Fréttablaðið - 11.11.2004, Blaðsíða 18
18 11. nóvember 2004 FIMMTUDAGUR
<FALUN GONG MÓTMÆLIR
Meðlimir Falun Gong hugleiddu fyrir fram-
an hæstarétt Hong Kong þegar dómur var
felldur í máli sextán meðlima Falun Gong
sem voru ákærðir fyrir að mótmæla við
skrifstofu kínverskra stjórnvalda í Hong
Kong í mars 2002. Þeir voru sýknaðir af
ákærum um að raska almannaró en
dæmdir fyrir önnur brot. Falun Gong er
bannað í Kína.
Sverrir Hermannsson:
Fleiri pottar brotnir
OLÍUMÁLIÐ Sverrir Hermannsson,
fyrrverandi ráðherra, telur að
fletta verði upp í fjármálum ríkis-
stjórnarflokkanna og þá komi ým-
islegt í ljós. „Flokkarnir sitja við
völd í skjóli fjár frá olíufélögun-
um, tryggingafélögunum og
kvótagreifunum, sér í lagi Fram-
sóknarflokkurinn. Hitt er svo ann-
að mál að það mun birta af degi
hjá okkur. Við þurfum bara að
vera réttlát. Auðvitað eigum við
að leyfa frelsi til orða og athafna
en það þarf að vara sig. Það þarf
að setja lög gegn hringamyndun-
um en við megum ekki hindra
menn í framtaki,“ segir hann.
Sverrir telur rangt að virkt
eftirlit hafi verið samkvæmt sam-
keppnislögum. „Málið er alveg
óskaplegt og raunar lygilegt. Ef
bara væri þessi eini pottur brot-
inn þá myndu menn frekar láta
huggast. Þetta verður auðvitað að
ganga sína leið fyrir dómstólum
en ég held að það séu miklu fleiri
pottar brotnir,“ segir hann og
nefnir til dæmis hjá einkavæðing-
arnefnd, sölu á Búnaðarbanka,
íslenskum aðalverktökum og sölu
á eign Landsbankans í VÍS.
- ghs
Virðing
Íslands að veði
Hætta er á að stjórnvöld fái ávítur frá Alþjóðavinnu-
málastofnuninni setji þau lög á verkfall kennara.
LAGASETNING Hætta er á að ríkis-
stjórnin fái ávítur frá Alþjóða-
vinnumálastofnuninni setji hún
lög sem kveða ekki á um betri rétt
en felld miðlunartillaga, segir
Lára V. Júlíusdóttir hæstarétta-
lögmaður. Stjórnvöld voru síðast
ávítt af stofnun-
inni í júní vegna
lagasetningar á
verkfall sjó-
manna árið 2001.
Lára segir að
yrðu lög sett á
verkfall kennara
og deilan sett í
gerðardóm, sem
hefði úr meiru
að fé að spila en
nú hafi boðist,
mætti forða því
að Ísland lenti á
svörtum lista Al-
þjóðavinnumála-
stofnunar: „Það er litið til þess ef
Ísland er ítrekað að brjóta þessi
grundvallarmannréttindi sem
samningsrétturinn er.“
Ingvar Sverrisson, lögfræðing-
ur hjá Alþýðusambandi Íslands,
segir að þegar stjórnvöld hafi sett
lög á verkfall sjómanna hafi nið-
urstaða stofnunarinnar verið að
stjórnvöld hafi farið offari með
lagasetningunni.
Lára segir hvorki sektir né
refsingar viðurlög Alþjóðavinnu-
málastofnunarinnar en athuga-
semdir hennar geti verið Íslandi
erfiðar: „Það er ógaman að vera í
alþjóðasamstarfi og hluti af Sam-
einuðu þjóðunum sem Alþjóða-
vinnumálstofnunin tilheyrir og fá
athugasemdir vegna framgöngu
stjórnvalda í tengslum við verk-
föll.“
Ingvar segir umsagnir stofn-
unarinnar fyrst og fremst spurn-
ingu um virðingu viðkomandi
aðildarríkis og stöðu þess í sam-
félagi annarra ríkja sem aðild
eiga að stofnuninni: „Það er mjög
slæmt að Ísland í þessu tiltekna
máli sjómanna var sett í sama
flokk og ríki sem við berum okkur
helst ekki saman við, eins og sum
ríki í Suður-Ameríku þar sem rétt-
indi verkafólks og stéttarfélaga
eru fótum troðin.“
Ingvar segir að þrátt fyrir á-
vítur í málum sjómanna sé al-
menn sátt um fyrirkomulag samn-
inga á íslenskum vinnumarkaði.
