Fréttablaðið - 11.11.2004, Page 30

Fréttablaðið - 11.11.2004, Page 30
Álit Bandaríkjanna í augum um- heimsins hefur dvínað nokkur undangengin ár. Hnignunin hófst fyrir alvöru eftir forsetakosn- ingarnar fyrir fjórum árum, þeg- ar repúblíkanar beittu brögðum í Flórída til að vinna á endanum vafasaman sigur þar með Hæsta- réttarúrskurði þess efnis, að endurtalningu atkvæða skyldi hætt. George W. Bush var dæmd- ur sigurinn í Hæstarétti með fimm atkvæðum gegn fjórum. Einn dómarinn lýsti þeirri skoð- un, að rétturinn hefði með þeim dómi fyrirgert trausti fólksins í landinu. Hefði leikið einhver vafi á úrslitum kosninganna um dag- inn, hefði hollusta fimm hæsta- réttardómara varla dugað Bush forseta eins og síðast, þar eð dómsmálin hefðu getað orðið svo mýmörg, að það hefði ekki reynzt vinnandi vegur fyrir rétt- inn að dæma í þeim öllum í tæk- an tíma. Á þetta reyndi þó ekki, úr því að Bush vann skýran og óvefengjanlegan sigur. Kjör Bush forseta er bein af- leiðing þeirrar umbreytingar, sem hefur riðið yfir dreifðar byggðir Bandaríkjanna undan- gengin ár. Trúarofstækis- og öf- gamenn hafa komizt til áhrifa í flokki forsetans: menn, sem telja brýnt að innleiða bænahald í skólum og ryðja þróunarkenn- ingunni burt úr námsefni handa börnum og unglingum. Repúblík- anar hafa nú öll ráð í hendi sér í Washington. Einn nýkjörinn öld- ungadeildarþingmaður þeirra lýsir baráttunni við demókrata sem baráttu góðs og ills og hefur sagzt vera fylgjandi dauðarefs- ingu handa læknum, sem fram- kvæma fóstureyðingar. Hann er ekki einn. Álitshnekkir Bandaríkjanna að undanförnu er áþreifanlegur í alþjóðlegum staðtölum. Banda- ríkin hafa verið að hrapa niður eftir ýmsum alþjóðalistum, þar sem landið trónaði löngum í efstu sætunum. Tökum lýðræði fyrst. Stjórnmálafræðingar fylgjast með þróun lýðræðis um heiminn og reyna eftir föngum að slá máli á það og raða síðan löndum heimsins eftir ræktinni, sem þau leggja við lýðræðislega stjórnarhætti. Bandaríkin hafa sigið niður eftir lýðræðislistan- um síðustu ár og eru nú í 15. sæti. Þessi hnignun stafar m.a. af því, að Bandaríkjastjórn hefur með ýmsu móti skert borgara- réttindi síðan 11. september 2001. Bandaríkjamenn voru jafn- an efstir stórþjóða á lýðræðis- listanum, en Bretar eru nú búnir að skjóta þeim aftur fyrir sig. Norðurlönd eru efst á blaði eins og jafnan fyrr. Önnur skýring á afturför Bandaríkjanna er sú, að þar hafa hlutdrægir fjölmiðlar færzt í aukana ñ ekki aðeins forstokkuð flokksblöð, heldur einnig útv- arps- og sjónvarpsstöðvar af sama tagi. Athuganir sýna, að flokksmiðlar hafa náð að spilla skoðanamyndun í landinu með því að dreifa röngum upplýsing- um, t.d. um meinta aðild Íraka að hryðjuverkunum í Bandaríkjun- um 11. september 2001. Ef við skoðum listann yfir frjálsa fjöl- miðla, þá eru Bandaríkin þar í 17. sæti, að baki Kosturíku í Mið- Ameríku, Gvæjönu í Suður-Ame- ríku og Barbadoseyja í Karíba- hafi, svo að þrjú dæmi séu nefnd ñ og standa nú jafnfætis Eist- landi, sem er tiltölulega nýslopp- ið undan stjórn kommúnista. Á listanum yfir spillingu eru Bandaríkin nú í 25. sæti. Fram- ferði bandarískra stjórnvalda og fyrirtækja í ýmsum þróunar- löndum, t.d. í olíuríkjunum í Austurlöndum nær og í Afríku, hefur stuðlað að því að draga landið niður. Þessir listar eru til sýnis á vefsetrinu www.worldau- dit.org. Í Austurlöndum nær hefur Bandaríkjastjórn ræktað vin- fengi við nokkrar