Fréttablaðið - 04.12.2004, Page 20
20
Opnar allar
flóðgáttir
HAPPDRÆTTISÁLIT EFTA:
SPURT OG SVARAÐ
Hvað er Sundabraut? Sundabraut er
heiti á fyrirhuguðum vegi sem mun
liggja frá Sæbraut í Reykjavík yfir
Kleppsvík og að Hallsvegi í Grafarvogi.
Þar sem Sundabrautin telst til þjóð-
vegar í þéttbýli er framkvæmdin sam-
starfsverkefni Reykjavíkurborgar og
Vegagerðarinnar.
Hvers vegna Sundabraut? Hugmyndin
með framkvæmdinni er að tryggja betri
samgöngur milli norðurbyggða höfuð-
borgarsvæðisins og miðborgarsvæðisins
ásamt suðurhluta höfuðborgarsvæðis-
ins. Einnig er Sundabrautin talin auka
umferðaröryggi í borginni til muna.
Hvaða valkostir eru í stöðunni og
hvað kostar framkvæmdin? Þrír val-
kostir hafa verið til skoðunar með mis-
munandi útfærslum. Í fyrsta lagi hábrú
sem yrði ríflega 50 metra há og kostar
um tólf milljarða króna. Skip á leið til
Sundahafnar myndu fara undir brúna. Í
öðru lagi botngöng sem kosta ríflega 13
milljarða. Í þriðja
lagi leið III þar
sem lágreist brú
inni í Elliðavogi,
fyrir innan
Sundahöfn,
tengir Sæbraut-
ina við Gufunes-
höfðann. Leið III
kostar á bilinu
sjö til níu millj-
arðar króna eftir því hvaða útfærsla
verður fyrir valinu. Vegagerðin hefur lýst
því yfir að hún vilji fara leið III. Borgar-
yfirvöld hafa ekki gefið formlega upp
hvaða leið þau vilja fara en hafa þó litið
jákvæðum augum til hábrúarinnar.
Er sátt um Sundabrautina í borg-
arpólitíkinni? Full sátt er milli fulltrúa
R-listans og Sjálf-
stæðisflokks að
leggja út í fram-
kvæmdina. Hins
vegar hafa borgar-
fulltrúar deilt um
það hvenær eigi að
fara í framkvæmd-
ina. Það olli nokkru
fjaðrafoki þegar R-
listinn lýsti því yfir
að hann hygðist setja Sundabrautina í
forgang á kostnað mislægra gatnamóta
á mótum Kringlumýrarbrautar og Miklu-
brautar. Sjálfstæðismenn voru ósáttir
við þá ráðstöfun og töldu brýnt að
byggja mislægu gatnamótin sem fyrst.
Hvaða áhrif hefur Sundabrautin á
umhverfið? Þann 22. nóvember síðast-
liðinn úrskurðaði Skipulagsstofnun um
mat á umhverfisáhrifum framkvæmdar-
innar. Stofnunin telur að að uppfylltum
ákveðnum skilyrðum muni brautin ekki
hafa umtalsverð umhverfisáhrif í för
með sér. Ef skilyrðin verða ekki uppfyllt
er hætta á að framkvæmdir vegna
Sundabrautar geti haft áhrif á lífríki í Ell-
iðavogi, til dæmis laxagengd í Elliðaár.
Hvenær á að hefja framkvæmdir? Það
er ekki ljóst hvenær framkvæmdir hefj-
ast en hugsanlegt er að það verði á
næsta ári. Fyrsti áfangi framkvæmdar-
innar tekur þrjú til fjögur ár. ■
Tryggja á betri samgöngur og bætt umferðaröryggi
FBL GREINING: SUNDABRAUT
4. desember 2004 LAUGARDAGUR
Núverandi stjórnmáladeilur í
Úkraínu má rekja til þjóðernis-
vakningar í landinu. Landið skipt-
ist í tvö ólík héruð: Vestur-Úkra-
ínu sem var lengst af hluti af
Póllandi og var ekki innlimað í
Sovétríkin og Úkraínska sam-
bandslýðveldið fyrr en eftir síðari
heimsstyrjöld árið 1945. Austur-
hlutinn var innlimaður í Rússland
árið 1654.
Arnór Hannibalsson, prófessor
í heimspeki, segir að það hafi ráð-
ið úrslitum um að Rússland gat
gerst stórveldi. Arnór stundaði
nám í rússneskum og pólskum há-
skólum og hefur fylgst með
stjórnmálum á svæðinu síðan.
Hann segir að fyrir 1654 hafi
Rússland verið landlukt ríki sem
hafi lagt grunninn að rússneska
stórveldinu með því að ná yfirráð-
um yfir Úkraínu. Enn í dag séu
stórveldisdraumar Rússa bundnir
þessu svæði. Þess vegna hafi
Vladimir Pútin, forseti Rússlands,
stutt Janukovitsj sem nýtur
stuðnings rússneskumælandi
manna í austurhluta landsins.
„Hluti af valdaelítunni í Rússlandi
lítur enn á Úkraínu sem suður-
hluta Rússlands,“ segir Arnór.
