Fréttablaðið - 07.10.2004, Blaðsíða 27
Láttu drauminn rætast í rúmi frá Stearns & Foster
L a n g h o l t s v e g i 1 1 1 • 1 0 4 R e y k j a v í k • S í m i 5 6 8 7 9 0 0
A f g r e i ð s l u t í m i v i r k a d a g a k l . 1 1 – 1 8 . o g l a u g a r d a g a k l . 1 1 – 1 4 .
Bandarísku hágæðarúmin frá Stearns & Foster eru heimsþekkt á meðal vandlátra
kaupenda fyrir gæði og glæsileika. Rúmin eru hönnuð fyrir fólk sem vill aðeins hið
besta. Þau veita réttan stuðning og tryggja vellíðan á hverri nóttu með sérhönnuðu
gormakerfi, bólsturslögum og einstökum frágangi. Bandarísku neytendasamtökin
hafa í mörg ár útnefnt rúmin frá Stearns & Foster sem „bestu kaupin“.
Hágæðarúm
frá Stearns & Foster
Frá einu virtasta tískuhúsi Frakklands: Rúmteppi,
sængurverasett, lök, handklæði, frottésloppar,
ilmsápur, ilmkerti, ilmvatn o.fl.
neteign.is
Fasteingasala á Netinu
100%
Verðve
rnd
Alltaf ó
dýrast
ir! 99.900
auk vsk. samtals 124.375 kr.
Lægsta söluþóknun á Íslandi:
Sími: 595 9090
5FIMMTUDAGUR 7. október 2004
Ljósastjörnur
Á haustin og fram að jólum nýta
margir tímann í að dytta að heima
fyrir, mála eða breyta og gera fínt.
Í versluninni Í húsinu fást ljósa-
stjörnur í alls kyns útfærslum sem
lýsa upp heimilið í svartasta
skammdeginu. Earth friendly star-
lightz heita þessi ljós og er nafn
ljósanna dregið af því að það er
leitast við að fara sem umhverfis-
vænasta leið í framleiðslu þeirra,
þau eru öll handgerð og úr nátt-
úrulegum efnum. Það eru yfirleitt
framleiddar tvær línur yfir árið hjá
Earth friendly starlightz, sumarlína
og vetrarlína.
Núna er jólavertíðin fram undan
og jólalínan er mjög glæsileg,
rauði liturinn er ríkjandi en gulli
og hvítu er blandað passlega með.
Jólastjörnurnar eru að berast í
verslunina Í húsinu um þessar
mundir.
Stjörnurnar kosta frá kr. 1.990 til
kr. 2.990 kr.
[ SKAMMDEGIÐ LÝST UPP ]
Litskrúðugir einangrunarhólkar:
Heitt eða kalt?
Þessir skemmtilegu hólkar eru til þess
ætlaðir að halda drykkjum ýmist köld-
um eða heitum. Til kælingar er best
að stinga þeim í frystinn og setja svo
utan um vatns- eða vínflöskur. Ef á að
nota þá til að halda vínum eða öðrum
drykkjum volgum eða heitum er best
að láta þá liggja í sjóðheitu vatni
nokkra stund. Hólkarnir eru falleg og
skemmtileg hönnun og henta jafn vel
utan um vatnsflöskur og vín og hverja
aðra þá drykki sem neyta á. Þeir fást í
Bodum í Húsgagnahöllinni og kosta
1.180 krónur stykkið. ■
[ HÚSRÁÐ ]
Óhrein straujárn
* Matarsalt og brúnn innkaupapoki
(eða hlið af brúnum pappakassa):
Stillið straujárnið á miðlungshita án
gufu. Leggið pokann á straubrettið,
ef á pokanum er áletrun þá snúið
henni niður, hreina hliðin á að
snúa upp. Stráið ríflegu magni af
salti á pokann og strauið yfir nokkr-
ar umferðir. Þar sem saltið er
ætandi og virkar eins og sandpapp-
ír ættu blettirnir að vera á bak og
burt að fáeinum mínútum liðnum.
* Tannkrem: Setjið smáskammt af
tannkremi (ekki þessu gegnsæa
hlaupkennda heldur þessu gamal-
dags hvíta) í rakan klút og nuddið
KALT straujárnið. Fínkornótt tann-
kremið ætti að vinna á flestum
blettum sem safnast hafa fyrir og ef
óhreinindi eru líka í gufustútunum
þá eru pípuhreinsarar góðir á þá.
* Ofnahreinsir: Þar sem óhreinindi
hafa hlaðist upp og viðbrennst
hressilega er möguleiki að nota
ofnahreinsi á KALT straujárn. Gætið
þess að verja „búk“ straujárnsins
með álpappír, allt nema hitaplöt-
una þar sem óhreinindin eru, setjið
upp gúmmíhanska og spreyið
ofnahreinsi á plötuna. Látið járnið
standa í 10 mínútur og nuddið
hreinsinn hraustlega af. Skolið
vandlega, takið álpappírinn af, hitið
járnið og gufustrauið yfir nokkrar
gamlar tuskur áður en þið strauið
hefðbundinn fatnað eða tau.
Smáauglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is