Fréttablaðið - 11.11.2004, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 11.11.2004, Blaðsíða 6
6 11. nóvember 2004 FIMMTUDAGUR Helgi Laxdal gagnýnir Félagsdóm fyrir Sólbaksmálið: Hafnarfrí ekki á leið úr kjarasamningum KJARAMÁL Vélstjórafélag Íslands hefur ekki tekið tekið afstöðu til þess hvort fella eigi hafnarfrí út úr kjarasamningum þess. Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafélags- ins, segir í það minnsta ljóst að ekki verði af afnámi hafnarfría fyrir árslok 2005. Helgi er ósáttur við að Félags- dómur hafi talið sérsamning áhafnarinnar Sólbaks innan marka kjarasamnings sjómanna og fellt málið niður. Dómurinn hafi ekki tekið á vandamálinu: „Þeir þykjast geta komist hjá 30 klukkustunda hafnarfríi vegna þess að Sjómannasambandið er búið að skrifa undir samning sem gerir ráð fyrir að þetta sé heimilt. Sá kjarasamningur er í atkvæða- greiðslu og öðlast ekki gildi fyrr en niðurstaðan er fengin,“ segir Helgi: „Til viðbótar eru vélstjórar með samning til ársloka 2005. Það er ekkert á döfinni að breyta þess- um ákvæðum hjá okkur. Þau eru í fullu gildi.“ Vélstjórafélagið lætur á það reyna fyrir Félagsdómi hvort það standist fyrir lögum að stofna málamyndafyrirtæki til að kom- ast undan íslenskum kjarasamn- ingum og landslögum. - gag Styrkir til flokka verði rannsakaðir Helgi Hjörvar alþingismaður telur að flokkarnir eigi að fá Ríkisendur- skoðun til að gera almenna athugun á styrkjum olíufélaganna til stjórnmálaflokkanna. Þannig verði trúnaður ekki brotinn. OLÍUFÉLÖGIN „Skiptar skoðanir hafa verið milli flokkanna hvort eigi að opna bókhald þeirra og sumir hafa ákveðið að upplýsa um fjár- hæðir yfir ákveðnu marki. Aðrir hafa ekki viljað upplýsa neitt. Væntanlega telja menn sig að ein- hverju leyti bundna af því að hafa gefið út yfirlýsingar um trúnað áður og þeir séu því bundnir af trúnaði gagnvart styrktaraðilum sínum. Ég tel hinsvegar að svo sé ekki gagnvart olíufélögunum því að stjórnendur olíufélaganna hafa gengist við skipulagðri brota- starfsemi sem heitir samsæri gegn atvinnulífi og neytendum. Stjórnmálaflokkarnir geta ekki verið bundnir trúnaði gagnvart þess háttar starfsemi þegar talið er að þjóðfélagið hafi orðið fyrir 40 milljarða tjóni. Þá tel ég í raun- inni að flokkarnir eigi allir að upp- lýsa um þessi tengsl,“ segir Helgi Hjörvar alþingismaður. „Hinsvegar er óraunsætt að stjórnarflokkarnir sem hafa sér- staklega verið andvígir því að upplýsa um styrki muni opna bók- hald sitt vegna þessa. Mér finnst mikilvægt að stjórnmálaflokk- arnir hreinsi stjórnvöld af öllum grun um að hafa hlíft olíufélögun- um og fjársvelt Samkeppnis- stofnun í allan þennan tíma vegna þess að þeir hafi fengið greiðslur frá félögunum. Ég hef því lagt til að flokkarnir leiti til Ríkisendur- skoðunar um að hún skoði þessi fjárhagslegu samskipti. Þar með væri ekki verið að aflétta trúnaði eða opna bókhald. Einstakir flokk- ar gætu sett einhver skilyrði fyrir slíkri athugun en ég held að meg- inatriðið sé að Ríkisendurskoð- unin kanni styrki til olíufélaganna almennt, hversu umfangsmiklir þessir styrkir hafa verið, og skili skýrslu um það,“ segir hann. - ghs@frettabladid.is Síbería: Hótel brennur MOSKVA, AFP Að minnsta kosti 14 létu lífið þegar hótel brann í Kyzyl í suðurhluta Síberíu í gær. Þar að auki voru 17 manns fluttir á sjúkrahús þar sem gert var að brunasárum þeirra, eftir því sem ITAR-TASS fréttastofan segir frá. Björgunarmenn leiddu 107 manns úr brennandi byggingunni út í frosthörkur. Frumrannsókn bendir til að eldurinn hafi kviknað út frá rafmagnsbilun. Björgunarmenn eiga að halda áfram að leita í rústum hússins í dag og opinberar heimildir herma að enn séu einhverjir ófundnir. ■ ■ EVRÓPA VEISTU SVARIÐ? 1Hver er bæjarstjóri á Akureyri? 