Fréttablaðið - 11.11.2004, Side 70

Fréttablaðið - 11.11.2004, Side 70
Gamlar stjörnur rísa Markaðurinn er harður húsbóndi. Því hafa fyrirtæki eins og Össur og Marel fengið að kynnast. Vænt- ingar til þessara fyrirtækja hafa á köflum verið miklar og gengið hátt. Dálæti markaðarins hefur hins vegar snúist hratt við mót- læti. Þannig átti Össur erfitt ár í fyrra með málaferlum og uppsögn stjórnenda í Bandaríkjunum. Stjarna Marels skein skærast um aldamótin og fór gengi félagsins yfir 50 krónur á hlut. Erfiðleikar í rekstri samhliða minnkandi trú markaðarins almennt á framtíðina urðu til þess að gengið fór hratt lækkandi og fór gengið niður undir þrettán. Marel á marga að- dáendur sem gleðjast þessa dagana yfir því að ár- angur fyrirtækisins hefur verið umfram væntingar að undanförnu. Síðasta uppgjör Marels sýnir góð- an rekstur sem greiningardeildir bankanna fagna. Tækifæri í vonbrigðum Actavis tók við af Össuri og Marel sem uppáhald markaðarins. Gríðarleg stemning var í kringum fyrirtækið í fyrra og í byrjun þessa árs. Sem dæmi má nefna að þegar félagið kynnti stórútflutning á lyfi með risaþotum hækkaði verðmæti félagsins um hátt í þrefalt verðmæti út- flutningsins. Gleði markaðarins yfir árangri Actavis var slík að forsvars- mönnum þess var um og ó. Hátt gengi bréfa félagsins var hugsan- leg ógnun við skráningu þess í London. Þar eru fjárfestar hófstilltari í mati sínu á fyrirtæki en hér á landi. Síðustu mán- uði hefur gengi Actavis staðið að mestu í stað og verðlagning þess nær því að vera í takt við mat sérfræðinga. Uppgjör félagsins nú olli vonbrigðum og lækkaði gengi fé- lagsins. Fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokk- uð gott og hugsanlegt að hófstilltara gengi auð- veldi félaginu skráningu í London eftir áramót. MESTA HÆKKUN ICEX-15 3.459 KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ] Fjöldi viðskipta: 134 Velta: 643 milljónir -1,41% MESTA LÆKKUN MARKAÐSFRÉTTIR... Neysluverðsvísitalan hækkaði um 0,21 prósent frá október til nóvember. Hún stendur nú í 237,9 stigum. Tólf mánaða hækk- unin er 3,8 prósent. Það er fyrst og fremst húsnæði sem hefur hækkað í verði undan- farinn mánuð. Vísitala neyslu- verðs stendur í stað ef ekki er tekið tillit til hækkunar á húsnæð- isverði. Olíuverð fer nú hratt lækkandi á mörkuðum. Verð á mörkuðum í Bandaríkjunum fór nærri 47 döl- um og hefur verðið ekki verið lægra í sjö vikur. Gengi Bandaríkjadals gagn- vart evru hefur aldrei verið lægra en nú. Í gær fengust 1,3 dalir fyrir hverja evru. 34 11. nóvember 2004 FIMMTUDAGUR Hallur Magnússon segir Íbúðalánasjóð vel búinn undir ennþá meiri upp- greiðslur húsnæðislána. Hann segir þróunina vera í samræmi við það sem búist hafi verið við en ívið hrað- ari. Guðmundur Magnús- son hagfræðiprófessor segir mikilvægast að vaxtafrelsið nái nú til einstaklinga. Íbúðalánasjóður getur mætt mun meiri uppgreiðslum lána en þegar hefur orðið. Hallur Magnússon hjá Íbúðalánasjóði segir að sjóð- urinn hafi búist við miklum upp- greiðslum og gert ráð fyrir þeim þegar skipt var úr húsbréfakerf- inu í