Fréttablaðið - 07.10.2004, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 07.10.2004, Blaðsíða 23
Smáauglýsingar byrja í dag á bls. 7 Flokkar & fjöldi Bílar & farartæki 173 stk. Keypt & selt 18 stk. Þjónusta 37 stk. Heilsa 13 stk. Skólar & námskeið 3 stk. Heimilið 14 stk. Tómstundir & ferðir 6 stk. Húsnæði 30 stk. Atvinna 40 stk. Tilkynningar 5 stk. Stjörnur sem lýsa upp skammdegið BLS. 5 Góðan dag! Í dag er fimmtudagurinn 7. októberí, 281. dagur ársins 2004. Reykjavík 7.55 13.15 18.35 Akureyri 7.42 13.00 18.16 Heimild: Almanak Háskólans Sólarupprás Hádegi Sólarlag „Fagurbláa ullarponsjóið mitt, sem er fag- urblátt og kryddar tilveruna aðeins,“ segir Sveinbjörg Þórhallsdóttir danshönnuður og dansari aðspurð um uppáhaldsflíkina sína sem hún keypti sér nýlega í Verksmiðjunni á Laugaveginum. Hún tekur það fram að hönnunin sé mjög sérstök og falleg en það er eitthvað sem heillar hana. „Ég er alls ekkert fatafrík enda býður vinnan mín ekki upp á annað en hálfgerð drusluföt. Aftur á móti vil ég kaupa vandaðar flíkur þegar ég kaupi mér föt og mér finnst skipta miklu að efnið sé gott,“ segir Sveinbjörg sem aðal- lega gengur í gallabuxum og bolum hvers- dags. „Dansarar eru ekki beint í fallegum fötum svona dags daglega og nenni ég ótrú- lega lítið að spá í útlitið,“ segir Sveinbjörg en tekur það fram að þegar hún fer út af einhverju tilefni sé annað upp á teningnum. „Við dansarar eigum það sameiginlegt að klæða okkur upp þegar við förum eitthvað út, en þá kemur það oft fyrir að fólk þekkir mann ekki,“ segir Sveinbjörg hlæjandi. Auk ponsjósins eru brúnir kúreka leður- skór í miklu uppáhaldi hjá Sveinbjörgu. „Ég keypti þá í Róm á síðasta ári og á ég góðar minningar sem tengjast þeim,“ segir Sveinbjörg. „Annars er þetta nú allt eitt- hvað sem er í uppáhaldi þessa stundina, svo er það kannski bara búið á morgun,“ segir Sveinbjörg og sveipar sig fagurbláu ponsjói. kristineva@frettabladid.is Uppáhaldsflíkin: Fagurblátt krydd í tilveruna ferdir@frettabladid.is Kúba er spennandi áfanga- staður og þangað ætla Plúsferð- ir í skemmtilega ferð 17. nóvem- ber næstkom- andi. Kúba er heillandi fögur og Kúbverjar glaðlegir og gestrisnir. Tón- listin ólgar í blóðinu á þeim enda blanda af áhrif- um frá stoltum Spánverjum sem ríktu á fyrri öld- um, þrælum frá Afríku og frum- byggjum af indíánakyni. Verð er frá 99.970 krónum á mann og innifalið er flug, gisting á Sol Palmeras í tvíbýli í sjö nætur, kvöldverður, morgunverður, há- degisverður og drykkir, flugvallar- skattar, vegabréfsáritun, ferðir til og frá flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn. Útivist fer í síðustu sunnu- dagsgöngu ársins næstkom- andi sunnudag. Farið verður á Borgarhóla á Mosfellsheiði. Dagsgöngur Útivistar hafa verið vel sóttar í ár og ekki síst í haust enda hafa hátt í tvö hundruð manns mætt í september einum og það sem af er þessum mán- uði. Nú er um að gera að slást í hópinn í síðustu gönguna á tíma- bilinu. Lagt er upp frá Leirvogs- vatni klukkan 10.30. Í tengslum við menningar- hátíðina IceArt sem haldin er í Búlgaríu dagana 14-20. október næstkomandi gefst Íslendingum kost- ur á beinu flugi frá Íslandi