Fréttablaðið - 11.11.2004, Blaðsíða 8
8 11. nóvember 2004 FIMMTUDAGUR
Landsvirkjun sameinar starfsstöðvar:
Átta missa vinnu
við hagræðingu
HAGRÆÐING Öllum starfsmönnum
Búrfells- og Hrauneyjarfoss-
stöðvar hefur verið sagt upp
störfum vegna sameiningar
starfsstöðvanna. Átta hætta og
gera starfslokasamning en öðrum
hefur verið boðið að ráða sig aftur
til starfa undir breyttum starfs-
skilyrðum.
Már Guðnason, formaður
Verkalýðsfélags Suðurlands, er
ósáttur við vinnubrögð Lands-
virkjunar. Hann segir uppsagn-
irnar hafa komið starfsmönnun-
um á óvart því sagt hafi verið að
engum yrði sagt upp við breyting-
arnar, síðast fyrir tveimur mánuð-
um.
Þorsteinn Hilmarsson, upplýs-
ingafulltrúi Landsvirkjunar, segir
breytingarnar hafa verið nauð-
synlegar. Þær taki mið af tækni-
þróun síðustu ára: „Við teljum að
vandað hafi verið til hvernig þetta
mætti sem best ganga og höfum
lýst því yfir að við munum gera
hvað við getum til að hjálpa ein-
staklingum að fá önnur störf.“
Helgi Laxdal, formaður Vél-
stjórafélags Íslands, segir níu vél-
fræðinga í hópi starfsmannanna
sem voru endurráðnir: „Í heildina
tekið vil ég meina að framkoma
Landsvirkjunar hafi verið í lagi.“
- gag
Skólastjóri braut
stjórnsýslulög
Grunnskólinn á Hellu braut stjórnsýslulög þegar tengdasonur skólastjórans var
ráðinn skólabílstjóri. Hann hafði ekki réttindi þegar hann sótti um. Skólastjórinn
lýsti sig vanhæfan til að ráða í það en aðstoðarskólastjórinn réð tengdasoninn.
SVEITARSTJÓRNARMÁL Grunnskólinn
á Hellu braut stjórnsýslulög
þegar tengdasonur skólastjórans
var ráðinn til að aka börnum frá
Þykkvabæ til skólans á Hellu.
Skólastjórinn lýsti sig vanhæf-
an til að ráða í stöðuna og var að-
stoðarskólastjórinn fenginn til
þess. Hann réð tengdasoninn til
starfsins, sem þó hafði ekki til-
skilin réttindi til skólaaksturs
þegar hann sótti um. Réttindin
fékk hann seinna. Í kjölfarið sendi
Grétar H. Guðmundsson, sem
sótti um starfið en fékk það ekki,
sveitarstjóra Rangárþings ytra
bréf. Í bréfinu sagði hann ráðn-
inguna stangast á við stjórnsýslu-
lög og fór fram á að ráðningin
yrði endurskoðuð og áskildi sér
rétt til skaðabóta.
Samkvæmt lögfræðiáliti sem
sveitarstjórnin fékk Málflutn-
ingsskrifstofuna ehf. til að gera
kemur skýrt fram að aðstoðar-
skólastjórinn, sem undirmaður
skólastjórans, hafi einnig verið
vanhæfur til að ráða í stöðuna.
Samkvæmt álitinu er hins vegar
ekki hægt að ógilda samninginn
sem var gerður. Á hreppsnefndar-
fundi í síðustu var samþykkt að
gefa þeim verktökum, sem sóttu
um starfið en fengu ekki, kost á að
fá sannanlegan kostnað við um-
sóknir sínar greiddan.
Minnihlutinn í sveitarstjórn í
Rangárþings ytra gagnrýndi
ráðninguna harkalega. Í bókun
minnihlutans á fundi kemur fram
að þegar verkið var auglýst hafi
ekkert verið tiltekið um þær kröf-
ur sem viðkomandi þyrfti að upp-
fylla, hvorki hvað varðar tilskilin
réttindi né ökutæki.
„Almenna reglan hefur verið
sú að skólabílstjórar hafa verið
ráðnir beint af framkvæmda-
stjóra sveitarfélagsins. Vegna
tengsla eins af umsækjendum við
skólastjóra, en sá umsækjandi var
síðan ráðinn, hefði sú vinnuregla
betur verið viðhöfð í þetta skiptið.
Þau vinnubrögð sem hér hafa
verið viðhöfð eiga, að okkar mati,
ekki að þekkjast í opinberri
stjórnsýslu.“
Í samtali við Fréttablaðið seg-
ist Grétar enn ekki hafa fengið
formlegt svar frá sveitarstjórn-
inni. Hann útiloki ekki að fara
með málið lengra og leita réttar
síns með tillitil til hugsanlegra
skaðabóta. trausti@frettabladid.is
FRAKKAR VORU SKOTMARKIÐ
Sjálfsmorðsárás sem kostaði
þrjá Ísraela lífið í Tel Aviv í
síðustu viku átti upphaflega að
beinast að franska sendiráðinu.
