Fréttablaðið - 17.09.2004, Qupperneq 8
VEÐURFAR Þó svo að blásið geti hressi-
lega á Íslandi eru verstu illviðri hér
tæpast hálfdrættingar á við illvíga
fellibylji sem geisa nær miðbaug.
Fellibylurinn Ívan er sem dæmi með
meðalvindhraða upp á 58 metra á
sekúndu og meira. Meðalvindhraði í
storminum sem hér gekk yfir í
fyrrinótt og í gær fór alla jafna ekki
yfir 30 metra á sekúndu og var nær
20 metrum víðast hvar, en slagaði þó
hátt í smæstu tegund fellibylja. Ein-
staka vindhviður náðu þó um og yfir
50 metrum á sekúndu en í hvirfil-
byljum á borð við Ívan, sem þar til
fyrir skömmu var af stærð þrjú til
fjögur, fara hviður vel yfir 70 metra
á sekúndu.
Óli Þór Árnason, veðurfræðingur
á Veðurstofu Íslands, segir að
lægstu mörk fyrir fellibyl miði við
33 metra vindhraða á sekúndu. „Það
er þá fellibylur af stærðinni einn, en
Ívan er til samanburðar af stærð-
argráðunni fimm. Fellibylur er hins
vegar alveg sér veðurfyrirbrigði og
tæplega hægt að bera það saman.“ Á
vef Veðurstofunnar kemur þó fram
að mesti meðalvindhraði sem hér
hafi mælst sé 62,5 metrar á sek-
úndu. Þessi hraði mældist undir
Skálafelli við Esju. „Skálafellið er
mjög sérstakt og raunar einnig Stór-
höfði,“ segir Óli Þór og bendir á að á
þessum stöðum liggi land þannig að
þar nái að bæta í vind á meðan hann
fer yfir. Sama er líklega hægt að
segja um Freysnes á Öræfum þar
sem vindhviða feykti þaki af Hótel
Skaftafelli undir morgun í gær.
Sveiflur í sjávarhita á Kyrrahafi
við miðbaug geta af sér veðurfyrir-
brigðin El Niño og La Nina sem haft
geta gífurleg áhrif á veðurfar um
allan hnöttinn. El Niño veðurfyrir-
brigðið verður til þegar hiti sjávar
hækkar mikið, en La Nina þegar
sjávarhiti lækkar umfram það sem
venjulegt getur talist. Meðal afleið-
inga hitasveiflanna eru fellibyljir,
þurrkar, rigningar og flóð.
Um þessar mundir telur Haf- og
sjávarfræðistofnun bandaríska við-
skiptaráðuneytisins að væg El Niño
áhrif séu í uppsiglingu í austan-
verðu Kyrrahafi og að þeirra muni
gæta fram á byrjun næsta árs.
Trausti Jónsson veðurfræðingur
segir að erfitt sé að fullyrða hvaða
áhrif veðurfyrirbæri á borð við El
Niño hafi hér á landi þótt einhver
séu þau. „Áhrifin eru tilviljana-
kennd og fara eftir árstíma og
ástandi hér,“ segir hann og telur
frekar að hægt sé að benda á óbein,
efnahagsleg áhrif. „El Niño hefur til
dæmis fylgt fiskleysi við Perú,
þannig að verð á fiskimjöli hækkaði.
Á þessu græddum við en erum
kannski ekki jafnháð slíkum sveifl-
um nú.“ Trausti segir Alþjóðaveður-
fræðistofnunin telja um helmings-
líkur á að El Niño fari af stað nú.
olikr@frettabladid.is
8 17. september 2004 FÖSTUDAGUR
Útför Péturs W. Kristjánssonar var gerð frá Grafarvogskirkju í gær:
Pétur W. Kristjánsson jarðsunginn
ÚTFÖR Pétur W. Kristjánsson tónlist-
armaður var jarðsunginn frá Graf-
arvogskirkju í gær. Hann fæddist 7.
janúar 1952 og lést á Landspítalan-
um 3. september eftir skammvinn
veikindi. Pétur var í hópi þekktustu
tónlistarmanna sinnar kynslóðar og
söng með mörgum vinsælum
hljómsveitum, t.d. Pops, Náttúru og
Pelikan.