harðsvíraðar einræðisstjórnir, t.d. í Sádi- Arabíu og Pakistan, og Bandarík- in njóta e.t.v. hvergi minna álits meðal almennings en einmitt þar. Það er að vísu ekki ný bóla, að Bandaríkin beri einræðis- stjórnir á höndum sér, eins og t.d. stjórn Móbútus í Kongó um langt árabil. En Bandaríkjamenn höfðu það sér til málsbóta, að friðurinn í Kongó slitnaði í sund- ur, þegar Móbútú féll frá 1997, og þrjár milljónir manna eru taldar hafa týnt lífi í borgara- stríðinu þar. Móbútú var sann- kallaður megaþjófur, en hann hélt landinu saman í sæmilegum friði. Þannig virðist Bandaríkja- stjórn hugsa stuðning sinn við einræðisstjórnirnar í Sádi- Arabíu og Pakistan: ef þær hryn- ja, gætu ofsatrúarmenn náð völdum og komizt yfir kjarna- vopn. Þetta er þó einber fyrir- sláttur. Bandaríkin studdu stjórnir þessara landa og aðrar með ráðum og dáð löngu áður en múslímskir ofsatrúarmenn byrj- uðu að láta á sér kræla. Hitt virð- ist líklegra, að óvildin, sem Bandaríkjamenn hafa bakað sér og bandamönnum sínum í Aust- urlöndum nær, hafi þjappað ofsatrúarliðinu saman og ýtt undir hryðjuverk. ■ H ætt er við að þyrmt hafi yfir marga foreldra eftir miðj-an dag í gær, þegar þær fregnir bárust frá húsakynn-um sáttasemjara í Karphúsinu að samningaviðræðum í kennaradeilunni hefði verið frestað um hálfan mánuð. Margir höfðu bundið vonir við að nú myndu samninganefndir kennara og sveitarfélaga byrja á nýjum grunni, en svo reyndist ekki vera. Reyndar kom í ljós strax á mánudagskvöldið, eftir að úr- slit í atkvæðagreiðslu um miðlunartillögu sáttasemjara voru orðin ljós, að deilendur höfðu ekkert breytt um afstöðu til mik- ilvægra þátta í deilunni og héldu sínum sjónarmiðum stíft fram Kennaradeilan er því enn og aftur í illleysanlegum hnút, en það virðist ljóst að bæta þarf kjör kennara, hverjar svo sem af- leiðingarnar í þjóðfélaginu verða. Það verður að ganga hratt og ákveðið til verks við lausn þessarar deilu. Það gengur ekki að börnin verði áfram heima við þessar kringumstæður. Þau eru þegar búin að vera nógu lengi í reiðileysi mörg hver, og búin að líða allt of mikið fyrir þessa hörðu deilu. Yfirvöldum, bæði sveitarstjórnum og ríkisvaldinu, er vandi á höndum varðandi lausn deilunnar. Miðlunartillaga sáttasemj- ara náði ekki fram að ganga svo sem kunnugt er, og hlýtur það út af fyrir sig að vera áfall fyrir hann. En deilan er enn á hans borði í Karphúsinu, og ljóst að enn bíður hans erfitt verkefni. Hæpið er að hann leggi fram aðra miðlunartillögu, og þá eru fá ráð eftir. Lagasetning hefur oft verið nefnd á þessum vikum sem verkfallið hefur staðið, en síðast á miðvikudag sagði Hall- dór Ásgrímsson forsætisráðherra að slíkt hefði ekki verið rætt á síðasta ríkisstjórnarfundi. Hann benti einnig á að lagasetning væri neyðarúrræði og hefði ekki gefist vel til frambúðar. En nú verður ríkisstjórnin að vinna hratt og binda enda á þessa deilu. Börnin og fjölskyldurnar í landinu krefjast þess að venjulegt skólastarf hefjist sem allra fyrst, annað gengur ekki. Fyrir utan ágreining um sjálf launin virðist sem vinnutími kennara sé annar helsti þröskuldurinn sem strandar á í þessum samningum. Launanefnd sveitarfélaganna vill að vinnutími kennara sé með svipuðum hætti og hjá öðrum starfsmönnum sveitarfélaga og skólastjórnendur ráðstafi tíma kennara eftir verkefnum. Samninganefnd kennara hefur hins vegar viljað að gengið yrði frá starfstíma kennara í miðlægum