Fréttablaðið - 17.09.2004, Side 19
19FÖSTUDAGUR 17. september 2004
á mánudaginn, spurður um boð-
aða málssókn öryrkja. Og ráð-
herra virðist hafa nokkuð til síns
máls. Í fréttatilkynningu frá heil-
brigðisráðuneytinu í tilefni af
gerð samningsins þann 25.mars
2003 segir: „Samkvæmt útreikn-
ingum sérfræðinga heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytisins
verður kostnaðurinn við þessa
hækkun grunnlífeyris og kerfis-
breytinguna rúmur einn milljarð-
ur króna á ársgrundvelli.“ Einn
milljarður var því sú tala sem var
nefnd í upphafi og það var sú tala
sem Jón Kristjánsson fékk heim-
ild fyrir á ríkisstjórnarfundi.
Útfærsla ráðuneytisins
Ráðherra var því vandi á höndum.
Við umræðu á Alþingi á síðasta
haustþingi brugðust Öryrkja-
bandalagið og stjórnarandstaðan
ókvæða við þegar í ljós kom að
ríkisstjórnin ætlaði sér einungis
að verja einum milljarði til máls-
ins en ekki einum og hálfum. Ljóst
var að ráðherra hafði gripið til
þess ráðs að hafa útfærsluna á
kerfisbreytingunni nokkuð öðru-
vísi en öryrkjar halda fram að
hafi verið ákveðin upphaflega.
Lækkunin á hinni aldurstengdu
uppbót grunnlífeyris er mun
brattari í útfærslu ráðuneytisins.
Þannig fær einstaklingur sem
greinist öryrki um 40 ára aldur
mun minni uppbót heldur en gert
var ráð fyrir í útfærslu öryrkja.
Þessi útfærslumunur gerir það
hins vegar að verkum að hið nýja
kerfi kostar ekki einn og hálfan
milljarð á ársgrundvelli, heldur
um milljarð.
Áhætta öryrkjanna
Jón Kristjánsson hefur lýst því
yfir að hann vilji uppfylla kröfur
öryrkja með aukinni fjárveitingu.
Það kemur í ljós við kynningu
fjárlagafrumvarps nú í október
hvort honum verður að vilja sín-
um. Yfirlýsingar forsætisráð-
herra og annarra benda ekki til
þess. Í ljósi þessa yfirlýsta vilja
Jóns er hins vegar spurning hvort
Öryrkjabandalagið hafi gert rétt í
því að vaða í ríkisvaldið af svo
mikilli hörku og raun ber vitni.
Velvilji ráðherrans gæti hugsan-
lega glatast. Áhættan hlýtur líka
að vera meiri í ljósi þess að lítið
hefur farið fyrir beinhörðum
samningi í þessum efnum, a.m.k. í
hinni opinberu umræðu, sem
öryrkjar geta vísað í með óyggj-
andi hætti til að styðja þá fullyrð-
ingu sína að ákveðin útfærsla hafi
verið ákveðin og skjalfest í upp-
hafi. Það yrði þó væntanlega dóm-
stóla að kveða úr um það.
Jón Kristjánsson hefur
nokkrum sinnum lýst yfir von-
brigðum sínum með þróun þessa
máls. „Þegar við formaður Ör-
yrkjabandalags Íslands byrjuðum
að ræða saman um hvernig bæta
mætti hag öryrkja sérstaklega þá
byrjuðum við á núllpunkti,“ sagði
ráðherra í ræðustól á Alþingi í
desember síðastliðnum, og hann
hélt áfram: „Við byrjuðum á núll-
punkti og enduðum í milljarði að
þessu sinni. Sá árangur er sigur
að mínu mati en ekki svik.“ Talaði
Jón jafnframt um það hversu
„grábölvað“ honum þætti að „sitja
undir svikabrigslum“ í þessu
máli. Að öllum líkindum verður
ekki lát á því að sinni. ■
MENNTAMÁL Stúdentar við Háskóla
Íslands efndu til mótmæla fyrir
framan Þjóðarbókhlöðuna við lok-
un hennar í gær. Þeir stilltu upp
stólum og borðum fyrir framan
húsið til að stúdentar gætu haldið
áfram að læra. Með þessum hætti
mótmæltu þeir styttingu af-
greiðslutíma bóklöðunnar, en í ár
fékkst ekki fé frá háskólanum til
að halda safninu opnu á kvöldin líkt
og fengist hefur undanfarin ár. Jar-
þrúður Ásmundsdóttir, formaður
Stúdentaráðs, segir að í næstu viku
verði kröfur stúdenta teknar fyrir
á fundi háskólaráðs auk þess sem
spjótunum verði beint að mennta-
málaráðherra. Jarþrúður segist
undrast forgangsröðun háskólans.
,,Það er furðulegt að skólinn geti
lagt átján til tuttugu milljónir
króna í skrautgrindur utan á nýtt
náttúrufræðihús en geti ekki hald-
ið bókhlöðunni opinni á kvöldin,
sem kostar fjórtán til fimmtán
milljónir.“ ■
Þjóðarbókhlaðan:
Stúdentar mótmæla
styttingu afgreiðslutíma
Húsnæðiskaup:
Morðingi
vill afslátt
NOREGUR, AP Norskur maður sem
var dæmdur til 21 árs fangelsisvist-
ar fyrir að eiga þátt í morðunum á
foreldrum sínum hefur krafist þess
að fá afslátt af kaupverði heimilis
foreldranna. Rök hans eru þau að
við verðmat heimilisins hafi ekki
verið tekið tillit til vissra skemmda.
Skemmdirnar eru eftir byssukúlur
sem skotið var að foreldrum hans
þegar þau voru myrt.
Per Orderud, kona hans og
systir hennar voru dæmd fyrir
morðin, sem voru framin árið
1999. Aldrei var þó kveðið upp úr
um hvert þeirra hefði skotið
gömlu hjónin. ■
MÓTMÆLI VIÐ BÓKHLÓÐUNA
Stúdentar mótmæltu á táknrænan hátt
með því að stilla upp borðum og stólum
fyrir framan húsið.