Fréttablaðið - 21.08.2004, Side 14

Fréttablaðið - 21.08.2004, Side 14
14 21. ágúst 2004 LAUGARDAGUR SLEPPT ÚR GÍSLINGU Filippseyski hermaðurinn Ronaldo Fedel- ino var sýnilega feginn þegar kommúnískir uppreisnarmenn slepptu honum úr gísl- ingu. Hann hafði verið í haldi þeirra í fimm mánuði. Tekjumunur landshluta: Festist í sessi EFNAHAGSMÁL Svo virðist sem tekjumunur milli höfuðborgar- svæðisins og landsbyggðarinnar hafi fest sig í sessi á undanförnum árum. Nú eru skattgreiðendur á höfuðborgarsvæðinu með um fimm prósent hærri tekjur en landsmeðaltal en landsbyggðar- fólk er að meðaltali tíu prósentum undir meðaltali. Í vefriti fjármálaráðuneytisins er sýnd þróun launatekna á síð- ustu tíu árum. Þar má sjá að fyrir tíu árum var munurinn töluvert minni en hann er nú. „Á fyrri hluta tíunda áratugarins voru meðaltekjur á hvern framteljenda sem búsettur var utan suðvestur- hornsins fjórum prósentum lægri en landsmeðaltekjur meðan sam- bærilegt meðaltal fyrir þá sem bjuggu á því landsvæði var tveim prósentum fyrir ofan meðaltalið,“ segir þar. Breytingin er mest á Vestfjörð- um. Þar voru tekjur að meðaltali um tíu prósent yfir landsmeðaltali í upphafi tíunda áratugarins en eru nú um sex prósentum undir meðaltalinu. Tekið er fram í vefritinu að tekjur erlendra verkamanna við virkjunarframkvæmdir hafi mjög lítil áhrif á þessar niðurstöður. ■ Sjö vikur frá láti Sri: Rannsókn að ljúka MORÐRANNSÓKN Rannsókn á láti Sri Rahmawati er lokið sem slíkri að sögn Harðar Jóhannessonar, yfir- lögregluþjóns í Reykjavík. Hann segir að eftir sé endanlegur frá- gangur gagna. Þá eigi lokaniður- stöður krufningar á líki Sri og nið- urstöður úr geðrannsókn á Há- koni Eydal banamanns Sri enn eft- ir að berast lögreglu en séu vænt- anlegar á næstu dögum. Sjö vikur eru síðan Hákon ban- aði Sri á heimili sínu sunnudags- morguninn fjórða júlí. Hann hef- ur verið í haldi lögreglu síðan þriðjudaginn sjötta júlí, þann dag var hann handtekinn og úrskurð- aður í gæsluvarðhald daginn eftir. Fyrstu þrjár vikurnar þagði Há- kon þunnu hljóði í yfirheyrslum hjá lögreglu. Tuttugasta júlí var ljóst að blóðið sem lögregla fann á heimili Hákonar og í bíl hans væri úr Sri en Hákon neitaði enn stað- fastlega öllum sökum. Viku síðar sagði Hákon lögreglu að hann hefði varpað líki Sri í sjóinn við Presthúsatanga á Kjalarnesi en játaði ekki að hafa orðið henni að bana fyrr en daginn eftir. Um- fangsmikil leit lögreglu og björg- unarmanna hófst í sjónum, fjör- um, skerjum og eyjum, án árang- urs. Rannsókn lögreglu á vett- vangi studdi ekki frásögn Hákon- ar og benti hann lögreglu að lok- um á hraunsprungu í Almenningi sunnan við Hafnarfjörð, þriðja ágúst. Daginn eftir við nánari rannsókn í sprungunni fannst kú- bein sem Hákon er talinn hafa banað Sri með en hún lést sökum höfuðhöggs. hrs@frettabladid.is United-flugfélagið: Eftirlaunin í vaskinn BANDARÍKIN, AP Stjórnendur United- flugfélagsins segja líklegt að þeir verði að leggja niður eftirlaunasjóði starfsmanna til að