Fréttablaðið - 21.08.2004, Síða 6

Fréttablaðið - 21.08.2004, Síða 6
6 21. ágúst 2004 LAUGARDAGUR WASHINGTON, AP Rúmur þriðjungur Bandaríkjamanna telur að Írakar hafi verið í nánum tengslum við al-Kaída fyrir innrás Bandaríkja- hers og bandamanna þeirra sam- kvæmt nýrri könnun. Þar kemur einnig fram að fimmtán prósent þeirra telja að Íraksstjórn hafi átt beina aðild að hryðjuverkaárás- unum í New York og Washington 11. september 2001. Til viðbótar þessu telur meira en helmingur að Írakar hafi ráðið yfir gjöreyðingarvopnum eða hafi haft í hyggju að koma sér upp slíkum vopnum. Engar sannanir hafa fundist fyrir því að Írakar hafi ráðið yfir gjöreyðingarvopn- um og flest bendir til þess að Íraksstjórn hafi hvorki verið í nánum tengslum við al-Kaída né komið nálægt hryðjuverkaárásun- um sem kenndar eru við 11. sept- ember. Nefndir sem hafa rann- sakað hryðjuverkaárásirnar og aðdraganda innrásarinnar í Írak hafa lýst efasemdum um fullyrð- ingar Bandaríkjastjórnar um gjöreyðingarvopnaeign Íraka og gert lítið úr tengslum Íraksstjórn- ar og al-Kaída. ■ Hærra olíuverð kostar 2,4 milljarða Landssamband íslenskra útvegsmanna telur að hækkun olíuverðs valdi 2,4 milljarða króna aukakostnaði fyrir útgerðarfélögin á Íslandi. Hærra olíuverð hefur sérstaklega mikil áhrif á togveiðar. SJÁVARÚTVEGUR Landssamband íslenskra útvegsmanna telur að hækkað markaðsverð á olíu kunni að fela í sér kostnaðarauka upp á 2,4 milljarða fyrir íslenska útgerð á ársvísu. Að sögn Friðriks J. Arngríms- sonar, framkvæmdastjóra LÍÚ, hefur lágt afurðaverð, hátt olíu- verð og hátt gengi krónunnar far- ið saman á síðustu misserum en allir þessir þættir hafa slæm áhrif á rekstrarskilyrði sjávarútvegs- ins. „Olían er mikilvæg. Þetta er einn stærsti útgjaldaliðurinn okk- ar, næst stærstur á eftir launum,“ segir Friðrik. Hann segir olíu- kostnað vega misþungt eftir teg- und veiða og veiðarfæra. Hlutfall olíukostnaðar er einna hæst í veiðum þar sem notast er við troll. „Í einstökum veiðigreinum get- ur þetta skipt sköpum um hvort veiðar séu arðbærar eða ekki,“ segir Friðrik. Á mörkuðum í gær fór verð á olíu hátt í fimmtíu dali á tunnu og hefur aldrei verið hærra. Talið er að verð á olíu fari ekki lækkandi á næstunni og muni hugsanlega fara enn hærra sökum ófriðarins í Írak og óvissu í Rússlandi og Venesúela. „Við veltum þessu mikið fyrir okkur fyrir afkomuspá okkar síð- ast og það er alveg klárt að þetta hefur einhver áhrif á afkomu fyr- irtækjanna,“ segir Ríkharður Daðason hjá greiningardeild KB banka. Hann segir að afkoma Vinnslu- stöðvarinnar í vikunni hafi verið betri en búist var við og spennandi verði að sjá upp- gjör hjá Samherja og HB Granda á næstunni. „Samherji hefur verið að grípa til a ð g e r ð a meðal ann- ars með því að láta skipin landa um borð í önnur skip,“ segir Rík- harður. Ríkharður segir að útgerðarfé- lögin hafi verið dugleg við að finna leiðir til að lág- marka ol- íukostnað og annan kostnað til mótvægis við óhag- stæð ytri s k i l y r ð i . Hann telur þó að ef ol- í u v e r ð h a l d i áfram að h æ k k a jafnskart þá muni gagnaðgerðir útgerðarfélaganna ekki duga til og verðþróunin koma niður á af- komu félaganna. thkjart@frettabladid.is Stefán Jón Hafstein: Malbikunar- stöðin seld? BORGARMÁL Áhugi er fyrir því inn- an R-listans að selja Malbikunar- stöðina hf. að sögn Stefáns Jóns Hafsteins, formanns borgarráðs. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í borgarráði lögðu til á borgarráðs- fundi á þriðjudag að Malbikunar- stöðin hf., sem er í eigu borgar- sjóðs, yrði seld. „Það er áhugi fyrir því að selja stöðina en það gengur ekki upp nema tryggt sé að það verði sam- keppnismarkaður í greininni, en ég er ekki viss um að svo verði,“ segir Stefán Jón. „Borgin er einn stærsti kaupandinn á þessu efni og við verðum að meta málið vandlega.