Fréttablaðið - 11.11.2004, Qupperneq 36
6 11. nóvember 2004 FIMMTUDAGUR
Hjálpa þér að halda öllu í skorðum í skúffum.Einning sjálflímandi filt til
að klæða skúffur og filt með verjandi efni svo ekki falli á silfur og silf-
urplett.Við eigum líka fægilög,fægiklúta og ídýfulög til að hreinsa.
SENDUM Í PÓSTKRÖFU.
SJÁLFLÍMANDI HNÍFAPARASKORÐUR
Gullkistan - Frakkastíg 10 - Sími: 551-3160.
Silfur skart
NÓVEMBERTILBOÐ
10% Afsláttur af hand- og fótsnyrtingu.
15% Afsláttur af fót- og handsnyrtivörum.
Hrund verslun og snyrtistofa.
Grænatún 1 - 200 Kópavogi - sími: 544-4025
Útsölustaðir
Lyf og heilsa um allt land, Hagkaup Smáralind, Garðsapótek, Hringbrautarapótek, Laugarnesapótek, Lyfjaval,
Rimaapótek, Apótek Ólafsvíkur, Apótek Vestmannaeyja, Dalakjör, Kaupfélag Skagfirðinga og Siglufjarðarapótek.
fyrir stráka
og stelpur
Heildarlausn fyrir hárið
„Íslenskir þjóðbúningar eru allt of dýrir. Ég tel að það
verði að hanna nýjan, fallegan búning sem auðveld-
ara verði fyrir nútímakonur að eignast. Þjóðbúning-
arnir hafa þróast í gegnum aldirnar og við eigum
alveg rétt á því að koma með eitthvað nýtt á 21. öld-
inni.î Þetta segir Vigdís Ágústsdóttir, sem vill láta
titla sig „húsmóður í Vesturbænum“ og það á líka al-
veg ágætlega við. Hún óttast að notkun íslenska bún-
ingsins falli endanlega niður ef áfram verði fylgt
þeirri stefnu að engu megi breyta í sambandi við
hann og leggur til að efnt verði til hugmyndasam-
keppni um nýjan búning sem taki mið af hefðinni.
„Mér finnst það ótækt að það skuli kosta hátt í millj-
ón að koma sér upp íslenskum búningi og að það þurfi
að sérsauma hann að öllu leyti, meira og minna í
höndunum,“ segir hún og sér fyrir sér að auðvelt sé
að fjöldaframleiða skyrtur og svuntur og selja í hefð-
bundnum númerum. Samt er hún ekki að leggja til að
eldri búningum verði lagt eða vinnubrögð við þá lögð
niður, heldur að nýr búningur komi upp að hlið þeirra
og ber slíkt saman við viðbygginguna við hið forna
Alþingishús.
Þegar Vigdís var að alast upp
hér á höfuðborgarsvæðinu segir
hún það einkum hafa verið utan-
bæjarkonur sem hún sá á íslensk-
um búningum en borgarfrúrnar
hafi frekar haldið sig við nýjustu
kjólatísku. „Það var vinnukona úr
sveit hjá foreldrum mínum sem
átti bæði peysuföt og upphlut og
mér fannst hún alltaf fínust af öll-
um þegar fólk var komið í spariföt-
in. Henni þótti sjálfri meira til
peysufatanna koma. Upphluturinn
var vinnufatnaður kvenna fyrrum
og ég veit ekki hvenær þær breyt-
ingar urðu á verðgildi hans sem
orðið hafa. Nú er hann orðinn
dýrastur af öllu því honum fylgir
svo mikið skart,“ segir Vigdís.
Hún er á þeirri skoðun að óhætt
sé að breyta aðeins til og sleppa
því einstaka sinnum að setja upp
skotthúfuna ef hárið er fallegt og
Vigdís Ágústsdóttir:
Vill hugmyndasamkeppni
um nýjan íslenskan búning
Hólkurinn hennar
Vigdísar var sér-
smíðaður fyrir hana
og hún lét skreyta
hann með íslensk-
um blómum.
Vigdís fann þjóðbúningasilfur í kistu sem formæður hennar
höfðu átt og saumaði sér búning á námskeiði hjá Heimilisiðn-
aðarskólanum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
Þrjátíu og fjórir íslenskir gullsmiðir eiga verk á
sýningunni Ný íslensk gullsmíði sem opnuð
verður á laugardag í Listasafni Kópavogs, Gerð-
arsafni. Gullsmiðirnir hafa smíðað gripina sér-
staklega fyrir sýninguna að sögn Ásu
Gunnlaugsdóttur, formanns Félags íslenskra gull-
smiða. „Sýningin er mjög fjölbreytt enda er mik-
ill aldursmunur á fólkinu sem að henni stendur,
þar er allt frá nýútskrifuðu fólki upp í gamla jaxla
eins og Jens Guðjónsson sem er á níræðisaldri.
Áherslurnar eru því auðvitað mismunandi,“ segir
hún. Ekki er það þó svo að þeir elstu séu endi-
lega með elstu hugmyndirnar því yngra fólkið
sækir líka í sjóði fortíðar þegar það hannar sína
vöru. Sem dæmi um það nefnir Ása víravirki eftir
ungan gullsmið, Helgu Einarsdóttur, sem bland-
ar þar saman gömlum hefðum og nýjum. Mikil
áhersla er á alla fylgihluti með fatnaði í dag og
þar með skartgripi og Ása kveðst ánægð með ís-
lenska neytendur. „Íslenskar konur eru óhrædd-
ar við að nota sýnilegt skart og tileinka sér
nýjungar í því eins og öðru,“ segir hún. Með
sýningunni í Gerðarsafni fagnar Félag íslenskra
gullsmiða 80 ára afmæli sínu og það verður
Dorrit Moussaieff forsetafrú sem opnar hana.
Ný íslensk gullsmíði:
Gamlar hefðir og nýjar
Hálsmen eftir
Jens Guðjónsson.
Víravirkisarmband eftir Helgu
Einarsdóttur.
henni finnst líka tilbreyting að vera stundum svuntu-
laus. „Ég er samt á móti því að nota bara upphlutinn
sjálfan við einhvern kjól. Það finnst mér of langt
gengið,“ segir hún. Bendir samt á að þróun íslenska
búningsins sé eðlileg og sjálfsögð. „Við verðum að
laga hann að nútímanum og gera hann áhugaverðan
og aðgengilegan fyrir ungu stúlkurnar,“ segir hún.