Fréttablaðið - 07.10.2004, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000 – Veffang: visir.is
FIMMTUDAGUR
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
HÆG VESTLÆG ÁTT OG VÍÐA
BJARTVIÐRI Yfirleitt úrkomulaust á
landinu öllu í dag en fremur svalt.
Hlýnandi veður næstu daga.
Sjá nánar á bls. 6
7. október 2004 – 274. tölublað – 4. árgangur
SKAUT Á SAMFYLKINGUNA For-
sætisráðherra sakar Samfylkinguna um að
tala tungum tveim um kennaraverkfallið á
Alþingi og í borgarstjórn. Ekki rétt, segja
Samfylkingarmenn. Sjá síðu 6
BORGARYFIRVÖLD VÖRUÐ VIÐ
Formaður borgarráðs segir að það hafi ver-
ið ljóst frá upphafi að borgin væri að brjóta
gegn stjórnsýslulögum með því að synja
Egilshöll um vínveitingaleyfi. Sjá síðu 2
VEGIÐ AÐ VERKALÝÐSFÉLÖGUM
Brim og Iceland Express gera aðför að
kjarasamningum að mati Alþýðusambands-
ins. Verkalýðsforystan segir þetta leiða til
átaka. Sjá síðu 8
OFBELDI Í SKJÓLI HEIMILIS Tillög-
ur til að styrkja stöðu þolenda heimilisof-
beldis hafa legið fyrir í nokkur ár en þeim
hefur ekki verið hrint í framkvæmd.
Sjá síðu 16
Kvikmyndir 38
Tónlist 34
Leikhús 36
Myndlist 36
Íþróttir 28
Sjónvarp 40
● tíska ● ferðir ● heimili
Ponsjóið í
uppáhaldi
Sveinbjörg Þórhallsdóttir:
● verðlaunuð fyrir vefsvæði
Styttist í nýtt
myndband
Björk:
▲
SÍÐA 30
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
FJÁRHAGUR SVEITARFÉLAGA
Utandagskrárumræða um fjárhag sveitarfé-
laganna og samskipti þeirra og ríkisins
hefst á Alþingi klukkan 10.30. Málshefjandi
er Steingrímur J. Sigfússon og Árni Magn-
ússon verður til andsvara.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Hagnaður íslenskra fjármálafyrirtækja hefur aldrei verið meiri:
Nálgast sjötíu milljarða
VIÐSKIPTI Búist er við gríðarlegum
hagnaði hjá helstu fjármálafyrir-
tækjum landsins ef marka má spár
greiningardeilda. Greiningardeild
Íslandsbanka spáir um sautján
milljarða hagnaði hjá Landsbank-
anum. Samanlagður hagnaður KB
banka og danska bankans FIH
verður á nítjánda milljarð króna.
Greiningardeildin spáir ekki
um afkomu Íslandsbanka, en sér-
fræðingar telja að hagnaður hans
geti numið um tólf milljörðum
króna á árinu. Ef við þetta er bætt
þeim hagnaði sem búist er við hjá
Straumi fjárfestingarbanka og
fjárfestingarfélaginu Burðarási
þá er niðurstaðan tæpir 68 millj-
arðar króna.
Miklar hækkanir hlutabréfa og
gagnkvæmt eignarhald fjármála-
fyrirtækjanna skýra stóran hluta
hagnaðarins. Bréf þessara félaga
hafa hækkað gríðarlega það sem
af er ári. Til að mynda er í afkomu
Íslandsbanka söluhagnaður af
bréfum í Straumi og hækkandi
gengi Burðaráss birtist sem hagn-
aður í uppgjöri Landsbankans.
Gangi spáin eftir falla hagnaðar-
metin í viðskiptum á Íslandi eitt af
öðru í uppgjörum ársins 2004.
sjá síðu 27
Kennaraverkfall:
Skerðir fæð-
ingarorlof
KENNARAVERKFALL Vegna nýrra
laga um fæðingarorlof hefur
verkfall kennara áhrif á tekjur
þeirra í fæðingarorlofi allt til
ársloka 2006. Þeir kennarar sem
vænta barns nú í desember
standa verst þar sem núgildandi
reglur Tryggingastofnunar miða
við laun þeirra frá ágúst 2003 til
október 2004.
Hallveig Thordarson, deildar-
stjóri fæðingarorlofsmála Trygg-
ingastofnunar, segir að vegna
þess að lögin taki breytingum í
janúar hafi verkfall kennara
minni áhrif til frambúðar. Regl-
urnar nú kveði á um að viðmiðun-
artími fæðingarorlofs sé síðustu
tólf mánuðir fyrir fæðingu barns.