Þetta sagði Ariel Sharon, for-
sætisráðherra Ísraels, að hefði
komið í ljós í yfirheyrslum yfir
tveimur meðlimum samtak-
anna sem skipulögðu árásina.
TVEIR PALESTÍNUMENN
SKOTNIR Ísraelskir hermenn
skutu tvo Palestínumenn til
bana þar sem þeir reyndu að
komast inn á bannsvæði á
Gaza. Ísraelar sögðu Palestínu-
menn hafa gert margar til-
raunir til að komast í gegnum
svæðið til að koma sprengjum
fyrir í Ísrael.
■ MIÐ-AUSTURLÖND
SVONA ERUM VIÐ
HEILDARVELTA Í SKÓGRÆKT,
SKÓGARHÖGGI OG ÞJÓNUSTU
1999 4
2000 7
2001 7
2002 10
2003 29*
*Milljónir króna, án vsk
Heimild: Hagstofa Íslands
– hefur þú séð DV í dag?
Biður Sólveigu ekki
afsökunar á svindlinu
„Ég hef ekkert heyrt í Kristni,”
segir Sólveig Pétursdóttir
NR. 46 - 2004
• Verð kr. 599
Ólétt og
ástfangin!
9 771025 95
6009
STEFNIR HÁTT Í
UNGFRÚ HEIMU
R
UMVAFINN
DÁSAMLEGUM
DÍVUM!
Ástamálin f
lókin
hjá Geir Óla
fs:
Fegurðardísin Man
uela
Ósk alsæl:
LÍTILL PRINS
Á LEIÐINNI!
Bergþór Pálsson h
élt
grand afmælisboð
:
Besta d
agskrái
n!
11.-17.no
v.
Á MILLI KVENN
A!
Hugrún Harðard
óttir
fegurðardrottnin
g:
KEYPTU SÉR HREIÐUR
Í VESTURBÆNUM
Logi Bergmann og
Svanhildur Hólm:
Anna Kristine
Jóna Lilja
Ásdís
01 S&H FORS
͋A3704 TBL
-2 8.11.20
04 17:21 P
age 2
Ge
rir
lí
fið
sk
em
mt
ile
gr
a!
Ge
rir
lí
fið
sk
em
mt
ile
gr
a!
LANDSVIRKJUN
Formaður Verkalýðsfélags Suðurlands segir
að störf þess fólks sem missti vinnuna hafi
verið mjög vel borguð. Hann eigi ekki von
á að það fái sambærilega vinnu annars
staðar.
HELLA Í RANGÁRÞINGI YTRA
Bílstjóri sem ekki fékk starfið útilokar ekki að leita réttar síns með tilliti til hugsanlegra
skaðabóta.
Rangárþing ytra:
Munu endurskoða reglur
SVEITARSTJÓRNARMÁL Vinnureglur
sem lúta að ráðningu skólabíl-
stjóra í Rangárþingi ytra verða
endurskoðaðar, að sögn Guðmund-
ar I. Gunnlaugssonar sveitar-
stjóra. Komið hefur í ljós að skóla-
yfirvöld brutu stjórnsýslulög í
sumar þegar aðstoðarskólastjóri
Grunnskólans á Hellu réði tengda-
son skólastjórans sem skólabíl-
stjóra.
„Þarna virðist mönnum
hafa orðið á í messunni og
við viðurkennum það,“ segir
Guðmundur. Alls sóttu fimm
um stöðuna og segist Guð-
mundur biðja þá sem ekki
fengu starfið velvirðingar.
Þeim hafi verið boðið að gera
kröfu um bætur vegna kostn-
aðar við umsóknina og þar
með telji hann málinu lokið. ■
Rússnesk löggjöf:
Þrengt að smáflokkum
RÚSSLAND, AP Erfiðara verður að
skrá stjórnmálaflokka í Rúss-
landi samþykki þingið ný lög um
skráningu þeirra. Samkvæmt
þeim verða skilyrði um lág-
marksfjölda félagsmanna til að
flokkar fái skráningu hækkuð úr
tíu þúsund í 50 þúsund félags-
menn. Að auki þurfa flokkar að
hafa minnst 500 félaga í lág-
marki 50 ríkja til að fá að starfa
en nú er gerð krafa um hundrað
félaga.
Flutningsmenn segja tilgang-
inn að hvetja smærri flokka til
sameiningar en stjórnarand-
stæðingar óttast margir hverjir
að tilgangurinn sé í raun að gera
stjórnarandstæðingum erfiðara
fyrir að starfa. ■
VLADIMÍR PÚTÍN
Hefur leitast við að auka völd sín og orðið nokkuð ágengt.