2Í hvaða borg er nú barist í Írak? 3Hverjir eru kynnar Edduverðlaun-anna í ár? Svörin eru á bls. 58 edda.is Spennandi og skemmtileg saga fyrir alla krakka eftir Bubba Morthens og Robert Jackson með glæsilegum myndum Halldórs Baldurssonar. Bubbi Morthens Robert Jackson GRUNDARFJÖRÐUR Bæjarbúar margir hverjir óánægðir með að kennarar vinni verslunarstörf í verkfalli. Verkfall: Kennarar í önnur störf KENNARAVERKFALL Þrír kennarar hafa unnið í versluninni Grundar- vali í Grundarfirði á meðan þeir hafa verið í verkfalli. Einn kennar- anna segir að menn verði að bjarga sér við þessar aðstæður. Hann hafi borið þetta undir Kennarasamband Íslands sem hafi komist að þeirri niðurstöðu að þetta væri ekki verk- fallsbrot. Hann segist hafa fundið fyrir óánægju hjá sumum Grund- firðingum vegna þessa. Kennararnir fá greitt úr verk- fallssjóði þrátt fyrir að stunda vinna í verkfallinu, um 90.000 krónur á mánuði. - ghg Langdregið dómsmál: Öldungur á sakabekk INDLAND 107 ára Indverji bíður nú dómsuppskurðar um hvort hann þurfi að snúa aftur í fangelsi. Mað- urinn var fundinn sekur um mann- dráp fyrir sautján árum þegar hann varð nágranna sínum að bana í landadeilum. Síðan þá hefur málið gengið milli dómsstiga án þess að endanleg niðurstaða hafi fengist, að því er BBC greindi frá. Nankau Prasad Mishra hefur lengst af sloppið við fangelsisvist á þessum tíma. Í vor var hann þó dæmdur til fangelsisvistar en var fluttur á sjúkrahús í október. Nú bíður hann svars við því hvort hann snúi aftur í fangelsi eða fái að dvelja hjá fjölskyldu sinni. ■ DÓMARI Í KLÁMHNEYKSLI Rúm- enskur dómari hefur sagt af sér vegna ásakana um að hafa leikið í klámmynd. Hin 36 ára Simana Lungu neitar ásökununum og segir leikkonuna í myndinni að- eins líkjast sér. Dómstólaráð Rúmeníu neitaði að hreinsa hana af ásökununum og því sagði hún af sér. SMIT Á ÍRLANDI Fyrsti einstak- lingurinn á Írlandi hefur nú greinst með Creutzfeld-Jakob sjúkdóminn, það form kúariðu sem berst í fólk. Áður hafði einn Íri búsettur í Bretlandi greinst með sjúkdóminn. Alls hafa 157 einstaklingar greinst með sjúk- dóminn banvæna, þar af aðeins 10 utan Bretlands. ENGAR BÆTUR Þjóðverjar sem reknir voru frá jarðeignum sínum í austurhluta landsins, sem nú er hluti Póllands, í lok seinni heimss- tyrjaldar, eiga ekki rétt á að fá eignir sínar aftur að mati þýskra og pólskra lögfræðinga sem tóku saman skýrslu fyrir pólsk og þýsk stjórnvöld. Þjóðverjar sem voru reknir frá Póllandi hafa krafist þess að fá eignir sínar. HELGI LAXDAL Segir Vélstjórafélagið ekki hafa tekið afstöðu til hvort það samþykki að gefa hafnarfríin eftir. Það fer fram á að Félagsdómur skoði hvort landslög leyfi stofnun málamyndunar- fyrirtækis. VIÐSKIPTI Verið er að leggja loka- hönd á kaup Baugs á kvenfatak- eðjunni MK One. MK One selur ódýran tískufatnað og hefur ver- ið í örum vexti að undanförnu. Kaupverðið með skuldum er 55 milljónir punda eða sjö millj- arðar króna. Verslun með ódýran tískufatnað hefur að undanförnu vaxið þrisvar sinnum hraðar en önnur fataverslun í Bretlandi. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbank- ans kom að ráðgjöf verkefnisins, fjármögnun þess og kaupir bank- inn auk þess 36 prósenta hlut í fyrirtækinu. Baugur mun eiga helming hlutafjár og framtíðar- stjórnendur félagsins munu ein- nig eignast hlut í félaginu. Síðustu tvö ár hefur sala MK One aukist um 22 prósent á ári og veltir á átjánda milljarð króna. Verslunarkeðjan rekur 176 verslanir í bretlandi og telja kaupendur mikil tækifæri í vexti félagsins í Bretlandi, auk þess sem litið er á Norðurlöndin sem framtíðarmarkað fyrir keðjuna. Hagnaður MK One fyrir fjár- magnsliði og afskriftir er 1,8 milljarðar króna og greiða Baug- ur og Landsbankinn því tæplega fjórfalda framlegð þess fyrir fyrirtækið. Seljendur eru David Thomp- son og Elaine McPearson, en auk þess átti góðkunningi Baugs, Philip Green eigandi Arcadia, hlut í fyrirtækinu. - hh HELGI HJÖRVAR „Stjórnendur olíufélaganna hafa gengist við skipulagðri brotastarfsemi sem heitir samsæri gegn atvinnulífi og neytendum. Stjórnmálaflokkarnir geta ekki verið bundnir trúnaði gagn- vart þess háttar starfsemi.“ Útrás Baugs í Bretlandi: Tískukeðja með Landsbanka BÆTIST Í SAFNIÐ Baugur á leikfangakeðjuna Hamleys ásamt fleiri breskum verslunarfyrirtækjum. Kven- fatakeðjan MK One er í þann veginn að bætast í hóp fyrirtækja sem Baugur leiðir á breskum smásölumarkaði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.