„Það ríkir almennt séð friður, en
það eru alltaf einstaka mál sem
koma upp, eins og með kennara,
þar sem uppsöfnuð óánægja og
reiði ríkir og menn fara út í verk-
fallsaðgerðir. Það þarf ekki að
vera áfellisdómur yfir kerfinu í
heild sinni.“
gag@frettabladid.is
■ ASÍA
NAUÐGUN MÓTMÆLT Hundruð
námsmanna komu saman í Sr-
inagar í indverska hluta Kasmír
til að krefjast þess að indverskir
hermenn yrðu dregnir fyrir rétt
fyrir að nauðga tólf ára stúlku
og móður hennar. Yfirmenn ind-
verska hersins segjast ekkert
kannast við málið en hafa fyrir-
skipað rannsókn.
VILL HÆKKA STARFSLOKAALDUR
Hinn rúmlega áttræði Lee Kuan
Yew, fyrrum forsætisráðherra
Singapúr og núverandi ráðgjafi
sonar síns sem tekinn er við
embættinu, vill hækka lögbund-
inn starfslokaaldur í landinu. Nú
verður fólk að hætta störfum 62
ára en þetta segir Lee fráleitt ef
fólk heldur heilsu.
Tímaritið Birta - frítt fyrir þig
• Þorgrímur þorir að vera mjúkur
• Ítölsk matarmenning
• Býr Bridget Jones í þér?
• Náttföt fyrir skammdegið
• Bíómyndir vikunnar
• Sjónvarpsdagskráin
• Persónuleikapróf
• Stjörnuspá og margt fleira
ÚTBREIDDASTA TÍMARIT LANDSINS
Landspítalinn:
Göngugreinir að gjöf
HEILBRIGÐISMÁL Kvennadeild
Reykjavíkurdeildar Rauða kross
Íslands hefur fært sjúkraþjálfun
á Landspítala Fossvogi að gjöf
göngugreiningartæki.
Göngugreinirinn metur flesta
þætti göngu og er mikil hjálp við
val á meðferð, spelkum og
gönguhjálpartækjum. Með ná-
kvæmari greiningu og meðferð í
kjölfarið má meðal annars gera
ráð fyrir að hægt verði að fækka
byltum og brotum. Möguleiki er
á ýmsum rannsóknum tengdum
göngu, svo sem mati á áhrifum
lyfja á göngugetu Parkinson-
sjúklinga. Tækið býður upp á
víðtæka notkun til rannsókna og
styrkir þannig vísindalegan þátt
starfseminnar. ■
KRÖFUGANGA KENNARA
Almennt ríkir friður á vinnumarkaði en stundum koma upp einstaka mál, eins og með
kennara, þar sem uppsöfnuð óánægja og reiði ríkir og menn fara út í verkfallsaðgerðir,
segir lögfræðingur ASÍ.
SVERRIR HERMANNSSON
Telur að fletta þurfi upp í fjármálum ríkis-
stjórnarflokkanna því að þá geti ýmislegt
komið í ljós.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
LÁRA V.
JÚLÍUSDÓTTIR
Segir mega forða
því að Ísland lendi
á svörtum lista.
Shirin Ebadi:
Mátti ekki mótmæla
ÍRAN, AP Írönsk stjórnvöld hafa
bannað Shirin Ebadi, friðarverð-
launahafa Nóbels í fyrra, að efna til
mótmæla gegn aftökum á ungmenn-
um undir átján ára aldri. Ebadi ætl-
aði að efna til mótmælanna í dag en
var neitað um leyfi til að halda þau.
„Ríkisstjórnin verður að útskýra
hvers vegna þau leyfa ekki friðsam-
leg mótmæli gegn brotum á svo
sjálfsögðum mannréttindum,“ sagði
Ebadi. Hún sagði að stjórnvöld
hefðu sagt lagafrumvarp í vinnslu
sem takmarkaði dauðadóma yfir
ungmennum en tók fram að það
væri ekki nóg þar sem dauðadómar
yfir ungmennum yrðu ekki bannað-
ir. ■
GÓÐ GJÖF
Nýtt tæki til göngugreiningar sem Kvenna-
deild Reykjavíkurdeildar RKÍ hefur fært
LSH að gjöf getur fækkað byltum og brot-
um. Myndin er frá afhendingu gjafarinnar.