyrir alþjóðapóstþingið 1974 um hækkun á skaðabótagreiðslum fyrir böggla. Ennfremur voru ræddar fleiri tillögur um endur- bætur á alþjóðapóstþjónustunni, sem Norðurlöndin hyggjast leggja fyrir alþjóðapóstþingið. Næsta norræna póstráðstefna verður haldin i Danmörku 1974. Margir fullir d Akranesi 28 menn hafa verið teknir grunaðir um ölvun við akstur á Akranesi frá áramotum. Er hér um óvenju mikinn fjölda að ræða, má t.d. benda á , að talan er helmingi hærri en hún var á sama tima i fyrra. Ekki er þetta þó neitt sérfyrirbæri þeirra Skagamanna, þvi að á flestum stöðum landsins hefur verið um nokkra aukningu á þessu sviði að ræða. Telja menn, að ölvun við akstur haldist nokkuð i hendur við góðærðið og eftir þessu að dæma eru lifskjör á Akranesi með bezta móti núna. -gj- Kosningar í Chile? NTB, Santiago — Salvador All ende, forseti Chile, lýsti þvi yfir i ræðu i gær, að ef nauðsynlegt reyndist, myndi hann efna til al- mennra kosninga i landinu til að þjóðinni gefist kostur á að láta i ljós álit sitt á stefnu hans. Um 200 þúsund fagnandi áheyrendur hlustuðu á forsetann, er hélt ræðuna af svölum forsetahallar- innar, eftir að byltingartilraun hafði veriö bæld niöur af herfylkj- um, sem trú reyndust forsetan- um. Byltingin i landi okkar mun halda áfram i nafni frelsis og lýð- ræðis, sagði forsetinn. Forseta- höllin bar glögg merki átakanna, sem urðu i fyrradag, flestar rúður voru brotnar, múrhúðunin hafði sums staðar losnað af höllinni og á svölunum þar sem Allende stóð, mátti greina för eftir kúlna- skot. KSI - KRR íslandsmót 1. deild Fyrirlestrar um krabbamein KEFLAVÍKURVÖLLUR Keflavík — Fram leika i kvöld kl. 20. Allir á völlinn. Knattspyrnuráð 1 sambandi við fund Nordisk Cancerunion i Reykjavik 2.-5. júli n.k. mun prófessor N.F.C. Cow- ing, forstöðumaður meinafræði- deildar The Royal Marsden Hospital, London, flytja tvo fyrir- lestra i boði Krabbameinsfélags Islands og læknadeildar Háskóla tslands. Fyrri fyrirlesturinn verður fluttur i kennslustofu Landspital- ans mánudaginn 2. júli og hefst kl. 15.00. Eíni: Tumours of the Testis. Siðari fyrirlesturinn verður fluttur I 1. kennslustofu Háskól- ans fimmtudaginn 5. júli og hefst kl. 17.00. Efni: Unusual Infections („Opportunistic” infections) in Neoplastic Disease of the Lymphoreticular System. Professor Cowing er þekktur sem læknir og visindarhaður, einkum fyrir rannsóknir sinar á ýmsum tegundum illkynjaðra æxia. HEY! úrval heyvinnuvéla CLAAS heyhleðsluvagnar Við bjóðum upp á tvær stærðir af hinum þekktu og traustbyggðu CLAAS heyhleðsluvögnum, Autonom LWL og Autonom LWG, sem er stærri. CLAAS heyhleðsluvagnarnir eru sterkbyggðir og liprir. Hjólbarðar eru stórir, 11,5x15 (svonefndir flothjólbarðar). Söxunarbúnaður er fyrir þurrhey og vothey og stillanlegt dráttarbeizli. Þurrheys- yfirbygging er fellanleg. Hleðslutiminn er 5 mín. og losunartíminn allt niður í 2 mín. CLAAS heyhleðsluvagninn nær upp allt að 1,60 m breiðum múga. Góð reynsla hefur fengizt af notkun CLAAS heyhleðsluvagna hérlendis. StærSin LWL er 1100 kg aS þyngd tómur, en 3600 kg hlaSinn. Hann rúmar 21 m1 af þurrheyi, en 12 m’ af votheyi. PallstærS er 3,60x1,60 m og heildarlengd 6 m. LWG er 1200 kg aS þyngd tómur, en 3800 kg hlaSinn. Hann rumar 24 m3 af þurrheyi, en 14 m3 af votheyi. PallstærS er 4,30x1,60 m og heildarlengd 6,80 m. Sporvldd LWL er 1,80 m, en LWG 1,50 m. BUSATIS BMT 1650 sláttuþyrla BUSATIS sláttuþyrlur eru smíðaðar á grundvelli margra ára reynslu og til- rauna. Framúrskarandi traustbyggðar og afkastamiklar. Vinnslubreidd sláttu- þyrlunnar er 1,65 m. Mjög auðvelt er að skipta um hnifa I BUSATIS BMT 1650 sláttuþyrlunni. CLAAS hjólmúgavélar CLAAS AR 4 hjólmúgavéliri er tengd á þrítengi dráttarvélar og er hægt að lyfta henni með vökvalyftunni. Burðar- grindin er tengd í tvo stífa gorma og tindar hjólanna hafa mikinn sveigjanleika, þar sem þeir ná 30 cm út fyrir hjólgjörðina. Þetta hvorttveggja stuðlar að því, að múgavélin geti fylgt ójöfnum landsins. hraðinn hefur ekki áhrif á vinnugæðin. Við hraðann 8—12 km/klst. eru meðalafköst vélarinnar allt að 2 ha á klst. CLAAS AR 4 múgavélin er lipur og traust- byggð. CLAAS BSM 6 er dragtengd hjól- múgavél og óháð tengidrifi dráttarvélar. Hún hefur sex rakstrarhjól og hvílir á þrem gúmmíhjólum. Vinnslubreidd er allt að 2,80 m. Afköst við venjuleg skilyrði eru 2—3 ha á klst. CLAAS heybindivél CLAAS-MARKANT heybindivélin tekur heyið upp, pressar það í bagga og bindur og rennir slðan heyböggunum upp í vagn, þar sem þeim er staflað. 25 ha dráttarvél getur dregið heybindivélina. CLAAS-MARKANT heybindivélin er hagkvæm, sparar bæði tíma og vinnu. Afköst allt að 12 tonn á klst. Færa má tvö fremstu rakstrarhjólin á burðarbita til hægri á vélinni og rakar hún þá í tvo múga. Vinnslubreidd er,stillanleg allt að 2,30 m. CLAAS AR 4 rakar vel, skilur eftir litla dreif og er lipur í notkun, þar sem hún er tengd á vökvalyftu dráttarvélar. Öku- Allar þessar heyvinnuvélar eru fyrirliggjandi á lager og geta fengizt afgreiddar strax. Bændur, kynnið ykkur kosti þeirra og leiMi upplýsinga um verð og greiðsluskilmála hjá okkur. h.f SUÐURLANDSBRAUT 32 • REYKJAVÍK • SÍMI 86500 • SÍMNEFNI ICETRACTORS

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.