Fréttablaðið - 21.08.2004, Side 24

Fréttablaðið - 21.08.2004, Side 24
Það verður líf og fjör í miðborgReykjavíkur í dag þegar Menningarnótt er haldin í níunda sinn. Yfir 200 viðburðir eru á dag- skrá þessarar mestu menningar- og mannlífsveislu ársins og má ætla að nokkur þúsund manns komi að hátíðinni með einum eða öðrum hætti. Herlegheitin hefjast klukkan 11 þegar formleg setn- ingarathöfn fer fram og um leið eru hlauparar í Reykjavíkurmara- þoni ræstir af stað. Hver viðburð- urinn rekur svo annan, og margir á sama tíma, fram til klukkan 23 í kvöld þegar botninn verður sleg- inn með flugeldasýningu á Mið- bakka. Óvíst er að glaumnum ljúki um leið, líklegra er að fjörið standi fram á rauða nótt. Samkvæmt reynslu undanfar- inna ára er misjafnt hvernig fólk hagar gjörðum sínum á Menning- arnótt. Sumir láta sér nægja að skreppa í bæinn, fljóta stefnu- laust um í mannhafinu og reka inn nefið hér og þar. Aðrir skipu- leggja sig út í hörgul og fara á milli staða og viðburða eftir fyrir fram ákveðinni dagskrá. ■ 24 21. ágúst 2004 LAUGARDAGUR Söluhæsta fartölvan í Evrópu ACER tækni SÍÐUMÚLA 37 - SÍMI 510 6000 WWW.SVAR.IS tækni FARTÖLVUR Sýning Línu Rutar. Gallerí Fold kl 14. Lína Rut er alveg bráðflink. Kúlumyndirnar hennar eru stórskemmtilegar. Laufskálaupplestur og opinn hljóðnemi. Hallargarðurinn, Fríkirkjuvegi kl. 16 og 20. Þarna ætla skáld að lesa úr verkum sínum, að auki er frjálst uppistand og aldrei að vita nema maður kippi með sér tveimur eða þremur ljóðum. Stofutónleikar Önnu Pálínu og Aðalsteins Ásbergs, ásamt sænska tríóinu Draupner og Pétri Grétarssyni. Þjóðmenningarhúsið kl. 18 og 21. Bæði sé ég Þjóðmenningarhúsið út um gluggann hjá mér en hef lítið gert af því að fara þangað og svo finnst mér þau bara nokkuð góð. Skáldaat, keppni um besta ljóðaflytjandann. Tjarnarbíó kl. 20. Ég sendi inn í forkeppnina og vonast til að komast í úrslit. Barkarbrenna Tedda. Í vinnustofu hans á mótum Klapparstígs og og Skúlagötu kl. 22.22. Það er gott að ylja sér við eldinn hjá Tedda. Flugeldasýningin. Miðbakka kl. 23. Ég er enginn sérstakur rakettukarl en þarna er mikil stemmning, maður hittir margt fólk. Þorsteinn Eggertsson rit- og textahöfundur. Vonast til að komast í skáldaatið Menningarnótt er haldin í níunda sinn í dag. Yfir 200 viðburðir eru á dagskránni og víst að tugþúsundir manna munu leggja leið sína í miðborgina. Fréttablaðið fékk nokkra einstaklinga til að kynna sér það sem er í boði og mæla með einstökum atburðum. Nóttin, nóttin hún er yndisleg FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H AR I ÞARNA ÆTLA GUÐRÚN, JÓHANN, JÓN KARL, UNNUR OG ÞORSTEINN AÐ VERA Í DAG OG KVÖLD ANNA PÁLÍNA OG AÐALSTEINN ÁS- BERG Þau verða í Þjóðmenningarhúsinu ásamt fleirum klukkan 18 og 21. MIKIÐ MÆÐIR Á LÖGREGLUNNI Í DAG Lögreglukórinn syngur við lögreglustöðina við Hlemm og er í mörg horn að líta fyrir lög- reglumenn á vakt. FRÁ MIÐBAKKA 80 þúsund manns komu saman á stórtónleikum Rásar 2 á Hafnar- bakkanum í fyrra. Búist er við enn fleirum í ár. FYRIR BÖRNIN: Litasamkeppni í Pennanum-Eymundsson kl. 11-16 Bátasigling á Tjörninni kl. 13-15 Dagskrá í Café Árnesi við Suðurbugt kl. 13-17 Skátagleði í Hljómskálagarðinum kl. 13-17 Teiknisamkeppni í Gallerí Fold kl. 14-16 Draugasögur í Borgarbókasafni kl. 14-16 Lesið fyrir börnin í Iðu kl. 14-18 Teiknimyndasamkeppni í Húnoghún, Skólavörðustíg kl. 14-18 Karíóki, andlitsmálning og grill í Alþjóðahúsi kl. 15-17 Barnadiskótek í Pravda kl. 15-17 Hestaleiga á Ara í Ögri kl. 15-17 Börn og blóm í Blómálfinum kl. 15-17 Húllumhæ í Ráðhúsinu kl. 16-17 Húlakeppni, snú snú og teygjutvist við Kirsuberjatréð á Vesturgötu kl. 16-18 Fagur fiskur í sjó í Höfuðborgarstofu kl. 16-18 Skralli trúður í Landsbankanum Austurstræti kl. 18 Tónleikar í Ráðhúsinu kl. 19 Draugaganga um miðbæinn, lagt af stað frá Borgarbókasafni kl. 19:30 Jólasveinar í Jólahúsinu Skólavörðustíg kl. 20-21 24-25 Helgarefni 20.8.2004 19:48 Page 2

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.