„Fyrir börn sem fæðast, eru ætt-
leidd eða tekin í varanlegt fóstur
frá og með 1. janúar 2005 gilda
tekjur foreldranna á tveimur heil-
um almanaksárum fyrir fæðing-
arár barnsins,“ segir Hallveig.
Sjá síðu 2
Kennaraverkfall:
Einhverfir
verða illa úti
KENNARAVERKFALL Ekki er hægt að
setja einhverf börn við sama
borð og önnur börn að sögn
Jóhannesar Jónssonar og Pálínu
E. Þórðardóttur, foreldra sex ára
einhverfs drengs. Þau segja að
áhrif kennaraverkfallsins þýði
margra mánaða afturför fyrir
drenginn en það sama eigi ekki
við um tvíburasystur hans.
Á bilinu 25 til 28 einhverf börn
í sérdeildum í fjórum skólum á
höfuðborgarsvæðinu fengu ekki
undanþágu frá kennaraverkfall-
inu. „Ég trúi ekki að forsvars-
menn kennara séu svo grimmir
við þessa krakka. Þeir hljóta
hreinlega að vera illa upplýstir
um einhverfu og hvaða áhrif
þetta hefur á börnin. Að veita
ekki undanþágur fyrir þessi börn
er hreinlega ómannúðlegt,“ segir
Jóhannes.
Sjá síðu 10
TEKNIR HÖNDUM Á KAJANUM „Málinu er langt frá því lokið,“ sögðu forsvarsmenn hagsmunasamtaka sjómanna þegar þeir voru
handteknir um miðjan dag í gær og færðir til yfirheyrslu. Ólafur Ásgeirsson aðstoðaryfirlögregluþjónn fylgist með þeim stíga upp í lög-
reglubílinn.
KJARADEILUR Aðgerðum forsvars-
manna hagsmunasamtaka sjó-
manna við Akureyrarhöfn, þar
sem þeir komu í veg fyrir upp-
skipun úr Sólbaki EA 7 frá því á
þriðjudagskvöld, lauk með hand-
töku þeirra um klukkan hálf þrjú í
gærdag. Þeir voru fluttir á lög-
reglustöð til skýrslutöku og sleppt
að henni lokinni.
Hagsmunasamtök sjómanna
telja kjarasamninga brotna á skip-
verjum á Sólbaki sem Brim á Ak-
ureyri gerir út. Þeir segja launa-
greiðslur samkvæmt samningi
sem útgerðarfélagið gerði við sjó-
mennina vera undir samnings-
bundnum lágmarkslaunum, en
samningurinn kveður á um að sjó-
mennirnir skuli standa utan stétt-
arfélaga.
Fyrir forsvarsmönnum sjó-
mannasamtakanna fór Sævar
Gunnarsson, formaður Sjómanna-
sambands Íslands, en hann var
einnig handtekinn snemma um
morguninn og haldið í um 20 mín-
útur áður en honum var sleppt.
Sævar og hans menn komu fyrst í
veg fyrir uppskipun þegar starfs-
menn Brims mættu um klukkan
hálf fimm um morguninn.
Nokkur rekistefna var svo
fram eftir degi um hvort lögregla
hefði umboð til að skerast í leikinn
þar sem um aðgerðir í kjaradeilu
væri að ræða. Að lokum fór það
svo að lögmenn Brims sendu
Hafnarstjórn Akureyrar erindi og
vildu að hún tryggði fyrirtækinu
starfsfrið við höfnina. Hafnar-
stjórn vísaði erindinu áfram til
lögreglu og benti á að menn gætu
ekki stundað vinnu sína við höfn-
ina vegna ástands sem þar ríkti.
„Það var svo löggæsluyfirvalda að
túlka hvort þarna væri um lög-
mætar aðgerðir í vinnudeilu að
ræða,“ áréttaði Hörður Blöndal
hafnarstjóri. Eitthvað virðist það
samt hafa verið málum blandið
því á vettvangi sagði Ólafur Ás-
geirsson aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn að mennirnir væru hand-
teknir að beiðni hafnaryfirvalda.
Sjá síðu 4
olikr@frettabladid.is
Átök á kajanum
Lögregluyfirvöld á Akureyri gerðu kleifa uppskipun úr Sólbaki EA 7 í
gær með því að handtaka forsvarsmenn samtaka sjómanna. Forsvars-
menn sjómanna segja samning útgerðar og áhafnar Sólbaks ólöglegan.