húsnæðislánakerfi síðasta sumar. „Í skiptunum í vor gerðum við ráð fyrir verulegum uppgreiðsl- um. Annars vegar skildum við eftir meira en hundrað milljarða í húsbréfum og hins vegar var í skiptunum sjálfum ákveðið skipti- álag sem tryggði það að við gátum mætt miklum uppgreiðslum,“ segir Hallur. Hann segir að þær uppgreiðsl- ur sem nú hafi átt sér stað séu ein- ungis mjög lítill hluti af þeirri upphæð sem Íbúðalánasjóður hafi gert ráð fyrir að þurfa að mæta á næstu misserum. Hallur segir þróunina hins vegar hafa verið hraðari en Íbúðalánasjóður hafi búist við en að öðru leyti sé ekkert óvænt í spilunum. „Við lögðum upp með það í þessum breytingum að það væri eðlilegt að markaðshlutdeild Íbúðalánasjóðs færi minnkandi vegna þess að hún var mjög há. Og það var í raun óeðlilegt að bankarnir væru ekki inni á þess- um markaði,“ segir hann. Hann segist ekki líta svo á að hundrað prósenta lán bankanna breyti miklu um stöðu Íbúðalána- sjóðs enda sé sjóðurinn ekki í samkeppni við bankana. „Við höldum okkar striki. Við erum að bjóða lögum samkvæmt ákveðna grunnvöru, það eru lán til allra óháð búsetu og efnahag á lægstu mögulegu vöxtum sem við getum boðið. Við höfum fjármagnað það með sölu á íbúðabréfum frá 1. júlí og lagt ofan á það ákveðið vaxta- álag sem er skýrt og klárt,“ segir hann. Hann segir það hins vegar hafa komið sér á óvart að bankarnir hafi farið svo geyst í að bjóða íbúðalán fyrir allt að hundrað pró- sent af markaðsvirði. „Tvær ástæður eru fyrir því. Í fyrsta lagi voru það stjórnarformenn og bankastjórar þessara sömu banka sem vöruðu mjög við níutíu pró- senta lánunum vegna þeirrar áhættu sem þeir töldu fylgja því. Hins vegar kemur það okkur á óvart að þeir fari í þessi lán svo skömmu eftir að Alþjóðagjald- eyrissjóðurinn og Fjármálaeftir- litið hafa varað bankana við því að fara svo geyst,“ segir hann. Guðmundur Magnússon, próf- essor í hagfræði, telur hins vegar að ekki þurfi að hafa sérstakar áhyggj- ur af þessum nýju lánamöguleikum. „Það er auðvitað hætt við því að ein- hverjir rasi um ráð fram og reisi sér hurðarás um öxl,“ segir hann. Hins vegar telur hann ekki hægt að koma í veg fyrir það. „Það er ekki hægt að taka ráðin af fólki eða bönkunum,“ segir hann. Guðmundur bendir einnig á að þótt mikil lækkun hafi orðið á hús- næðisvöxtum hér á landi séum við enn að greiða töluvert hærri vexti en víðast í nágrannalöndunum. Þetta er meðal annars vegna þess kostnaðar sem felst í að halda úti eigin gjaldmiðli. „En aðalmálið er að vaxtafrelsið er í fyrsta sinn að ná til einstaklinganna,“ segir hann. thkjart@frettabladid.is vidskipti@frettabladid.is Peningaskápurinn… Actavis 42,00 -8,10% ... Bakkavör 24,70 -1,59% ... Burðarás 12,65 -1,17% ... Atorka 5,40 +0,93 ... HB Grandi 8,00 -1,23% ... Íslandsbanki 11,10 - ... KB banki 464,00 - ... Landsbankinn 11,75 -2,89% ... Marel 55,10 +1,10% ... Medcare 6,15 +1,65% ... Og fjarskipti 3,46 - ... Opin kerfi 27,70 - ... Samherji 13,10 - 0,76% ... Straumur 9,05 -1,09% ... Össur 84,00 - Sökum umfangs Fréttablaðsins í dag eru tölur af markaði frá kl. 15 í