Fréttablaðið - 07.10.2004, Blaðsíða 6
6 7. október 2004 FIMMTUDAGUR
Helgi Hjörvar borgarfulltrúi og þingmaður:
Samstíga Samfylkingu
STJÓRNMÁL Helgi Hjörvar, alþing-
ismaður Samfylkingarinnar og
borgarfulltrúi R-listans, vísar
ummælum forsætisráðherra
þess efnis að Samfylking-
in á þingi sé ósamstíga R-
listanum í borgarstjórn á
bug. „Ég bendi á að borg-
arstjórinn gekk á fund
fjárlaganefndar á mánu-
dag og fór yfir íþyngj-
andi ákvarðanir sem rík-
ið hefur tekið fyrir sveit-
arfélögin.“
Sagði Helgi að um-
mæli Halldórs hittu engan nema
hann sjálfan fyrir því sveitar-
stjórnarmenn framsóknarmanna
af öllu landinu hefðu leitað á náð-
ir fjárlaganefndar og mótmælt
ósanngjarnri tekjuskiptingu.
Alfreð Þorsteinsson, borgar-
fulltrúi Framsóknarflokksins,
sagði að R-listinn stæði
þétt við bakið á samn-
inganefnd sveitarfélaga.
Ekkert samhengi væri á
milli þess annars vegar
að borgarstjóri og sveit-
arstjórnarmenn bentu
fjárlaganefnd á íþyngj-
andi ákvarðanir ríkisins
og skerta tekjustofna og
kennaraverkfallsins hins
vegar. „Sveitarfélögin munu
ekki semja við kennara á skjön
við aðra samninga í þjóðfélag-
inu.“ ■
R-lista flokkarnir
deila um verkfallið
Utandagskrárumræður tóku óvænta stefnu á Alþingi í gær. Halldór Ásgrímsson forsætisráð-
herra sakaði Samfylkinguna um að tala tungum tveim um kennaraverkfallið á Alþingi og í borg-
arstjórn. Össur Skarphéðinsson segir ríkisstjórnina ekki geta verið stikkfrí í deilunni.
STJÓRNMÁL Umræður utan dagskrár
á Alþingi í gær um kennaraverkfall-
ið snerust upp í skeytasendingar á
milli flokkanna sem standa að
meirihluta R-listans í borgarstjórn
Reykjavíkur.
Halldór Ásgrímsson forsætis-
ráðherra sakaði Samfylkinguna um
að fylkja sér annars vegar innan R
listans í borgarstjórn að baki samn-
inganefndar sveitarfélaga en tali
hins vegarmeð allt öðrum hætti á
Alþingi. „Undarlegt að heyra þetta
fólk tala algjörlega á skjön við R-
listann. Er ekkert samráð á milli
formannsins og varaformanns
flokksins?“
Kallað var fram í ræðu ráðherr-
ans: „Hlustar þú á Alfreð?“ og svar-
aði Halldór að bragði að hann væri
nýbúinn að ræða við hann: „Við
framsóknarmenn tölum einu máli
um kennaraverkfallið.“
Málshefjandi umræðunnar, Öss-
ur Skarphéðinsson formaður Sam-
fylkingarinnar, sagði að ríkisvaldið
hefði margsinnis átt þátt í að liðka
fyrir lausn kjaradeilna, nú síðast á
þessu ári. Ríkisstjórnin hefði sjálf
samið myndarlega við framhalds-
skólakennara sem hefðu haft sömu
grunnlaun og grunnskólakennarar
þegar grunnskólinn var fluttur til
sveitarfélaganna. Þá hefði verið
þrengt að fjárhag sveitarfélaganna
auk þess sem auknar kröfur væru
nú gerðar til grunnskólans af hálfu
ríkisvaldsins.
Halldór Ásgrímsson svaraði því
til að nýverið, eftir að verkfall skall
á, hefði verið gefin út sameiginleg
yfirlýsing um tekjuskiptingu ríkis
og sveitarfélaga og því engin
ástæða til að hreyfa við því máli.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra sagði að báðir
aðilar yrðu að slá af sínum ítrustu
kröfum.
Guðmundur Árni Stefánsson,
Samfylkingu, sagði að Halldór Ás-
grímsson væri í afneitun og segði
„ekki ég“, ekki eins og menntamála-
ráðherrann sem hefði flutt „lélega
fréttaskýringu“ í ræðu sinni „Svona
gera menn ekki“.
Sigurjón Þórðarson, Frjálslynda
flokknum, sakaði svo forsætisráð-
herra um að hafa meiri áhuga á
sendiráðum en bágri stöðu sveitar-
félaga.
a.snaevarr@frettabladid.is
STJÓRMÁL Steingrímur J. Sigfús-
son, formaður Vinstri grænna,
talaði í gær fyrir frumvarpi til
laga sem gerir ráð fyrir að hlut-
ur ríkisins í Símanum
verði ekki seldur, að
minnsta kosti ekki fyrir
árslok 2008.
Steingrímur J. sagði í
ræðu sinni að Vinstri
grænir teldu engin hald-
bær rök fyrir einkavæð-
ingu Símans.
Lagði hann til að fyrir-
tækinu yrði gert að gera
sérstakt átak fyrir árslok
2008 til að bæta fjarskipta- og
gagnaflutningakerfi landsins.
Hann sagði að það væri nauðsyn-
legt til að allir landsmenn ættu
kost á nýjustu og fullkomnustu
tækni.
Steingrímur J. benti á að
hægri stjórnin í Noregi
hefði ákveðið að fara sér
hægt í að einkavæða
norska símann, Tele-Nor,
og ætlaði að selja hlutafé
ríkisins í smáum skömmt-
um. Hér stæði hins vegar
til að selja hann í einu
lagi. Vitnaði formaður
Vinstri grænna til skoð-
anakönnunar sem flokk-
urinn lét gera í vor en
samkvæmt henni vildu 61
prósent hafa Símann áfram í op-
inberri eigu. ■
VEISTU SVARIÐ?
1Um hvað deila forysta sjómanna og ogforsvarsmenn Brims?
2Í hvaða sveitarfélagi á höfuðborgar-svæðinu hefur börnum fækkað?
3Hversu margir knattspyrnumenn hjáReal Madríd eru tilnefndir sem knatt-
spyrnumenn ársins?
Svörin eru á bls. 42
SAMFYLKINGIN ÓSAMMÁLA R-LISTA?
Forsætisráðherra spurði hvort Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar og
þingmaður, talaði ekki við varaformann sinn, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Vinstri grænir:
Síminn úr sölu til 2009
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
HELGI HJÖRVAR
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir:
Engin
mótsögn
STJÓRNMÁL Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, varaformaður Samfylk-
ingarinnar, vísar því á bug að
þversögn sé á milli afstöðu Sam-
fylkingarinnar á Alþingi og inn-
an R-listans í borgarstjórn
Reykjavíkur.
Halldór Ásgrímsson forsætis-
ráðherra hélt því fram að formað-
ur Samfylkingarinnar héldi einu
fram á Alþingi en varaformaður-
inn allt öðru í R-listanum.“Talast
þau ekki við?“ spurði Halldór.
Ingibjörg Sólrún sagði að það
væri samstaða um að ríkið gerði
upp og leiðrétti tekjuskiptingu á
milli ríkis og sveitarfélaga.
„Þetta er engin mótsögn, Halldór
er bara að reyna að drepa málinu
á dreif.“ ■