Hann vakti glaðværð hvar sem
hann kom enda lífsglaður og ham-
ingjusamur. Hann hafði unun af að
segja af sjálfum sér og öðrum sög-
ur sem jafnan var skellihlegið að.
Síðari ár starfaði Pétur að plötu-
útgáfu og sölu geisladiska en nú
síðsumars vann hann að plötu með
lögum Kim Larsen. Þá var hann öt-
ull liðsmaður í réttindabaráttu
hljómlistarmanna.
Jakob Frímann Magnússon kvað
að Pétri látnum: Heyr fríðan syngja
Svaninn/ svellur Náttúru gígja./ Úr
lífsins Póker flaug Pelikaninn/ í
Paradís nýja.
Eiginkona Péturs er Anna Linda
Skúladóttir og áttu þau börnin Írisi
Wigelund, Kristján Karl og Gunnar
Eggert. ■
SVONA ERUM VIÐ
Bygging íbúðarhúsa á Íslandi
Játar bankarán
með öxi
MEINTUR
MEÐHJÁLPARI
HARÐNEITAR
– hefur þú séð DV í dag?
Verstu vindhviður á við
blástur stærstu fellibylja
Verstu óveður á Íslandi slaga upp í smæstu fellibylji sem geisa nær miðbaug jarðar. Einstakar
vindhviður ná þó á sumum stöðum hér veðurofsa sem er viðvarandi í allra stærstu fellibyljum.
Stormur sem varað er við
(Yfir 20 m/s)
Fyrsta stigs fellibylur:
752 fram til ársins 2002 1
2
3
4
33 til 42 m/s
Annars stigs fellibylur:
249 fram til ársins 200243 til 49 m/s
Þriðja stigs fellibylur:
147 fram til ársins 200250 til 58 m/s
Fjórða stigs fellibylur:
92 fram til ársins 200259 til 69 m/s
Fimmta stigs fellibylur:
23 fram til ársins 2002Yfir 70 m/s
Mesta vindhviða hér á landi:
Gagnheiðarhnúkur 16. janúar 199574,2 m/s
Mesti 10 mínútna meðalvindhraði hér á landi:
Skálafell við Esju 20. janúar 199865,5 m/s
Mesta vindhviða í Reykjavík:
15. janúar 194259,4 m/s
5
SAMANBURÐUR FELLIBYLJA, STORMA OG VINDHVIÐA
Heimild: Haf- og veðurfræðistofa viðskiptaráðuneytis Bandaríkjanna og Veðurstofa Íslands.
N-ATLANTSHAFSLÆGÐ
Yfir landið gekk dæmigerð haustlægð að-
faranótt fimmtudags og fylgdi henni bæði
rok og rigning. Víða þurftu björgunarsveitir
að aðstoða fólk og nokkrar skemmdir urðu
á eignum.
EL NIÑO Í UPPSIGLINGU Á NÝ
Fyrir miðri mynd í Austur-Kyrrahafi, má sjá
rauðan flekk sem auðkennir hærra hitastig
sjávar, en það er til marks um El Niño.
M
YN
D
/N
O
A
A
Hvolsvöllur:
Tré rifnuðu
upp með rótum
LÖGREGLA Mikið hvassviðri var á
Hvolsvelli og í nágrenni í fyrri-
nótt og gærmorgun að sögn lög-
reglu. Nokkur stór tré rifnuðu
upp með rótum, gervihnatta-
diskar skemmdust og þakplötur
fuku.
Járnplötur fuku af þaki íbúð-
arhúss og útihúss á bænum Velli
II skammt frá Hvolsvelli í hvass-
viðrinu. Lentu járnplöturnar
meðal annars á íbúðarhúsi að
Velli I og hjuggu í gegnum
klæðningu hússins. Þá brotnaði
rúða í jeppabifreið við bæinn
þegar járnplata fauk á hana. ■
1.258
Íbúðir
2000 2001 2002 2003
1.711
Íbúðir
2.140
Íbúðir
2.311
Íbúðir
KISTA PÉTURS BORIN ÚR
GRAFARVOGSKIRKJU
Líkmenn voru Pétur Steinþórsson, Steingrímur
Steinþórsson, Brynjar Klemensson, Birgir
Hrafnsson, Grettir Gunnarsson, Ástmar Ingvars-
son, Jón Ólafsson og Sigurgeir Sigmundsson.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R