„Þeir gera sér grein fyrir því að
Rússland geti verið stórveldi, en
það er háð Úkraínu. Án hennar
eru rússnesk áhrif í Mið-Asíu
varla hugsanleg. Hins vegar vilja
Úkraínumenn í vesturhlutanum
ekki vera stoð undir slíku stór-
veldi.“
Vesturhlutinn hefur lengst af
tilheyrt Póllandi. Fólk sem býr
þar horfir til vesturs og lítur á sig
sem Evrópubúa. Í austurhlutan-
um býr hins vegar mikill fjöldi
Rússa sem var fluttur þangað
eftir seinni heimstyrjöld til að
vinna í námum og iðnverksmiðj-
um. Þeir vilja frekar rækta
tengslin við Rússland en Evrópu.
Guðmundur Ólafsson hagfræð-
ingur stundaði nám í Sovétríkjun-
um og þekkir þess vegna vel til
þessa heimshluta. Hann segir að
Austur-Úkraína hafi verið undir
stjórn Rússa í 300 ár og skipulega
hafi verið unnið að því að bæla
þjóðernisvitund þeirra. Rússa-
keisarar hafi bannað úkraínsku og
nefnt landið Litla-Rússland. Rúss-
neska hafi verið notuð í skólum og
á nítjándu öld hefði látið nærri að
úkraínska yrði útdauð. Þegar
keisaraveldið hrundi hafi Úkraína
hins vegar orðið sjálfstætt ríki í
tvö ár, frá 1918 til 1920. Rauði
herinn innlimaði landið síðan í
Rússland og breytti því í lýðveldi
innan Sovétríkjanna.
Guðmundur segir að í kjölfar
þess hafi hörmungar riðið yfir
landið. Stalín hafi komið á
samyrkjubúum og útrýmt úkra-
ínskum landeigendum. Í þeim að-
gerðum hafi að minnsta kosti
fimm milljónir manna dáið úr
hungri og þrjár milljónir í fanga-
búðum. Til að styrkja völd stjórn-
arinnar í Moskvu yfir Úkraínu
hafi Rússar verið fluttir í stórum
stíl til landsins og Krímskagi sam-
einað því. Landið, eins og það er
nú, er því um margt sköpunar-
verk kommúnista að mati Guð-
mundar.
En úkraínska þjóðin missti
aldrei sjónar á eigin arfleifð og á
síðari árum hefur orðið þjóðernis-
vakning meðal hennar. Þessi
vakning hefur borist víða, enda
má áætla að auk 35 milljóna Úkra-
ínumanna sem búa í landinu sjálfu
búi um 15 milljónir þeirra í Rúss-
landi og um 20 milljónir í Kanada
og Bandaríkjunum. Þetta er því
um 70 milljóna manna málsam-
félag. Eftir fall Sovétríkjanna
ákváðu Úkraínumenn í atkvæða-
greiðslu að lýsa yfir sjálfstæði.
Guðmundur segir að þá hafi
komist til valda menn sem höfðu
sterk tengsl við glæpaklíkur
og nýríka auðmenn, svonefnda
ólígarka. Hinn rússneski mælandi
Janukovitsj sé afsprengi þessara
afla. Hins vegar sé hinn úkra-
ínsku mælandi Júsjenko sem nýt-
ur stuðnings í vesturhluta lands-
ins engu skárri og hann nýti sér
þjóðernisrembu til hins ýtrasta.
Þarna séu tveir skúrkar að takast
á um völdin. ghg@frettabladid.is
! "#
!
"!# $%%
&
' (
!#) $%%***+ Eftirlitsstofnun
EFTA hefur
gefið ríkis-
stjórninni þrjá
mánuði til að
breyta lögum
um happ-
drætti, þar
sem þau
stangist nú á
við EES-samn-
inginn. Svo
virðist sem
glufa hafi
opnast þannig
að erlend happdrætti geti sótt um
starfsleyfi hér.
Hvað segja forráðamenn íslensku
flokkahappdrættanna?
„Það kemur mjög á óvart. Við höfðum
leitað álits EES vegna sérstöðu Happ-
drættis Háskóla Íslands, sem eitt
happdrætta hefur leyfi til að greiða út
í peningum, en vöruflokkahappdrættin
SÍBS og DAS ekki. Við höfum talið að
þetta sé mismunun og fengið að það
sé nú ekki, þetta falli innan ramma
EES. Nú allt í einu á að opna allar
flóðgáttir fyrir almenn happdrætti.“
Munuð þið bregðast við þessu?
„Við verðum bara að mæta þessu.
Fyrst er að sjá hvers konar happdrætt-
isform það eru sem ætla að reyna að
hasla sér völl hér á landi.“
Horfir illa fyrir vöruflokkahapp-
drættunum?
„Já, ef þau bregðast ekki við með ein-
hverjum hætti. Nú sýnist mér forráða-
menn þeirra þurfa að setjast niður og
velta alvarlega vöngum yfir hvernig
þessu verði mætt.“ ■
HÁBRÚ VIÐ SUNDAHÖFN
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/O
N
N
O
GUÐMUNDUR
HALLVARÐSSON
Í Úkraínu eru tvær þjóðir
Úkraína skiptist milli Evrópuþenkjandi landsmanna í vesturhluta landsins annars vegar og íbúa
þess í austurhlutanum sem vilja aukið samstarf við Rússa. Deilur milli þessara hópa ná langt aftur.
Í KÆNUGARÐI
Þúsundir hafa mótmælt niðurstöðum forsetakosninga í landinu.