Fréttablaðið - 11.11.2004, Side 76
40 11. nóvember 2004 FIMMTUDAGUR
KÖRFUBOLTI Keflavík vann portú-
galska liðið Madeira með 13 stiga
mun, 114–101, í Bikarkeppni Evr-
ópu í körfuknattleik í gær. Mikil
eftirvænting var eftir leiknum,
hvort að Keflvíkingar gætu fylgt
eftir glæsilegum sigri á franska
liðinu Reims í síðustu viku. Mad-
eiraliðið var ekki af verri endanum
og þar var m.a. að finna Bobby Joe
Hatton úr landsliði Púerto Ríkó
sem vann bandaríska Draumaliðið
á Ólympíuleikunum í Aþenu.
Jafnræði var með liðunum í
upphafi leiks og þau skiptust á að
hafa forystu. Keflavík skipti fljót-
lega yfir í pressu- og svæðisvörn –
rétt eins og í leiknum við Reimsj
og náði fljótlega yfirhöndinni. Þá
voru skiptingar heimamanna mjög
örar sem virtist rugla gestina í
ríminu. Erfitt fyrir andstæðinginn
að þurfa stöðugt að venjast nýjum
varnarmanni.
Öflug pressuvörn Keflvíkinga
gerði það að verkum að mikill tími
fór af skotklukkunni og því lítill
tími til stefnu fyrir Madeira að
stilla upp og vanda til verka sínum
sóknaraðgerðum.
Um miðjan annan fjórðung
komust Keflvíkingar í 20 stiga
mun og var hrein unun að fylgast
með þeim á þessum leikkafla.
Sendingar manna á milli voru ör-
uggar, allir sem einn lásu leikinn
vel og ekkert hálfkák á mönnum.
Madeira virtist heillum horfið,
slík var mótspyrna Keflavíkur.
Staðan í hálfleik var 66-48 og
stefndi í aðra evrópska slátrun að
hætti Keflvíkinga.
Eins frábærlega og Keflavíkur-
liðið lék í öðrum fjórðung, þá var
eins og heimamenn löbbuðu á vegg
í byrjun þriðja leikhluta þar sem
leikmenn Madeira fóru gjörsam-
lega hamförum. Þar voru Bobby
Joe Hatton, sem hafði vart sést
fram að þessu, og Mario Gil Fern-
andes, fremstir í broddi fylkingar.
Madeira vann fjórðunginn 31-13
og miðað við flugið sem gestirnir
komust á, þá leit ekki út fyrir að
Keflvíkingar myndu stöðva áhlaup
þeirra.
Anthony Glover fékk sína
fjórðu villu snemma í fjórðungn-
um sem var slæmt mál fyrir Kefla-
vík. Í stöðunni 79-79 ærðist Nick
Bradford og öskraði á samherjun-
um, að nú þyrfti að stíga út. Þá
vöknuðu heimamenn til lífsins og
skoruðu fimm síðustu stig leikhlut-
ans. Bradford setti tóninn í byrjun
lokafjórðungsins með troðslu og
Keflavík náði níu stiga forystu. Þá
kom ótrúleg sjö stiga sókn frá
Madeira þar sem Seco Camará
skoraði þriggja stiga körfu og fékk
víti að auki. Í kjölfarið var dæmt
tæknivíti á bekk Keflvíkinga fyrir
kjaftbrúk og hitti Camará úr öðru
vítinu. Madeira fékk að auki inn-
kast og skoraði, tveggja stiga
munur.
Bradford var drjúgur á
lokamínútunum, stal tveimur bolt-
um á mikilvægum augnablikum og
skoraði nokkrar körfur. Þá var
Anthony Glover traustur og lagði
sitt af mörkum.
Við erum ekkert hættir
„Fyrri hálfleikur var góður þar
sem við náuðm góðum tökum á
leiknum. Við töpuðum þriðja fjórð-
ungnum illa en náðum
að halda andlitinu í
síðasta leikhluta.
Við erum ekkert
hættir. Við ætl-
um okkur að
vinna þennan
titil. Hvort
sem það
verður í ár
eða eftir
eitt eða
tvö ár.
Þetta er á
m j ö g
g ó ð r i
leið,“ sagði
Magnús Þór
G u n n a r s s o n
sem lék mjög vel
í liði Keflavíkur í
gær og skoraði 24
stig.