bjarga fyrirtæk- inu frá gjaldþroti. Fyrirtækið fékk greiðslustöðvun í árslok 2001 og er þegar hætt að greiða iðgjöld í eftir- launasjóði, nokkuð sem verkalýðs- félög hafa stefnt því fyrir. Eins og staðan er í dag vantar andvirði um 600 milljarða króna til að standa undir eftirlaunaskuld- bindingum sjóðsins. Leggi United eftirlaunasjóðinn niður lendir það á stjórnvöldum að greiða rúma 450 milljarða króna upp í eftirlauna- skuldbindingar. ■ Hagnaður VÍS: Svipaður og í fyrra VIÐSKIPTI Hagnaður Vátrygg- ingafélags Íslands á öðrum árs- fjórðungi í ár nam 451 milljón króna. Í fyrra var hagnaðurinn á sama tímabili 491 milljón. Það sem af er ári hefur VÍS hagnast um 1.358 milljónir króna sem er ríflega tvö hund- ruð milljónum betra en í fyrra þegar rekstarafgangurinn var 1.148 milljónir. Hagnaður VÍS á öðrum árs- fjórðungi kemur eingöngu frá vátryggingarekstri en það sem af er ári hefur hagnaður af fjár- málarekstri verið 790 milljónir, þótt sá liður hafi verið nei- kvæður um þrettán milljónir á öðrum ársfjórðungi. ■ MENNTUN Íslendingar náðu áþekkum árangri og áður á ólympíuleikum í efnafræði. Fjórir Íslendingar kepptu en enginn þeirra náði verðlauna- sæti. Í frétt frá keppendum segir að Íslendingar hafi náð svipuðum ár- angri og lið Norðmanna og Svía. Tveir keppendanna koma úr Menntaskólanum í Reykjavík, einn úr Menntaskólanum við Hamrahlíð og einn úr Mennta- skólanum á Akureyri. Keppnin fór fram í Þýska- landi og sigraði rússneskur pilt- ur í keppninni. ■ Fjölmenni við útför Sri Rahmawati: Söfnun til stuðnings börnum Sri ÚTFÖR Sri Rahmawati var jarðsung- in tíunda ágúst síðastliðinn. Útför hennar var gerð frá Fossvog- skapellu og var athöfnin utandyra vegna blíðskapar veðurs. Eftir athöfnina var Sri jörðuð í reit múslima í Gravarvogskirkju- garði. Fjölmenni var við útförina og þakkar fjölskylda Sri þann mikinn stuðning og samhug sem var auð- sýndur. Hafin er söfnun til handa börn- um Sri sem hafa þurft að reyna miklar hremmingar og eiga um sárt að binda. Börnin verða í umsjá syst- ur Sri og er ljóst að þau þurfa góða aðhlynningu til að komast yfir þá raun sem þau hafa þurft að ganga í gegnum. Kostnaðarsamt er þegar þrjú börn bætast við inn á heimili og hefur því stuðningshópur opnað bankabók til stuðnings fjölskyld- unni. Þeir sem vilja létta undir með fjölskyldunni geta lang inn á reikn- ing 0139-05-6446, kennitölu 130147- 4109 í Múlaútibúi Landsbankans. ■ ÍSAFJÖRÐUR Fyrir rúmum áratug voru meðaltekjur á Vestfjörðum töluvert yfir landsmeðaltali. Nú eru laun þar sex prósent undir lands- meðaltali. Ólympíuleikar í efnafræði: Árangur svipaður EFNILEGT FÓLK Íslenska ólympíulandsliðið í efnafræði sem keppti í lok júlí. LEITAÐ AÐ SRI Á KJALARNESI Í fyrstu vísaði Hákon lögreglu á rangan stað til að leita að líki Sri. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA SRI RAHMAWATI Sri var jarðsungin í blíðskaparveðri tíunda ágúst síðastliðinn. 14-15 20.8.2004 19:49 Page 2

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.