til Sófíu með Úrvali-Útsýn. Öllum sem til þekkja ber saman um að Sófía, höfuðborg Búlgar- íu, sé ein sérstæð- asta borg Evrópu. Verðið er 69.900 krónur og inni- falið er flug, gisting í tvíbýli á Princess Hotel Sófía með morgun- verði og rútu milli flugvallar og hótels. Aukagjald fyrir einbýli er 12.000 krónur. Ferðafélag Fljótsdalshéraðs og Ferðafélag Húsavíkur hafa ákveðið að frá og með 20. sept- ember verði Sigurðarskáli í Kverk- fjöllum læstur. Einnig hefur Ferða- félag Fljótsdalshéraðs ákveðið að læsa Snæfellsskála frá og með 8. september. Ástæður fyrir þessari ákvörðun eru slæm umgengni og að skálagjöld eru ekki greidd nema að litlu leyti af þeim sem nota sér aðstöðuna. Til að koma til móts við þá sem vilja gista í skálunum og greiða sín gistigjöld munu vera til staðar lyklar að skál- unum á nokkrum stöðum. Upplýs- ingar hjá Ferðafélagi Íslands í síma 568 2533. Sveinbjörg Þórhallsdóttir segist vanda valið á þeim flíkum sem hún kaupi sér. Smáauglýsingar á 995 kr. visir.is SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 Liggur í loftinu Í FERÐUM FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl. Þú getur pantað smáauglýsingar á www.visir.is KRÍLIN Af hverju ertu svona krumpuð, amma? Áttu ekkert straujárn? Til sölu 1966 Mercedes-Benz 230SL Roadster (Pagoda) Leður, beinskiptur blæja og toppur Ferðir til Nýfundnalands: Jólainnkaupin í öðru landi Ferðaskrifstofan Hópferðamið- stöðin-Vestfjarðaleið býður upp á tvær fjögurra daga skemmti- og jólaverslunarferðir í nóvem- ber. Haldið er til St. John’s, höf- uðborgar Nýfundnalands í norð- austurhluta Kanada. Lagt er í ferðina sjöunda árið í röð sök- um vinsælda. Strax er orðið uppselt í fyrri ferð- ina en hún er farin frá Keflavík miðvikudaginn 24. nóvember og komið heim síðdegis á laug- ardeginum 27. nóvember. Seinni ferðin er með brottför sunnudaginn 28. nóvember og farið er til baka á miðvikudegin- um 1. desember. Í St. John’s er hagstætt að versla en hún er jafnframt nútímaleg borg sem býður upp á afþrey- ingu af hverju tagi fyrir gesti sína. Ferðalöngum býðst að fara í skoðunarferðir um elsta hluta borgarinnar og að vitanum Cape Spear sem er skammt sunnan borgarinnar. Cape Spear er jafn- framt austasti tangi Norður- Ameríku. Gist er á hótelum sem eru vel staðsett í borginni. Annars vegar er það Hotel Fairmont New- foundland sem er í miðborginni og hins vegar Hotel Holiday Inn í nokkurra mínútna aksturfjar- lægð þaðan. Dæmi um verð á mann á Hotel Holiday Inn er 48.600 krónur og Hotel Fair- mont Newfoundland 54.900 krónur. Verðið miðast við gist- ingu í tveggja manna herbergi í þrjár nætur. Innifalið er flug, gisting, rúta frá flugvelli að hót- eli - en ekki til baka, flugvalla- skattar og fararstjórn. Morgun- verður er ekki innifalinn. Ferðirnar verða með svipuðu móti og fyrri ferðir en nánari upplýsingar er að finna á skrif- stofu Hópferðamiðstöðinni- Vestfjarðaleið og á heimasíð- unni vesttravel.is. ■ Hér sést Cabot-turninn á Signal Hill sem er helsta kennileiti St. John’s borgar. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P JE TU R SI G U RÐ SS O N
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.