Tíminn - 20.09.1973, Blaðsíða 9

Tíminn - 20.09.1973, Blaðsíða 9
•??-JinsJqsg .01' ju#abuiniinirti Fimmtudagur 20. september 1973 MVJIMÍT TÍMINN 9 Það var Snæbjörn Ásgeirsson, Tráfarandi formaður Freys, sem afhenti gjöfina, en við henni tóku Arnþór Helgason hjá Blindra- félaginu og Þórsteinn Bjarnason hjá Blindravinafélaginu. -gj- Electrolux DANSKENNARASAMBAND ISLANDS AÁA INNRITUN --------------------j SIMA 83260 KL 10-12 OG KL 1-7 Borgfirðingar! Innritun og afhending skírteina laugardaginn 22. september kl. 13-15 í samkomuhúsinu í Borgarnesi. KIRKJA VÍGÐ SIÐAST LIÐINN sunnudag var vígð ný kirkja aðBreiðabólsstað á Skógarströnd. Hin nýja kirkja er reist á grunni gömlu kirkjunnar sem þar var áður, en hún brann eins og menn muna. Hin nýja kirkja er úr timbri og öll hin vandaðasta. Biskupinn yfir tslandi, hr. Sigurbjörn Einarsson, sá um vigsluna og séra Hjalti Guðmundsson, sóknarprestur i Stykkishólmi aðstoðaði. A eftir vigslunni fór fram skirn og ferm- ing. Fjölmenni var við athöfnina. — hs — Bylting fyrir blinda Ritsjáin gerbreytir möguleikum blindra til lestrar Glava glerullar- hólkar Hlýindinaf góðri hitaeinangrun vara lengur en énægjan af lagu verði Nýja kirkjan að Breiðabólsstaö ( ljósm: Ræring Cecilsson) RITSJAIN mun gerbylta öllum möguleikum blindra til lestrar og sérstaklega mun hún auka á sjáifstæði hinna blindu i öllu námi. Hingað til hafa blindir cinungis getað lesið bækur, sem sérstaklega eru gerðar með blindraletri. Slíkt er ákaflega dýrt i framkvæmd, og hafa blind- ir því átt úr takmörkuðum bóka- kosti að velja. Þeir hafa til þessa orðið að leita á náðir annarra, ef þeir hafa viljað kynnast efni bóka, sem ekki eru til með blindraletri, en með tilkomu þessa tækis verður þeim nú kleift að lesa venjulegar bækur. Ég vil þvi þakka Lionsklúbbnum Frey þessa höfðinglegu gjöf og þann mikla skilning á málefnum blindra, sem hún ber vott um. Eitthvað á þessa leið fórust Arnþóri Helgasyni orð, þegar hann þakkaði liðsmönnum Lions- klúbþsins Freys gjöf, sem Freys- félagar færðu Blindrafélaginu og Blindravinafélaginu i gær. Freys- félagar færðu félögunum tvær rit- sjár og einn skynjara að gjöf. Rit- sjáin er fremur litið og meðfæri- legt tæki, sem gerir blindum kleift að lesa allar venjulegar bækur. Rafauga er á ritsjánni, sem hinn blindi ber að letri bókarinnar. Augað nemur letrið og kemur þá leturmyndin fram á ritsjánni, þannig að hinn blindi getur skynjað letur bókarinnar með fingurgómunum. Auk ritsjárinnar gáfu Freys- félagarnir einn skynjara, en það tæki er ætlað kennara, er kennir blindum nemendum meðferð rit- sjárinnar. Kemur mynd af letur- borðinu fram á skynjaranum, þannig að kennarinn getur fylgzt með þvi, hvort nemandinn skynj- ar letrið rétt. Ritsjáin er tiltölulega nýtt tæki, var reynd i fyrsta sinn 1970. Blindir menn, sem hafa notað þetta tæki, hafa getað lesið allt að 83 orð á minútu. Verð ritsjánna og skynjarans hingað kominna var 704 þúsund og höfðu þá allir tollar verið eftirgefnir. Rússajeppi Rússajeppi árg. 1971, blæju- bíll, til sölu. Upplýsingar i sima 99-4046. Auglýsicf í Timanum ÞAÐ ER I KVOLD sem ÍBV og Borussia Möchengladhach leika Laugardalsvellinum KL. 17,30 a Missið ekki af stórleik ársins

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.