“ ■ GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 71,11 0,32% Sterlingspund 129,91 0,21% Dönsk króna 11,8 0,07% Evra 87,72 0,07% Gengisvísitala krónu 121,57 -0,25% KAUPHÖLL ÍSLANDS - HLUTA- BRÉF Fjöldi viðskipta 258 Velta 1.627 milljónir ICEX-15 3.225,65 0,95% MESTU VIÐSKIPTIN Kaupþing Búnaðarbanki hf. 1.269.847 Bakkavör Group hf. 79.828 Landsbanki Íslands hf. 77.343 MESTA HÆKKUN Kaupþing Búnaðarbanki hf. 1,92% Medcare Flaga 1,59% Jarðboranir hf. 1,46% MESTA LÆKKUN Opin Kerfi Group hf. -1,19% Kögun hf. -1,18% Marel hf. -0,89% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ 10.003,1 0,3% Nasdaq 1.813,6 1,0% FTSE 4.355,2 -0,1% DAX 3.726,5 0,6% NIKKEI 10.889,14 -0,13% S&P 1.087,2 0,5% *Bandarískar vísitölur kl. 17.00 VEISTU SVARIÐ? 1Hvaða verksmiðja er þetta? 2Hvaða ríkisstjórn sagði af sér áfimmtudag? 3Hvaðan var 1.400 vegabréfum stolið? Svörin eru á bls. 50 STEFÁN JÓN HAFSTEIN Er ekki viss um að samkeppni verði næg verði stöðin seld. Í umfjöllun blaðsins í gær um minnkandi afslætti apótekanna til sjúklinga var ranghermt að ríkið hefði lækkað greiðsluþátttöku sína í magalyfjum, hjartalyfjum og geðlyfjum. Að öðru leyti stendur umfjöllun blaðsins óbreytt. Lesendur eru beðnir vel- virðingar á þessum mistökum. ■ ■ LEIÐRÉTTING BANDARÍSKIR HERMENN Í ÍRAK 55 prósent Bandaríkjamanna telja ekki að innrásin í Írak auki öryggi í Miðausturlöndum. Fimmtán prósent Bandaríkjamanna telja Saddam tengjast hryðjuverkaárásum: Trúa á tengsl Íraks og al-Kaída FRIÐRIK J. ARNGRÍMSSON Framkvæmdastjóri LÍÚ. RÍKHARÐUR DAÐASON Hjá greiningardeild KB banka. HÆKKANDI OLÍUVERÐ ÚTGERÐUNUM DÝRKEYPT Kostnaður við olíu er annar stærsti kostnaðarliður í útgerð á eftir launum. Mikil verðhækk- un á olíu á síðustu vikum er því dýrkeypt fyrir íslenskar útgerðir.Leigjendasamtökin: Nýr formað- ur kjörinn HÚSNÆÐISMÁL Þórir Karl Jónas- son var kosinn nýr formaður Leigjendasamtakanna á aðal- fundi sem haldinn var í lok síð- asta mánaðar. Varaformaður er Hörður Arinbjarnar, Jón Kjart- ansson frá Pálmholti var kosinn gjaldkeri og Sigvarður Ari Huldarsson, ritari. Jón frá Pálmholti taldi að næg verkefni væru fyrirliggj- andi. „Í gangi er endurskoðun á húsnæðiskerfinu og útlit fyrir að lán hækki og skuldir aukist,“ sagði hann. ■ KJARADEILA „Það ríkir enginn ágreiningur milli okkar varðandi kostnaðaraukann. Þetta mat frá Akureyri á kröfum kennara byggði á gömlum tölum,“ segir Birgir Björn Sigurjónsson, formaður launanefndar sveitarfélaga um samningaviðræður við Kennara- samband Íslands. Óformlegar samningaviðræður leystust upp í fyrradag eftir að Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, fullyrti að kröfur kenn- ara hefðu hundrað prósenta kostn- aðarauka í för með sér. Björn segir að 30 til 35 prósenta kostnaðarauki sé nær lagi. „Við náðum að leysa vandamálið sem Kristján Þór bjó til og fáum nú vonandi frið til að vinna eftir þeim áætlunum sem við lögðum upp með,“ segir Eiríkur Jónsson, for- maður Kennarasambandsins. Við- ræður halda áfram á mánudaginn. Birgir Björn segir að deilendur hafi breytt vinnubrögðum sínum til hins betra frá því í vor, en þó sé málið erfitt. Eiríkur segist óttast að til verkfalls muni koma. ■ Kjaradeila kennara og sveitarfélaga: Viðræður eftir helgi BIRGIR BJÖRN SIGURJÓNSSON Segir vinnubrögð deilenda hafa breyst til hins betra frá því í vor. 06-07 20.8.2004 22:10 Page 2

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.