samningum, sem skólastjórnendur færu svo eftir. Þá hafa kennarar lagt áhersu á að laun væru starfsaldurstengd. Þetta er mjög einföld- uð mynd af helstu ágreiningsefnum, en auk þessara deilumála eru fjölmörg önnur uppi á borðinu. Kennarar hafa margsinnis bent á það í þesari deilu, að marg- ar viðmiðunarstéttir hafa fengið verulegar kjarabætur á meðan kennarar hafa staðið í stað. Þetta er eflaust rétt og þarf að taka mið af því. Þá er líka rétt að hafa í huga að starf kennara hefur breyst töluvert á síðustu árum. Þeir bera meiri ábyrgð á upp- eldi barna en áður fyrr. ■ 11. nóvember 2004 FIMMTUDAGUR SJÓNARMIÐ KÁRI JÓNASSON Nú þarf að bregðast fljótt og ákveðið við og leysa kennaradeiluna svo skólastarf geti hafist á ný. Hvers eiga börnin að gjalda? FRÁ DEGI TIL DAGS Í DAG ÁLIT BANDARÍKJANNA Í AUGUM UMHEIMSINS ÞORVALDUR GYLFASON Álitshnekkir Banda- ríkjanna að undan- förnu er áþreifanlegur í al- þjóðlegum staðtölum. ,, 100% 410 4000 | landsbanki.is Banki allra landsmanna Íbúðalán Kynntu þér kostina við íbúðalán Landsbankans. Fáðu ráðgjöf hjá sérfræðingum okkar og veldu leiðina sem hentar þér best. Hafðu samband í síma 410 4000 eða á fasteignathjonusta@landsbanki.is Augu umheimsins Tuttugu milljónir? Varla er Þórólfur Árnason borgarstjóri búinn að segja af sér fyrr en farið er að deila um það hvort bak við tjöldin hafi verið gerður við hann myndarleg- ur starfslokasamningur. Það tíðkast víst í öllum betri fyrirtækum lands- ins við svipaðar aðstæður þótt ekki fari alltaf hátt. Í DV í gær er haft er eftir oddvita sjálfstæð- ismanna í borgar- stjórn, Vil- hjálmi Þ. Vilhjálmssyni, að Þórólfur muni líklega fá greidd laun út kjörtímabilið, sam- tals um tuttugu milljónir króna. Sann- arlega viðkunnanlegri upphæð og drýgri til framfærslu en atvinnuleysis- bæturnar! Borið til baka Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarfull- trúi ber þetta hins vegar til baka og minnir á að sjálf hafi hún engan slík- an samning fengið þegar hún var ne- ydd til að hætta í embætti fyrir tveim- ur árum. Er málinu þá ekki lokið? Varla getur önnur regla gilt um karla en konur þegar um starfslokasamn- inga er að ræða? Hvað skyldi reynslan segja okkur um það? Ekki spennandi djobb Afsögn Þórólfs varð Agli Helgasyni til- efni til hugleiðinga um borgarastjóra- embættið og borgarfulltrúana á Skoð- anasíðunni á Vísi í gær: „Annars getur borgarstjóraembættið í Reykjavík ekki talist ýkja eftirsóknarvert djobb, alla- vega ekki nú um stundir“ skrifar Egill. „Maður myndi varla stökkva úr góðu starfi í atvinnulífinu yfir í þetta – ekki nema maður hefði alið með sér ófull- nægða drauma um frama í pólitíkinni. Starfinu fylgir mikil óvissa, það er lík- lega mjög takmarkað hverju maður fengi að ráða, vinnufélagarnir eru ekki endilega mjög skemmtilegir og það er ekki líklegt að mikils stuðnings sé að vænta frá þeim, starfstíminn er kannski ekki nema eitt og hálft ár“. gm@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: Frétt ehf. RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRAR: Sigurjón M. Egilsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FULLTRÚI RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG DREIFING: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is SETNING OG UMBROT: Frétt ehf. PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 SKOÐANIR OG UMRÆÐUR Á VISIR.IS

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.