gær. Nýjustu upplýsingar á www.visir.is Íbúðalánasjóður ekki í samkeppni við bankana Medcare 1,65% Marel 1,10% Atorka 0,93% Actavis -8,10% Kögun -5,74% Landsbankinn -2,89% HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: nánar á visir.is Vodafone hóf í gær þjónustu fyrir þriðju kynslóð farsíma í Evrópu. Fyrirtækið hefur átt í rekstrarvanda síðustu ár eftir að hafa keypt réttindi til rekstrar þriðju kynslóðar farsímaþjón- ustu á fjórtán milljarða punda (tæplega 1.800 milljarða króna). Með þriðju kynslóð farsíma er hægt að skoða sjónvarps- myndir, senda vídeóbúta og vafra á netinu með meiri hraða en í núverandi kerfi. Notendur Vodafone í fjórtán löndum Evrópu geta nú nýtt sér þriðju kynslóð farsíma en félag- ið keppir einnig á Japansmark- aði þar sem tækniþróun er kom- in lengst og almenningur er hvað móttækilegastur fyrir breyting- um. Forstjóri Vodafone segir að þótt nýja þjónustan muni auka tekjur félagsins muni hún ekki hafa áhrif á hagnað enn um sinn enda flestir sérfræðingar sam- mála um að verðið sem greitt var fyrir rekstrarleyfin hafi verið allt of hátt. Enn hefur ekki verið ákveðið hvernig leyfum fyrir þriðju kyn- slóð farsíma verður úthlutað á Íslandi en á Alþingi liggur fyrir frumvarp um hvernig úthlutun- inni verður háttað. - þk Til að mæta óskum viðskiptavina hefur RV ákveðið að hafa einnig opið á laugardögum í verslun sinni að Réttarhálsi 2. Núna er líka opið á laugardögum lí i l Mán udag a til föstu daga frá k l. 8:0 0 til 18:00 Laug arda ga fr á kl. 10 :00 t il 14: 00 Nýr o pnun artím i í ver slun RV: Þriðja kynslóð komin MARGFALDAÐIR MÖGULEIKAR Með þriðju kynslóð farsíma er hægt að vafra á netinu með miklum hraða, horfa á sjón- varpssendingar og margt fleira. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H AR I Vodafone hefur loks hafið þjónustu fyrir þriðju kyn- slóðar farsíma í Evrópu. Tæknin stóreykur notagildi farsíma. Fastlega er búist við því að Seðla- banki Bandaríkjanna haldi áfram að hækka vexti og að næst þegar stjórn bankans hittist verði vextir hækkaðir um 0,25 prósentustig. Nú eru stýrivextir í Bandaríkjun- um 1,75 prósent. Nýjustu tölur um sterkari stöðu á vinnumarkaði auka líkur á því að bankinn hækki vexti en við- varandi atvinnuleysi hefur undan- farið verið helsta áhyggjuefni efnahagssérfræðinga í Bandaríkj- unum. Þá hefur orðið bati í utanríkis- verslun Bandaríkjanna og við- skiptahallinn fer minnkandi enda verða viðskipti við Bandaríkin sí- fellt hagstæðari þar sem gengi Bandaríkjadals er mjög lágt um þessar mundir. ■ Líkur á vaxtahækkun HUGSANDI SEÐLABANKASTJÓRI Alan Greenspan mun að líkindum tilkynna um hækkun stýrivaxta í Bandaríkjunum innan fárra vikna. BYGGT Á HVERJU HORNI Nýir lánamöguleikar hafa stóraukið tækifæri fólks til að kaupa stærri og dýrari eignir. Íbúðalánasjóður er ekki í samkeppni við bankana en heldur sig við að lána fólki sem kaupir hóflegt húsnæði. UNDRAST 100 PRÓSENTA LÁNIN Hallur Magnússon hjá Íbúðalánasjóði er undrandi á að bankarnir bjóði nú svo hátt veðsetningarhlutfall. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.