„Það er gott að vera
kominn aftur. Við vorum
ekki jafn grimmir í þriðja
fjórðung og í fyrri hálf-
leik. Sigurður þjálfari
sagði okkur að hafa ekki
áhyggjur af stigatöflunni
heldur kýla bara á okkar leik
og við reyndum að gera það
og það gekk eftir. Fólk veit
ekki hvað íslenskur körfu-
bolti er góður og því er til-
finningin góð að spila í
þessari keppni og vera full-
trúar Íslands,“ sagði Nick
Bradford sem skoraði 23 stig,
tók 13 fráköst og gaf 6
stoðsendingar í leiknum.
smari@frettabladid.is
Ætlum að vinna titilinn
Keflvíkingar hafa leikið stórvel í Bikarkeppni Evrópu í körfuknattleik það sem af er. Í síðustu
viku lenti franska liðið Reims í þeim og hafði ekki erindi sem erfiði, en í gær var það Madeira frá
Portúgal sem var í heimsókn í Sláturhúsinu í Keflavík.
LEIKIR GÆRDAGSINS
!"" # $ % & ' $$ () "!""
$
*!%!% + !
$ $
,$+ " !"" % - &$+
" +$ ('$$$ $ .'
+ + &$+ " /
& '$$ &$
$ ' &
! &
&
0!
"" $ 10! ' $ 0 2 3-4
'2 ' 3-4
$$
& &3( " + 5
$$$ 67
! $ $& 8 $
!"" 5 9 '$$
6
$ ' "" ' $$ : & $
;0! + %0 !"" 6(
( $
'$
6
!"" (& + $
<$
& $ +
!
,
=$$ !' $
$ + $,("% $ $ $ $!'
<
' !""
&% $ =$$ () < () >+ 5$$" $
? + ()
"!""
$$
,(&
$ +
(
@7
"% %%A $$
!' B ( ,(
06 $'
'
"%
&!% =)$
"
++ '
+ $
&$ 0 . $ ' >+ 5$
-C-7 -C-
D)D-C-@D)D-C-@-C-D -C-E -C-F
Bikarkeppni Evrópu
KEFLAVÍK-MADEIRA 114–101
Stig Keflavíkur: Magnús Þór Gunnarsson 24,
Nick Bradford 23 (13 frák., 6 stoðs., 4 stolnir),
Gunnar Einarsson 22 (20 í fyrri hálfleik), Anthony
Glover 22 (12 fráköst), Jón Nordal Hafsteinsson 9
(5 stoðs.)., Arnar Freyr Jónsson 7 (6 stoðs.),
Elentínus Margeirsson 5, Sverrir Þór Sverrisson 4.
Enski deildarbikarinn
NEWCASTLE-CHELSEA 0–2
0–1 Eiður Smári Guðjohnsen (100.), 0–2 Robben
(112.)
Eiður Smári kom inn á sem varamaður á 96.
mínútu leiksins.
MAN. UTD.–CRYSTAL PALACE 2–0
1–0 Saha (22.), 2–0 Richardson (39.).
LIVERPOOL–MIDDLESBROUGH 2–0
1–0 Mellor (83.), 2–0 Mellor (89.).
NOTT. FOREST–FULHAM 2–4
1–0 King (71.), 1–1 Radzinski (86.), 1–2
Radzinski (93.), 1–3 McBride (101.), 2–3 Reid
(104.), 2–4 Cole (119.)
Ítalska A-deildin
BRESCIA–AC MILAN 0–0
CHIEVO–ATALANTA 1–0
1–0 Tiribocchi (74.)
INTERNATIONALE–BOLOGNA 2–2
1–0 Mihajlovic (39.), 1–1 Petruzzi (49.), 2–1
Adriano (72.), 2–2 Bellucci (87.).
JUVENTUS–FIORENTINA 1–0
1–0 Olivera (72.).
LIVORNO–LAZIO 1–0
1–0 Lucarelli (42.).
PARMA–REGGINA 1–0
1–0 Morfeo (78.)
ROMA–UDINESE 0–3
0–1 Iaquinta (45.), 0–2 Pizaro, víti (60.), 0–3
Iaquinta (82.).
SAMPDORIA–CAGLIARI 0–0
SIENA–LECCE 1–1
1–0 Pecchia (29.), 1–1 Cassetti (71.).
STAÐAN
JUVENTUS 11 9 1 1 22–4 28
AC MILAN 11 6 4 1 16–7 22
UDINESE 11 5 3 3 17–11 18
LEECE 11 4 4 3 24–20 16
CHIEVO 11 4 4 3 8–10 15
INTER 11 2 9 0 20–17 15
MESSINA 11 4 3 3 16–16 15
KOMINN AFTUR Nick Bradford átti
frábæran leik með Keflavík í
114–101 sigri á Madeira í gær.